Morgunblaðið - 05.04.1990, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
51
GRUNDARFJORÐUR
Einn stóll frá hverjum skipverja
Ahöfnin á togaranum Kross-
nesi færði Fellaskjóli, dval
ar- og hjúkrunarheimili aldraðra
í Grundarfirði, 100 þúsund krón-
ur að gjöf í byijun marsmánaðar.
„Einn stóll frá hveijum skip-
veija,“ sagði Hafsteinn Garðars-
son 1. stýrimaður á Krossnesinu
þegar áhöfnin afhenti Guðmundi
Smára Guðmundssyni gjaldkera
Fellaskjóls gjöfina. Féð er úr
áhafnarsjóði skipveija og verður
varið til kaupa á húsgögnum í
borðsal ásamt fé sem safnaðist
með sölu á ijómabollum en bollu-
dagurinn er að verða fastur fjár-
öflunardagur Fellaskjóls.
Nú er liðið rúmt ár frá því
Fellaskjól var tekið í notkun og
gengur starfsemin vel. Er það
ekki síst vegna hlýhugs heima-
manna til sjós og lands sem hafa
séð til þess að aldrei hefur verið
keyptur fískur né ýmislegt ann-
að. Auk þessa hafa margar
stærri gjafir borist, nú síðast
vegleg gólfklukka til minningar
um Sigurð Stefánsson, fyrsta
vistmann Fellaskjóls en hann lést
í desember. . - Ragnheiður
Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir
Hafsteinn Garðarsson afhendir Guðmundi Smára Guðmundssyni
gjöf frá áhöfh Krossness. Á myndinni er einnig hluti af áhöfninni
á Krossnesi og Eygló Guðmundsdóttir starfsmaður Fellaskjóls.
Séð yfír sal í óperuhúsinu í Wiesbaden meðan hlé stóð yfir á sýningunni
WIESBADEN
Tveir íslenskir óperu-
söngvarar í Don Giovanni
Kristinn Sigmundsson og Viðar
Gunnarsson sungu föstudag
inn 30. mars saman á sýningu á
óperunni Don Giovanni eftir Mozart
í Operunni í Wiesbaden í Vestur-
Þýskalandi. í framhaldi af því hefur
Viðari bo rist tilboð um starf við
óperuna, en þar hefur Kristinn Sig-
mundsson starfað sem fastráðinn
söngvari sl. ár.
Blaðamaður Morgunblaðsins sá
umrædda sýningu og ræddi við
íslensku söngvarana á eftir. Krist-
inn er fyrsti íslenski söngvarinn sem
ráðinn hefur verið að Óperunni í
Wiesbaden og kvað hann það heldur
óvenjulegt að tveir íslenskir söngv-
arar syngu saman í sýningu erlend-
is.
Að sögn þeirra Kristins og Við-
ars var það nánast einber tilviljun
Kristinn Sigmundsson og Viðar
Gunnarsson að lokinni sýningu á
Don Giovanni
COSPER
II174. COSPER
Hann er bara afbrýðisamur. Hann vill að þú kyssir sig líka.
sem olli því að Viðari hefur nú bor-
ist tilboð um starf í Wiesbaden.
Þegar hann var á ferð í Þýskalandi
fyrir skömmu gisti hann hjá Kristni.
Á sama tíma var haldið söngpróf
fyrir umsækjendur um störf við
Óperuna í Wiesbaden, sem er nú
raunar heldur óvenjulegur tími til
slíks að sögn Kristins. Viðar ákvað
að taka þátt í þessu söngprófi og
fór eftir það rakleiðis til Noregs þar
sem hann var búinn að ákveða að
syngja fyrir, eins og það er kallað.
Rétt eftir að hann fór var kallað
í Kristin og hann beðinn að ná tafar-
laust sambandi við Viðar. Einn af
söngvurum óperunnar hafði skyndi-
lega forfallast. Með hjálp konu Við-
ars tókst Kristni að hafa upp á
Viðari í þann mund sem hann var
að stíga um borð í flugvél sem var
á leið til Islands. Með harðfylgi
tókst honum að ná farangri sínum
og snúa við til Þýskalands og kvöld-
ið eftir söng hann á fjölum Ópe-
runnar í Wiesbaden hlutverk föður
Elvíru og hlutverk styttunnar sem
tortímir Don Giovanni í lok ópe-
runnar.
