Morgunblaðið - 21.10.1990, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990
-----,-----------------;--- ------------------------------
C 31
Herra Ásmundur Guðmundsson biskup gengur frá alt- Nývígður biskup yfir Islandi, herra
ari að lokinni vígslu 6 guðfræðikandidata. Ásmundur Guðmundsson og biskupsfrú
Steinunn Magnúsdóttir í garði Alþingis-
hússins.
Yfir eitt hundrað prestar af öllu landinu í garði Alþingishússins við setningu prestastefnu 21. júní 1954.
Eftir því sem best er vitað hafa ekki í annan tíma verið fleiri prestar samankomnir á einni mynd hér
á landi.
SÍMTALID...
ER VIÐ GUÐRÚNU GUÐJÓNSENFORMANN
HUNDARÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS
VANTAR HUNDA
TIL RÆKTUNAR
62 52 75
„Hundaræktarfélag íslands."
-Góðan daginn, er Guðrún Guð-
jónsen við?
,já, augnablik“
„Halló!“
-Komdu sæl Guðrún, þetta er
Brynja Tomer á Mogganum.
„Já, sæl.“
-Ég frétti að Sankti-Bernharðs-
hvolparnir sem skátarnir hafa í
verðlaun í happdrættinu sínu,
væru undan smygluðum foreldr-
um. Er það rétt?
„Ég veit það ekki. Auðvitað
heyrir maður öðru hvoru um
smyglaða hunda, en við getum
ekkert gert til að koma í veg
fyrir það annað en breyta inn-
flutningsreglum um hunda.
-Sumir hundaeigendur tala um
að á íslandi sé erfitt að fá hrein-
ræktaða hunda. Þetta sé allt und-
an hvert öðru og meira og minna
úrkynjað. Ertu sammála þessu?
„Nei, auðvitað eru til kynhrein-
ir hundar hér á landi og margir
mjög góðir, en við eigum við viss-
an vanda að stríða og þar komurti
við aftur inná innflutningsregl-
urnar. Takmarkið með að breyta
þeim er meðal annars að fá nýja
hunda tily lands-
ins til að geta
ræktað upp góð
dýr. Langflestir
þeirra sem hafa
búið í útlöndum
og átt hund hafá
þurft að skilja
hundinn sinn eftir
þegar þeir hafa
flutt aftur til
landsins."
-Sumir segja
að blendingar'séu
miklu skemmti-
legri en hrein-
ræktaðir hund-
ar...
„Blendingar geta verið bæði
fallegir, gáfaðir og skemmtilegir,
en með því að rækta upp ákveðn-
ar tegundir er hægt að veita
ákveðna tryggingu fyrir því hvaða
eiginleikum hundarnir eru gæddir
og hvaða efnivið þú hefur í hönd-
unum þegar þú færð þér hvolp.
Hundur á heimili er einn af fjöl-
skyldunni og það er mikilvægt að
fjölskylda fái sér hund sem hentar
lífsmynstri hennar best. í hunda-
rækt er markmiðið að andlegir
og líkamlegir eiginleikar haldist í
hendur.“
-Eiga hundar heima í borgunm?
„Hundar eiga fyrst og fremst
heima með húsbónda sínum,
þannig líður þeim best. Það er
hundinum ekki eðlilegt að vera
einn og afskiptur, hann er félags-
vera og honum er nauðsynlegt að
tilheyra ákveðnum hóp eða fjöl-
skyldu. Auðvitað þarf hann að fá
hreyfingu og ferskt loft, en hann
þarf líka að nota heilann. Þáð er
hægt að leggja margs kyns
skemmtilegar þrautir fyrir hunda,
sem bæði hundur og eigandi hafa
gaman af.“
-Að lokum, hvaða hundategund
er í tísku á ís-
landi núna?
„Labrador - og
Goldert-retriever
eru algengastir
hér, en kannski
fara Sankti-
Bernharðshund-
ar að koma í tísku
núna!“
-Ha, ha, ha,
ha, já, þú segir
nokkuð. Takk
fyrir spjallið og
vertu blessuð.
„Sömuleiðis,
bless.“
Guðrún Guðjónsen.
Ein stór plata
var gefin út
með Hönnu
Valdísi en hún
hafnaði því að
koma fram á
fleirum.
ÁRIÐ1974 var fjörugt og viðburðaríkt hjá tíu ára gamalli
stúlku í Melaskólanum, Hönnu Valdísi Guðmundsdóttur. Það
ár var hún, ásamt öðrum nemendum skólans á svipuðu reki,
meðlimur í Sólskinskórnum sem stjórnað var af Magnúsi
Péturssyni. Kórinn var fenginn til þess að taka upp hljóm-
plötu með barnalögum fyrir Hermann Ragnar Stefánsson
danskennara til nota við kennslu barnadansa í dansskóla
hans. í framhaldi af þessu fór Svavar Gests eigandi SG- útgáf-
unnar þess á leit við Hönnu að hún syngi lagið um Linu lang-
sokk á íslensku en sænskir þættir um Línu nutu þá mikilla
vinsælda í sjónvarpinu. Hanna Valdís var landsþekkt fyrir
þetta lag og ári síðar var gefin út stór plata með henni sem
hét einfaldlega sem hét Hanná Valdís. En hvar ætli Hanna
sé í dag?
Hanna Valdís Guðmundsdóttir á heimili sínu í dag.
Jafnframt hóf hún nám í píanó-
leik í Tónlístarskóla Reykjavíkur
en sönginn lagði hún alfarið á
hilluna.„Þó þessar vinsældir hafi
komið róti á líf mitt sé ég ekki
eftir að hafa öðlast þessa
reynslu sem barnastjarna. Ég
held að ég hafi verið valin af
handahófi úr Sólskinskórnum til
að syngja lagið um Línu lang-
sokk, málið var að fá einhveija
til að syngja lagið á islensku.“
Aðspurð um hvað sé framund-
an hjá henni segir Hanna að það
sé nokkuð óráðið en margt komi
til greina. „Dæturnar taka mik-
inn tíma hjá manni og verður
svo áfram. Ég hef hug á því að
halda áfram með píanónám mitt
og ég mun halda áfram að leika
undir á æfingum í ballettskólan-
um en annað er ekkert fastá-
kveðið. Hinsvegar held ég að
söngurinn sé fullklárað dæmi hjá
mér.“
HVAR
ERU ÞAU
NÚ?
Hanna Valdts Gudmundsdóttir
Húsmóöir
ogpíanó-
leikari
Hanna Valdís Guðmunds-
dóttir er nú gift Ágústi
Einarssyni guðfræði-
nema í Háskólanum og eiga þau
tvær dætur. Hanna sinnir heim-
ilsstörfunum en hefur einnig
þann starfa að leika á píanó í
ballettskóla Eddu Scheving.
„Vinsældir lagsins um Línu
langsokk komu mér mikið á
óvart, ég var ekki undir þetta
búinn, og ég held ég hafi ekkert
hugsað út í hvað ég var að gera
á þessum tíma,“ segir Hanna
Valdís. „Ári síðar kom út stór
plata með mér og þó hún yrði
einnig vinsæl var ég búin að fá
nóg af þessu. Það voru hug-
myndir í gangi um að ég gerði
fleiri plötur en ég sagði nei takk
við beiðnum um slíkt.“
Hanna hélt áfram í skóla og
varð stúdent frá MR árið 1982.