Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 C 5 Brggi Guólauqsson vegqfóórarameistari Tel aó góó mynd haldi ávallt verógildi sinu ÖLL SÖFNUN er óneitanlega ákveðin fíkn og þessari fíkn tengist forvitni, frekja og framtakssemi. Forvitnin rekur safnarann áfram sem getur vissulega orðið yfirgengileg á köflum þegar maður gerir sig heimakominn i vinnustofum listamanna, en ég er einmitt mikið fyrir það að leita uppi gamlar myndir og á það til að gleyma að spyrja um leyfi,“ segir Bragi Guðlaugsson veggfóðrarameistari, en hann byrjaði að safna málverkum af alvöru fyrir um það bil tíu árum. Bragi Guólaugsson [aður var náttúrlega byrjaður að leita fyrir sér svol ítið áður. Ég hef að vísu ekki ráð á því að kaupa dýrt, en oft er það þannig að menn geta eignast mjög góða hluti án þess að borga mjög mikið fyrir þá. Ég stunda það tölu- vert að heimsækja listamenn í vinn- ustofur sínar og kaupi ég þá gjarn- an gamlar myndir af þeim - jafn- vel myndir, sem þeir hafa allt að því verið búnir að kasta sjálfir. Mér hefur reynst þetta best. Því er oft þannig farið að bestu myndirnar liggja í drasli hjá listamönnunum eða þeim hefur ekki fundist mynd- irnar passa inn á einhveija tiltekna sýningu. Hún hefur þá verið sett til hliðar og gleymst með tímanum. Svo hef ég þann háttinn á að sjá sjálfur um alla innrömmum," segir Bragi. Hann segist sækja töluvert í upp- boðin, en ekki keypti hann- nema þetta tvær til þijár myndir á ári. Hann hafi þó gert meira af því að selja þar verk. „Myndirnar á upp- boðunum eru mjög misjafnar og menn eru óneitanlega fyrst og fremst að beijast um góðu myndirn- ar. Það er því yfírleitt mjög erfítt að gera góð kaup í góðum mynd- um.“ Bragi segir að abstraktin eigi hvað best við sig. Hann telji Karl Kvaran einn fremsta ab'strakt-Iista- mann Norðurlanda. Einnig sé hann mjög hrifínn af verkum Þorvaldar Skúlasonar, Kristjáns Davíðssonar og Jóhannesar Jóhannessonar.„Ég hef líka verið að veðja svolítið á yngri menn eins og Sigurð Örlygs- son, Magnús Kjartansson og Gunn- ar Örn. Ég er svolítið tregur til að gefa upp hversu stórt safnið er. Við skulum segja að það sé góð þriggja stafa tala.“ Það er ekki pláss fyrir allar myndirnar uppi á veggjum þannig að stór hluti safns- ins er geymdur niðri í skúffum og inni í hillum. Bragi segist vera latur við að skoða myndimar sjálfur. Það væri helst að þær væru dregnar fram í dagsljósið ef hann fengi heimsóknir. Bragi segist ekki geta gefið neina forskrift á því hvernig meta eigi verð ákveðinna verka eða hversu hátt verð menn ættu að bjóða á uppboðum. „Þetta kemur með æf- ingunni og þeir, sem ekki hafa mik- ið vit á málverkum en vilja samt bjóða í, hafa oft reyndari menn sér til halds og trausts. Ætli þetta komi ekki bara innan frá einhvem veg- inn. Það er eitthvað sem maður lætur stjórnast af. Ég ligg mikið yfír myndlistarbókum hvers konar auk þess sem ég geri mikið af því að fara á sýningar og safna sýning- arskrám. Menn safna málverkum í tvennum skilningi, annars vegar til að íjárfesta og hinsvegar safna þeir málverkum í listrænum tilgangi og þannig vil ég líta á málverka- söfnun. Það