Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
Eykur lagabreyting
á misrétti til náms?
eftir Bergsvein
Auðunsson
Um áramót breyttust lög um
rekstrarkostnað grunnskóla þegar
ný lög voru sett um verkaskiptingu
milli ríkis og sveitaríelaga. I stuttu
máli taka sveitarfélögin á sig allan
kostnað við rekstur grunnskólanna,
nema að greiða kostnað við kennslu
og stjórnun auk starfa á skóla-
safni. Þá greiða sveitarfélög allan
stofnkostnað þeirra, nýjar bygging-
ar, viðhald, búnað, kostnað við
heimavist o.s.frv.
Hafa smærri sveitarfélög
bolmagn til þess að reka
grunnskóla sína sómasamlega?
Ástæða þess að ég vek athygli á ■
þessu máli er sú, að ég óttast að
breytingin verði til þess að auka á
misrétti bama þessa lands til náms.
Að fámenn og fátæk sveitarfélög
hafi ekki bolmagn til þess að reka
skólana sómasamlega. M.a. vegna
þess að oft þurfa einmitt þessi sveit-
arfélög að annast mikinn akstur
með nemendur til og frá skóla.
Áður bar ríkissjóður 85% kostnaðar
við skólaakstur, en nú fellur hann
að öilu leyti á sveitarfélögin. Við
skólann, þar sem ég þekki best til,
lítur dæmið þannig út, að skólaakst-
m' kostar um 2,4 milljónir á ári, eða
rúmar 18.000 kr. á nemanda. Áður
greiddi sveitarfélagið 400.000 kr.
og ríkissjóður 2.000.000 kr. Nú
Scandinavian-
Japan Sasakawa
sjóðurinn:
Islandsdeild
undiijbúin
með 100 millj-
óna stoftifé
JAPANSKUR auðkýfingur, stofn-
andi Scandinavian-Japan Sa-
sakawa sjóðsins, hefiir boðist til
að stofina sérstaka deild hér á
landi. Sjóðurinn starfrækir deildii'
á fjórum öðrum Norðurlöndum.
Fyrirhugað er að leggja fram á
annað hundruð milljónir íslenskra
króna til íslandsdeildar sjóðsins.
Sonur mannsins, ásamt fleirum,
kom hingað til lands í fyrra og
kynnti málið fyrir forseta íslands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur. Að sögn
Kornelíusar Sigmundssonat' forseta-
ritara sendi hún ríkisstjórninni málið
til umfjöllunar.
Scandinavian-Japan Sasakawa
sjóðurinn hefur veitt styrki m.a til
fræðimanna, námsmanna, ritstjóra
og listamanna sem hafa viljað dvelja
í Japan um nokkurra mánaða skeið
til að fræðast um ýmis rnál þar í
landi. Tilgangur sjóðsins er að efla
og styrkja tengsl Norðurlandaþjóð-
anna og Japana.
Kornelíus sagði að forsetanum
hafi verið falið að koma á framfæri
vilja'og þakklæti íslenskra stjórn-
valda. Hann sagði að málið væri á
frumstigi og ætti eftir að setja regl-
ur um sjóðinn og skipa stjórn hans.
Hann sagðist þó gera ráð fyrir að
sjóðurinn gæti tekið til starfa hér á
landi um næstu áramót..
■ NEYTENDASAMTÖKIN
efnn tíl fundar að Borgartúni 6,
um EB-EFTA og neytandinn. Setn-
ingu annast Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna. Ávörp flytja Jón Sigurðsson,
viðskiptaráðherra, Benedicte Fed-
erspiel, forstjóri danska Neytend-
aráðsins, Ólafúr Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félaga íslenskra
iðnrekenda og Sólrún B. Jens-
dóttir, deildarstjóri í Menntamála-
ráðuneytinu. Þeir sem áhuga hafa
á að sækja fundinn eru vinsamleg-
ast beðnir um að tilkynna þátttöku
sína fyrir kl,12 ámorgun, föstudag.
„Ég óttast að breyting-
in verði til þess að auka
á misrétti barna þessa
lands til náms.“
fellur allur kostnaðurinn á sveitar-
félagið og er rúmur fjórðungur af
öllu framlagi þess til skólamála á
árinu! Þá er einnig hætta á að
skólarnir verði útundan vegna vin-
sælli verkefna og mála sem betur
eru til atkvæðaveiða fallin. Mjúku
gildin víki fyrir þeim harðari.
