Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
Miðbær;
Fjórarlausar
lóðir auglýstar
BÆJARSTJÓRN hefiir heimilað
að auglýstar verði til umsóknar
lausar lóðir í miðbæ Akureyrar,
en alls er um að ræða fjórar
lóðir.
Lóðirnar sem um er að ræða
eru við Skipagötu 16, sunnan Al-
þýðuhússins, og þá verða veittar
þrjár lóðir vestan Drottningar-
brautar og sunnan Kaupvangs-
strætis. Lóðirnar verða auglýstar
innan tíðar.
Framsóknar- og
vinstri menn;
Valdimar
efstur á fram-
boðslistanum
Framboðslisti framsóknar-
manna og vinstri manna til
bæjarstjórnarkosninganna á
Dalvík hefur verið birtur.
í fyrstu sjö sætunum eru: Valdi-
mar Bragason, bæjarfulltrúi, Guð-
laug Björnsdóttir, bæjarfulltrúi,
Rafn Arnbjörnsson, frjótæknir,
Einar Arngrímsson, málari, Inga
Ingimarsdóttir, snyrtifræðingur,
Símon Páll Steinsson, útgerðar-
maður, og Helga Eiríksdóttir,
bankamaður.
■ JAFNAÐARMANNAFÉLAG
Dalvíkur hefur gengið frá fram-
boðslista sínum fyrir kosningar til
bæjarstjórnar í vor. í fyrsta sæti
er Jón Gunnarsson framleiðslu-
stjóri, Símon Ellertsson fram-
kvæmdastjóri er í öðru sæti, Þóra
Rðsa Geirsdóttir kennari er í þriðja
;æti, Halldór Guðmundsson for-
stöðumaður í fjórða og Ólafúr
Árnason rekstrarstjóri í fimmta. í
sjötta sæti er Helga Matthíasdótt-
ir húsmóðir, Einar Emilsson um-
sjónarmaður í sjöunda, Helga
Árnadóttir skrifstofumaður í átt-
unda, Bjarni Gunnarsson sjómað-
ur í níunda og í tíunda sæti er
Grétar Kristinsson verkamaður.
Myndin er tekin á æfingu á Fátæku fólki og sýnir þegar verkamenn fóru í fyrstu 1. maí kröfiigönguna
sem farin var hér á iandi.
Leikfélag Akureyrar:
„Fátækt fólk“ frumsýnt
Verkið er byggt á endurminningabókum Tryggva Emilssonar
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýnir nýtt íslenskt leikrit, Fátækt fólk,
eftir viku, miðvikudaginn 11 apríl. Fátækt fólk er leikgerð Böðvars
Guðmundssonar af endurminningabókum Tryggva Emilssonar; Fá-
tæku fólki og Baráttunni um brauðið.
Yfir 40 leikendur taka þátt í
sýningunni, auk hljóðfæraleikara,
en í verkinu er mikið sungið af
baráttusöngvum. Áhorfendur
kynnast æskuárum Tryggva í
Öxnadal, baráttu hans og fjölskyld-
unnar fyrir lífsviðurværi á tímum
atvinnuleysis og þrenginga. Þar er
barist upp á líf og dauða við fá-
tækt, hungur, óblíð náttúruöfl,
misrétti, ójöfnuð, mannskæða sjúk-
dóma og jafnvel drauga. Frá því
er sagt hvernig bláfátækur sveita-
drengur, sem aldrei missir trúna á
hið besta og fegursta í lífinu gerir
sér smám saman grein fyrir að
hann býr ekki aðeins við harðræði
almættis og höfuðskepna heldur
einnig óréttlæti mannanna.
Tryggvi gerist verkamaður á
Akureyri, atvinna er lítil og misk-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ingvar Már Gíslason, leikur
Tryggva ungan. Árni Tryggva-
son er sögumaður.
unarleysi kreppunnar algjört. Þessi
fyrri hluti verksins nær yfir árin
1921-30, en í síðari hlutanum, frá
1930-33 dregur til tíðinda, þegar
verkamenn bindast samtökum og
skipulögð verkalýðsstarfsemi með
verkföllum og pólitískum stórat-
burðum ryðja brautina fyrir réttlát-
ari skiptingu auðsins. Sviðsettir eru
margir atburðir úr sögu Akur-
eyrar, afdrifarík kröfuganga 1. maí
1931 og Novu-slagurinn þegar
verkfallsmenn börðust við hvítliða-
sveit bæjarstjórnar svo lá við
„borgarastyijöld“.
