Morgunblaðið - 04.11.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.11.1990, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1990 Morgunblaðið/RAX Frá Kerlingarfjöllum. Nokkur hús á þeim slóðum munu byggð án heimilda, að sögn skipulagsstjóra. Skipuiagsstjóri ríkisins; Engar reglur til um byggð á hálendinu Milli 300 til 500 skálar í óbyggðum Norðurlandskjör- dæmi eystra: Sex kratar / / i*i • •• • í profKjori SEX einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, sem fram fer 24. og 25. nóvemb- er næstkomandi, en framboðs- frestur rann út á hádegi í gær. eir sem gefa kost á sér í próf- kjörinu eru Aðalsteinn Halls son, Amór Benónýsson, Hreinn Pálsson, Sigbjörn Gunnarsson, Sig- urður Amórsson og Pálmi Ólafsson. Framsóknarflokk- urinn í Reykjavík; Níu gefa kost á sér NÍU hafa gefið kost á sér í efstu sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Skoðanakönnun um val frambjóðenda fer fram í skrifstofu Framsóknarflokksins við Lækjartorg helgina 10.-11. nóvember næstkomandi. eir sem gefið hafa kost á sér em: Ásta Ragnheiður Jóhann esdóttir deildarstjóri, Anna Margrét Valgeirsdóttir nemi, Bolli Héðins- son efnahagsráðgjafi forsætisráð- herra, Finnur Ingólfsson aðstoðar- maður heilbrigðisráðherra, Guð- mundur Birgir Heiðarsson leigubif- reiðarstjóri, Guðmundur G. Þórar- insson alþingismaður, Hermann Sveinbjömsson aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, Sigfús Ægir Arnason framkvæmdastjóri TBR og Þór Jakobsson veðurfræðingur. í samtali við Jón Sveinsson, formann kjömefndar, kom fram að kosið verður um röð frambjóðenda á listanum í skoðanakönnun helgina 10.-11. nóvember. Utankjörfundar- kosning verður fram að skoðana- könnuninni. TALIÐ er að milli 300 til 500 ferðamannaskálar, gangna- mannakofar og björgunarskýli sé að fínna í óbyggðum landsins. Að sögn Stefáns Thors, skipu- lagsstjóra ríkisins, hafa skipu- lagsstjórn eða viðkomandi hreppsnefndir í fæstum tilvikum gefið samþykki sitt fyrir bygg- ingunum. Ástæðuna má meðal annars rekja til þess, að lítið eft- irlit hefur verið með því, að far- ið sé að settum reglum. Avegum skipulagsstjórnar ríkis- ins er unnið að úttekt á fjalla- skálum og staðsetningu þeirra. I Ijós hefur komið að flestir þeirra em á afréttum Sunnlendinga og nefndi Stefán sem dæmi að í Kerl- ingarfjöllum væri risið heilt þorp án heimilda, en samkvæmt lögum hefði skipulagsstjórn ríkisins átt að fjalla um allar nýbyggingar þar sem byggðar hafa verið eftir árið 1979. „Ég hef ekkert á móti því að menn reisi skála í óbyggðum, en þeir eiga að vera byggðir undir eftirliti og samkvæmt ákveðnum reglum og vera opnir almenningi en ekki lok- aðir og í einkaeign," sagði Stefán. „En fyrst og fremst á almenna regl- an að vera sú, að menn sæki um leyfi til viðkomandi bygginganefnd- ar og síðan óskar hreppsnefnd eftir samþykki skipulagsstjómar. Ef ekkert sveitarfélag er fyrir hendi, þá veiti viðkomandi ráðuneyti bygg- ingarleyfið. Þannig verði komið í veg fyrir að menn komi upp skálum þar sem þeim dettur í hug.