Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990
Viðbrögð við dómi Félagsdóms:
Asmundur
Stefánsson:
Gerum kröfu
um sömu
hækkun og
BHMR
ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti
Alþýðusambands Islands, segir
að samtökin muni gera kröfu um
að laun félaga hækki um það
sama og laun félaga í BHMR eða
um 4,5%. Það sé ekki hægt að
sættast á að afgreiðslufólk, iðn-
verkafólk, Sóknarkonur og fisk-
vinnslufólk hafi minni þörf fyrir
launahækkanir en háskóla-
menntaðir ríkisstarfsmenn, enda
sé beinlínis kveðið á um það í
fosendum siðustu kjarasamninga
að launaþróun annarra hópa
verði með sama hætti og sagt sé
fyrir um í samningnum. Viðsemj-
andinn þurfi hins vegar að sam-
þykkja kauphækkunina og
líklegt sé að hann muni ekki sam-
þykkja hana nema að gengis- og
verðlagsforsendur samningsins
verði líka teknar til endurskoð-
unar.
„Það er auðvitað augljóst að
ríkisstjórnin hefur haldið klaufalega
á málinu og það sem er kannski
stærsti klaufaskapurinn að átta sig
ekki á því hvað þeir skrifðuð undir,
sem virðist veíjast fyrir þeim,“
sagði Ásmundur aðspurður um þátt
ríkisstjórnarinnar í þeirri stöðu sem
nú er komin upp.
„Við höfum bara sett fram eina
einfalda kröfu í þessu efni og hún
er að dragast ekki aftur úr öðrum
og launamisréttið milli háskóla-
manna á almennum markaði og
láglaunahópanna innan ASÍ er
miklu stærra ranglæti en hugsan-
legur launamunur á milli háskóla-
manna á almennum markaði og hjá
ríkinu. Við værum algjörlega
ábyrgðalaus ef við gerðum ekki til-
kall til þess að okkar fólk njóti sömu
hækkana og BHMR fólk.“
Hann sagðist ekki telja að það
gæti komið til mikils ágreinings
milli vinnuveitenda og ASÍ um að
launahækkun ASÍ fólks sé óhjá-
kvæmileg. Annars væri samningur-
inn til almennrar endurskoðunar í
nóvember og uppsegjanlegur ef
ekki næðist samkomulag þá. „Ég
held hins vegar að það yrði alvarleg-
ur trúnaðarbrestur ef yrði stórfelld-
ur ágreiningur um að við ættum
rétt á sömu hækkunum," sagði
Ásmundur.
• •
Ogmundur
Jónasson:
Samningar
BHMR krafa
um aukinn
launamun
„Það sem við eigum sameigin-
legt með háskólamenntuðum
mönnum er að við viljum bæta
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 24. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Yfir Skotlandi er 1030 mb hæð en um 700 km
suðvestan af Reykjanesi er 995 mb iægð sem þokast norðnorðaust-
ur.
SPÁ: Suðaustanátt, víðast kaidi eða stinníngskaidi. Rigning eða
skúrir víða um fand, en síst þó á Norðausturlandi. Síðdegis iéttir
til norðanlands, en áfram verður vætusamt um landið sunnanvert.
Áfram verður fremur hiýtt í veðri.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVmUDAG OG FIMMTUDAG: Suðaustanáll og
fremur hiýtt ( veðri, einkum é norðanverðu iandinu. Þurrt og sum-
staðar iéttskýjað á Norðuriandi og Vestfjörðum en vætusamt um
landið sunnanvert og á Austfjörðum.
) gráður á Celsíus
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig: \ Q I
" Vindörin sýnir vind- 10
stefnu og fjaðrirnar •
vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig.
