Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 22
22 Bretland MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 Þvottavélar Eldavélar Örbylgjuofnar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMfTH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Kvikmynd um Salm- an Rushdie bönnuð St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BRESKA kvikmyndaeftirlitið ákvað um helgina að banna dreifingu pakistanskrar kvikmyndar, þar sem sagt er frá hörmulegum örlög- um „illmennisins" Salmans Rushdies. Talsmenn múhameðstrúar- manna hafa mótmælt úrskurðinum og sömuleiðis Salman Rushdie sjálfur. Eigandi dreifingarréttarins hefur ákveðið að höfða mál fyrir dómstólum gegn kvikmyndaeftirlitinu. Breska kvikmyndaeftirlitið ákvað, að höfðu samráði við lög- fræðinga sína og Scotland Yard, að banna dreifingu myndarinnar Alþjóðlegir hryðjuverkamenn. Scotland Yard taldi hana myndu efla andúð gegn rithöfundinum Salman Rushdie, sem enn fer huldu höfði 17 mánuðum eftir að Khomeini, erkiklerkur af íran, dæmdi hann til dauða, og tefla lífí hans í enn meiri hættu en orð- ið er. Lögfræðingar kvikmyndaeft- irlitsins sögðu myndina varða við meiðyrðalöggjöf landsins. Myndin er gerð í Pakistan og hefur verið sýnd þar við miklar vinsældir. í henni segir frá ill- menninu Salman Rushdie, sem er hryðjuverkamaður á mála hjá Isra- elsmönnum og Indveijum. Hann vinnur hvert illvirkið á fætur öðru í myndinni, en fær makleg mála- gjöld í lokin, þar sem svífur yfir honum hin helga bók, Kóraninn, og elding lýstur hann til bana. Salman Rushdie gaf út yfirlýs- ingu sl. sunnudag, þar sem hann mótmælti banninu og taldi, að eðlilegra væri að allir, sem vildu, fengju að sjá hana. Síðan yrði að koma í ljós, hvort myndin varðaði við meiðyrðalöggjöfina. Talsmenn múhameðstrúamianna sögðu nið- urstöðu kvikmyndaeftirlitsins byggða á hræsni og fordómum í garð múhameðstrúarmanna. Það væri eðlilegt, að sama gilti um bókina og kvikmyndina. Þeir sögðu líka, að það væri ranglátt, að meiðyrðalöggjöfin vemdaði ein- vörðungu einstaklinga, en ekki hópa eða samfélög eins og múha- meðstrúarmenn í Bretlandi. Eigandi dreifingarréttarins, sem er myndbandafyrirtæki í Lundúnum í eigu Pakistana, hóf málarekstur sl. mánudag gegn kvikmyndaeftirlitinu til að reyna að hnekkja úrskurðinum. Reuter Fólk fyrir utan kvikmyndahús í Rawalpindi í Pakistan þar sem ver- ið er að sýna myndina „Alþjóðlegir skæruliðar", sem Ijallar um hörmuleg örlög „illmennisins“ Salmans Rushdies, höfundar Söngva Satans. Myndin hefur verið bönnuð í Bretlandi. Austur-Þýskaland; Hart deilt um kosninga- lög í stjórn de Maizieres Forsætisráðherrann reynir að sundra andstæðingum Kristilegra demókrata á þingi A-Berlín. Reuter, Daily Telegraph, dpa. Samsteypustjórn Austur-Þýskalands riðaði til falls um helgina eftir heiftarlegar deilur um framkvæmd kosninganna í desember en á sunnu- dag náðist bráðabirgðasamkomulag um að fresta ákvörðunum til mán- aðarloka. Stjórnarflokkar jafnaðarmanna og Frjálslyndra demókrata vilja að sameiningin taki gildi 1. desember en þá myndu v-þýsk kosn- ingalög gilda í báðum ríkjunum daginn þingkosningunum sem verða jafnt austan megin sem vestan daginn eílir. Kristilegir demókratar Lothars de Maizieres forsætisráðherra hafa nauman meirihluta á þingi með stuðningi lítils bændaflokks en til að taka ákvarðanir úm sfjórnar- skrárefni þarf tvo þriðju hluta meirihluta. A fostudag brá svo við að kristilegir felldu tillögur jafnaðarmanna og frjálslyndra, sem hvorir- tveggja hafa hótað að segja sig úr sljórn, og naut de Maiziere við at- kvæðagreiðsluna stuðnings kommúnista. Þeir eiga á hættu að falla út af þingi ef tillögur andstæðinga forsætisráðherrans hljóta samþykki. Sjö flokkar eiga aðild að stjórn A-Þýskalands. Mikill hiti var í deil- unni og m.a. sagði einn af andstæð- ingum de Maizieres að forsætisráð- herrann hlyti að vera „með steypu í hausnum" ef hann breytti ekki um stefnu. Að lokum var samþykkt með miklum meirihluta tillaga de Maizier- es um að sérstakar nefndir á þingum beggja ríkjanna fjölluðu um málið og reyndu að ná samkomulagi. Frjálslyndir sátu hjá við atkvæða- greiðsluna og hyggjast í dag, þriðju- dag, ræða hvort þeir yfirgefa stjórn- ina. New York. Reuter. TILBÚIN höfundarlína var skrif- uð fyrir frétt í einu af virtustu blöðum heims, New York Times, á lostudag og er tölvukerfinu kennt um. Fréttin var frá