Morgunblaðið - 02.08.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990
SKOTFIMI
45
(
I
(
{
{
Morgunblaðið/Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Frjálsíþróttalið HSK að loknum frækilegum sigri í Bikarkeppni FRÍ í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Ann Helen þjálfari er lengst til hægri í fremri röð.
Héraðssambandið Skarphéðinn:
Langþráðum sigrí
náð í Bikarkeppni FRÍ
ÞAÐ var langþráður sigur sem
frjálsíþróttalið Héraðssam-
bandsins Skarphéðins náði í
bikarkeppninni á dögunum.
Skarphéðinsmenn hafa mörg
undanfarin ár verið nærri því
að sigra og stundum verið
komnir með aðra höndina á
bikarinn en orðið að láta í minni
pokann undirlokin.
Eftir hverja einustu bikarkeppni
hefur fijálsíþróttafólk HSK
heitið því að gera'betur næsta ár
Sigurður
Jónsson
skrifarfrá
Selfossi
og alltaf stefnt að því að vinna
þennan langþráða
bikar. Loksins, loks-
ins voru orðin sem
forystumenn HSK
létu falla eftir
keppnina og nú hétu menn og
konur í liðinu því að halda bikarn-
um eins lengi og mögulegt væri.
Mikill fijálsíþróttaáhugi er á
sambandssvæði HSK, í Ames- og
Rangárvallasýslu. Þar er það
keppikefli að hafa góða þjálfara
í starfi og í sumar hefur norsk
stúlka, Ann Helen, þjálfað, liðið.
Sambandið vann stærsta sigur
sem unninn hefur verið í fijáls-
íþróttakeppni á Landsmóti ung-
mennafélaganna í Mosfellsbæ á
dögunum. Þar kepptu þrír í hverri
grein og engin vandkvæði voru við
að manna allar greinar og þar voru
tveir til þrír í úrslitum í mörgum
greinum. Breyttar reglur um stiga-
gjöf í greinum urðu til þess að
sambandið hafnaði í öðru sæti í
heildarstigakeppninni. En megin-
reglan þar var sú að félögin fengu
ekki heildarstig með sér úr ein-
stökum greinum heldur var föst
stigatala gefín fyrir hveija grein
eftir ákveðnum reglum. ,
„Þessi áfangi verður okkur mik-
il hvatning í þessu starfi. Það er
fyrst og fremst liðsheildin sem
skapað hefur þennan árangur,"
sagði Valgerður Auðunsdóttir,
formaður fijálsíþróttanefndar
HSK.
Bjöm
Sveinsson
skrifarfra
Egilsstöðum'
Fyrsta form-
lega veiði-
rifflakeppnin
Fyrsta formlega keppnin á ís-
landi í skotfimi með veiðiriffl-
um fór fram fyrir skömmu á svæð
skotfélágs Austurlands við Þránd-
arstaði í nánd vic
Egilsstaði. Keppt
var í tveimur flokk- L
um eftir alþjóðleg-
um reglum IBS sem
eru alþjóðleg samtök veiðiriffil-
skytta. Unnið er að því að fá
keppnina viðurkennda sem lið í Is-
landsmeistakeppninni og fari fram
árlega.
Að þessu sinni var keppt í tveim-
ur þyngdarflokkum, þ.e. með riffl-
um yfir 10,5 pund og undir 10,£
pundum. Skotið var á mark í 100
m fjarlægð og geta menn mest
öðlast 250 stig. Verði stig jöfn
ræður úrslitum hversu oft menr.
hitta í miðju skotmarksins í 25
skotum. í þyngri flokknum svo-
ikölluðum „varmint class“ sigraði
Jóhannes F. Jóhannesson, Þing-
eyri, neð 249 stig af 250 möguleg-
um og 14X en það þýðir að hanr
hafi hitt miðjupunktinn 14 sinnum^'
í 25 skotum. Annar varð Jón Árni
Þórisson, Seltjarnarnesi, með 246
stig og 7X. í þriðja sæti Aðalsteinn
Hákonarson, Jökuldal, með 245
stig og 7X. Fjórði Þórhallur Borg-
arsson, Eiðum, með 244 stig og 7X.
Fimmti varð Úlfar Jónsson varð-
stjóri frá Egilsstöðum með 241
stig og 9X.
I léttari flokknum „huntei
class“ sigraði Ingvar Oskarsson
Höfn, með 248 stig og 6X. Annai
varð Jón Árni Þórarinsson, Selt- ^
jarnarnesi, með 245 stig og 5X
Þriðji Jóhannes F. Jóhannesson
Þingeyri, með 245 stig og 3X
Fjórði varð Hjalti Stefánsson
Hjaltastaðaþinghá, með 240 stig
og 5X og fimmti Skúli Magnús-
son, Egilsstöðum, 228 stig og 2X.
