Morgunblaðið - 02.08.1990, Blaðsíða 48
iÍBETLáNO
gáUaJaaaH
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Forsætisráðherra setur
Alþýðubandalagi tvo kosti
Búizt við ákvörðun á ríkisstjórnarfundi í dag
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ stendur frammi fyrir tveimur kostum
varðandi setningu bráðabirgðalaga á 4,5% launahækkun sem Fé-
lagsdómur dæmdi Bandalagi háskólamenntaðra ríksistarfsmanna
frá 1. júlí, sem fela það í sér að markmið kjarasamningana frá því
í febrúar halda. Gangi þeir ekki að öðrum hvorum kostinum má
samkvæmt heimildum Morgunblaðsins búast við því, að Steingrím-
ur Hermannsson, forsætisráðherra, íhugi þingrof og kosningar.
Þetta var ljóst að loknum þriggja tíma ríkisljórnarfundi í gær, en
endanlegri ákvörðun var frestað að beiðni Alþýðubandalagsins til
ríkissljórnarfundar sem boðað hefur verið til klukkan 15 í dag.
Að fundinum loknum fundaði forsætisráðsherra sérstaklega með
öllum ráðherrum Alþýðubandalagsins og stóð sá fundur í um fimmt-
án minútur.
20-30 staðn-
ir að veiði-
þjófnaði
ÖRY GGIS VERÐIR Securitas
hafa í sumar staðið um 20-30
manns, aðallega unglinga, að til-
raunum til veiðiþjófnaðar í Ell-
iðaánum.
Að sögn Hannesar Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra Securitas
hefur náðst til flestra áður en þeim
hefur tekist að veiða lax en nokkr-
um hefur tekist að forða sér á
hlaupum.
í fyrrinótt komu öryggisverðir
að tveimur ungum mönnum á bíl,
sem voru byijaðir að veiða í ánum,
með allan nauðsynlegan útbúnað,
stangir, hjól og hvaðeina.
Securitas hefur nú eins og und-
anfarin ár eftirlit með Elliðaánum
allt fram í október og eru nokkrir
öryggisverðir stöðugt á ferli í ná-
grenni árinnar.
Drög að báðabirgðalögum lágu
fyrir í gærmorgun. Þar var gert
ráð fyrir að almennu kjarasamn-
ingarnir yrðu lögfestir fyrir alla
launþega og launahækkanir um-
fram þá yrðu afnumdar frá 1. sept-
ember. I því fólst jafnframt, að
ákvæði kjarasamninganna um
endurskoðun miðað við verðlags-
þróun og heildarendurskoðun
þeirra í nóvember, héldu gildi sínu.
Þessi lagatexti var lagður fyrir
þingflokk Alþýðubandalagsins í
gærmorgun, sem hafnaði honum,
á þeirri forsendu m.a., að verið
væri að hefta samningsrétt félaga
sem hefðu lausa samninga. En að
mati lögfræðinga eru betri líkur
á, að lögin haldi fyrir dómstólum,
eftir því sem þau eru almennari.
Alþýðubandalagið kom síðan
fram með tillögur um að fresta,
með einhveijum hætti, launahækk-
un BHMR fram yfir gildistíma al-
mennu samninganna. Einnig lagði
flokkurinn til að sáttasemjari kall-
aði samtök launafólks saman og
reyndi að ná fram sameiginlegri
niðurstöðu, um það hvernig þjóðar-
sáttin verði best varin, og síðan
yrðu greidd atkvæði um þá niður-
stöðu.
Þessar tillögur voru ræddar á
ríkisstjórnarfundi síðdegis, en þar
lagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra til tvær leiðir til
lagasetningar. Annars vegar að
sett verði lög sem gildi fyrir alla
launþega, en hins vegar að lög
verði sett sem afnemi launahækk-
un BHMR og þá launahækkun sem
fylgi í kjölfarið hjá ASÍ og BSRB.
Olafur Ragnar Grímsson sagði eft-
ir þingflokksfund Alþýðubanda-
lagsins síðdegis, að síðarnefnda
tillagan væri í samræmi við það
sjónarmið, sem Alþýðubandalagið
hefði kynnt og haldið yrði áfram
viðræðum á þeim grundvelli.
Það mun vera mat flestra þing-
manna Alþýðubandalagsins, að
gera verði ráðstafanir til að bjarga
því sem bjargað verður eftir að
launahækkun BHMR varð að veru-
leika. Því séu hins vegar takmörk
sett hvað löggjafinn geti gripið
freklega inn í samninga. Þingmenn
annarra stjórnarflokka vilja hins
vegar að sett verði lög sem bindi
alla launþega, þar á meðal þá hópa,
sem ekki hafa enn samið. Bent er
á að sú staðreynd, að þeir hafi
ekki enn samið, sýni að þeir vilji
hvort eð er ekki fella sig við for-
sendur almennu kjarasamning-
anna.
