Morgunblaðið - 02.08.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. AGUST 1990
ATVMMII 4Í JCZI Y^lhJCZAR
:;iHNNT^^THBH< MH TNNH W ^NHN NNNr ^NNR 9 9 9 ^ni****^^ ir * 9
Kennarar
Kennara vantar við Grunnskólann í Skútu-
staðahreppi. Aðalkennslugrein: íþróttir.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 96-44183
og sveitarstjóri í síma 96-44163.
Góðir tekjumögu-
leikar 7.-25. ágúst
Atvinnumiðlun námsmanna og Félag
íslenskra hugvitsmanna óska eftir að ráða
starfsmenn til skrifstofu- og sölustarfa vegna
fjáröflunarherferðarinnar „Hresstaskan".
Umsóknareyðublöð og upplýsingar liggja
frammi hjá Atvinnumiðlun stúdenta í húsi
Félagsstofnunar stúdenta v/Hringbraut, sími
621080, dagana 1.-3. ágúst.
Atvinnumiðlun námsmanna.
Félag íslenskra hugvitsmanna.
Starfsfólk
Óskum að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa
í verslunum okkar. Yngra en 19 ára kemur
ekki til greina.
Um er að ræða heils- og hálfsdagsstörf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Væntanlegir umsækjendur vinsamlega hafið
samband við skrifstofuna, Laugavegi 42, frá
kl. 17.00-19.00 föstudaginn 3. ágúst
(upplýsingar ekki gefnar í síma).
Pípulagningamenn
Óskum eftir að ráða pípulagningamenn til
stafa við nýlagnir.
Upplýsingar í síma 83696 kl. 8.00-16.00.
Hús og lagnir hf.,
Réttarhálsi 2.
KST Köfunarstöðin hf.
Skipstjóri - vélstjóri
Óskum eftir skipstjóra og vélstjóra til starfa
nú þegar.
Upplýsingar gefnar í síma 622080 milli kl.
13.00 og 17.00 og í síma 42213 á kvöldin
og um helgina.
námsgagnastofnun
Deildarstjóri í
námsefnisgerð
Námsgagnastofnun auglýsir starf deildar-
stjóra í námsefnisgerð laust til umsóknar.
Leitað er að vel menntuðum starfsmanni
með skipulags- og stjórnunarhæfileika.
Skilyrði er að viðkomandi hafi kennsluréttindi
svo og kennslureynslu. Einnig er skilyrði að
viðkomandi hafi reynslu af námsefnisgerð.
Æskilegt er að viðkomandi hafi framhalds-
menntun er tengist kennslu- og skólastarfi
og reynslu af útgáfu- og stjórnunarstörfum.
Deildarstjóri í námsefnisgerð hefur, auk
stjórnunarstarfa, umsjón með tilteknum
verkefnum á sviði námsefnisgerðar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist Námsgagnastofnun,
Laugavegi 166, 105 Reykjavík, eða í póst-
hólf 5192, 125 Reykjavík, eigi síðar en 15.
ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í
síma 28088.
„Au pair“ Gautaborg
íslensk fjölskylda með þrjú lítil börn, búsett
í Gautaborg, óskar eftir stúlku á aldrinum
18-22 ára til vetrardvalar frá ágústlokum.
Má ekki reykja.
Heimilisstörf og barnagæsla hluta úr degi.
Skrifleg svör með persónuupplýsingum ósk-
ast send auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. ágúst,
merkt: „Gautaborg - 2210“.
Sérkennarar
- kennarar
Kennari óskast til sérkennslu við Brautar-
holtsskóla á Skeiðum.
Um er að ræða spennandi verkefni fyrir rétta
manneskju. Skólinn er í u.þ.b. einnar klst.
akstursfjarlægð frá höfuðborginni og í fögru
umhverfi. Húsnæði á staðnum.
Upplýsingar hjá Þorsteini Hjartarsyni, skóla-
stjóra, í síma 98-65506 eða á Fræðsluskrif-
stofu Suðurlands hjá sérkennslufulltrúa í
síma 98-21905.
Þroskaþjálfar
athugið!
Nú vantar okkur þroskaþjálfa til starfa við
leikskólann í Borgarnesi. Um er að ræða
starf, sem að hluta til felst í sérstuðningi og
að hluta í starfi á almennum deildum.
Nánari upplýsingar varðandi starfið gefur
undirrituð í síma 93-71224 eftir hádegi.
Umsóknir sendist til bæjarskrifstofu Borgar-
ness fyrir 17. ágúst nk.
Væri ekki ráð að flytja til Borgarness á falleg-
an stað í þjóðbraut.
Félagsmálastjórinn í Borgarnesi.
HÚSNÆÐI ÓSKASTi
2-3 herbergja íbúð
Reglusamt tvítugt par að norðan á leið til
náms í Reykjavík, óskar eftir 2-3 herbergja
íbúð til leigu.