Los Ebanos í Texas, um feiju sem siglir um fljót- ið Rio Grande og heyrir brátt sög- unni til þar sem brú tekur við hlut- verki hennar. í einni af útgáfum blaðsins var eftirfarandi höfund- arlína: „Eftir F'ake Byline (tilbúna höfundarlínu), skrifað sérstaklega Samkvæmt v-þýskum kosninga- lögum þarf flokkur að hljóta minnst 5% fylgi til að fá þingsæti. Kristileg- ir vilja að ríkin sameinist eftir kosn- ingarnar 2. desember og kosið verði í A-Þýska!andi án þess að ákvæðið um fimm prósent lágmarksfylgi gildi. Þá aðeins geta kommúnistar og aðr- ir smáflokkar, sem flestir eru vinstri- sinnaðir, vænst þess að fá einhver sæti á þingi sameinaðs Þyskalands. Kristilegir bera fyrir sig að heppi- legra sé að hafa kommúnista innan þings en utan og einnig sé rétt að smáflokkarnir fái einhvern tíma til fyrir New York Times“. Talsmaður blaðsins sagði að nýr og óvanur starfsmaður þess hefði valdið mis- tökunum. Tölvuforrit blaðsins væri þannig úr garði gert að höfund- arlína hefði þurft að fylgja fréttinni en gert var ráð fyrir því að hún yrði tekin í burtu áður en blaðið fór í prentun. Það fórst hins vegar fyrir. Þannig lauk stuttum blaða- mannsferli F'ake Byline, nema við- vaningur í framleiðsludeild blaðsins endurtaki glappaskotið. að öðlast fótfestu. Ljóst er að það kemur langstærsta flokknum, Kristi- legum, mjög til góða að andstæðing- arnir á vi-nstri kantinum séu klofnir í sem flesta flokka og slíkt kraðak gæti tryggt Helmut Kohl, leiðtoga Kristilega demókrataflokksins í V- Þyskalandi, að hann verði fyrsti kanslari sameinaðs Þýskalands eftir stríð. Sterk staða Kohls Reyndar virðist staða Kohls nú sterkari en nokkru sinni. Ný skoð- anakönnun Wickert-stofnunarinnar gefur til kynna að 58,4% kjósenda vilji að Kohl verði kanslari en fram- bjóðandi helsta stjómarandstöðu- flokksins, jafnaðarmanna, fær aðeins 31% fylgi. Kohl og de Maziere verða þó að fara varlega þar sem leiðtogar samstarfsflokks Kohls, Fijálslyndra demókrata, eru sammála flokks- bræðmm sínum í A-Þýskalandi í deilunni um kosningalögin. Deilt um hermál Fleiri snurður hafa hlaupið á þráð- inn varðandi sameiningarmálin. Jafnaðarmaðurinn Markus Meckel, utanríkisráðherra A-Þýskalands, gagnrýndi Kohl fyrir að semja við Sovétstjórnina án þess að taka tillit til stjórnarinnar í Austur-Berlín. Aðalráðgjafi Kohls í utanríkismálum, Horst Teltschik, brást reiður við og sagði að ávallt hefði verið haft sam- ráð við stjórn de Maizieres og það væri ekki Bonn-stjóminni að kenna ef Meckel fylgdist ekki nógu vel með. Stjórnvöld í Bonn vilja að fækk- að verði í þýskum heijum einfaldlega með því að austur-þýski herinn verði lagður niður. Teltschik vísaði á bug hugmyndum Meckels er vill að sjálf- stæður her A-Þýskalands gegni áfram nokkm hlutverki eftir samein- inguna þar til síðustu sovésku her- mennirnir yfirgefa A-Þýskaland eftir fáein ár. Teltschik segir að einungis einn her verði í Þýskalandi og þar verði ekki hlutverk fyrir austur- þýska herforingja, með kommúnista- hugarfar sitt og flekkaða fortíð frá einræðisámnum. A-þýski varnarmálaaráðherrann Rainer Eppelmann, úr hægriflokkn- um Lýðræðisvakningu, er sammála Meckel varðandi hermálin og segir að sameiningin gangi of hratt fyrir sig. „í gamla daga gáfum við okkur lengri tíma til að kynnast svolítið áður en við ákváðum að sænga sam- an,“ segir ráðherrann. í viðtali við vikuritið Der Spiegel segist hann andvígur hugmyndum ráðamanna í Bonn um hvernig beri að framfylgja samningum við Sovétmenn um fækk- uh í heijunum. Að sögn fjölmiðla er einnig deilt um hvort áfram skuli gilda austur-lög um fóstureyðingar sem leyfa meiri frelsi en samsvar- andi v-þýsk. Hiti í Frakklandi; Fimm látnir og hundruö manna lögð á sjúkrahús París. Reuter. FIMM menn a.m.k. hafa beðið bana af voldum hitabylgju sem nú geisar í Frakklandi og mörg hundruð manns varð að leggja inn á sjúkrahús um helgina. Veð- urfræðingar segja að ekki verði lát á hitunum út þessa viku. Mestur hefur hitinn verið í suð- vesturhéruðum Frakklands og hef- ur hitastig ekki mælst hærra frá því mælingar hófust. Hæst varð það á laugardag í bænum Nerar sem er skammt frá Toulouse eða 39,2 gráður og á sunnudag fór það í 40 stig. Að sögn frönsku veðurstofunn- ar var hitastig almennt um 10 gráð- um hærra en í meðalári. New York Times: Blaðamennsku Fake Byline lýkur á snubbóttan hátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.