Þá munu hafa verið efasemdir
hjá ýmsum, um að ASÍ muni í
raun fá 4,5% kauphækkun í kjölfar
hækkunar BHMR, en ráðherrar,
sem Morgunblaðið ræddi við, segj-
ast ekki vera í neinum vafa um
að það myndi gerast, og því séu
lögin óhjákvæmileg.
Sjá fréttir á miðsíðu.
V erslunarmannahelgin:
KR og Valur leika til úrslita í Bikarkeppni KSÍ 26.
ágúst. Þau unnu andstæðinga sína, ÍBK og Víking,
í undanúrslitum í gærkvöldi. Þessi lið hafa ekki
mæst í úrslitum síðan 1966. Á myndinni kljást
Ámundi Sigmundsson Val og Aðalsteinn Aðalsteins-
son Víkingi um boltann. Sjá nánar á íþróttasíðu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Erkifjéndur í úrslitum
Heimilt að veiða
600 hreindýr í ár
Fyrirvari um 100 dýra aukningu
Umhverfismálaráðuneytið ákvað í gær veiðikvóta á hreindýr
fyrir komandi veiðitímabil sem hefst 10. ágúst. Ákveðið var að
veidd skyldu 600 dýr, en veiðistjóra veitt heimild til að auka kvó-
tann um 100 dýr. Þetta er veruleg aukning frá því i fyrra.
Þau hundrað dýr sem ætlunin
er að bæta við kvótann mun ráðu-
neytið ekki ætla að úthluta hrepp-
um á Héraði og í Borgarfirði, held-
ur halda fyrir sig til fjármögnunar
á vísindarannsóknum á hreindýra-
stofninum. Þetta eru hreppsstjórn-
armenn eystra ekki alls kostar
sáttir við og sendu oddvitar við-
komandi hreppa ráðuneytinu
ályktun vegna þessa.
Oddvitarnir telja eðlilegra að
hreppunum yrði gert að greiða
kostnað af rannsóknunum ef
þeirra væri þörf, í stað þess að
ráðuneytið væri með beina íhlutun
í veiðar dýranna.
Sparískírteini seld
fyrír 4 milljarða
ALLS hafa selst spariskírteini
fyrir um fjóra milljarða króna
á einum mánuði í kjölfar sérs-
taks tímabundins tilboðs Þjón-
ustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
til stærri kaupenda. Vegna
þessarar miklu sölu vantar lítið
upp á að markmið lánsfjáráætl-
unar í þessu efni náist en það
hljóðar upp á 6,7 milljarða sölu.
Fyrr á árinu höfðu selst spa-
riskírteini fyrir 2,3 milljarða.
Þórsmerkurferðir að seljast upp
Sala ferða til Eyja svipuð og í fyrra
ÚTLIT ER fyrir að hætt verði að
selja Þórsmerkurferðir um versl-
unarmannahelgina á vegum Aust-
urleiða fyrir hádegi í dag. I gær-
kvöldi höfðu þegar yfir 1.300
manns pantað í þessar ferðir, en
að sögn Ómars Óskarssonar hjá
Austurleiðum verður sala stöðvuð
þegar um 1.500 miðar yerða seld-
ir. Hjá BSÍ hefur einnig verið
nokkur ásókn í ferðir í Húnaver
og í Galtalæk. Flugleiðir segja að
sala ferða til Vestmannaeyja
gangi svipað og undanfarin ár,
en hjá Arnarflugi er að verða
fullt í allar ferðir þangað.
Hjá BSÍ fengust þær upplýsingar
að langmesf ásókn væri í ferðir í
Þórsmörk um helgina. Þá mun
nokkuð hafa verið sóst eftir Galta-
lækjar- og Húnaversferðum. Hins
vegar hefur minna verið falast eftir
ferðum með rútum og Herjólfi á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en
þannig pakki kostar 9.000 krónur
með aðgangseyri í Herjólfsdal.
Flugpakki með aðgöngumiða á
Þjóðhátíð kostar hins vegar 10.990
krónur, hvort sem flogið er með
Flugleiðum eða Arnarflugi. Hjá
Flugleiðum fengust þær upplýsing-
ar að svipuð ásókn væri í ferðir
félagsins til Eyja um helgina og
undanfarin ár. Hjá Arnarflugi sögð-
ust menn hins vegar nánast geta
talið laus sæti á Þjóðhátíð á fingrum
annarrar handar. Þá hefur verið
spurst fyrir um ferðir félagsins til
Blönduóss í tengslum við Rokkhá-
tíðina í Húnaveri.
Lífeyrissjóðir hafa að undan-
förnu keypt spariskírteini fyrir
rúman einn milljarð króna með
talsvert hærri vöxtum en verið
hafa í boði á almennum markaði.
Samkomulag tókst milli Þjónustu-
miðstöðvar ríkisverðbréfa, Sam-
bands almennra lífeyrissjóða og
Landssambands lífeyrisjóða um
7,05% raunávöxtun af spariskír-
teinum til 10 ára ef kaupin næðu
800 milljónum. Skráðir vextir á
spariskírteinum til 5 ára eru nú
6-6,2% eftir því hvort þau eru seld
í áskrift eða ekki.
Sjá nánar viðskiptablað bl.