Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 30
"30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 Brúðhjón á bifhjóli Morgunblaðið/Jón Páll Vilhelmsson Þessi hamingjusömu brúðhjón, sem séra Þórhallur Höskuldsson gaf saman í Akureyrarkirkju á laugar- daginn, kusu að aka frá kirkjunni á þessum renni- lega farskjóta. Hjónin nýgiftu, Sveinn Guðmundsson og Sigrún Stefánsdóttir, eru meðlimir í vélhjóla- klúbbnum Sniglunum. Mótorhjólið er af gerðinni Honda Gold-Wing 1500, og er'í eigu Hjartar Guð- bjartarsonar. Ferðamálafrömuðir skora á umhverfisnefnd: Nefindin geri átak í því að hreinsa o g fegra miðbæinn Skipin á T orfanesbryggju til vansa, segir Þorleifiir Þór Jónsson ÞORLEIFUR Þór Jónsson, ferðamálafulltrúi Iðnþróunarfélags Eyja- Qarðar, hefur ritað bréf til umhverfisnefndar þar sem skorað er á hana að gera átak í fegrun miðbæjarins. A fundi sem aðilar í ferða- þjónustu efhdu til urðu fundarmenn sammála um að útlit miðbæjar- ins væri til vansa fyrir bæjarbúa. ímynd sú sem skipin við Torfunes- bryggju gæfu af útgerðarmálum Ferðamálafulltrúi gerir sérstaka sínu. „Skip þessi óprýða miðbæinn verulega, sérstaklega þar sem um- ferð farþega skemmtiferðaskipa fer að miklu leyti um þessar sömu bryggjur. Því skorar fundurinn á umhverfisnefnd að beita sér fyrir því að skipum þessum verði fundið annað legupláss," segir í bréfi Þor- leifs til umhverfisnefndar. Ferðamálafulltrúi hefur einnig ritað hafnarstjóra bréf þar sem hann skorar á þann síðarnefnda að hætta að nota bryggjurnar fyrir Akureyrar væri röng og villandi. athugasemd við skipin tvö í bréfi skip sem ekki eru í notkun. „Slíkt gefur gestum bæjarins alranga mynd af stöðu útgerðarmála hér í bæ, sem eins og allir vita hefur að geyma tvö best reknu útgerðarfyr- irtæki landsins," segir í bréfinu. I svari hafnarstjórnar kemur fram að hún telji eðlilegt að nota Torfunesbryggju fyrir skip sem ekki eru gerð út. Þau eigi sinn þátt í auknum aflakvóta bæjarbúa. Að- stöðu við Austurbakka eigi að nýta fyrir skip sem eru í rekstri. íslandsmeistarar Þórs í 6. flokki: Jónatan Þór Magnússon hægri kantur, Ragnar Már Konráðsson og Hörður Rúnarsson varnarmenn. Jónatan Þór. Hann leikur sem hægri kantur og kveðst ekki hrifinn af því að þurfa sífellt að'blaupa í vöm. „Ég þoli ekki að spila í vörn,“ segir hann. Hörður og Ragnar, sem eru báðir varnarmenn, segjast þó kunna ágæt- lega við sig í þeirri stöðu. Þremenningarnir segjast hafa brennandi áhuga á knattspyrnu og ætla langt í þeirri íþrótt. Ragnar Már kveðst hiklaust setja stefnuna á landsliðið. Aðspurðir um hvaða íslenskan knattspyrnumann þeir telji bestan segjast piltarnir ekki eiga neitt átrúnaðargoð í þeirra hópi, en þjálfari 1. deildarliðs Þórs, Luka Kostic, skari framúr í íslensku knatt- spyrnunni. Þeir segjast hafa horft af athygli á leiki í heimsmeistarakeppninni á Ítalíu sem lauk fyrir skömmu. „Ég hélt með Vestur-Þjóðveijum frá upp- hafi,“ segir Hörður og félagar hans taka undir. Liðið leiki einfaldlega svo góða knattspyrnu og hafi verið vel