Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990 27 . Kemur ekki til greina að verða við kröfum banda- rískra stj órnvalda - segir Ignaz Kiechle, landbúnaðarráðherra Þýskalands um kröfiir Bandaríkjamanna í GATT-viðræðunum : : ' ' - "O > S ; '4 ->:v. f' „MÉR SÝNIST meira gert úr kröfugerðum en raunverulegri stöðu mála. Nú er hálfleikur í viðræðunum og ekki útséð um það hvernig þær fari,“ segir Ignaz Kiechle, landbúnaðarráð- herra Þýskalands um GATT-við- ræðurnar um afnám tolla og landbúnaðarstyrkja. Kiechle var nýlega staddur hér á landi í boði Steingríms Sigfússonar landbúnaðarráðherra til að end- urgjalda heimsókn hans til Þýskalands fyrir ári. Á fúndi sinum ræddu ráðherrarnir al- þjóðaviðskiptamál með landbún- aðarvörur, GATT, EFTA- OG EB- viðræðurnar og svo sam- skiptamál íslands og Vestur- Þýskalands. Einnig ræddu þeir sjávarútvegsmál og hvalveiðar þar sem Kiechle fer jafiiframt með sjávarútvegsmál. Á blaðamannafundi ráðher- ranna sagði Kiechle að þeir hefðu í meginatriðum verið sammála um þau mál sem þeir ræddu. Lagði hann áherslu á að Þjóðvetjar myndu styrkja málstað íslendinga FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 19. júlí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 104,00 77,00 88,08 14,521 1.279.087 Þorskur(st.) 104,00 81,00 77,103 0,865 77.103 Ýsa 89,00 17,00 85,10 15,923 1.355.041 Karfi 35,00 35,00 35,00 2,048 71.707 Ufsi 34,50 23,00 32,23 5,549 178.820 Steinbítur 84,00 70,00 71,14 1,802 128.210 Langa 42,00 42,00 42,00 0,884 37.143 Lúða 305,00 205,00 258,64 0,246 63.625 Koli 54,00 41,00 49,78 2,405 119.735 Keila 15,00 15,00 15,00 0,052 780 Smáufsi 30,00 30,00 30,00 3,467 104.019 Smáþorskur 52,00 42,00 23,36 2,082 94.456 Skötuselur 160,00 160,00 160,00 0,092 14.720 Samtals 70,57 49,939 3.524.446 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 101,00 62,00 79,69 120,709 9.619.749 Ýsa 97,00 69,00 90,15 38,447 3.465.913 Ufsi 27,00 20,00 34,30 16,950 581.374 Undirmál 62,00 15,00 27,37 2,947 80.662- Blandað 45,00 10,00 40,70 0,171 6.960 Grálúða 30,00 30,00 30,00 0,032 960,00 Karfi 38,00 31,00 36,74 13,821 507.849 Keila 24,00 24,00 £4,00 0,523 12.552 Langa 44,00 43,00 43,10 1,428 61.545 Lúða 300,00 200,00 233,10 0,709 165.265 Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,079 1.185 Skata 82,00 82,00 82,00 0,026 2.132 Skarkoli 50,00 44,00 44,43 2,272 100.934 Skötuselur 375,00 150,00 219,71 0,345 75.800 Sólkoli 75,00 70,00 71,29 1,999 142.545 Steinbítur 75,00 50,00 63,99 6,273 401,399 Samtals 375,00 10,00 73,65 206,734 15.226.825 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 108,00 74,00 85,74 48,672 4.173.106 Ýsa 70,00 50,00 57,22 1,513 86.577 Karfi 40,00 36,00 37,61 10,309 387.743 Skarkoll 60,00 60,00 60,00 0,010 600 Lýsa 14,00 14,00 14,00 0,034 476 Humar stór 1.515 999,00 1.512 0,075 113.438 Humar smár 795,00 795,00 795,00 0,150 119,250 Keila 33,00 5,00 27,70 0,074 2.050 Sólkoli 65,00 65,00 65,00 0,009 585 Undirm.fiskur 55,00 46,00 51,82 0,684 35.447 Ufsi 50,00 23,00 30,99 6,329 196.120 Skata 68,00 67,00 67,21 0,214 14.383 Langlúra 16,00 16,00 16,00 0,153 2.448 Koli 39,00 39,00 39,00 0,036 1.404 Blálanga 33,00 33,00 33,00 0,351 11.583 Blandað 35,00 35,00 35,00 0,435 15,225 Skötuselur 390,00 155,00 346,88 0,178 61.745 Lúða 280,00 225,00 264,48 0,592 156.575 Hlýri/Steinb. 60,00 60,00 60,00 0,618 37.080 Hlýri 60,00 60,00 60,00 0,055 3.300 Grálúða 60,00 60,00 60,00 1,240 74.426 Steinbítur 56,00 56,00 56,00 0,548 30.688 Langa 53,00 18,00 39,73 1,406 55.858 Öfugkjafta 22,00 10,00 16,08 0,353 5.678 Samtals 75,44 74,038 5.585.785 | Selt var úr Erni VE og humarbátum. FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA SKIPASÖLUR í Bretlandi 16. til 20. júlí. Þorskur 145,66 372,470 54.254.393 Ýsa 152,15 118,465 18.023.912 Ufsi 61,50 28,155 1.731.521 Karfi 75,16 7,370 553.937 Koli 121,10 0,895 108.385 Grálúða 144,31 17,305 2.497.231 Blandað 96,83 11,216 1.086.025 Samtals 140,78 555,876 78.255.407 16. júlí var selt úr EMMU VE 219. 