Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 3 skyndilega gat ég valið úr störfum... Atli Öm Jónsson; aðstoðarframkvæmdsLstjóri Kreditkorta hf.: „Verklag nemenda Skrifstofu- og ritaraskóla Stjórnunarfélagsins, sem var hjá okkur í starfsþjálfun í vor, bar þess greinilega merki að þeir höfðu góða undirstöðu í skrif- stofustörfum. Sú starfsþjálfun, sem skólinn stendur fyrir, hefur tvimælalaust mikið gildi, bæði fyrir nemandann og verðandi vinnuveitanda." Kristín Ketilsdóttir; skrifstofamaður: „Ég fór í SR til að verða hæfari starfskraftur, þegar ég færi út á vinnumarkaðinn, eftir að hafa verið heima- vinnandi húsmóðir í 20 ár. Eftir skemmtilegt og upp- byggjandi nám á bókfærslusviði hef ég ákveðið að halda áfram námi á 2. ári á Fjármála- og rekstrar- braut SR.“ Guðrún Svansdóttir, skrifstofumaður: „Þegar ég kom heim frá Þýskalandi vorið 1989 var ég með stúdentspróf og árs starfsreynslu erlendis frá upp á vasann. Ég vildi geta valið úr fjölbreyttari störf- um og fór þess vegna á framhaldsbraut SR, Sölu- og markaðsbraut. Að loknu námi gat ég valið úr áhuga- verðum störfum og starfa nú hjá Einari J. Skúlasyni hf.“ Heiðar Kristinsson, skrifstofumaður: „Eftir vandlega íhugun ákvað ég að fara í Skrifstofu- og ritaraskólann. Eftirsjáin er engin, því í stað þess að þurfa að ganga á milli fyrirtækja í atvinnuleit, gat ég skyndi- lega valið úr störfum að námi loknu. Fyrir utan toppkennara vorum við send í starfs- þjálfun, sem gaf okkur tækifæri að vinna við skrifstofustörf í virtum fyrirtækjum. I dag starfa ég hjá stóru fyrirtæki í Reykjavík, en það starf bauðst mér að skóla lokn- um vegna þeirrar kunnáttu sem ég öðlaðist þar.“ Sara Elíasdóttir, skrifstofumaður: „Að vefathuguðu máli tók ég þá ákvörðun að fara í SR, því mér fannst að þar fengi ég bestu menntun- ina á skemmstum tíma, sem gæti komið sér vel fyrir mig í atvinnulífinu. Sjálfstraustið jókst og ég var miklu betur undir það búin að fara út á vinnu- markaðinn eftir að hafa verið í SR einn vetur, enda fékk ég góða vinnu eftir að ég lauk námi í skólan- um.“ HannesSveinsson, skrifstofumaður: „Ég mæli eindregið með Skrifstofu- og ritaraskólan- um fyrir það fólk, sem stefnir að því að komast í skrifstofustörf. Markviss kennsla hjálpar nemendum að fá góða innsýn og þekkingu á skrifstofu- og ritara- störfum. Stjórnunarfélag íslands á þakkir skyldar fyrir að reka skóla, sem stefnir að því að þjálfa nem- endur fyrir þarfir vinnumarkaðarins." Sigrún Eir Héðinsdóttir, skrifstofumaður: „Ég sóttist eftir stuttu námi í takt við þarfir atvinnumarkaðarins. Þaðan lá leið mín í SR á fyrsta ár en þegar því var lokið var ég harðákveðin í að sérhæfa mig á einhverju sviði og tók því 2. ár á fjármála- og rekstrarsviði og hefur það reynst mjög vel í starfi mínu í bókhaldsdeild Skífunnar." Anna G. Sverrisdóttir, skrifstofustjóri Stöðvar 2: „Nemendur, sem voru hjá okkur í starfsþjálfun í vor frá Skrifstofu- og ritaraskólanum, reyndust mjög vel undirbúnir til að takast á við margvísleg skrifstofu- störf og stóðu sig í alla staði vel. Augljóst er að nám- ið hentar vel sem undirbúningur fyrir fjölmörg skrif- stofustörf. Greinilegt er að skólinn hefur sinnt hlut- verki sínu vel og gefið nemendum haldgóða starfs- menntun." -- Lýður Friðjónsson, framkvæmdastjóri Vífilfells hf.: „Við gáfum nemanda úr Skrifstofu- og ritaraskólanum, sem Stjórnunarfélagið rekur, kost á starfsþjálfun á skrifstofu Vífilfells hf. Það kom okkur á óvart hversu vel þessi nemandi var undirbúinn til að sinna störfum á skrifstofu. Það var því auðveld ákvörðun að bjóða þessum nemanda framtíðarstarf á skrifstofu okkar eftir að hann útskrifaðist í vor.“ SR SKRIFSTOFU- OG RITARASKÓLINN Innritun stendur yfir! Upplýsingar í síma 10004 A 5tjórnunarfélag íslands Skrifstofu- og ritaroskólinn er í eigu Stjórnunorfélags íslands SR SKRIFSTOFU- OG RITARASKÓl INN Reykjavík - Selfoss - Vestmannaeyjar - Akranes - ísafjörður - Akureyri - Keflavík Reykajvík - Selfoss - Vestmannaeyjar- Akranes - ísafjörður - Akureyri - Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.