Morgunblaðið - 21.10.1990, Side 15
C 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990
og áhangendur alls hugar fegnir. í
upphafi ársins lýsti hann því síðan
yfir að hann hygðist helga framtíð
sína hljómsveitinni en kveðja fortíð
sína og lög með tónleikaferð þar sem
úrval af hans besta yrði leikið í síð-
asta skiptið. M.ö.o. útför þess sem
skóp stjörnuna David Bowie. að baki
þessu lágu berlega fjárhagsástæður,
þurrmjólka átti kúna, verpa gullegg-
inu aftur. En alveg eins'og lykillinn
að list Bowies er hugmyndaríki
hans, líf og þjáning, er lykillinn að
hnignun listarinnar kaldrifjuð efnis-
hyggja: Mammon hrósar enn sigri.
Með allt þetta í huga stend ég í
þvögunni og á í hjarta mér von á
að ég sé að sækja kirkju, yfirgefna
af guði. En hvað kemur í ljós?
Stjarna borin til grafar
Sviðið er tjaldað svörtu eins og
við jarðarför, einfaldleikinn ræður
ríkjum, öfugt við hljómleikaferðina
1987, þar sem tónlistin glataðist
næstum í dansi og allra handa
glingri. Raunar
minnir allur um-
búnaður nú á jarð-
arför, jafnvel
stjarnan og fjög-
urra manna hljóm-
sveit hans er
klædd í lit sorgar.
Ekki það að Bowie
virðist syrgja sérs-
taklega lögin sem
hér eru kvödd
hinsta sinni, hann
gengur glottandi
fram fyrir lýðinn, í blúnduskyrtu og
svörtu vesti minnir hann á 17. aldar
aðalsmann.
Goðið myndar aðdáendur sína sem
birtast jafnóðum á myndskermum.
Hann svipast yfir fjöldann eins og
til að slá tölu á þær þrjátíu þúsund
sálir sem hylja völlinn Stadion í höf-
uðborg Svíaríkis. Síðan slær hann
gítarinn og lagið sem gerði hann
frægan hljómar: Space Oddity. Fyr-
irheitið um hávaðann er uppfyllt.
Áhorfendaskarinn þekkir lagið jafn-
vel og meistarinn. Rebel Rebel vekur
enn meiri hrifningu, hluti plötunnar
Diamond Dogs sem sótti yrkisefni
sitt til framtíðarspár Orwells, 1984,
og átti að verða leikhúsverk en því
miður þá leist ekkju skáldsins ekki
jafnvel á hugmyndina og David
Bowie. Eftir hamaganginn sest pilt-
ur niður aftarlega á sviðinu, kveikir
sér í sígarettu og hvílir lúin bein
fáein augnablik, á meðan hljómsveit-
in leikur upphafstóna Ashes to As-
hes, lagið sem fjallar um dapurleg
endalok hetjunnar Major Tom, fyrir-
brigði sem loðað hefur við Bowie frá
því að honum var fyrst skotið upp
í himingeiminn í Space Oddity.
Bowie grípur hljóðnemann á nýjan
leik og breytir Tómasi í ösku, því
næst ómar Stay um loftið. Næsta
lag er eina nýmeti tónleikanna og
er ávöxtur samstarfs þeirra Bowies
og Adrian Belews, sem er vel þekkt-
ur gítarleikari í Bandaríkjunum
(m.a. með Frank Zappa og Talking
Heads) og „lánandi" sjálfan sig og
hljómsveit sína sem undirleikara fyr-
ir Bowie.
Stílbrot
Stjarnan hýmar öll við þetta stíl-
brot í tónleikana og Belew þenur
gítar sinn af mikilli leikni, Pretty
Pink Rose nefnist þessi þungrokkaða
samsuða. Bowie leikur á alls oddi,
hann spjallar milli laga og stutt er
í húmorinn, hann virðist taka sjálfan
sig með minni alvöru en t.d. 1987,
er ég barði hann augum í Hamborg.
Erfitt er að gera sér í hugarlund,
að maðurinn sem nú tekur þykjustu-
gítarsóló, og hæðir ímynd popp-
stjörnunnar sé sá sami og sveif til
jarðar í gullstól undir kjafti gler-
köngulóarinnar. En hann hefur jú
alltaf verið erfitt að staðsetja. Blue
Jean fylgir fast á eftir bleiku rósinni
og síðan Let’s Dance. Bowie tekur
hlutunum með stóískri ró og fær sér
enn sæti og sígarettu, á meðan
galdramenn tækninnar varpa honum
og íjarstaddri meyju á risasker-
mana, sitt hvoru megin við sviðið.
Sá er ber ábyrgð á útliti og umgjörð
bæði myndefnis og sviðs heitir Edou-
ard Lock og hefur unnið rómuð verk
fyrir ballett- og leikhúsuppsetningar
víðs vegar í heiminum.