18. júlí var selt úr NÁTTFARA HF 185 og I 19. júlí var selt úr GARÐEY SF 22, GULLVER NS 12 og PÁLI ÁR 401. GÁMASÖLUR í Bretlandi 9. til 13. júlí. Þorskur 144,11 308,060 44.395.558 Ýsa 158,26 157,107 24.863.720 Ufsi 68,45 16,728 1.145.000 Karfi 88,25 17,392 1.534.805 Koli ' 126,42 128,020 16.184.863 Grálúða 135,28 6,180 836.003 Blandað 140,78 93,821 13.208.565 Samtals 140,47 727,310 102.168.529 í viðræðum sem eru og munu verða í gangi um EFTA og Evrópubanda- lagið. Sagði ráðherrann hvalveiðar erfitt og viðkvæmt mál og afstaða Þjóðveija í því yrði tekin á vísinda- legum grunni. Þá gladdist Kiechle yfir því að vera komin-til íslands í fyrsta skipti og kvaðst hlakka til að skoða landið, hann myndi eftir því frá barnsaldri er hann las bæk- urnar um Nonna og Manna. Þýski ráðherrann var spurður hvað að myndi gerast innan EB og þá sérstaklega Þýskalands ef styrkir til landbúnaðar yrðu lækk- aðir eins og Bandaríkjamenn hafa sett fram kröfur um á fnndi sjö helstu iðnríkja heims fyrir skömmu. Sagði hann að ef farið yrði að óskum Bandaríkjamanna, myndi stærstur hluti bænda í Evr- ópu og þá sérstaklega Þýskalandi flosna upp og bandarískir bændur bjóða sínar vörur á evrópskum markaði. Þar sem evrópskir bænd- ur gætu ekki keppt við bandarísku framleiðsluna, hefði þetta alvarleg- ar afleiðingar; landflótta og að landsins gæðum yrði stefnt í hættu þar sem íbúarnir myndu hætta að hugsa um að yrkja jörðina. Því komi ekki til greina að verða við óskum Bandaríkjamanna en reynt Morgunblaðið/Börkur „Bandaríkjamenn hafa ekki rétt fyrir sér í GATT-viðræðunum,“ seg- ir þýski landbúnaðarráðherrann, Ignaz Kiechle, sem hér er ásamt íslenskum starfsbróður sínum, Steingrími Sigfússyni. verði að finna milliveg sem báðir aðilar geti sætt sig við. Lagði Kiechle áherslu á að taka yrði tillit til fleiri sjónarmiða en viðskiptalegra; nefndi hann heil- brigðissjónarmið, sjúkdómavarnir, öryggisþætti sem lytu að því að hafa matvælaframleiðslu innan landamæranna og byggðasjónar- mið. „Evrópubandalagið er reiðu- búið að losa heimsmarkaðinn und- an umframframleiðslu aðildarland- anna og þannig minnka þrýsting- inn á heimsmarkaðinn og hafa þegar gert það í sambandi við mjólkurframleiðslu.“ Þá var ráðherrann inntur eftir því hvort hann væri trúaður á að GATT-viðræðurnar skiluðu ein- hveijum árangri. „Þjóðveijar hafa mikinn áhuga á því að árangur náist í þessum viðræðum, en það skilur á milli í stórum og veigamiklum atriðum. Engu að síður er nauðsynlegt að finna einhveija lausn. En væri far- ið að kröfu Bandaríkjanna væri um það að ræða að helmingur bænda í Evrópubandalagslöndun- um myndi flosna upp og það hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Svo má nefna að Þjóðverjar kaupa - helmingi meira af landbúnaðarvör- um af Bandaríkjamönnum en öfugt. Bandaríkjamenn hafa þvi ekki rétt fyrir sér í GATT-viðræð- unum og eru ekki sanngjarnir,“ sagði ráðherrann. ' I lok fundarins færði hann Steingrími Sigfússyni að gjöf þijár tegundir fræja til að sýna hug sinn til þess starfs sem væri unnið hér- lendis í landgræðslu. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 20. - 23. júlí 1990. 72 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur, 10 fyrir akstur gegn rauðu ljósi, 9 fyrir brot á stöðvunarskyldu, 8 fyrir van- rækslu á skoðun, 11 fyrir að leggja ólöglega og 9 fyrir önnur umferðarlagabrot. 5 ökutæki þurfti að fjarlægja með kranabif- reið vegna varhugaverðrar stöðu, einn ökumaður var réttindalaus í umferðinni og 15 ökumenn eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum áfengis við akstur um helgina. 