“ Stefán sagði að ýmis vandræði hefðu skapast vegna þeirra skála sem reistir hafa verið utan lögsagn- ar hreppa. Benti hanrr á að dr. Gunnar Schram haldi því fram í bók sinni, „Umhverfísréttur", að skipu- lagsskylda gildi ekki í óbyggðum og ef vafí leiki á hvort mannvirki sé háð ákvæðum byggingarlaga skuli félagsmálaráðherra skera úr. Á tveimur stöðum á landinu stefnir í málaferli vegna skála sem hafa verið reistir í óbyggðum. I etta er frábært fyrsta apríl- gabb nema hvað fréttina ber bara ekki upp á fyrsta apríl,“ sagði öðru.tilviki er um skála í einkaeign að ræða sem fyrrverandi hrepps- nefnd í viðkomandi hreppi veitti heimild fyrir en skipulagsstjórn ríkisins og Náttúruverndarráð hafa hafnað. Þá hafa félagasamtök rifíð gamlan skála á öðrum stað og reist nýjan og stærri án þess að hafa til þess heimild viðkomandi hrepps- nefndar. Þorvaldur Garðar í samtali við Morgunblaðið í gær. Frábær 1. apríl frétt - segir Þorvaldur Garðar Kristjánsson í FRÉTT í Tímanum í gær er sagt að Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, alþingismaður, ætli að gefa kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins i Norðurlandskjördæmi vestra. Þorvaldur kannast hins vegar ekkert við þetta. Gengisfall dollarans hef- ur lítil áhrif á þióðarhag Flugleiðir hagnast en Alafoss tapar GENGISFALL Bandaríkjadajs hefur ekki lengur afgerandi áhrif í íslensku efnahagslífí. Á síðustu árum hefur dregið veru- lega úr útflutningi til þjóða sem greiða fyrir vörurnar í dollur- um og innflutningur frá Bandarikjunum hefur aukist. Þá er stór hluti erlendra skulda í dollurum, mun stærri en nemur hlutdeild dollarasvæða í útflutningi frá íslandi, og því lækka erlendar skuldir landsmanna við fall dollarans. Þessi þróun hefur þó mjög slæm áhrif á afkomu og efnahag einstakra fyrir- tækja og jafnvel heilla atvinnugreina. Ullariðnaðurinn fer til dæmis ílla út úr þessu róti. Áhrifín eru jákvæð fyrir önnur fyrirtæki. Flugleiðir eru dæmi um það. Bandaríkjadalur hefur lækkað um 11% gagnvart íslensku krónunni frá byijun janúar, úr 61,72 kr. í tæpar 55 kr. Aðrir gjaldmiðlar hafa hækkað. Til dæmis hefur sterlings- pundið hækkað um 7,7% á sama tíma. Stundum hefur verið mikið írafár vegna lækkunar dollarans en lítil umræða hefur orðið um málið á þessu ári þó gengið hafi fallið stöðugt allt árið. Reyndar hefur gengi Bandaríkjadals verið að falla allt frá árinu 1985. Ástæðan fyrir minni umræðu nú er fyrst og fremst breytingar sem orðið hafa á utanríkisviðskiptum okkar og leitt hafa til stöðugt minnk- andi vægis dollarans. Á árinu 1985 fóru 27% útflutnings til Bandaríkjanna og annarra landa sem greiða með dollur- um en innan við 15% á síðasta ári. Á sama tíma hefur innflutningur okk- ar frá Bandaríkjunum og öðrum dollaramörkuðum aukist úr 7% í 11-12%. Vöruskiptajöfnuðurinn við þetta markaðssvæði sem var okkur hagstæður um 20 prósent fyrir örfáum árum er því að kom- ast í jafnvægi. Þórður Friðjónsson, forstjóri BAKSVIÐ eftir Helga Bjamason Þjóðhagsstofnunar, segir að sveiflur í gengi dollarans skiptu ekki lengur meginmáli fyrir ís- lenskt efnahagslíf, viðskiptakjörin versnuðu þó lítilsháttar. Hins veg- ar gætu þær breytt miklu hjá ýmsum atvinnugreinum og ein- staka fyrirtækjum. Telur hann að skuldum vafín útflutningsfyrir- tæki, til dæmis í sjávarútvegi og fískeldi, hefðu frekar styrkt sína stöðu. Aftur á móti