Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
39
Á homaboltavelli himnasjólans
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin:
Draumavöllurinn — „Field of
Dreams“
Leikstjóri og handritshöfundur
Phil Alden Robinson. Tónlist
James Horner. Kvikmyndataka
John Lindley. Aðalleikendur
Kevin Costner, Amy Madigan,
James Earl Jones, Ray Liotta,
Burt Lancaster, Gaby Hoffman.
Bandarísk. Universal 1989.
Myndir um jákvæða bjartsýnis-
menn sem láta draumana rætast
eiga ekkert sérstaklega uppá pall-
borðið hjá framleiðendum í dag,
að maður tali ekki um ef þær íjalla
um framliðna og lifendur í bland —
og þeir látnu ekki zombíar, draugar
eða drísildjöflar heldur hinir við-
kunnaniegustu hornaboltagarpar
liðins tíma. Það má því segja að
efni þessarar ágætismyndar sé
harla óvenjulegt.
Bóndinn Costner fær köllun útá
miðjum kornakrinum, sem stendur
í blóma og sællegur bíður síns upp-
skerutíma, hann á að ryðja völlinn
og byggja í staðinn hornaboltavöll
á frjósömu akurlendinu. Hann
hristir höfuðið, en röddin þagnar
ekki. Og í óþökk vina og vanda-
manna og bankans, náttúrlega, fer
hann að skipununum að handan,
og viti menn, ótrúlegir hlutir fara
að gerast á velli kornbóndans.
Löngu brottgengnir hornabolta-
menn fára að tínast inná völlinn
og fyrr en varir fækkar efasemdar-
mönnum.. .
Hér svífur andi meistara Capra
og fleirri góðra kvikmyndagerðar-
manna frá fyrri hluta aldarinnar,
yfir vötnunum. Því óneitanlega
minnir Draumavöllurinn á hugljú-
far gamanmyndir þess tíma þegar
menn voru ósmeykir við að fjalia
um dálítið yfirskilvitlega hluti, allt
í þágu þess að göfga aðeins manns-
andann um leið og áhorfendur
skemmtu sér hið besta. Og nýliðinn
Robinson gerir betur, hann skapar
oft slíkt andrúmsloft hlýju og kær-
leika að manni líður vel á sál og
líkama að mynd lokinni sem minnir
þannig á Ekið með Daisy, annað
hljóðlátt, athyglisvert verk á þess-
um Rambótímum.
Robinson, sem sýnir gott hand-
bragð í handritsgerð og nokkrum
eftirminnilegum atriðum — þar sem
yfirlið dótturinnar og koma föður-
ins rísa hvað hæst — og hrífandi
heildarmynd, fær ómetanlega hjálp
frá valinkunnum listamönnum.
Costner gerir hinni ólíklegu per-
sónu bóndans svo trúverðug skil
að maður á erfitt með að sjá fyrir
sér myndina ef hans hefði ekki
notið við. Madigan er nokkuð há-
stemmd en dóttir þeirra er leikin
af snilld af Gaby Hoffman. Aukal-
eikararnir eru ekki af verri endan-
um, Liotta og einkum gömlu,
traustu Lancaster og Jones, gefa
Draumavellinum traustara og trú-
verðugra svipmót/ Tónlist Horners
á ríkan þátt í að gera myndina
eftirminnilega sömuleiðis kvik-
myndataka Lindleys. Hér er komin
hugdjörf, skemmtileg og mannbæt-
andi mynd sem enginn ætti að láta
fara framhjá sér.
Frönsk kvikmyndavika:
ENDURFÆÐING MANIKU
Manika
Leikstjóri Francois Villiers.
Aðalleikendur Julian Sands,
Stéphane Audran.
„Þetta voru allt saman fjalla-
menn, drengur minn,“ sagði hann
mér í bernsku, hann Doddi á Dag-
verðará, þar sem við vorum á ein-
hveiju lúðumiðinu útaf Jökli og
stirndi á sprökuna þar sem hún lá,
nýinnbyrt og ilmandi í kjalsoginu.