Leikstjóri er Þráinn Karlsson,
leikmynd og búninga gerir Siguijón
Jóhannsson, lýsingu hannar Ingvar
Björnsson og tónlist og áhrifshljóð
semur Þorgrímur Páll Þorgríms-
son. Árni Tryggvason fer með hlut-
verk sögumanns, en með hlutverk
smala og verkamanns (Tryggva
Emilssonar) fara þeir Sigurþór Al-
bert Heimisson, Ingvar Már Gísla-
son og Arnar Tryggvason.
Bygginganeftid VMA:
Vantar 30 millj. til að ljúka
við fímmta áfanga skólans
UM 30 milljónir króna vantar
upp á svo unnt verði að koma
austurhluta 5. áfanga A við
Verkmenntaskólann á Akureyri
í gagnið. Bygginganefhd VMA
fór fram á við bæjarstjórn að
hún beitti sér fyrir því að tekið
yrði 30 milljóna króna lán til
byggingaframkvæmda svo
hægt verði að standa við þær
áætlanir að nemendum verði
sköpuð félagsaðstaða fyrir
næstu haustönn. Bæjarráð hafn-
aði tillögu bygginganefiidar á
fundi sínum í síðustu viku, en á
fundi bæjarstjórnar í fyrradag
var ákveðið að vísa málinu aftur
tjl umQöllunar í bæjarráði.
Magnús Garðarsson sem umsjón
hefur með byggingu skólans sagði
að vissulega væri brýnt að ljúka
þessum áfanga, menn horfðu til
þess með skelfingu ef 250 nemend-
ur bættust við í skólann upp á
Eyralandsholti á næstu haustönn
án þess að félagsaðstaða yrði bætt.
í 5. áfanga A er um að ræða aðal-
sal skólans og aðstöðu fyrir nem-
endur.
Áætlanir um byggingu VMA
gerðu ráð fyrir að bóknámsálma
6. áfanga og 5. áfangi A, yrðu full-
gerðá haustönn 1990, en með þeim
ijárveitingum sem ætlaðar eru til
framkvæmda við skólann verður
unnt að ljúka 6. áfanga, en um 30
milljónir vantar upp á að hægt verði
að koma austurhluta 5. áfanga A
í nothæft ástand. Að þessum tveim-
ur áföngum loknum er alls lokið
við byggingu 60-70% af heildar-
byggingum \’ið skólann, að sögn
Magnúsar.
■Stefnt er að því að nemendur i
tréiðnaðardeild og á hússtjórnar-
sviði komi inn í skólann á Eyra-
landsholti, en þeir stunda nú nám
sitt í gamla Iðnskólahúsinu og í
húsmæðraskólanum. Þá hefur skól-
inn haft til umráða fjórar kennslu-
stofur í íþróttahöllinni og er reiknað
með að í haust verði hægt að flytja
nemendur sem þar hafa verið upp
á holtið.
Á fundi bæjarstjórnar í fyrradag
var samþykkt að vísa lántöku vegna
Arskort
seld í sund-
laugarnar
FYRIRHUGAÐ er að taka upp
sölu árskorta í sundlaugar bæjar-
ins og einnig munu öll kort sem
keypt eru gilda jafiit í báðar laug-
arnar.