Yfirskrift tónleikaferðarinnar er
Sound and Vision (Hljóð og Sýn) og
samnefnt lag kemur á hæla, China
Girl.
Eitthvað má e.t.v. lesa út því, að
Sound and Vision flallar um óttann
við að missa sköpunargáfuna, hina
eilífu bið eftir innblæstri sem aldrei
kemur. Eða . . .
Stutt brotlending
Síðan fatast meistaranum flugið
lítið eitt, meðferðin á Ziggy Stard-
ust er vönduð en of plöguð af nútím-
anum, raddbeiting og undirspil
þyngir þetta sígilda verk rokksög-
unnar til lýta.
Bowie hefur sjálfur sagt að það
veitist honum erfitt að hverfa aftur
til æskuverka sinna, þau einkennist
um of af ungæðislegum heilabrotum
'og áhrifum frá tíðarandanum. En
æskuduld setur engan hemil á
næsta lag Life on Mars er framúr-
skarandi og Station to Station er
ógleymanleg lestarferð sem æðir
rakleiðis inn í ádeilu á skammtíma-
minni og grandvaraleysi banda-
rískrar æsku;
Young Americ-
ans. Bowie er
síhvikull á svið-
inu, hann mund-
ar ólíkar gerðir
gítara með við-
eigandi tilþrif-
um, fleygir gít-
arnöglum út í
dýrslegan fjöld-
ann og stígur
dansspor lipur-
lega.
Belew gerir athyglisverða tilraun
til að leysa saxófóninn í upprunalegu
útsendingunni af hólmi með vælandi
gítarnum, djarft en varla fullnægj-
andi. Tónleikarnir stefna að há-
punkti sínum og ná því marki með
ólmfjöruga slagaranum Suffragette
City, iðandi kösin fagnar hástöfum.
Óðurinn til frægðarinnar, eða rétt-
ara sagt níðstöngin sem Bowie
reisti til hennar, er þar á eftir. Kapp-
inn setur upp tómlegan heimskusvip
og hreyfir mjaðmirnar með ýktum
stirðleika, enn teiknar hann upp
skrípamynd af látbragði stjörnunn-
ar, hann dregur ímynd sína og
starfsfélaga í efa: Frægðin er ekki
eins eftirsóknarverð og gerviveröld
veggspjaldanna sýnir. Upphafstónar
Heroes fegra kvöldið og næstum
hljóðlaust segir Bowie við fólkið:
„Hetjurnar — það eruð þið.“
Öllum að óvörum er útgáfa lags-
ins stytt til muna og Bowie hverfur
af leikvelli. En honum er ekki undan-
komu auðið svo fljótt, kröfuharður
lýðurinn linnir ekki látum fyrr en
ljóskeilurnar æða af stað og velkryd-
dað Changes rýfur þögnina. Bowie
fleygir blómvendi í framherjana og
hristir hneykslaður höfuð, þegar rós-
irnar eru tættar í frumeindir sínar.
Fashion fylgir breytingum og gamli
látbragðsleikarinn rykkist til á sviðs-
brúninni, hálft lagið er hann
strengjabrúða, vafalaust í hendi
duttlungafullrar tískunnar sem væg-
ir engum. Lengi hefur White light/
White heat fylgt tónleikaferðum
Davids og þessi er engin undantekn-
ing, andi Velvet Underground svífur
yfir vötnum (eða pollum réttara
sagt, fyrr um daginn rigndi hressi-
lega). Jean Genie olli mér vonbrigð-
um, sterkur blúsþráður var ofinn í
lagið sem sómir sér best í hrárri,
kröftugri rokkútsetningu. Og tón-
leikarnir höfðu óvænt endalok,
Bowie stafar Gloria og þetta gamla
Van Morrison lag setur punktinn við
kvöldið. Hann veifar hendi, segir:
„Við sjáumst næsta ár með Tin
Machine" og er horfinn fyrir fullt
og allt.
Hressileg vofa
Bæði tónleikarnir og brottförin
vekja hungur eftir meiru, ekki endi-
lega gömlu gullmolunum, heldur og
tónlist sem samin er af viðlíka hæfi-
leikum og þrótti. Hugsanlega er það
aukatilgangur ferðarinnar, að vekja
hungur fólks eftir nýjum og endur-
bættum David Bowie, stjörnu til ald-
amóta. Og hungurvakan er vel-
heppnuð, jafnvel þótt tónleikar séu
safn augnablika, ótal neistar sem
erfitt er að þræða í samstæða heild
og sýningin lúti lögmálum sem óháð
eru umheiminum, er aðeins eitt ör-
uggt að þeim loknum: Goðið er e.
t.v. oltið af stalli en vofan er til alls
líkleg.