Upplýsingar gefur Stefán Ægir Lárusson í
síma 95-22618.
BÁTAR-SKIP
Kvóti
TILKYNNINGAR
Sumarbúðir skáta
- Úlfljótsvatni
Nokkur pláss laus í sumarbúðirnar:
8. ágúst til 15. ágúst.
Upplýsingar og innritun í síma 15484 eða í
Skátahúsinu, Snorrabraut 60.
HriMOAI.I iJK
Þingmaður ársins
Skólanefnd Heimdallar mun útnefna þingmann ársins í anddyri Alþingis-
hússins, fimmtudaginn 2. ágúst kl. 18. Skólanefndarmenn eru hvattir
til að koma.
Heimdallur.
Viljum kaupa botnfiskkvóta.
Seljendur, sem hafa áhuga, vinsamlegast
hafið samband í símum 95-13209, 95-13203
og 95-13308.
Hólmadrangur hf.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
VERKFRÆÐÍSTOFA
RAFNS JENSSONAR
SKÍPHOLTÍ 35, REYKJAVÍK,Q)681507
VÉLAVERKFRÆÐÍ : LOFTRASTÍNG, HÍTUN, KXlLÍNG.
Útboð
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu loft-
ræstikerfis fyrir skrifstofuhúsnæði íslenskrar
getspár við Sigtún í Reykjavík. .
Tilboðsgögn verða afhent frá og með föstu-
deginum 3. ágúst gegn skilatryggingu á Verk-
fræðistofu Rafns Jenssonar, Skipholti 35,
Reykjavík.
Tilboð verða opnuð 10. ágúst 1990.
SJÁLPSTIEDISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
IIFIMDAI.IUK
Allir í Þórsmörk
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavik, og Baldur,
félag ungra sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi, efna til hópferðar í
Þórsmörk um verslunarmannahelgina. Lagt verður af stað frá Val-
höll, Háaleitisbraut 1, föstudaginn 3. ágúst kl. 20.00. Komið verður
til baka síðdegis sunnudaginn 5. ágúst. Gist verður í tjöldum í
Langadal. Verð kr. 2500,- fyrir manninn. Innifalið: Rútuferðir, tjald-
stæði, morgunmatur og grillveisla. Allir eru velkomnir og fer skrán-
ing fram í síma 82900. Stjómir Heimdallar og Baldurs hvetja félags-
menn til að notfæra sér þetta einstaka tækifæri til heilnæmrar úti-
vistar.
Hjálpræðisherinn
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ingibjörg og Óskar stjórna og
tala. Allir velkomnir.
Wéiagslíf
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU3 S: 11798 19533
Ferðir um verslunar-
mannahelgi 3.-6. ágúst
Brottför í ferðirnar er
kl. 20.00 föstudag 3. ágúst
1. Þórsmörk - Langidalur.
Gist i Skagfjörðsskála eða tjöld-
um. Gönguferðir um Mörkina við
allra hæfi. Ferðir til baka sunnu-
dag og mánudag. Ódýr helgar-
dvöl í Langadal/Þórsmörk.
2. Þórsmörk-Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógum yfir Fimm-
vörðuháls (8 klst.) til Þórsmerk-
ur. Gist í Þórsmörk og samein-
ast helgarferðinní.
Tjaldstæði Ferðafélagsins í
Þórsmörk eru þegar fullbókuð
en laus pláss fyrir þátttakendur
i helgarferðinni með Fl.
3. Lakagígar - Öðulbrúará -
Miklafell - Fjallabaksleið syðri.
Fjölbreytt ferð. Lakagígar skoð-
aðir (gos 1783) m.a. farnar nýjar
leiðír. Ekið að Miklafelli um lítt
kunnar ferðamannaslóðir, fornt
gljúfur Hverfisfljóts skoðað,
steinbogi á Ööulbrúará o.fl. Jón
Jónsson, jarðfræðingur, verður
með í ferðinni, en hann hefur
stundað rannsóknir á þessu
svæði um árabil og þekkir það
flestum betur. Svefnpokagist-
ing.
4. Nýidalur - Vonarskarð -
Trölladyngja.
Áhugaverð hálendisferð að
miðju landsins. Gengið um Von-
arskarð og á Trölladyngju,
stærstu gosdyngju landsins.
Gist í sæluhúsi Fl I Nýjadal.
5. Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi FÍ í Laugum.
Margrómuð litadýrð blasir hvar-
vetna við á Torfajökulssvæðinu.
Eldgjá er mikil gossprunga, sem
gengið verður um og að Ófæru-
fossi.
Nánari upplýsingar og farmiða-
sala á skrifstofu FÍ.
Ferðafélag íslands.