Kristinn og Viðar hlutu mjög
góðar viðtökur á sýningunni í Wies-
baden sl. föstudagskvöld. Blaða-
maður fékk sæti í stúku þaðan sem
hann gat fylgst vel með lófaklappi
og húrrahrópum sýningargesta. I
stúkunni hinu megin sátu forráða-
menn óperuhússins til að fylgjast
með frammistöðu Viðars. Hún var
slík að honum barst tilboð um starf
en hefur ekki enn svarað því. Þess
má geta að Viðar var ekki einn
gestasöngvari þetta umrædda
kvöld. Finnskur söngvari gekk al-
veg fyrirvaralaust inn í hlutverk
Laporello og söng það af miklu
öryggi. Samleikur og samsöngur
Kristins og hins finnska söngvara
var með þvílíkum ágætum að eftir-
minnilegt er.
ERT ÞU
AÐ LEITA?!
Höfum fengið aftur
hinar vinsælu spólur
með æfingum frá
Louise Hay
★ FeelingFineAffirmations
★ AngerReleasing
★ Chancer, DiscoverYourhlealing
Power
★ Forgiveness/Love Your Inner Child
★ Morning and Evening Meditations
★ You Can Heal Your Life
★ Self Healing/Loving Yourself
★ What I Believe/Deep Relaxation
★ Dissolving Barriers
Michael bækurnar:
★ Messages From Michael
★ Michael'sCastof Characters
★ Michael’sGemstone Dictionary
★ The World According to Michael
★ Michael Handbook
★ EarthtoTao
★ TaotoEarth
Bækur Joan Grant:
★ Winged Pharoah
★ FarMemory
★ Return to Elysium
★ LifeasCarola
★ BlueFaience
Hippopotamus
★ LordoftheHorizon
Bækur um stjörnuspeki,
kristalla og heilun
v)
Bækur um makrobiotik og heilsufæði
Úrval af spólum með slökunartónlist
Tarot spil í góðu úrvali
MONDIAL armbandið -
skartið sem bætir
Sérstæðar gjafavörur og skartgripir
Reykelsi, ilmolíur, veggspjöld, tímarit
Við höfum í umboðssölu stjörnukort eftir
Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking:
★ PERSÓNULÝSING ★ FRAMTÍÐARKORT ★ SAMSKIPTAKORT
Afgreidd á meðan beðið er eða send í póstkröfu.
Pantanasímar: (91)62 33 36 og 62 62 65.
Mondial ambandid er áhrifamikió skart
fyrirplús- og mínusorku líkamans
Tvær milljónir
Evrópubúa nota nú
Mondial daglega.
Virkni MONDIAL armbandsins felst
í pólunum sem eru hlaðnir 6 millivolta
spennu og talið er að hafi áhrif á plús-
og mínusorku líkamans í átt til jafn-
vægis og eykur þannig vellíðan.
Fjöldi fólks hérlendis og erlendis lofar áhrif þess,
sérstaklega varðandi streitu og svefnleysi. Armbandið er fallegt skart,
bæði fyrir konur og karla. MONDIAL er framleitt í þremur útlitsgeröum:
i fyrsta lagi silfurhúðað, í öðru lagi silfurhúðað með 18k gullhúðuðum
pólum og í þriðja lagi með 18k gullhúð.
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
Silfur.........kr. 2.590,-
Silfur/gull...kr. 2.590,-
Gull ..........kr. 3.690,-
becRMip
VERSLUN í ANDA
NÝRRAR
ALDAR
Laugavegi66- 101 Reykjavík '^■^'Símar: (91)623336-626265
Póstkröfuþjónusta - Greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar: (91) 62 33 36 og 62 62 65