Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 13
„Saga Sólheima á einn- ig erindi til þjóðarinnar og við þjóðina. Sólheim- ar eru glæsilegt dæmi um það hveiju mann- gæska og samhugur fær áorkað á öld hinna hörðu gilda. Þessi merkilega stoftiun þarf að fá stuðning og frið til að halda áfram óbreyttu starfi.“ ast hver maður geti ráðið örlögum sínum og afkomu. i þessu felst auðvitað talsverður sannleikur, en það gleymist bara stundum að smið- irnir fá ekki allir jafngóð verkfæri til að vinna með. Hinn svokallaði siðaði maður hefur viðurkennt þessa staðreynd, þegar hann leggur grundvöll að velferðarsamfélaginu, þar sem rauði þráðurinn er sá, að hinn betur megandi skuli gæta bróður síns og láta honum í té tól og tæki, sem hann þarf til að smíða gæfu sína. Óvíða þurfa smiðirnir jafnmargvísleg verkfæri og einmitt á Kópavogshæli og óvíða hvílir sú skylda þyngra á okkur og einmitt þar, að afla og leggja til verkfærin. Við íslendingar búum í auðugu samfélagi og við höfum tekið þátt í auðgunarkapphlaupi þeirrar aldar, sem kennd verður við græðgi, óhóf og limlestingu lögmála þeirrar nátt- uru og lífskeðju, sem gerir okkur kleift að lifa. Frumskógarlögmálið um rétt hins sterka til lífsgæðanna hefur verið áberandi í framgöngu Garðar Jóhann Guðmundarson „Hinir svokölluðu „sak- borningar“, sem nú geta loks um írjálst höfiið strokið eftir fimm ára hremmingar, mega ekki eiga yfir höfði sér áfrýjun til Hæstaréttar, sem myndi draga málið minnst eitt til tvö ár í viðbót.“ loks varpað öndinni léttar eftir fimm ára hörmungar. Það þarf að fara allt aftur til galdramála Þor- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990 13 vestrænna manna á síðustu áratug- um. Virðingin fyrir manninum og mannlegum gildum hefur orðið und- ir. í velferðarsamfélaginu verður það verkefni kerfisins að annast þá samborgara, sem fá eða engin verk- færi hafa fengið í hendur til þeirrar gæfusmíði, sem mæld er á mæli- stiku lífsgæða nútímamannsins. Þetta þykir mörgum þægilegt, sem sveittir klifra upp súlu „lífsgæða- stuðuisins". Þeir segjast borga skattana sína og hafi því rétt á því að vera hlutlausir og afskiptalausir gagnvart veigamiklum þáttum mannlífsins, svo sem umönnun aldr- aðra, fatlaðra og þeirra, sem eftir verða í rásmarkinu við upphaf lífhlaupsins. En við getum spurt okkur hvort hamingja þeirra verður meiri, sem afskiptaleysið kaupa. - Fleiri og fleiri gera sér nú grein fyrir því, að gildismat okkar verður að breytast. Við, sem stundum köll- um okkur herra jarðarinnar, sjáum æ betur hvernig virðingarleysið fyr- ir lífinu, hinu æðsta og lægsta, hefur molað grundvöll þess. Sjálf lífkeðjan er við það að bresta. Okk- ur hefur láðst að vernda og hlúa að hinu viðkvæma lífi, hvort sem er í náttúrunni eða meðal manna. Hroki, græðgi og sjálfsánægja hef- ur blindað okkur gagnvart þeim mikilvægu þáttum, sem raunveru- lega gefa lífínu gildi. En ég held að við séum að vakna af draumi um eilífa og endalausa getu manns og náttúru til að auka lífsgæðin. Við erum byijuð að hugsa um viðkvæman gróður landsins, við viljum rækta og við viljum vernda. Væntanlega gildir það sama um ræktun lands og ræktun lýðs. Þessi sumarhátíð var hvati til aukinnar mannræktar, áminning til okkar allra um að hlúa að viðkvæmum mannlífsgróðri, að sinna betur bræðrum okkar og systrum. Þar er mikið verk óunnið. Á sumarhátíðinni var því heitið að gera betur til eflingar allra mannlegra samskipta og viður- kenningar á rétti hvers manns ilt umhyggju og ástúðar. Þessara tveggja mannfunda, á Kópavogshæli og í Sólheimum, er hér getið vegna mikilvægis þeirra fyrir málaflokk, sem hefur átt und- ir högg að sækja. Einnig vegna þess, að fréttir af þessum atburðum hafa verið minni en ástæða er til og minni en af öðrum ekki merki- legri. Höfundur er nlþingismn ður Alþýðuflokks fyrir Norðurlandskjördæmi eystra. leifs Kortssonar og síra Jóns þuml- ungs, til að finna slíkar ofsóknir í íslandssögunni. Það er fremur kald- hæðnislegt að á tímum frelsis og framfara skuli slíkar galdraofsóknir enn geta átt sér stað. Hveijir bera ábyrgðina á þeim ofsóknum verður líklega aldrei ljóst, en ekki vildi ég vera í þeirra sporum. Þetta mál hefur verið skólabók- ardæmi í því að ekki á að fela mönnum, sem aldrei hafa komið nálægt viðskiptum, og vita ekki hvernig heimurinn snýst, rannsókn í málum sem tengjast viðskiptum. En nú er bjart yfír, Sakadómur hefur rannsakað málið og komist að niðurstöðu. Hinir svokölluðu „sakborningar", sem nú geta loks um fijálst höfuð strokið eftir fimm ára hremmingar, mega ekki eiga yfir höfði sér áfrýjun til Hæstarétt- ar, sem myndi draga málið minnst eitt til tvö.ár í viðbót. Nú er mál að linni, og að þessir menn geti snúið sér að eðlilegu lífi aftur, að svo miklu leyti sem unnt er eftir þær raunir sem þeir og íjölskyldur þeirra hafa þurft að þola. Ég vil því enda þessi orð, og brýna sérstakan ríkissaksóknara, með því að taka mér það bessaleyfi að breyta örlítið lokalínum einnar perlu Steins Steinarrs: Saksóknari ríkisins! Ekki meir, ekki meir! Höfundur er framkvæmdastjóri í Reykjavík. Við höfum nú fengið viðbótargistingu á Costa del Sol 9. ágúst og getum því boðið 15 heppnum Veraldarfarþegum í Spánarveislu ársins. "Veröld heldur glæsilega Íslendingahátíð með pompi og pragt í ágúst á Costa del Sol og kallar til landsliðið í fararstjóm til að slá upp veislu með Hemma, Omari og Hauki Heiðar. Costa del Sol Viðbótargisting á glæsilegu hóteli 9. ágúst. Verð frá kr. 53.700,- Viðbótargisting á San Francisco, nýjum íbúðum áBenidorm þann 9. ágúst. Verð frá kr. 51.700,- Bókunaryfírlit 2. ágúst - Costa del Sol 4 sæti laus 2. ágúst - Benidorm uppselt 9. ágúst - Costa del Sol 15 sæti laus 9. ágúst -Benidorm uppselt 16. ágúst - Costa del Sol uppselt 16. ágúst - Benidorm uppselt AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK. SÍMI: (91) 622011 &622200. * Verð m.v. 2ja vikna ferð, hjón með 2 börn 2-5 ára. IFARKORT FIF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.