Morgunblaðið - 21.10.1990, Page 28

Morgunblaðið - 21.10.1990, Page 28
-28 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 barnum og talaðu við mig. Með morgunkaffiriu Ég tók hann í pókertíma áður en hann sofnaði. Þið skuldið mér líka 10 krón- ur, sem hann tapaði! HOGNI HREKKVISI SA<3E>I AE> FOK.T0t.Uie KÆMO AP UíTLU GASMU * Á FÖRNUM VEGI Margt hægt að gera í dag Rætt við nokkra eldri borgara í Stykkishólmi og nágrenni Stykkishólmi. LÍTIÐ fer fyrir eldri borgurunum í fjölmiðlunum. Þeir hafa skilað góðu dagsverki í hendur yngra fólksins og eru sestir í helgan stein. Þetta fólk man tímana tvenna og áhugavert er að ræða við það. Fréttaritari ræddi við nokkra eldri borgara í Stykkishólmi og nágrenni á dögunum. „Tímarnir eru breyttir' Sigurður Ólafsson hefur nú hreiðrað um sig á Dvalar- heimili aldraðra í Stykkishólmi. Hann hefur ágætis herbergi, á lítið en gott bókasafn og unir sér vel í föndri og við spil. Sigurður fædd- ist í Reykjavík í sex systkina hópi. „Faðir minn var skipstjóri á skútu en hann fórst með skútunni áður en ég fæddist. Móðir mín, Guðrún Baldvinsdóttir, varð að sjá fyrir okkur ein.“ Sigurður byrjaði ungur að vinna fyrir sér. „Ég var hepp- inn. Mér var vísað til Flateyjar til athafnamannsins Guðmundar Bergsteinssonar sem síðan kom mér til þeirra sæmdarhjóna Kristínar og Skúla í Skáleyjum og urðu þau fósturforeldrar mínir. Ég var með þeim við öll sveita- og sjóverk þar til ég fór til Reykjavíkur til að sjá fyrir mér sjálfur," sagði Sigurður. Hann segist hafa komist að sem hjálparmaður í ýmsum bakaríum í Reykjavík og náði sér síðan í iðnréttindi. „Ætli ég hafí ekki ver- ið við þetta starf, bæði í Reykjavík og Stykkishólmi, í um fjörutíu ár. Ég veit ekki hvort ég myndi velja mér þetta ævistarf ef ég væri ungur maður í dag. Tímamir eru svo breyttir. Og verður ekki búið að tölvuvæða baksturinn innan skamms svo bakaríin þurfi ekki á mér að halda?" sagði Sigurður. „Fékk köllun um að koma“ Systir Anna hefur þjónað kaþ- ólsku kirkjunni og sjúkrahúsinu í Stykkishólmi í 55 ár. í þessu guðs- húsi hefur hún setið daglega og oft á dag með biblíuna sína og beðið fyrir samferðamönnum sínum og friði í heiminum. Systir Anna kom hingað frá Belgíu árið 1935 en þá var starfsemi kaþólska sjúkrahússins hér að hefjast. I upphafi voru aðstæður frumstæð- ar. Hún segir að þau hafi orðið Sigurður Ólafsson 8 I I Víkveiji skrifar Mörg og mikil átök hafa verið í gangi síðustu mánuðina. Málræktarátaki var hrundið af stað með látum; varðveisla tungunnar, vandað málfar, auðugri orðaforði - að þessu skyldi stefna markvisst og af metnaði. Síðan hefur smátt og smátt hljóðnað, engu líkara en farið sé að fyrnast yfir átakið. Þá er allt í lagi að slaka á, sletta úr klaufunum ogtaka upp fyrri háttu. Ymis tískuorð fara heil ósköp í skapið á Víkverja. Þau spretta upp af því að til þeirra hefur einhvers staðar sést á prenti og eru svo fín og íslensk að allir nota þau í tíma og ótíma. Sum eru góð og gild en ofnotuð missa þau lit sinn og ljóma eins og allt sem er gert í óhófi. Menn eru um þessar mundir sýknt og heilagt með eitthvað í farteskinu bæði í eiginlegri merkingu og þó oftar í yfirfærðri merkingu. Þetta er fallegt orð og merkingarmikið en það gerir einmitt að verkum að við ofnotkun verður það bragðlaust og tilgerðarlegt. Og vel á minnst, þetta blessaða átak fer nú brátt að verða gatslitið orð. En öllu meiri plága er sögnin að staðsetja sem tröllríður rituðu og mæltu máli. Þessi sögn er ljót og undantekningarlítið óþörf. Væri ekki ráð að taka nú á og útrýma henni. Enn má nefna forskeytið hái- sem er skeytt við í furðulegustu orðum, allt líklega til að sar.nfæra fólk um gæði. Þetta gerist einkum í auglýsingum. Nefna má dæmi eins og hámarksafsláttur, hágæðatilboð, hágæðastimpill og meira að segja hámarksóréttlæti og svo mætti áreiðanlega áfram telja. Svo eru líka nýyrðin, þar mætti sannarléga hreinsa til. Ég las í stjórnmálaályktun að eitthvað gæti haft „búseturaskandi áhrif". Þegar maður rekst á svona orð raskar það verulega sálarrónni og kannski tímabært að taka undir með séra Sigvalda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.