er eitthvert verð á myndinni þegar hún er keypt og aftur þegar hún er seld. Þess á milli er hún listaverk. Kaup á mál- verki getur verið mjög svo varasöm fjárfesting. Ef kreppir að í þjóðfé- laginu virðist eins og verð á lista- verkum sé fyrst til þess að fara niður og síðast upp þegar aftur fer að rofa til. Þó tel ég að góð mynd haldi alltaf verðgildi sínu og að allt- af séu til kaupendur að slíkum verk- um. Það er nauðsynlegt hveijum manni að skapa sér áhugamál. Hjá mér urðu málverkin fyrir valinm Ég veit eiginlega ekki af hveiju, en ég man að sem krakki var ég mikill frímerkjasafnari og þegar ég fór að vinna var ég yfírleitt fljótur að eyða kaupinu mínu í frímerki. Gunnar Kvaran andi og hljóðalaust. Það tekur fag- fólk oft áratugi að koma því inn hjá þjóðinni að um sé að ræða lista- menn sem skipta máli og á meðan selja tísku- og markaðsmálarar grimmt eftir pöntunum. Þeir mála líkt og bakararnir baka án þess að breyta nokkuð út af uppskriftinni. Stóri kaupendahópurinn er að leita eftir faliegum myndum, sem falla inn í ákveðið mynstur." Gunnar segir að söfnun málverka hafi ekki orðið algeng hér á landi fyrr en á síðustu tíu til fimmtán árum. „Ýmist eru menn að fjárfesta til að koma fyrir peningum eða eru hreinlega mjög svo menningarlega sinnaðir. Markaðurinn er farinn að treysta ákveðnum nöfnum, en það eru ekki margir íslenskir listamenn sem standa upp úr frá því í byijun aldarinnar. Þess vegna má velta því fyrir sér hvort íslenskur markaður hefði ekki efni á því að fá til sín meira af erlendri list. Ég tel að það sé hrein og klár vanþekking sem ráði því að íslendingar kaupa ekki myndlist erlendis frá. Fólk almennt er afskaplega illa upplýst og illa menntað hvað varðar myndlist og menningu enda gerir skólakerfið og samfélagið í engu ráð fyrir list- fræðilegu uppeldi barna sinna,“ segir Gunnar að lokum. Maður sem rekur fyrir- tæki/búgarð í Kali- forníu, 58 ára, meðal- maður á hæð og vöxt, aldrei verið giftur; óskar eftir að kynnast konu á aldrinum 30-40 ára, með giftingu í huga. E. Erickson, 18702 Apple Rd. Corning, CA 96021, USA. Skrifstofa stuðningsmanna HREINS LOFTSSONAR á Laugavegi 47,4. hæð, er opin virka dága frá kl. 17.00-21.00 og um helgar frá kl. 14.00-19.00. Sjálfstæðismenn í Reykjavík! Kjósum Hrein Loftsson í 6.-8. sæti. _______Stuðningsmenn Símar 29397 - 29392 - 27943 - 27936 - 27933 ^fecisiietcupcisi c ettiént viáct_________ Hinor geysivinsælu félngs- og heilsuvikur ú Örkinni: 29. okt.-l.nóv. Innifnlið: Gestgiati: Gisting, morqunveróur og Hermann Ragnar Stetánsson. kvöldveróur ásamt 5.-9. nóv. fjölbreyttri dagskrá. Gestgjali: Hermann Ragnar Stefánsson. Verð kr. 12.-16. nóv. 2.900,- Gestgjafi: ádagfyrirmanninn Hermann Ragnar Stefánsson. í 2ja manna herbergi. 19.-23. nóv. 3 næturkr. Gestgjall: 8.700,- Sigurður Guðmundsson. (komið á þriðjudegi) 26.-30. nóv. 4 nætur kr. Gestgjafi: 11.600,- Hermann Ragnar Stefánsson. (komið á mánudegi) m , HOTEL OUK Dagskró: Smáferdir, félagsvist, bingó, heilsurækt, kvöldvökur og dans. Pantið strax í síma 98-34700 __________________)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.