Morgunblaðið
grannskoðar
manninn sem
féll til jarðar
Peysa 100% ull,
gallabuxur í bláu og
svörtu.
Tommi & Jenni
Laugavegi 12A, sími 12401.
& Ármúla 29 simar 38640 - 686100
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Armstrong LOFTAPLDTUR
kobkdpiast GÓLFFLÍSAR
[ligbpfiÍlltl KORKFLiSAR
BMF VINKLARÁTRÉ
Sovéskir dagar MÍR1990:
SÚMMK - þiðilaga- 09 dansMkurinn
frá Sovétlýðveldinu Túrkmenistan
sýnir á eftirtöldum stöðum:
Miðvikudoginn 24. okt. kl. 20.30 í íþróttahúsinu, Keflavík.
Fimmtudaginn 25. okt. kl. 20.30 í Sjallanum, Akureyri.
Föstudaginn 26. okt. kl. 20.30 í íþróttahúsinu, Húsavík.
Sunnudaginn 28. okt. kl. 14.00 í Gunnarshólma, Austur- Landeyjum.
Mónudoginn 29. okt. kl. 20.30 í Hóskólabíói, sal 2.
Sýning á Ijósmyndum og listmunum frá Túrkmenistan
verður opnuð ísýningarsalnum Vatnsnesvegi 12,
Keftavík, þriðjudagskvöldið 23. okt. Opin næstu daga á
afgreiðslutíma Innrömmunar Suðurnesja.
Kynnist sérstæðri list frá fjarlægu landi, skoðið sýning-
una og sækið tónleika og dansskemmtun
SÚMBAR-flokksins.
MÍR
Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 25. október 1990
DAGSKRA
12:45 Skráning þátttakenda hefst.
13:15 FjármálaráCherra, Ólafur Ragnar
Grímsson ávarpar ráðstefnuna.
13:30 Hvað eru pappírslaus viðskipti?
Sigurbcrgur Bjömsson, Laniissamband iönaöarmanna.
13:45 Yfirlit yfir starfsemi EDI - félagsins.
Vilhjálmur Egilsson, formaður EDI-félagsins
14:00 Pappírslaus viðskipti í dag og
framtíðarhorfur.
Curt Daniclscn, Vice-chairman UN/ECE/WP.4,
chaiiman NORPRO
14:30 Stefnumótun í upplýsingamálum verslana
og pappírslaus viOskipti.
Ingi Þór Hermannsson, vcrslunanleild Sambandsins.
Kaffihlé
Reynslan af DACOM verkefninu
ogframtíöarhorfur.
Bengt Friggebo, EAN strikamerkjanefnd Svíþjóðar.
EDI þjónusta SKÝRR og ÍSNETS.
Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrr
15:50 Fyrirhuguð EDI þjónusta IBM á íslandi.
GuÖmundur Hannesson markaösfulltrúi IBM á íslandi
16:05 Fyrirhuguð EDI þjónusta Pósts og Síma.
Karl Bcndcr yfirverkfrscöingur, Pósli og Staa
16:20 RáOstefnuslit.
16:30 Opnunsýningar.
Vilhjálmur Egilsson.fotmaÖur EDI-félagsins
(Bomar veröa fram léltar vcilingar)
14:45
15:00
15:30
Ráöstefnustjóri: Holberg Másson, Nelverk
Staösetnlng: Hótel LoftleiÖir, ráöstefna í Höfða og sýning í Tanga.
Tfmasetnlng: Ráöstefna: 25-10-90 ; kl. 12:45 -16:30
Sýning: 25-10-90; kl. 16:30 - 18:00 og 26-10-90; kl. 10:00 -15:00
GJald: RáÖstefnakr. 2.900,-
Sýnendur: IBM á íslandi kynnir alþjóðanet IBM og EDIhugbúnað. Skýrr, fsnet og samstarfsaöilar kynna hugbúnaö fyrir EDI
og sýna EDI - samskipti. Póstur og sími kynnir gagnahólfaþjónusm. Icepro kynnir Tedis áaetlun EFTA og Eb. EAN
strikamerkjanefndin kynnir strikamerki og EDI. TollstjóraembaettiÖ kynnir upplýsingalfnu tollsins. Taeknival kynnir
samskiptabúnaö fýrirstaðamet.
Þátttaka tilkynnist til Skrifstofu viðskiptalífsins í síma 83088, í síOasta lagi miOvikudag 24 október.
EDI- félagið á Íslandi/Skrifstofa viðskiptalífsins
Sjfþfff DRíkÍStOllStjÓfÍ
OpUSFÚXi
Póstur og sírui
GAGNAHÓLF
jggTÆKNIVAL
l££