/ / r __
r r r / Rigning
r r r
* / *
r * r * Slydda
/ * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
OO
4
K
J > VEBUR VI í; ÐA gr UM HEIM
kl. 12:00 í\ ]ær httl að fsl. tíma veóur
Akureyrí 18 skýjað
Reykjavik 13 úrkoma
Bergen 15 léttskýjað
Helslnki 22 lóttskýjað
Kaupmannahöfn 18 skruggur
Narssarssuaq 9 súld
Nuuk §!8f skýjað
Ósló 18 skýjað
Stokkhóimur 19 skýjað
Þórshöfn 18 skýjað
Algarve 28 helðskfrt
Amsterdám 30 heiðskirt
Barcelona 29 skýjað
Berfln 17 skýjað
Chicago 18 þokumóöa
Feneyjar 29 þokumóða
Frankfurt vantar
Glasgow 18 skýjað
Hamborg 17 skýjað
Laa Paimas 29 léttskýjað
London 21 léttskýjað
LosAngeies 20 þokumóða
Lúxemborg 22 helðsktrt
Madrtd 28 heiðskírt
Malaga 29 skýjað
Mallorca 32 téttskýjað
Montreal 18 rigning
NewYork 26 þokumóða
Orlando 26 léttskýjað
Paris 26 skýjað
Róm 30 þokumóða
Vtn 24 Iétt8kýjað
Washington 27 mlstur
Winnipeg 11 hálfskýjað
kaupmátt taxtakaups. Vandinn
er sá að inn í þessa BHMR-samn-
inga er byggð krafa um aukin
launamun milli þeirra annars
vegar sem hafa háskólapróf upp
á vasann og hinna hins vegar og
upp á slíkt munum við að sjálf-
sögðu aldrei geta skrifað," sagði
Ögmundur Jónasson, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, aðspurður um niðurstöðu
Félagsdóms.
„Það sem við munum gera þegar
kemur að endurskoðun samninga
er að sjálfsögðu að krefjast þess
að þær hækkanir sem verða látnar
renna til þeirra muni einnig koma
í okkar hlut, því við munum aldrei
skrifa upp á aukið launamisrétti í
hinu opinbera launakerfi. Mér
finnst þetta sýna öðru fremur í
hnotskurn nauðsyn þess að launa-
fólk, að ekki sé minnst á taxta-
vinnufólk hjá ríkinu, sé samstíga í
sinni kjarabaráttu. Það þýðir ekki
að ganga í tvær gagnstæðar áttir,“
sagði Ógmundur ennfremur.
Hann sagði að það sem hefði
vakað fyrir BSRB við samninga-
gerðina í vetur öðru fremur hefði
verið að tryggja það sem fengist í
aðra hönd. Um tvennt hefði verið
að velja, að semja um prósentur
óverðtryggðar eins og verið hefði í
tísku undanfarin ár eða leggja höf-
uðáherslu á verðtrygginguna og sá
kostur hefði verið valinn. Það væri
höfuðatriði að það héldi sem samið
væri um.
Ögmundur sagði að inn í
BHMR-samninginn væri byggt að
samtökin fengju allar hækkanir
sem BSRB kynni að semja um auk
þessara leiðréttinga. Þó samtökin
ættu það sameiginlegt að vilja bæta
kaupmátt launataxtans, þá væru
þau ekki sammála um hvernig
launakerfið ætti að líta út og BSRB
myndi aldrei sætta sig við aukið
launamisrétti í hag þeirra sem
hefðu háskólapróf, en það fælist í
samningi BHMR og ríkisins.
Ólafiir Ragnar
Grímsson:
Dómurinn
virðist hafa
sett vítis-
vél óðaverð-
bólgu í
gang á ný
„FÉLAGSDÓMUR telur greini-
lega að ekki sé til efnahagslegur
Veruleiki utan samningsins við
BHMR. Dómurinn virðist hafa
sett vítisvél óðaverðbólgu á Is-
landi í gang á ný,“ segir Ólafur
Ragnar Grímsson íjármálaráð-
herra um niðurstöðu Félagsdóms
í máli því sem Félag náttúrufræð-
inga höfðaði á hendur ríkissjóði
vegna kjarasamninganna. Ráð-
herrann segir að hækkanakeðja
vegna dómsins geti auðveldlega
þýtt um og yíír 70% verðbólgu á
örfáum mánuðum.
„Þessi niðurstaða kemur mér á
óvart,“ segir Ólafur. „Sérstaklega
sú afstaða Félagsdóms að telja óvíst
að hækkun launa hjá aðildarmönn-
um BHMR leiði til hækkunar hjá
öðrum. Það sannast á næstu dögum
hvort í gang fer stórfelld víxlverkun
launahækkana með óðaverðbólgu.
