Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 14
zrntr 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 PLEJE-SHAMK 6CVITAI PIEJE-SHAMPOO EffCKTIVOG N/tNSOM HVER OAG JOJOBA GUN5 0GWWJTI TH.LANGTHAR LORÉAL L'ORÉAL míá ... á við bestu galdraþulu! Ef þér flnnst eitthvað vanta upp á bragðið af súpunni, pottréttinum, heitu sósunni, salatsósunni eða ídýfunni skaitu einfaldlega bæta við MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn. Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa 18% (Mayonnaise) 1 tsk (5 g) 9.7 37 . 1 msk (15 g) 29 112 100 g 193 753 Ekkí rétt, dr. Hannes eftir Einar Benediktsson Aðild íslands að EFTA var til umræðu fyrir röskum tveim ára- tugum og var þá fundið æði margt til foráttu af mörgum. Það sama eða svipað var uppi á ten- ingnum nokkru síðar, þegar gerð- ur var fríverslunarsamningur við Evrópubandalagið (EB) 1972. þar þótti víst ýmsum að hagsmuna okkar væri ekki gætt sem skyldi. Ekki var þessi skoðun þó almennt ríkjandi. Er gott til þess að vita, að nú virðist algjör samstaða um ágæti þessara ákvarðana. Einfalt reikningsdæmi er að sýna fram á ýmsa þætti ávinningsins. Tap við að standa utangátta í frekari sam- vinnu við Evrópubandalagið - og þá verður að hafa í huga, að EFTA er naumast lengur annað en við- skiptatenging við það - er augljós- ara mál en einangrun frá fríversl- unarþróuninni var á sjöunda ára- tugnum. Ekki man ég hvort dr. Hannes Jónsson hafði uppi skoðanir á framtíðarþýðingu þátttöku okkar í fríverslun í kringum 1970, en það skiptir ekki máli. Nú hefur hann, að eigin sögn í Morgunblað- inu 12. og 13. júlí, gert „nákvæma skoðun“ á því sem hann nefnir „gildandi utanríkisviðskiptakerfi", rýnir í framtíðina en sýnist margt illt vera á seyði. Hann vill víst hafa fríverslunina í Vestur-Evrópu fasta í núverandi skorðum. Þó þessi áhugi á 20 ára gömlum samningum sé góðra gjalda verð- ur, er staðreyndin sú, að allir sem þessi mál snerta vilja breytingu. Dr. Hannes vill meina að samn- ingsgrundvöllurinn um evrópska efnahagssvæðið (EES) sé „brost- inn“ og að allt s'e í voða vegna nýs kerfis. Þessu er reyndar öfugt farið. Það er gamla kerfið, og reyndar með því ýmsar kreddur fortíðarinnar, sem er sér til húðar gengið. Þegar tæknileg atriði, eins og sameiginlegur tollur eða málefni GATT, eru tekin til losaralegrar blaðaumræðu er vafalaust auðvelt að rugla almennan lesanda. Hví er dr. Hannes Jónsson að sítifa á því að nú eigi „að múra okkur inn í Evróputollmúr“? Hann veit von- andi hver munur er á fríverslunar- svæði og tollabandalagi? Varla hefur það farið framhjá honum, að EES er einmitt hið fyrrnefnda. Tollar okkar út á við myndu sem sagt ekkert breytast vegna samn- ings um evrópskt efnahagssvæði. Þetta atriði er reyndar nánast tæknilegs eðlis, því meðaltollun EB og EFTA, þar með okkar eig- in, er lág og mjög svipuð. Samhæf- ing stefnu EFTA og EB í GATT, reyndar enn annað tæknilegt at- riði, má telja að yrði ftjálslegri viðskiptastefnu í heiminum til framdráttar og hentar okkur mætavel. Alþjóðaviðskiptastofn- un, sem nánast er nafnbreyting á GATT, og dr. Hannes gerir veður út af, tryggir aldrei hagsmuni ís- lands gagnvart vestur-evrópskri viðskiptaheild, sem er markaður- inn fyrir 65-70% af íslenskum út- flutningi. Gunnar Helgi Kristins- son hefur annars tekið þessi mál til athyglisverðrar athugunar í nýútkomnu riti á vegum öryggis- málanefndar. Leifslínan, heitið sem dr. Hann- es Jónsson velur fríverslunar- tengslum við Bandaríkin, er nú þegar traust og góð. Er það m.a. að þakka fyrri GATT-viðræðum en sserstaklega ber að meta það tillit sem bandarísk stjórnvöld sýndu hagsmunum okkar í Kennedy-viðræðunum svokölluðu Einar Benediktsson „Hví er dr. Hannes Jónsson að sítifa á því að nú eigi „að múra okkur inn í Evrópu- tollmúr“? Hann veit vafalaust hver munur er á fríverslunarsvæði og tollabandalagi og varla hefiir það farið framhjá honum, að EES er einmitt hið fyrr- nefhda.“ á árunum 1964-68. Fríverslunar- tengsl keppinautar okkar Kanada við Bandaríkin munu ekki breyta stöðu okkar að neinu marki því útflutningur okkar til Bandaríkj- anna er nú þegar yfirleitt við lítinn- toll eða engan. Annar svokallaður „valkostur" dr. Hannesar er að taka viðskiptamál okkar til um- ræðu á öryggisráðstefnu Evrópu og er það jafn fjarri veruleikanum og að stefna að „hnattrænni frí- verslun á vegum SÞ“! Þessi merkilegu ráð eru gefin til að firra íslendinga algjörlega Daglegt tengiflug til Parísar /M/Sif SPRENGI - MARKAÐSTORGIÐ Meiriháttar markaður með allan fatnað - Laugavegi25 Verðdæmi: Sportskór Uppháir strigaskor Stuttbuxur Bolir Jogginggallar Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10 -14. Komið og lítið á eitt-hundrað-krónu markaðinn þar sem 100 kallinn er í fullu verðgildi. Sprengi-markaðstorgið Laugavegi 25 Sími 132 85.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.