að sigrinum komið. Og Jiirgen Klins- mann ásamt Andreas Breme eru í mestum metum hjá þeim félögum um þessar mundir. Piltamir æfa nú af kappi fyrir KEA-mótið sem fram fer á Arskógs- strönd og Akureyrarmót, þar sem Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar leiða saman hesta sína. AKUREYRI Til sölu er grunnur að þessu húsi við Aðalstræti. Upplýsingar hjá Fasteignasölunni, Brekkugötu 4, Akureyri,sími 96-21744. Framarar voru ekki kát- ir þegar Ragnar skoraði Rætt við þrjá liðsmenn um Pollamótið FORELDRAR og stuðningsmenn 6. flokks knattspyrnudeildar Þórs fognuðu ákaft þegar fótboltaliðið kom til Akureyrarflugvallar á sunnu- dagskvöld. Piltarnir urðu íslandsmeistarar í A-flokki, eftir Pollamót Eimskipa og KSÍ sem firam fór á Valsvelli um helgina. Báru þeir sigur- orð af Fram í úrslitaleik mótsins. Liðin voru jöfn eftir venjulegan leiktíma, en eftir framlengingu skoraði Ragnar Már Konráðsson sigur- mark Þórs úr vítaspyrnu. „Framarar voru nú ekki mjög hrifnir þegar Ragnar skoraði markið,“ sögðu tveir félaga hans, Jónatan Þór Magnús- son og Hörður Rúnarsson, þegar blaðamaður ræddi við þá í gær. Lögregla: Ölvun og óspektir um helgina LÖGREGLÁ á Akureyri hafði í nógu að snúast um helgina, vegna ölvunar og eija í miðbænum. Fimm gistu fangageymslur aðfaranótt laugardags. Einn var fluttur á slysadeild vegna meiðsla eftir slagsmál á laugardagskvöld, en þau reyndust ekki alvarleg. Bíll valt í Vaglaskógi á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags. Ökumaður er grunaður um ölvun. Farþegi hans var fluttur á slysa- deild, því hann kvartaði undan verkj- um í hálsi og hrygg. Á laugardag stöðvaði lögreglan ökumann sem sviptur hefur verið ökuskírteini. Þá voru þrír ökumenn gripnir á ólöglegum hraða. Einn mældist á 144 km hraða við Síla- staði, annar á 114 km hraða á sömu slóðum og sá þriðji á 80 km hraða í bænum. Tveir fyrrnefndu voru sviptir ökuskírteini. Viðmælendur blaðamanns eru sammála um að lið Fram hafi verið erfiðustu keppinautarnir á mótinu. A-lið Þórs lék fjóra leiki á Valsvellin- um þá tvo daga sem mótið stóð yfir. unnu þeir KR 4-0, Austra 11-0, Aftureldingu 5-1 og loks Fram 2-1. Þórsarar slá ekki slöku við og voru piltarnir mætti til æfingar á síðdegis á mánudag. Þeir æfa alla virka daga á sumrin. Undirbúningur fyrir íslandsmeistaramótið hófst 1. júní, þegar þeir færðu sig út á gra- sið eftir veturinn. Strákarnir sögðu að æfingar væru fjölbreyttar, ýmist væri skipt í lið, æfð skot eða víta- spyrnur. Tuttugu drengir komast í A- og B-lið 6. flokks. Mikið er sótt í að komast í liðin og þurfa margir að sætta sig við að ná ekki þeim áfanga. Gísli Bjarnason þjálfari hefur á orði að þessi árgangur sé einstaklega sterkur og sérstaklega sé ríkur keppnisandi í piltunum. Þeir bók- stafiega þoli ekki að tapa. „Við höfum spilað saman í liði síðan við byrjuðum að æfa saman þegar við vorum sex ára,“ sagði Þórsliðið fagnar sigri á Akureyrarflugvelli á sunnudagskvöld. Morgunblaðið/Rúnar Þór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.