Morgunblaðið - 04.11.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.11.1990, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 INNLENT Nýir menn fá brautargengi í prófkjörum Verulegar breytíngar eru fyrir- sjáanlegar á framboðslistum Sjálfstæðisflokks í fjórum kjör- dæmu, Reykjavík, Suðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum, þar sem prófkjör voru haldin í siðustu viku. í Reykjavk hlailt Davíð Oddsson borgarstjóri yfírburða- kosningu í 1. sæti, Björn Bjarna- son aðstoðarritstjóri hafnaði í þriðja sæti en þingmennirnir Geir H. Haarde, sem hafnaði í 8. sæti og Guðmundur H. Garðarsson, sem hafnaði í því tólfta, féllu úr sætum sem gáfu þingsæti í síðustu kosningum. Á Suðurlandi hlaut Þorsteinn Pálsson yfírburðakosningu í efsta sæti, Árni Johnsen blaðamaður hafnaði í öðru sæti, en Eggert Haukdal alþingismaður varð í þriðja sæti. Á Austurlandi varð Egill Jóns- son alþingismaður í 1. sæti en Hrafnkell A. Jónsson formaður verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifírði í 2. sæti. Kristni Pét- urssyni alþingismaður varð þriðji. Á Vestfjörðum hafnaði Matt- hías Bjarnason alþingismaður í efsta sæti en Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingismaður varð fjórði, á eftir Einari K. Guðfínns- syni, útgerðarstjóra og Guðjóni A. Kristjánssyni skipstjóra. Kirkjuþing gagnrýnir fjárlög Við setningu Kirkjuþings á þriðjudag gagnrýndu Ólafur Skúlason biskup íslands harðlega þá ætlan ríkisvaldsins að skerða áfram tekjustofna kirkjunnar sem ERLENT Stjórnar- kreppa leyst í Noregi LYKTIR urðu í stjómarkreppunni í Noregi en stjóm Jans P. Syse baðst lausnar sl. mánudag vegna deilna stjómarflokkanna um sam- starf við Evrópubandlagið. Var Gro Harlem Brundtland, leið- toga Verkamannaflokksins, falin stjómarmyndun. Verkamanna- flokkurinn hefur 63 þingsæti af 165 í Stórþinginu en Bmntland sagðist hafa tryggt stjóminni nægan þingstyrk til að koma málum fram. Tók stjóm Verka- mannaflokksins formlega við völdum í gær, Iaugardag. Allt benti til þess að Thorvald Stolt- enberg, yfírmaður flóttamanna- hjálpar SÞ yrði utanríkisráðherra og aðstoðarforsætisráðherra en ekki hafði verið skýrt frá hverjir gegna myndu öðram ráðherra- stöðum. Aukin spenna við Persaflóa Oryggisráð Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) samþykkti sl. mánudag að herða enn frekar tökin á írök- um vegna innrásar þeirra í Kú- væt. Var ábyrgð á hugsanlegu stríði við Persaflóa lýst á hendur írökum og þeir gerðir skaðabóta- skyldir vegna innrásarinnar. Af- greiðslu ráðsins hafði verið fre- stað vegna vona um árangur af tilraunum til að leysa deiluna eft- ir pólitískum leiðum en þær vonir bragðust er tilkynnt var að árang- ur hefði enginn orðið af viðræðum Jevgenys Prímakovs, sendi- manns Míkhafls Gorbatsjovs, leið- toga sovéska kommúnistaflokks- ins, við Saddam Hussein íraks- forseta. Spenna þykir hafa aukist við Persaflóa i vikunni. Þolinmæði nemi 7,5% eða 86 milljónum króna. Aflasamdráttur á næsta ári í upphafí Fiskiþings boðaði Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra, samdrátt á hám- arksafla helstu nytjafiska á næsta ári. Leyfður þorskafli verður um 25 þúsund tonnun minni en á yfír- standandi ári og einnig er gert ráð fyrir nokkram samdrætti í afla ýsu, karfa og ufsa. Dagsbrún út úr íslandsbanka? íslandsbanki hækkaði vexti um 0.5-2% um mánaðamótin og era vextir bankans nú þeir'sömu og fyrir 1. október. í kjölfar þessarar ákvörðunar hefur stjóm Dags- brúnar ákveðið að leggja fyrir félagsfund hvort ástæða sé til að félagið endurskoði afstöðu sína.til íslandsbanka, bæði hvað varðar viðskipti og eignaraðild. Flugsfjóri og flugumferðarstjóri dæmdir Flugstjóri og flugumferðar- stjóri hafa verið dæmdir til skil- orðsbundinnar fangelsisvistar af Hæstarétti vegna atviks sem varð á íslensku flugstjómarsvæði 1984 þar sem tvær þotur með hundrað farþega höfðu nær lent í árekstri. Félög atvinnuflugmanna og flug- umferðarstjóra telja dóminn ógna flugöryggi. George Bush Bandaríkjaforseta var sögð