Að keppni lokinni snæddu þátt-
takendur villibráð í Samkvæmis-
páfanum Fellabæ þar sem verð
launaafhending fór fram.
{
I
(
{
(
B KÚBA sigraði Italíu í blaki
karla í gær. Leikurinn var jafn og
spennandi og þurfti að leika fimm
hrinur áður en úrslit fengust.
Kúba var sterkari á lokasprettin-
um og vann síðustu hrinuna 15:12.
„Italir eru með eitt besta lið í
heimi. Þeir léku vel en við erum
líkamlega sterkari,“ sagði Samuels
Blackwood þjálfari Kúbu.
B LEIKUR Bandaríkjaima og
Sovétríkjanna var ekki síður
spennandi, en þar fóru þeir fyrr-
nefndu með sigur af hólmi, sigruðu
3:2. Holland vann Argentínu auð-
veldlega 3:0 og Frakkland sigraði
Brasilíu með sama mun.
M / körfuknattleik kvenna sigruðu
Bandarikin Suður-Kóreu örugg-
lega 94:70 og Sovétríkin sigruðu
Ástralíu 72:60.
Jfl ÞAÐ gekk ekki átakalaust fyr-
ir kínversku stúlkuna og Ólympíu-
meistarann Gao Min að tryggja
sér gullverðlaun í dýfingum af
þriggja metra bretti. Min var með
örugga forystu eftir átta dýfur,
en í þeirri níundu brást henni
bogalistin þegar hún rak tærnar
í stökkbrettið á leiðinni niður. Min
slapp þó við meiðsli og tryggði sér
sigur með frábærri frammistöðu í
tíundu og_ síðustu dýfunni.
■ SOVÉSKA stúlkan Irina
Lashko sem er aðal keppinautur
Gao Min tókst ekki að nýta sér
tækifærið sem hún fékk þegar
Min mistókst dýfan. Hún náði
henni að stigum, en tíunda dýfa
Lashko þótti ekki nógu erfið að
mati dómara og hún varð að láta
sér lynda annað sætið. „Ég er
ekki vonsvikin vegna þess að mér
þykja úrslitin sanngjörn. Markmið
mitt er að verða jafngóð og Mao,“
sagði Lashko eftir keppnina.
■ ÞAÐ taka ekki allir tapi jafn
vel og Lashko. Hnefaleikarinn
Roberto Balado frá Kúbu sem er
heimsmeistari áhugamanna, tapaði
fyrir Sovétmanninum Yevgeni
Belousov. Dómari dæmdi Belo-
usov sigurinn strax í fyrstu lotu
þarsem honum þótti áverkar
Balado vera orðnir alvarlegir. „Ég
trúi því ekki meiðslin hafi verið
það mikil að réttlætanlegt hafi
verið að stoppa leikinn. Þetta getur
gert mann bijálaðan,“ sagði
Balado.
■ BALADO varð þarmeð annar
kúbanski heimsmeistarinn í hnefa-
leikum sem mistókst að komast í
undanúrslit á Friðarleikunum.
Enrique Carrion tapaði naumlega
á mánudag. „Maður gæti haldið
að þetta væru samantekin ráð til
þess að koma okkur út,“ sagði
Balado sár og svekktur.
■ JÚGÓSLAVAR sigruðu í
körfuknattleikskeppni Friðarleik-
anna, ekki Tékkar eins og sagt var
í þriðjudagsblaðinu. Júgóslavar
unnu Bandaríkjamenn í úrslitum.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Þegar kemur að vali á veiði-
vörum er Abu Garcia merki
sem æ fleiri treysta á
Hafnarstræti 5 • Símar 1 67 60 og 1 48 00
Nú er einmitt rétti tíminn til að
huga að endurnýjun eða kaupum
á veiðibúnaði. Sértu að gera
klárt fyrir væntanlegar veiði-
ferðir skaltu kynna þér hið góða
úrval Abu Garcia veiðivara því
Abu Garcia hefur í áratugi verið
leiðandi í tækniþróun
veiðibúnaðar.
ÆAbu
Garcia
Það kemur meðal annars fram í
aukinni notkun á fisléttum en
sérlega sterkum efnum ásamt
nýjung sem stóreykur langdrægni
hjólanna (ULTRA CAST). Þetta
er meðal annars ástæðan til þess
að æ fleiri veiðimenn treysta
á Abu Garcia.