Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 59
59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNIN
Naumur sigur AC
á Bayern Miinchen
HOLLEISIDINGURINN Marco Van Basten gerði eina mark leiksins
er lið hans, AC Mílanó, sigraði Bayern Miinchen í fyrri viðureign
þeirra í undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða á Ítalíu í gær-
kvöldi. í hinum undanúrslitaleiknum sigraði franska liðið Mars-
eille liðBenfica frá Portúgal, 2:1, íFrakklandi. Anderlecht, með
Arnór Guðjohnsen innanborðs, sigraði Dinamo Búkarest 1:0 í
keppni bikarhafa.
Le'ikur AC Mílanó og Bayern
þótti slakur. Völlurinn í Mílanó
var í slæmu ásigkomulagi og gerði
það leikmönnum erfitt fyrir. Italirn-
ir sóttu nær látlaust en leikmenn
Bayern lögðu áherslu á að halda
hreinu og fengu ekki eitt einasta
tækifæri til að skora. Eina markið
kom úr vítaspyrnu, sem dæmd var
eftir að Júrgen Kohler braut Van
Basten, en Kohler hafði annars
mjög góðar gætur á markakóngin-
um. Raimond Aumann, markvörður
Bayern, var hetja liðs síns — varði
nokkrum sinnum frábærlega.
Leikmenn.og áhangendur Mars-
eille lifa enn í voninni um að liðið
verði það fyrsta frá Frakklandi til
að vinna Evrópukeppni meistara-
liða. Áhangendur á Vélodrome leik-
vanginum við Miðjarðarhafið urðu
felmtri slegnir þegar Portúgalarnir
náðu forystu á 10. mín. með marki
Lima en aðeins þremur mín. síðar
jafnaði Franck Sauzee eftir horn-
spyrnu Chris Waddles, og leið
mönnum þá strax betur. Mozer gaf
á Papin sem sendi á Sauzee og
knötturinn skoppaði í netið eftir
skot hans, með viðkomu í varnar-
mönnum. Sá skeinuhætti Jean-
Pierre Papin gerði svo sigurmarkið
á 44. mín. Var það sjötta mark
hans í keppninni í vetur. Áður hafði
Waddle þrumað í þverslá en hann
átti einmitt frábæran leik — var
potturinn og pannan í mjög góðu
liði sem hafði öll völd á vellinum.
Frakkarnir sóttu látlaust í síðari
hálfleik en náðu ekki að skora þrátt
fyrir mörg góð tækifæri. Papin átti
þá m.a. skot í stöng. Á lokamínút-
unni munaði svo minnstu að Benfica
jafnaði, þvert gegn gangi leiksins,
en gamla kempan Castenada varði.
Luc Nilis tryggði Anderlecht sig-
ur á Dinamó frá Búkarest í Brússel
í gær í keppni bikarhafa. Eina
markið kom á 64. mín. Marc De-
gryse þrumaði að marki, Bogaan
Stelea varði en hélt ekki knettinum,
sem hrökk til Niiis og hann þakk-
aði kærlega fyrir sig með því að
skora. Rúmenarnir lögðust í vörn
strax í upphafi og komust leikmenn
belgíska liðsins lítt áleiðis. Þeir
fengu þó tvö góð tækifæri til við-
bótar til að skora; Stelea varði í
annað skiptið en knötturinn smali
í stönginni í hitt. Lið Anderlecht
þótti ekki ieika vel, var eins og
skuggi liðsins sem sló Barcelona út
í 2. umferð keppninnar.
Juventus sigraði Köln 3:2 í
UEFA-keppninni eftir að hafa verið
3:0 yfír. Baráttan virtist vonlaus
fyrir Þjóðverjana, en þeir gáfust
ekki upp frekar en fyrri daginn og
skoruðu tvisvar seint í leiknum, í
bæði skiptin eftir frábærar sending-
ar Pierre Littbarskis.
Reuter
Enzo Fransescoli, Uruguay-búinn í lið Marseille og samherjar hans, hafa
leikið vel í Evrópukeppni meistaraliða í vetur, og stefna að því að vinna keppn-
ina fyrstir franskra liða. Fransescoli er hér, t.v., í baráttu við Santos Aldair,
varnarmann Benfíca, í gærkvöldi.
OLYMPIUNEFND
Ein og hálf
milljón
kr. til HSÍ
ÆT
Olympíunefnd Islands sam-
þykkti á fundi sínum í gær-
kvöldi að styrkja sex sérsambönd
um samtals 3,1 milljónir króna fyr-
ir árið 1990. •
Handknattleikssambandið fær
1,5 milljónir króna, Skíðasamband-
ið 400 þúsund, Frjálsíþróttasam-
bandið og Sundsambandið 350 þús-
und, Júdósambandið 300 þúsund
og Siglingasambandið 200 þúsund.