fara þverrandi en í fýrra- dag sagði forsetinn að hernaða- raðgerðir væra ekki í undirbún- ingi og yfírmaður bandarísku herjanna við flóann, Norman Schwarzkopf, sagði að þó hinar alþjóðlegu sveitir gætu gjörsigrað íraksher í einni svipan þá yrði áfram reynt að leysa deiluna um Kúvæt eftir öðram leiðum. Vilja Svíþjóð í EB Leiðtogar tveggja borgaralegra flokka í Svíþjóð, Hægri flokksins og Þjóðarflokksins, skrifuðu sam- eiginlega grein í stærsta morgun- blað landsins, Dagens Nyheter, sl. þriðjudag þar sem þeir lýstu því að kæmust borgaralegu flokk- amir til valda eftir kosnignar næsta haust yrði það fyrst verk nýrrar stjórnar að sækja um aðild að EB. Stofna seðlabanka fyrir EB Leiðtogar EB-ríkjanna sam- þykktu á fundi í Róm um síðustu helgi að hrinda öðram áfanga evrópska myntbandalagsins í framkvæmd 1. janúar 1994 en í því felst m.a. stofnun sameigin- legs seðlabanka. Margaret That- cher, forsætisráðherra Bretlands, lagðist gegn þessari samþykkt og er nú risin ágreiningur innan stjórnar hennar um stefnuna í Evrópumálunum. Vegna ágrein- ings við Thatcher sagði Geoffrey Howe af sér starfi aðstoðarfor- sætisráðherra á fímmtudag. Mannskæð trúarátök í Indlandi . Tugir manna hafa beðið bana undanfarna daga í hatrömmum átökum hindúa og múslima út af mosku í bænum Ayodhya í Uttar Pradesh. Vilja hindúar rífa mosk- una sem þeir segja reista á fæð- ingarstað guðs þeirra, Ram, og byggja bænahús í staðinn. Hlutlausu Evrópurík- in vilja ræða afvopnun Helsinki. Frá Lars Lundsten, frétlaritara Utanríkisráðherrar níu Evrópuríkja sem eru utan varn- ar- og hernaðarbandalaga hittust á föstudaginn í Helsinki til þess að bera saman bækur sínar nokkrum vikum áður en leiðtog- ar allra 35 RÖSE-ríkja sitja fund í París. Hlutlausu rikin telja nauðsynlegt að þeim gefist kost- ur á því að taka þáttí umræðum um afvopnun og takmarkanir á heijum í Evrópu, en hingað til hafa þessar umræður aðeins far- ið fram milli fulltrúa Atlants- ■ hafsbandalagsins (NATO) og Varsjárbandalagsins. Fundinum fannst óeðlilegt að t.d. Búlgarir sem era í Varsjár-' bandalaginu geti samkvæmt gild- andi samningum krafíst upplýsinga um herflutninga í Noregi, en Finnar og Svíar sem era nágrannaþjóðir Norðmanna hafí ekki þann rétt. Nú þegar dregur úr þýðingu hem- aðarbandalaganna vilja hlutlausu ríkin einnig fá viðurkenningu sem Morgunblaðsins. samningsaðilar þegar næst verður fjallað um takmörkun vopnabúra í Evrópu. Sérstaklega þar sem Var- sjárbandalagið er um þessar mund- ir að breytast úr hemaðarbandalagi í pólitísk samtök. Peretti Paasio utanríkisráðherra Finna sagði að loknum ráðherra- fundi að sér og starfsbræðrum sínum fyndist nú tími kominn til að skilgreina hlutleysi á jákvæðan hátt. Hingað til hafí hlutleysið aðal- lega verið byggt á skilgreiningu á því sem ríkin eru ekki, þ.e. að þau hafi ekki verið aðilar að hernaðar- bandalögum. Deila um flugvöllinn í Syðrístraumfirði Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, DEILUR eru farnar af stað milli dönsku ríkisstjórnarinnar og grænlensku heimastjómarinnar um hver skuli bera kostnað af rekstri flugvallarins í Syðri- straumfirði þegar bandaríski flug- herinn hverfur þaðan 1. október 1992. D anska stjórnin hefur boðist til að leggja í púkk og reiða fram fréttaritara Morgunblaðsins. 30 milljónir danskra króna á ári til rekstursins, jafnvirði 285 milljóna ÍSK. Heimastjórnin heldur því hins veg- ar fram að reksturinn muni kosta 110 milljónir dkr. á ári, jafnvirði 1,045 milljarðs ÍSK, og að vandinn sé danskur því halda verði flugvellin- um opnum svo hann geti nýst sem varaflugvöllur í alþjóða flugsám- göngum. Fjármál arftaka austur-þýska kommúnistaflokksins: Flokkurinn talinn úr leik í þýskum sljórnmálum Gregor Gysi fagnar er hann var kjörinn formaður PDS í desemb- er á síðasta ári. Lífslíkur hans í þýskum stjórnmálum eru í besta falli taldar litlar og margir eru þeirrar skoðunar að PDS heyri brátt sögunni til. WOLFGANG Pohl og Wolfgang Langnitschke, sem ábyrgir eru fyrir fjármálum PDS, arftaka