Sigbjörn Gunnarsson formaður
íþróttaráðs sagði að sala árskorta
myndi að líkindum hefjast á næst-
unni og myndi það gilda hvort held-
ur sem er í Sundlaug Akureyrar eða
sundlaug við Glerárskóla. Þá yrðu
öll kort sem keypt yrðu einnig sam-
eiginleg í báðar laugar. „Ég vona
að þetta fyrirkomulag verði til hags-
bóta fyrir þá sem iðka sundíþótt-
ina,“ sagði Sigbjörn.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi
sínum í fyrradag hækkun á verðskrá
sundlauganna og kostar nú 100
krónur fyrir fullorðna í sund og 45
krónur fyrir börn. Kort með tíu mið-
um fyrir fullorðna hækkar úr 750
krónum í 800 og fyrir börn úr 230
krónum í 260 krónur. Hækkunin er
í samræmi við samþykkt fjárhagsá-
ætlunar Akureyrarbæjar.
byggingaframkvæmda við VMA
aftur til bæjarráðs, en í fyrri viku
hafnaði bæjarráð erindi bygginga-
nefndar skólans og var það gert
með tilliti til þess að menntamála-
ráðuneytið hafði upplýst að kostn-
aður af hugsanlegri lántöku muni
að fullu falla á bæinn.
Sauðárkrókur:
Yerulegur
bati í rekstri
kaupfélagsins
Sauðárkróki.
Á fundi sem Þórólfúr Gíslason,
kaupfélagsstjóri, hélt nýlega með
fréttamönnum, kom fram að á
síðastliðnu ári varð verulegur bati
í rekstri Kaupfélags Skagfirðinga.
Heildarvelta félagsins jókst um
22,5% miðað við árið 1988, og
varð 2,323 milljónir króna.
Af einstökum rekstrarþáttum varð
mest veltuaukning í verslun, eða tæp
30%. Heildarvelta KS að meðtalinni
veltu Fiskiðjunnar var 2,8 milljarðar
1989, sem er um 33% aukning miðað
við fyrra ár.
Unnið var að hagræðingu í rekstri
á árinu og má þar nefna sameiningu
kjörbúðar við Skagfirðingabraut og
Skagfirðingabúðar, breytingar á
skipulagi og vöruvali í Varmahlíð og
fleira.
Af rekstrareiningum sem bættu
verulega rekstur sinn á árinu má
nefna útibúið í Varmahlíð, Skagfirð-
ingabúð og Mjólkursamlagið.
Eigið fé KS í árslok var 629,1
milljón og hafði aukist um 122 millj-
ónir frá. árinu 1988. Hlutfall eigin
fjár af heildarfjármagni er tæp 36%.
Fjármunamyndun í rekstri var 97,2
milljónir 1989 samanborið við 37,2
milljóna tap 1988.
Hagnaður varð af rekstrinum 16,7
milljónir samanborið við 36,8 millj-
óna tap 1988. Heildarfjárfesting fé-
lagsins var rúmlega 80 milljónir á
árinu og þar af um 55 milljónir vegna
hlutafjáraukningar í sjávarútvegi.
- BB.
Umhverfisneftid:
Tekur jákvætt í erindi um
að sleppa fiski 1 Leirutjörn
UMHVERFISNEFND hefur tek-
ið jákvætt í erindi frá Ferðaskrif-
stofu Akureyrar um að koma á
laxveiði í Leirutjörn. Leitað hef-
ur verið álits landbúnaðarráðu-
neytis og Veiðifélags Eyjafjarðar
vegna málsins og sjá þessir aðil-
ar ekkert því til fyrirstöðu að
fiski verði sleppt I tjörnina, að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum
um frárennsli.
Umhverfisnefnd leggur til að
leyfið verði veitt til tveggja ára og
að framkvæmdir verði í samráði
við umhverfisstjóra. Gísli Jónsson
framkvæmdastjóri sagði að snjór-
inn hefði torveldað mjög allar rann-
sóknir sem gera þyrfti á tjörninni
áður en fiski yrði sleppt út í hana
og ekki ljóst á þessari stundu hvort
hægt yrði að stunda veiðar við
tjörnina í sumar af þeim sökum.
Ef unnt verður að framkvæma
umræddar rannsóknir, m.a. á skil-
yrðum í tjörninni tímanalega, sagði
Gísli að ætlunin væri að sleppa
laxi og urriða í hana í svo miklum
mæli sem hún þyldi. Þá væri ætlun-
in að selja veiðileyfi, sem jafnt
heimamenn og ferðafólk gætu nýtt
sér.