HANDBOLTI
Stefánog
Rögnvald
dæma í Kiev
Fyrstir íslenskra dóm-
ara í undanúrslitum
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson munu dæraa leik Spart-
ak Kiev frá Sovétríkjunum og Ljubl-
iana frá Júgóslavíu í undanúrslitum
IHF-bikarsins í kvennaflokki. Leik-
urinn fer fram i Kiev 22. apríl.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk-
ir dómarar dæma í undanúrslitum
í Evrópukeppni en slíkt þykir mikil
viðurkenning.
ÚRSUT
Knattspyrna
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ
Þorbergur fór á kostum
- skoraði sjö mörker Saab sigraði Redbergslid, 22:18.
Saab Ieikurgegn Drott um sænska meistaratitilinn
ÞORBERGUR Aðalsteinssgn,
nýráðinn landsliðsþjálfari ís-
lands í handknattleik, var
einn besti teikmaður Saab er
lið hans sigraði Redbergslid,
22:18, á útivelli í gærkvöldi.
Þorbergur og félagar tryggðu
sér þar með réttinn til að leika
til úrslita við Drott um
sænska meistaratitilinn.
Saab vann fyrri leikinn gegn
Redbergslid í 4-iiða úrslita-
keppninni um sænska meistaratit-
ilinn á heimavelli, 29:26, eftir
framlengdan leik. Það áttu því
fáir von á því að Saab næði að
sigra á útivelli, en Redbergslid
varð meistari í fyrra. Saab hafði
tveggja marka forskot í leikhiéi í
gærkvöldi, 11:9 og bætti um bet-
ur í síðari hálfleik og lokastaðan,
22:18.
Þorbergur og Per Ciaudius voru
markahæstir í liði Saab með 7
mörk, Lennard Olsson kom næst-
ur með þijú mörk. Per Jilsen skor-
aði 7/4 mörk fyrir Redbergslid,
Per Wislander kom næstur með
fjögur mörk og bróðir hans,
Magnus Wislander, gerði aðeins
tvö, enda tekinn úr umferð allan
leikinn.
Drott sigraði Irsta, 24:23, eftir
að staðan í leikhléi hafði verið
13:11 fyrir Drott. Það verða því
Saab og Drott sem leika til úrslita
um meistaratitilinn. Það lið sem
fyrr vinnur þijá leiki hreppir titil-
inn.
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN
B-lið Gróttu skellti HK
- en HK-maður braut hurð að búningsherbergi að leik loknum
B-LIÐ Gróttu kom á óvart í gærkvöldi og vann 1. deildar lið HK
24:22 í 16 liða úrslitum bikarkeppni HSI. Gestimir létu mótlætið
fara í skapið á sér og einn þeirra sparkaði svo fast í hurðina
að búningsklefa HK að leik loknum að hún brotnaði út frá löm
og hluti af karminum fylgdi á eftir. Dómararnir neituðu að setja
þetta á skýrslu, en lögreglan var komin í málið og gera má ráð
fyrir að HSÍ fái skýrslu um það í dag.
Fjórir strákar úr 2. flokki, vara-
menn í meistaraflokki og tveir,
sem komnir eru af léttasta skeiði,
skipuðu iið sigurvegaranna. Þeir
voru marki yfir í hálfleik, 12:11, en
í byijun seinni halfleiks breyttist
staðan fljótlega í 19:13 og sigurinn
var í höfn.
Mörk Gróttu: Kristján Brooks 7, Olafur
Sveinsson 4, Guðinundur Sijrfússon 4, Kárí
Indriðason 3, Kristján Finnbogason 3, Ragnar
Hermannsson 3.
Mörk HK: Óskar Elvar Oskarsson 8, Magnús
Sigurðsson 7, Rúnar Einarsson 4, Róbert
Haraldsson 2, Ásmundur Guðmundsson 1.
áSWJ8$
í leikhléi var 15:8 fyrir Garðbæ-
inga.
Markalucstir í liði ÍBK: Björgvin Björgvins-
son 12, Hafsteinn Ingibergsson 2, Gísli Jó-
hannsson 2 og Bergþór Magnússon 2.
Markahæstir í liði Sljörnunnar: Sigurður
Bjamason 7, Einar Einarsson 5, Skúli Gunn-
steinsson 3, Hafsteinn Bragason 3 og Hilmar
Hjaltason 3.
Valur vann Hauka, 31:18, í
Hafnarfirði. Staðan í hálfleik var
18:9 fyrir Val, sem hafði mikla yfir-
burði allan leikinn.
Markaliæstir í liði llauka: Óskar Sigurðsson
4, Gunnlaugur Grétarsson 3, Ægir Sigurgeirs-
son 3 og Gunnar Guðmundsson 3.
Markahæstir í liði'Valis? Valðin^aF jGhinlssoÁ í
T: ‘TJuITús' Gunriarsson “57 3álTdb”SígúVð{>gðn "C
Finnur Jóhannesson 3, Siguijón Sigurðsson
3, Jón Kristjánsson 3, Brynjar Harðarson 3
og Ingi Rafn Jónsson 3.
FH-ingar áttu ekki í erfíðleikum
með b-lið Fram í Laugardalshöli og
unnu 35:23.
Markahæstir hjá Fram: Gústaf Bjömsson 6,
Birgir Jóhannsson 5, Gunnar Andrésson 5.