austur-þýska kommúnista- flokksins, voru handteknir um síðustu helgi eftir að Pohl hafði viðurkennt opinberlega að flokkurinn hefði millifært 107 milljónir marka, eða sem sam- svarar um fjórum milljörðum íslenskra króna, á bankareikn- inga sovésks fyrirtækis að nafni Putnik. Gregor Gysi, formaður PDS, bauðst í kjölfar yfirlýsing- ar Pohls til að segja af sér for- mennsku í flokknum. Á fundi aðalstjórnar flokksins daginn eftir ákvað Gysi hins vegar að sitja áfram eftir að stjórnin hafði einróma samþykkt traustsyfir- lýsingu við hann. Það traust nær hins vegar ekki út fyrir innstu raðir flokksins og hafa fulltrúar annarra flokka, jafnt til hægri sem vinstri, sagt að heppilegast væri að flokkurinn leysti sjálfan sig upp. Fjármál PDS hafa verið I sviðs- ljósinu eftir að rannsóknar lögreglumenn í Berlín gerðu hús- leit í höfuðstöðvum flokksins fyrir nokkru. Ástæða húsleitarinnar vora vísbendingar um að PDS væri að reyna að koma fé undan með ólöglegum hætti. Flokkurinn er tal- inn vera sá ríkasti í Evrópu enda gat austur-þýski kommúnista- flokkurinn, for- veri PDS, sölsað undir sig eignir eins og hann lysti um 40 ára skeið. Enn er óvíst hversu miklu af eign- um Kommúnistaflokksins PDS fær að halda og hafa eignir flokksins verið undir stjórn sérstakrar fjár- haldsstofnunar síðan í júlí sl. Hefur nú verið upplýst að flokk- urinn reyndi að koma undan fé með því að millifæra 107 milljónir marka yfír á reikning sovéska fyr- irtækisins Putnik í banka í Berlín. Peningamir vora síðan millifærðir áfram á reikninga skráða á Putnik í Noregi og Hollandi. Lét alþjóða- lögreglan Interpol þýsku rannsókn- arlögregiuna vita eftir að maður að nafni Karl-Heinz Kaufmann, sem gegnir trúnaðarstörfum fyrir PDS og er jafnvel talinn hafa tengsl við sovésku leyniþjónustuna KGB, reyndi að ná út 70 milljónum marka af bankareikningi Putniks í banka í Ósló. Putnik er skúffufyrirtæki sem hefur „skrifstofu" í kumbalda í bakgarði nálægt miðborg Moskvu en Kaufmann var skráður sem full- trúi fyrirtækisins í Austur-Þýska- landi. Forsvarsmenn PDS neituðu í fyrstu öllum sak- argiftum og sögðu féð ætlað til að greiða gaml- ar skuldbindingar kommúnista- flokksins við sovéska kommúnista- flokkinn, m.a. vegna námsstyrkja fyrir austur-þýsk ungmenni í Sov- étríkjunum. Svo fór þó að lokum að Pohl, gjaldkeri flokksins, játaði á sig verknaðinn. Hann hefði verið að reyna að bjarga flokknum frá algjörri eignaupptöku. Hann sagð- ist einnig bera ábyrgð á blekking- unum og sagði af sér embætti. Það er talið hafa skipt miklu að Sovét- menn aðstoðuðu yfirvöld en ekki PDS í máli þessu. Segja lögreglu- yfírvöld þá aðstoð sem þýska rann- sóknarlögreglan fékk frá nýstofn- uðu útibúi Interpol í Moskvu hafa flýtt mjög fyrir rannsókn málsins. Gregor Gysi, formaður PDS, segist ekki hafa vitað hvernig raun- verulega var í pottinn búið fyrr en á fimmtudag í fyrri viku en þá hafí hann átt fund með gjaldkera flokksins. Karl-Heinz Kaufmann, sem nú dvelst í Moskvu, sagði hins vegar við fréttaritara fréttastof- unnar ADN að Gysi hefði fengið allar upplýsingar um málið strax eftir að húsleit lögreglunnar átti sér stað. Annað í máli Gysis að undan- förnu hefur einnig verið mótsagna- kennt. Þannig hélt hann því í fyrstu fram að hann hefði ekki hugmynd um hver Kaufmann væri eða þang- að til að þýskt dagblað birti mynd sem tekin var fyrir síðustu þing- kosningarnar í Áustur-Þýskalandi þar sem þeir Gysi og Kaufmann rölta saman og spjalla. Ástæða þess að Gysi valdi þann kost að segja ékki af sér embætti eftir að hafa boðist til þess er talin einföld: PDS — eða Flokkur hins lýðræðis- lega sósíalisma — hefur engan annan mann sem gæti tekið þetta embætti að sér. Var Gysi að mati flestra eina von flokksins um að lifa af fyrstu þingkosningarnar í sameinuðu Þýskalandi. Eftir þetta fjármálahneyksli er flokkurinn jafnt sem Gysi talinn vera endan- lega úr leik í þýskum stjórnmálum. BAKSVIÐ SteingrímurSigurgeirsson skrifar frá Trier

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.