Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 31 Veruleikinn fyrir sjálfstætt fólk eftir Rafh Geirdal Hér á íslandi býr sjálfstætt fólk. Ég þekki marga sem hafa lagt hálfa öld af vinnu í að byggja yfir sig þakið. Þeir hafa unnið hörðum hönd- um, greitt sínar skuldir og sína skatta. En í stað þess að njóta af- raksturs ævistarfs síns og fá að hreiðra um sig í friði og njóta sinna síðustu daga, þurfa ekkjur, ekklar og eldri húseigendur að búa undir afskiptum ríkisvaldsins, sem vill enn meira fé. Mikið vill meira. Ríkisvaldið er orðið að gráðugum þurs, sem sí og æ heimtar meira. Það er eins og höfuðlaus skepna sem emjar eftir meira blóði. Og búkurinn stækkar stöðugt, skrifræðisveldi sem þekkir engin mörk. Ef engin aðgát er höfð, lendum við á verri stað en ráðstjórnarríkin, sem eru nú í óða önn að varpa af sér hinum hræðilega hrammi skrifræðisins. Besta leið ríkisstjórnarinnar er að skera niður embættisveldið og hafa einfalda stjórn á ríkisvaldinu. Annars er allt fé landsmanna étið upp í papp- írsvinnu embættismanna. Og besta leiðin til uppbyggingar lands okkar og þjóðar er sameining allra þeirra sem vilja bót á því hvernig við kjós- um að lifa hér á landi. Þjóð sem vill sameinast um æðri stefnumið er besta þjóðin. Stefnumið sem ná upp fyrir hin veraldlegu og inn á hin andlegu, allt þetta sem ekki sést, en flnnst í hjarta okkar. Það sem ég er að tala um er andleg ræktun okk- ar sem æðsta stefnumið og kjarni mannræktar og heilsuræktar. Því heilsurækt án andlegrar ræktar er snauð af innihaldi, svipað og skepna án skynbragðs. Það vantar meira innihald í líf okkar. Það er nauðsynlegt fyrir þegna þessarar þjóðar að öðlast hug- arkyrrð, læra ýmsar gerðir hug- leiðslu og ýmsar gerðir slökunar. Það er nauðsynlegt fyrir þegna okkar lands að læra að hreinsa tilfinninga- líf sitt og samskipti. Það er nauðsyn- legt að læra að skynja líkama sinn á ríkari hátt, með heildrænu nuddi, jóga og margvíslegum aðferðum. Það er nauðsynlegt að hreinsa líf sitt og viðhorf og umbreyta for- gangsröðinni í lífi okkar. Aðeins þannig getum við skapað nýja þjóð á fornum grunni. Öðruvísi er það ekki hægt. Það er sem sagt með gagngerum æfingum sem endurnýja okkur, svo að vilji okkar til betra lífs nái alla leið í gegn. Ég legg því til að við öll sem þjóð einsetjum okkur að skapa betra og fagurra mannlíf hér á landi og nota allar þær leiðir sem þarf til að gera það. Þessar leiðir þurfa allar að ganga út á að skapa innihaldsríkara líf fyrir okkur sem fólk, og síðan að umraða öllum efnislegum gæðum í kringum það. Þess vegna sé ég fyrir mér uppbyggingu heilsulinda, bæði í borg og sveit. Ég sé einnig fyrir mér uppbyggingu á mannrækt- arklúbbum sem hafa með samstuðn- ing fólks að gera, sem síðan vindur upp á sig og tekur á sig sterkara form. Og ég sé einnig fyrir mér hlut- deild ríkissjóðs i þessari þróun, því hvar er til betri fjárfesting en í fólki sem vill byggja sig upp? Menningin byggist á fólki sem er lifandi, virkt og leggur eitthvað gott fram til lífs- ins. Það er þannig sem þessi menn- ing vex og dafnar og innan skamms getum við myndað fordæmi fyrir aðrar þjóðir heimsins, sem geta sótt í þekkingu okkar á gagngerri upp- byggingu þjóðfélagsþegna. Það er ekki aðeins að við byggjum hreint land með hreinu lofti og vatni. Hér býr þjóð sem er tilbúin að byggja sig upp og hefur einstak- lega sterkan sameiginlegan vilja, sem kemur mjög skýrt fram hvenær sem eitthvað bjátar á. Og það er þessi samhjálp og samstuðningur sem fleytir okkur áfram og við getum nú virkjað til æðri vegar. íslending- ar, tökum saman höndum og byggj- Rafn Geirdal „íslendingar, tökum saman höndum og byggjum okkur upp, sem ein þjóð í einu landi, stolt norrænna þjóða, og sýnum heim- inum hvers við erum megnug!“ um okkur upp, sem ein þjóð í einu landi, stolt norrænna þjóða og sýnum heiminum hvers við erum megnug! Höfundur er skólastjóri. Nýi vetrarlistinn kominn. Pöntunarsími 52866. HRADLESTRARNÁMSKEIÐ Sumarnámskeið í hraðlestri hefst þriðjudaginn 31. júlí nk. „Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma?“ „Vilt þú vera vel undirbúin(n) undir námið í haust?“ Nú er tækifæri fyrir þá, sem vilja margfalda lestrarhraða sinn, en hafa ekki tíma til þess ó veturna Ath. Sérstakur sumarafsláttur. Skráning í dag og næstu daga í síma 641091 m Hraólestrarskólinn 1 Súkkulaði Sælkerans - Hárlos - Kláði - Flasa - Litun - Permanent MANEX vítarriín sérstaklega fyrir hár, húð og neglur. " ........n Jóna Björk Grétarsdóttir: Ég missti megnið af hár- inu 1987 vegna veikinda. Árið 1989 byrjaði hárið fyrst að vaxa aftur, en það var mjög lélegt; það var svo þurrt og dautt og vildi detta af. Síðan kynntist ég Manex hársnyrtilínunni og það urðu mjög snögg um- skipti á hári mínu til hins betra. Eftir 3ja mánaða notkun á Manex prótein- inu, vítamíninu og sjampóinu er hár mitt orðið gott og enn í dag finn ég nýtt hár vera að vaxa. Fæst í flestum apótekum hárgreiðslu- og rakara- stofum um land allt. MANEXsjampó MANEX næring Dreifing: s. 680630. ambrosia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.