Þessi sjóbarða kempa, skáld, mál-
ari, aflakló, refabani, heimsborg-
ari, og ég veit bara ekki hvað, kom
mér nefnilega fyrstur í sanninn um
trúarbrögð mannkyns og hefur sú
kennsla staðist tímans tönn betur
en flest það sem ég hef numið
síðan. Ijallamennirnir voru náttúr-
lega Jesús Kristur, Múhammeð,
Búdda, Móses og þeir ágætu menn
aliir. Á einfaldan og rökréttan hátt
skellti hann þeim undir samnefnara
háfjalla og heiðríkju - allir höfðu
þeir haldið til ijalla að nálgast Guð
sinn, safna orku og fyllast hollustu
og sannfæringu. „Þetta er okkur
öllum ljóst sem stundað höfum fjöll-
in,“ kvað hin lífsreynda refaskytta
og heimspekingur, hans var einn
alheimsguð.
Þessar minningar rifjast upp
undir sýningu lítillar, ljúfrar,
franskrar myndar að nafni Manika.
Eins sagan af úlfhundinum Bokka,
í Óbyggðirnar kalla e. London, sem
fyrst fræddi mann um framhaldslíf
og endurfæðingu. Myndin fjallar
nefnilega um þetta tvennt, árekstra
trúarbragða — ef menn kannast
ekki við „Fjallamannakenninguna"
og endurfæðinguna.
Manika er ungur nemandi í Jes-
úítaskóla á suðurströnd Indlands
undir handleiðslu Sands. Hún telur
sig muna næsta líf sitt á undari -
hér hefur ekki lokast hurðin á milli
tilverustiga og fyrir tilstuðlan
Sands leitar hún uppi fyrri fjöl-
skyldu og umhverfi. En kaþólikk-
inn Sands kemst að sjálfsögðu í
skömm fyrir hliðhollustu við villu-
trú er hann heldur með þennan
uppáhaldsnemanda á vit fyrra til-
verustigs með þeim árangri að
hann aðhyllist ekki lengur bókstaf-
inn og gengur til liðs við frjálslynd-
an trúarsöfnuð á fjöllum uppi.
Enginn rembingur né fyrirferð í
þessari kvikmyndagerð og útkom-
an einkar viðkunnanleg án umtals-
verðrar reisnar. Efnið sjálft er eilíf-
lega forvitnilegt og því eru gerð
heiðarleg skil. Hér líðast engar trú-
arkreddur heldur sívakandi end-
urnýjun.
Manika er laglega gerð í flesta
staði, það er helst Sands sem ergir
áhorfandann vegna reisnarlítillar
framkomu og raddbeitingar. Ind-
versku leikararnir standa sig hins
vegar með ágætum, einkum telpan
sem leikur Maniku, og Audran, sem
bregður fyrir í smáhlutverki.
FULLBUÐ
AF VORVÖRUM:
gardeur
dömufatnaður
DIVINA — pils/blússur'sett
SEIDENSTICKER — blússur
Þýskar og ítalskar peysur
Herrabuxur — ull/polyester
riflað flauel
Herraskyrtur —
OSCAR of SWEDEN
UÓuntu.
verslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi
Opið daglega frá kl. 09.00-18.00
Laugardaga f rá kl. 10.00-14.00
SIEMENS
Ódýrir útvarpsvekjarar!
m
II
R6 283
• FM og miðbylgja.
• Vekur með útvaxps-
dagskrá eða
síhækkandi suði.
• Blundhnappur.
• Svæfir (upp í
119 mín.).
• Verð: 2850 kr.
RG 281
• FM og miðbylgja.
• Vekur með útvarps-
dagskrá eða
síhækkandi suði.
• Blundhnappur.
• Svæfir (upp í
119 mín.).
• Verð: 3490 kr.
SMITH&NORLAND
■
fv-
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
MEÐ HJÓLUM „
FYRIR PARKITT
OG DÚK
Bakvörð f
fermingargjöf
Fessi stóll styður vel við bakið og gætir þess að
þú sitjir rétt. Hann er með léttri hæðastillingu,
veltanlegu baki, fimm arma öryggisfæti og með
hjólum fyrir parkett og dúk.
Þetta er góö
fermingargjöf
cama
Hallarmúla 2 Sími 83211
Söluaöili Akureyri, Tölvutœki — Bókval.