Markahæstir hjá FH: Óskar Ármannsson 9,
Jón E. Ragnarsson 7, Þorgils Ó. Mathiesen 5.
Víkingar fögnuðu loks sigri, er
þeir unnu Ármenninga 32:14 í Höll-
inni eftir að staðan hafði verið 17:5
í hálfleik.
Markahæstir hjá Víkingi: Birgir Sigurðsson
10, Ingimundur Helgason 6, Bjarki Sig. 5.
Markahæstir lljá Armanni: Elías H. Sigurðs-
son 4, Björgvin Bardal 3.
Tveimur leikjum var frestað
vegna veðurs, en þeir hafa verið
settir á kl. 20 í kvöld. ÍBV-b og
UBK Jeika í Vestmannaeyjum og
Grótta og ÍBV á Seltjarnarnesi. A
(Sttnnndúg! yevdur síðap .vjður^ign
'Afttrreidingar ag Setfoss-að-V-armá.
Mm
FOLK
■ PIERRE Littbarski, fyrirliði
1. FC Köln var bókaður í leiknum
gegn Juventus í gærkvöldi og miss-
ir af síðari viðureigninni 18. apríl.
■ MARCO Van Basten, fram-
heiji AC Mílanó og Jiirgen Kohl-
er, hinn frábæri varnarmaður Bay-
ern Miinchen háðu einvígi í gær-
kvöldi í Mílanó — hið fjórða á ferlin-
um. Van Basten hafði betur eins
og síðast; þá skoraði hann sigur-
mark Holiands gegn V-Þýska-
landi á elleftu stundu í undanúrslit-
um Evrópukeppni landsliða í Ham-
borg, án þess að „skuggi“ hans,
Kohler, fengi nokkuð að gert.
■ DONADONI, miðvallarleik-
maðurinn frábæri hjá AC Mílanó,
var einnig illa fjarri góðu gamni.
Hann var dæmdur í þriggja leikja
bann fyrir að hrinda einum leik-
manna Mechelen í síðustu umferð
— og missir því af síðari leiknum
gegn Bayern, og úrslitaleiknum ef
AC Mílanó kemst þangað.
■ TVEIR leikmanna Anderlecht,
Stephen Keshi og Patrick Ver-
voort voru bókaðir í leiknum gegn
Dinamó Búkarest í gær og missa
af síðari viðureign liðanna. Michael
Klein, leikmaður Dinamo, var rek-
inn af velli á 65. mín. í gær og
missir einnig af síðari leiknum.
A-riðill:
Víkingur - Leiknir...............1:1
Atli Einarsson (72.) - Heiðar Ómarsson
(19. mín.)
EVRÓPUKEPPNIN
Undanúrslit - fyrri leikir.
KEPPNI MEISTARALIÐA:
Marseille - Benfica..............2:1
Franck Sauzee (13.), Jean-Pierre Papin
(44.) - Adesulado Lima (10.) Áhorfendur:
40.000
AC Mílanó - Bayern Miinchen......1:0
Marco Van Basten (77. víti) Áhorfendur
65.000.
KEPPNI BIKARHAFA:
Anderlecht - Dinamó Búkarest.....1:0
Luc Nilis (64.)
UEFA-BIKARINN:
Juventus - Köln................ 3:2
Rui Barros (21.), Pier-Luigi Casiraghi (45.),
Giancarlo Marocchi (53.) - Armin Götz
(79.), Ralf Sturm (90.) Áhorfendur: 42.000.
ENGLAND
1. deild:
Everton - Nottingham Forest........._4:0
(Tony Cottee 12. og 87., Norman Whiteside
13. og 44.) Áhorfendur: 17.795.
Norwich - Crystal Palace.............2:0
(Tim Sherwood 14., Gary O’Reilly sjálfsm.
á 37.) Áhorfendur: 12.640.
2. deild:
WBA-WestHam.......................1:3
3. deild:
Fulham - Walsall................ 0:0
Wigan-Bristol Rovers..............1:2
4. deild:
Carlisle^ Cambridge............ 3:1
Lincoln - Torquay............... 2:2
Maidstone - Rochale............. 2:0
Skotiand - úrvalsdeild:
Hearts - Dundee...................0:0
1. deild:
Clyde - Albion....................2:1
VINÁTTULANDSLEIKUR
Tékkóslóvakia-Egyptaland..........0:1
- Mohamed Kas (73.)
GRIKKLAND
Bikarkeppnin, síðari leikir i undanúrslitum:
Panathinaikos - Olympiakos_______ 3:3
(Olympiakos vann samanlagt, 5:4)
OFI-Apollon.......................1:0
(OFI vann samaniagt 1:0)
FIRMAKEPPNIFJOLHIS
haldin fimmtudaginn 12. apríl (skírdag)
Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í hverjum
riðli og úrslit.
Hafið samband á skrifstofu Fjölnis mánud., mið-
vikud. og föstud. milli kl. 14.00 og 16.00 í síma
672085.
.... y.njámennafélagið Fjölnir, .Grafaryogj