gætu fyrir- tæki sem tekið hefðu lán í Evrópu- myntum en fengju tekjur sínar að stórum hluta í dollurum farið illa út úr falli dollarans. Um helmingur af tekjum frysti- húsa er í dollurum og hefur fall dollarans því enn töluverð áhrif í þeirri grein, þó áhrifín hafi minnk- að mikið á undanförnum árum vegna samdráttar í útflutningi til Bandaríkjanna og minnkaðs væg- is Sovétviðskiptanna sem fram fara í dollurum. Þá hefur hluti af útflutningi til Japans færst úr dollurum í yen. Arnar Sigur- mundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðvanna, segir að verðhækkanir á Ameríkumarkaði hafí jafnað gengisfall dollarans og gert betur en það. Tekjur fryst- ingarinnar hækkað um 23% það sem af er árinu. Ástandið væri slæmt ef þessar verðhækkanir hefðu ekki komið til. Ullariðnaðurinn er dæmi um atvinnugrein sem fer illa út úr gengisfalli dollarans. Þar er byggt á innlendri verðmætasköpun en tekjurnar eru í dollurum. Tekjur Álafoss minnka til dæmis um rúmlega 50 milljónir kr. á ári vegna lækkunar dollarans. Megin- hluti tekna fyrirtækisins eru í dollurum en meginhluti útgjald- anna í íslenskum krónum og myntum Evrópulanda. Hráefnið er til dæmis keypt inn á heims- markaðsverði og reiknað í sterl- ingspundum, einnig íslenska ullin. Ólafur Ólafsson, forstjóri Álafoss, segir að við verðlagningu um næstu áramót náist leiðrétting á verðlistum sem nemur falli dollar- ans. Hagstæð þróun skulda og fjármagnskostnaðar dregur eitt- hvað úr því höggi sem fyrirtækið verður fyrir. Sigurður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Hildu hf. og Pijónastofu Borgarness hf., segir að fall dollarans og hækkun pundsins þýði 18% verðlækkun á vörum sem fyrirtækið framleiðir í verksmiðju sinni í Skotlandi og flytur á dollaramarkað. Sigurður notaði orðið stórslys um þessi áföll. Tekjur af vörum sem fram- leiddar eru hér á landi lækka einn- ig, en ekki eins mikið. Sigurður er svartsýnn á að markaðurinn taki við þeim hækkunum sem nauðsynlegar eru til að jafna tekjutapið. Þróun dollarans hefur haft góð áhrif á rekstur Flugleiða. Það helgast af því að stærri hluti kostnaðar en tekna fyrirtækisins er í dollurum. Þá hefur félagið nýlega keypt fimm þotur sem fjár- magnaðar eru í dollurum. Gengis- hagnaður Fíugleiða fyrstu átta mánuði ársins var 876 milljónir kr., þar af var gengishagnaður í ágústmánuði um 150 milljónir. Olíuinnkaup landsmanna fara öll fram í Bandaríkjadölum og gengislækkun hans hefur dregið úr áhrifum olíuverðshækkunar vegna Persaflóadeilunnar á út- söluverð hér á landi. Ef verð á helstu olíuvörum verður óbreytt út árið verður olíureikningur landsmanna 116 milljónir dollara í ár eða 6,4 milljarðar kr. á núver- andi gengi. Ef olían hefði verið keypt inn á gengi dollarans um síðustu áramót væri olíureikning- urinn 800 milljónum kr. hærri. . Um helmingur erlendra skulda Islendinga er í Bandaríkjadölum. Lækkun dollarans það sem af er árinu þýðir að erlendar Iangtíma- skuldir eru 2% lægri en í ársbyij- un og er munurinn 3,4 milljarðar kr. Þessi skuldalækkun sparar 300 milljónir kr. í vaxtagreiðslur á ári og greiðslubyrðin minnkar um 600 milljónir króna. I I I I j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.