Þessi atriði geta orðið til þess
að sterk sveitarfélög laði að sér
Bergsveinn Auðunsson
fólk sem hin veikari hafa síst efni
á að missa. Stuðli enn frekar að
ójafnvægi í byggð landsins — en
tæpast er það ætlunin? Ljóst er, að
þeir fpreldrar, sem telja hag barna
sinna best borgið með góðum og
öflugum skólum, ákveða búsetu
með tilliti til þess að þeir séu fyrir
hendi.
Öflugir skólar eru hornsteinar
Rétt er að geta þess, að sveitarfé-
lög fá tekjustofna sem geta vegið
upp á móti þessum auknu útgjöld-
um. En nota þau þá til þess? Ég
hef rökstuddan grun um að svo sé
ekki í öllum tilfellum, heldur þvert
á móti veit ég til þess, að sum sveit-
arfélög nota tækifærið til þess að
þrengja fast að rekstri skólanna.
Má þar nefna' minnkuð framlög til
félagsmála nemenda, minni framlög
til kaupa og umsjónar og eftirlits
með tækjum skólanna, lækkun á
framlögum til almenns reksturs
þeirra o.s.frv. Ég vil því alvarlega
brýna almenning, starfsmenn
skólanna og forystumenn kennara-
______________________________17
samtakanna til að standa þétt sam-
an og gæta dyggilega hagsmuna
barna landsins. Að sjá til þess að
staðið verði við þær væntingar lög-
gjafans að skólarnir dragi ekki úr
gæðum sínum og þjónustu við nem-
endur, mesta auð þjóðarinnar, með
tilkomu hinna breyttu laga.
Nú um stundir er mikið rætt um
vímuefnaneyslu unglinga. í mínum
huga eru þróttmiklir, lifandi skólar,
reknir í anda mannræktar, eitt
sterkasta vopnið í baráttunni gegn
vímuefnaneyslu barna og unglinga.
Því má ekki skammsýni og sofanda-
háttur verða til þess að draga úr
skólunum kraft og þor til mikilla
átaka í ræktun lands og lýðs. Öflug-
ir skólar eru hornsteinar góðra og
geðþekkra samfélaga, þar sem
fijáls, skapandi hugsun og kærleik-
ur ríkir.
Höfundur er skólasljóri í
Stóru-Vogaskóla.
TOSHIBA
VAL ÞEIRRA VANDIATII!
Gerd V39 CD: • Magnari 140 DIN wött •
FM/LW/MW útvarp meö 29 stööva minni og
sjálfleitara • Tvöfalt kassettutæki með
„Dolby" • Sjálfvirkur reimdrifinn plötuspil-
ari • 5 banda tónjafnari • 3 geisla spilari
meö 32 laga minni • „surround sound
system“ • 2 þrefaldir hátalarar • 42 liða
fjarstýring og margt fleira.
Verð kr. 93.900
eöa kr.
87.300
stgr.
Gerð V29 QD: • Magnari 90 din wött •
FM/LW/MW útvarp með 29 stöðva minni og
sjálfleitara • Tvöfalt kassettutæki með
„Dolby“ • Sjálfvirkur reimdrifinn plötuspil-
ari • 5 banda tónjafnari • 3ja geisla spilari
meö 32 laga minni • „Surround sound
system“ • 2 þrefaldir hátalarar • 25 liða
fjarstýring og margt fleira.
Fullt verö kr. '76:900
Tilboðsverð kr. 69.200
eða kr.
65.700
stgr.
í tilefni ferminga á næstunni bjóö-
um viö nú 2 nýjustu gerðirnar af
TOSHIBA hljómtækjasamstæðum á
sérstöku tilboösveröi. Ýmsar aðrar
gerðir eru að auki fáanlegar með eða
án geislaspilara.
Nýju T0SHIBA hljómtækin hafa
hlotið frábærar viðtökur og einróma
lof fagmanna í erlendum fagtímarit-
um. Betri hljómgæði en nokkur sinni
fyrr, nýtt glæsilegt „professional"
útlit, og hagstætt verð gera því
T0SHIBA að vali þeirra vandlátu í
dag!
Gerö SL 3149: • Magnari 40 múslkwött •
FM/LW/MW útvarp með 18 stööva minni •
Tvöfalt kassettutæki • Hálfsjálfvirkur
reimdrifinn plötuspilari • 3 banda tónjafnari
• 3 geisla spilari með 32 laga minni •
„surround sound system'' • 2 tvöfaldir há-
talarar og margt fleira.
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartuni 28 - “2 16995 og 622900
Fullt verð kr. 55.900
Tilboðsverð kr. 49.900
eðakr. 47.40C I stgr.
Ángeislaspilarakr 24.60C I stgr.