4 þeirra höfðu lent í umferðaróhöppum. Það telst til tíðinda að ekkert umferðarslys var tilkynnt til lögreglunnar á þessu tímabili. Hins vegar var til- kynnt um 15 umferðaróhöpp. Skráð úmferðarslys í Reykjavík 6 fyrstu mánuði ársins eru 84. í þeim slösuðust 111 manns. Á sama tímabili síðastliðins árs voru slysin 90 og í þeim slösuðust 129. Það hafa því 18 færri slasast í umferðinni í ár, en þrátt fyrir lægri heildartölu slasaðra hafa fleiri ökumenn bifhjóla og bifreiða slasast nú, eða 6 fleiri. Þá slösuð- ust hins vegar 16 alvarlega í fyrra, en nú eru þeir 11. Átta færri gangandi vegfarendur hafa slasast í ár og 15 færri farþegar í bifreiðum. Einn vegfarandi hefur látist í umferðarslysi það sem af er árinu, en 2 höfðu látist á sama tímabili í fyrra. Lögreglan opnaði 24 bifreiðar og 6 íbúðir fyrir fólk um helgina. 92 þurfti að sinna tilvikum vegna ölvaðs fólks, auk 16 tilvika þar sem um var að ræða ölvun og hávaða, 1 vegna heimilisófrið- ar, 2 vegna ágreiningsmála og 5 vegna líkamsmeiðinga. M.a. var maður barinn svo illa í Aðalstræti skömmu eftir miðnætti á laugar- dag að hann þarf að líkindum að gangast undir augnaðgerð. 46 gistu fangageymslurnar um helgina. Þar af óskuðu 6 einstakl- ingar sjálfir gistingar þar sem þeir áttu ekki í önnur hús að venda. 11 voru færðir fyrir dóm- ara að morgni vegna undanfar- andi ölvunarólæta, fyrir að reyna að hindra lögreglu við skyldu- störf, fyrir að óhlýðnast fyrirmæl- um lögreglu og fyrir ósæmilega framgöngu. Þeim var gert að leggja fram 6-10 þúsund krónur í sáttagreiðslu. Tilkynnt var um 8 innbrot og 8 þjófnaði, 1 búðarhnupl, 8 skemmdarverk og 6 rúðubrot. Innbrotin og þjófnaðirnir voru minniháttar. Skemmdarverkin voru flest framin á bifreiðum. 2 bifreiðum var stolið, en þær fund- ust heilar nokkru síðar. Tilkynnt var um 5 slys. Stúlka festist í taurullu á Hrafnistu á föstudag, kona féll við í Kringl- unnþ á laugardagsmorgun, íþróttaslys varð í KR-heimilinu á laugardag, maður skarst á hendi í Hollywood á laugardagsnótt og ölvaður maður gerði sér upp meiðsli á veitingahúsi á sunnu- dagsnótt. 5 sinnum þurfti að hafa af- skipti af mönnum vegna afbrigði- legrar hegðunar. Nakinn maður var á gangi á Laugarnesvegi. Nakinn maður var á ferli við Mi- klubraut, kona var að sýna mynd- ir af sér fáklæddri í Austur- stræti, 3 menn voru staðnir að því að kíkja á glugga í íbúð og öðruvísi sinnaður maður olli usla á hálfopinberum stað. Tveir menn voru handteknir í Mæðragarðinum eftir að þeir höfðu látið reiði sína þitna á tijá- gróðrinum engu síður en hvor öðrum. I bifreið, sem stöðvuð var í umferðareftirliti á laugardags- morgun, fannst nokkuð magn flugelda. Ökumaðurinn kvað fé- laga sinn hafa fundið þá á ösku- haugunum daginn áður og hann ákveðið að taka þá með sér. Lögreglan þurfti að loka skemmtistaðnum Tunglinu að- faranótt laugardags. Þar höfðu þá farið fram áfengisveitingar, en leyfi staðarins til áfengisveitinga hafði verið afturkallað á grund- velli umsagnar heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og matsnefndar áfengisveitingahúsa, en þar segir m.a. að veitingahúsinu hafi verið lokað vegna sóðaskapar, slæmrar umgengni og ófremdarástands alls húsnæðis. 5 lögreglumenn sinntu því verkefni að loka hús- inu, en það var tiltölulega fá- mennt innan dyra. í framhaldi af vanvirðu við bannið var skemmt- analeyfi fyrir staðinn afturkallað á laugardag. ■JÝTt SÍMANÚMER PRENTMYNDAGERÐAR: m Systir okkar og mágkona, t- SVANFRÍÐUR SVEINSDÓTTIR lést 22. júlí. Petra Hakonson, Pála Sveinsdóttir, Camilla Sveinsdóttir, Sigurður B. Finnbogason, Björg Sveinsdóttir, Halldór Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.