Nú vill BHMR 4,5% kauphækkun,
næst biður ASÍ og BSRB um slíka
hækkun, þá BHMR aftur og svo
koll af kol]i.“
Þegar Ólafur er spurður hvort
rétt sé að varpa ábyrgðinni þannig
á dóminn segir hann að Félagsdóm-
ur hafi fallist á þá skoðun BHMR
að þeir muni einir fá hækkun. „Við
vísuðum í ummæli aðila vinnumark-
aðarins og mér sýnist allt útlit fyr-
ir víxlverkun. Við töldum að í kjara-
samningnum væru alveg skýr
ákvæði um að ef hækkun raskaði
almennu launakerfi í landinu gæti
ekki orðið af henni.“
Fjármálaráðherra segir að þótt
dómurinn eigi eingöngu við um
náttúrufræðinga sjái hann enga
ástæðu til að gera greinarmun á
þeim og öðrum félögum BHMR.
Ekkert bendi til annarrar niður-
stöðu um þá. Ólafur segir ekkert
tóm hafa gefist til að athuga hvort
áfrýja megi þeirri ákvörðun dóms-
ins, að hafna kröfu ríkisins um frá-
vísun málsins. Ríkisstjórnin eigi
eftir að ræða það atriði og fara
yfir stöðuna alla með efnahagssér-
fræðingum.
„Ég vil ekkert tjá mig um það
núna hvort samningnum verður
sagt lausum í haust,“ segir fjár-
málaráðherra aðspurður. „Hins
vegar er alveg ljóst að þessi niður-
staða Félagsdóms setur samninginn
við BHMR í algerlega nýtt ljós.“
Páll Halldórsson:
Leiðinlegt að
Félagsdóm-
ur þurfi að
aðstoða ráð-
herra við
að lesa sinn
eigin samning
„Mér fannst forseti dómsins
segja allt sem segja þurfti, en það
er hins vegar leiðinlegt að það
skuli þurfa að kalla til Félagsdóm
til að aðstoða fjármálaráðherra
við að lesa sinn eigin samning,"
sagði Páll Halldórsson, formaður
Bandalags háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna, í samtali við
Morgunblaðið eftir uppkvaðn-
ingu dóms Félagsdóms í gær.
Aðspurður hvað gerðist næst
hvað varðaði samninga ríkisins og
BHMR sagði Páll að taka þyrfti upp
þráðinn þar sem frá var horfið 12.
júní, þegar ríkið ákvað einhliða að
fresta framkvæmd samningsins á
grundvelli 1. greinar hans. „Þetta
hefur truflað alit starf sem fram
átti að fara, en nú liggur það auðvit-
að ljóst fyrir að við þurfum að vinna
í samræmi við samninginn og það
sem í honum stendur."
Páll sagði að það hefði ekki ver-
ið unnið nægjanlega að samanburði
á kjörum háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna og háskólamanna á
almennum markaði og því væri
ótímabært að skjóta því til úrskurð-
arnefndar eins og ríkið hefði gert.
Engar túlkanir væru til dæmis
komnar fram hjá ríkinu á því hvert
leiðréttingartilefnið væri eða hvern-
ig ætti að meta hlunnindi ríkis-
starfsmanna eða mát BHMR á þess-
um hlunnindum. „Þannig að það
er ekki kominn upp sá ágreiningur
sem þessari nefnd, samkvæmt 9.
grein, er ætlað að fjalla um. Mér
þætti það í sjálfu sér best, en það
var auðvitað ástæða til að ætla að
öðruvísi gæti farið og því er ákvæð-
ið um þessa nefnd, en ég vona að
menn nái samkomulagi."
— Nú getur hvor aðila um sig
samkvæmt samningnum sagt hon-
um upp með mánaðarfyrirvara frá
30. september. Áttu von á að ríkið
grípi til þess ráðs?
„Samkvæmt samningsréttarlög-
um gildir gamall samningur þar til
nýr hefur verið gerður og þó ég
vilji ekkert fullyrða um framhald
þessa máls þá reikna ég þó með
því að við munum ekki gera lakari
samning," sagði Páll Halldórsson
að lokum.