Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
19
Samtökin Barnaheill:
Frá og með 5. apríl 1990 verða á vegum Veður-
stofu íslands og Pósts og síma teknir í notkun
nýir símsvarar, þar sem landsmönnum öllum
er í sömu símanúmerum og fyrir sama gjald
boðið upp á eftirfarandi upplýsingar:
S. 990600: KYNNING OG ALLIR
VALKOSTIR.
S. 990601: Veður og veðurhorfur fyrir
landið í heild.
S. 990602: Veðurspá fyrir einstök spá-
svæði á landi og miðum.
S. 990603: Veður og veðurhorfur á höf-
uðborgarsvæðinu.
S. 990604: Veðurlýsing fyrir valdar er-
lendar veðurstöðvar.
S. 990605: Flugveðurskilyðri yfir íslandi
að degi til.
Símsvarinn s. 17000 verður tekinn úr
notkun.
Sjóður stofnaður til að
bæta hag íslenskra barna
SAMTÖKIN Barnaheill hafa stofti-
að sjóð, sem nota á til að bæta
hag íslenskra barna. Hægt er að
styrkja sjóðinn með heillaóska-
kortum, sem menn geta sent vin-
um og vandamönnum með kveðju
á aftnælisdögum og öðrum merkis-
dögum þeirra. Samtökin Barna-
heill voru stofiiuð á degi Samein-
uðu þjóðanna, 24. október síðast-
liðinn, til að vinna að bættum hag
barna og fjölskyldna þeirra og
hafa áhrif á viðhorf til barna í
þjóðfélaginu, að sögn Páls As-
geirssonar yfirlæknis og formanns
samtakanna.
Fyrsti félagi Barnaheilla var for-
seti íslands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir. Félagsmenn eru nú á fjórða
hundrað talsins og nokkur fyrirtæki
og félög styrkja samtökin með reglu-
legum fjárframlögum.
Skrifstofa Barnaheilla er í Lág-
múia 5 í Reykjavík og skrifstofu-
stjóri er Hanna Dóra Þórisdóttir.
Hægt er að kaupa heillaóskakort
Barnaheilla á skrifstofu samtakanna,
svo og hjá flestum umbpðsmönnum
Happdrættis Háskóla íslands um
land ailt. Til styrktar samtökunum
verða haldnir tónleikar í Borgarleik-
húsinu 11. apríl næstkomandi, þar
sem leikin verður bæði klassísk og
létt tónlist.
Páll Asgeirsson og Hanna Dóra
Þórisdóttir sögðu í samtali við Morg-
unblaðið að samtökin stæðu fyrir
málþingi 27. apríl næstkomandi, sem
hefði yfirskriftina „Börn á íslandi".
Baldur Kristjánsson sálfræðingur
flytur þar erindi um börn og stjórn-
völd og rannsóknir á börnum og Sigr-
ún Júlíusdóttir félagsráðgjafi ræðir
um könnun, sem hún hefur gert á
aðstæðum íslenskra fjölskyldna.
Morgunblaðið/Bjami
Páll Asgeirsson formaður samtakanna Barnaheill og Hanna Dóra
Þórisdóttir skrifstofusljóri samtakanna.
Samtökin standa einnig fyrir tveimur
málþingum í haust, þar sem fjallað
verður um umboðsmann barna og
fóstrun. Einnig er hugsanlegt að
málþing um slys á börnum verði
haldið næsta vetur.
Að sögn Páls og Hönnu Dóru hafa
tvö frumvörp verið lögð fram á Al-
þingi um umboðsmann barna en þau
hafi ekki náð fram að ganga. Mál-
efni barna séu hins vegar næst-
stærsti málaflokkurinn, sem umboðs-
maður Alþingis fær til meðferðar.
Páll og Hanna Dóra sögðu að
íslenskir fósturforeldrar gætu ekki
fengið nægilegan stuðning frá fé-
lagsmálastofnunum vegna fjárskorts
og manneklu hjá þessum stofnunum.
Einnig vantaði hér meðferðarheimili
fyrir um 20 börn, sem ættu við mik-
il félagsleg vandræði og geðræn
vandamál- að stríða. Þau sögðu að
slys á börnum væru algengari hér
en í nágrannalöndum okkar og til
dæmis þyrfti að kanna hverjar orsak-
irnar væru fyrir því.
I lögum samtakanna Barnaheill
segir meðal annars að þau vinni að
öllu, sem geti orðið börnum, bæði
hérlendis og erlendis, til hagsbóta
hvað varðar þroska, menntun, heil-
brigði og félagslega aðstöðu. Einnig
styðji þau rannsóknir, forvarnir,
menntun og útgáfustarfsemi, sem
stuðlað geti að bættum kjörum barna
hérlendis og beiti sér fyrir hvers
konar fjáröflun til að stuðla að fram-
gangi þessara verkefna.
í lögum samtakanna segir einnig
að þau hafi það að stefnumarki að
vera málsvari barna í samfélaginu,
meðal annars með því að fá ríki,
sveitarfélög og félagasamtök til að
auka velferð barnanna, hafa áhrif á
lagasetningu og gera almenning og
stjórnmálamenn betur meðvitaða um
börn og aðbúnað þeirra. Samtökin
taki þátt í alþjóðlegu samstarfi Save
the Children Alliance og vinni með
hliðstæðum samtökum á öðrum
Norðurlöndum. Barnaheill muni
einnig stuðla að því að koma upp
félagsdeildum í byggðarlögum lands-
ins og styðja starfsemi þeirra.
Galdurinn við góðan dag er að
byrja hann með hollum og góð-
um mat. Skólajógurt er kjörin fyrir
þó, sem vilja nó órangri í leik og
starfi. Fóðu þér skólajógurt alltaf
þegar þig langar f eitthvað gott.
Skólajógurt er ekki bara bragð-
góð heldur líka nœrandi og
styrkjandi.
Pú getur valið um skólajógurt
með súkkulaði- og jarðarberja-
bragði eða ferskjum, allt eftir því
hvað heimilisfólkið þitt vill.
I leik og starfi
Cr^+h i el/AI/*'iiAm ir+ dfc+ /4 ir»nl/m inn-
ÞÓRHILDUR/SlA