Morgunblaðið - 04.11.1990, Síða 10

Morgunblaðið - 04.11.1990, Síða 10
10 eoeer KMmrrm .t. ooAcnr/MJ?. aidAJaKUoaoi MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 / mtt HJARTA Magdi Yacoub, prófessor í hjartaskurðlækningum við Brompton -sjúkrahúsið i London. eftir Guðjón Guðmundsson ÞRÍR íslendingar hafa gengist undir hjartaígræðslu á Brompton -sjúkrahúsinu í London undir handleiðslu eins þekktasta hjartaskurðlæknis í heimi, prófessors Magdi Yacoub. Nýlega var gerð 11 hundraðasta líffæraígræðslan undir stjórn Yacoubs við Brompton-sjúkrahúsið. Einn hinna þriggja, Halldór Halldórsson, þáði bæði hjarta og lunga frá ókunnum líffæragjafa. Aðrir þrír bíða eftir að gangast undir líffæraflutning á sömu stofnun. Ein þeirra, Svala Auðbjörnsdóttir, 51 árs og þriggja barna móðir, bíður þess að grætt verði í hana hjarta og lungu og hefur verið á Brompton-sjúkrahúsinu frá því í maí í vor. Morgunblaðið leitaði til þessara íslendinga og fékk þá til að deila sér- stæðri lífreynslu sinni með lesendum blaðsins. Vírus í hjarta upp úr flensu Helgi Harðarson var 16 ára grindvískur unglingur, stálhraustur og eins og margir jafnaldrar vann hann í físki með skólanum. Dag einn í mars 1989 fékk Helgi flensu' og lagðist með hita í eina viku en steig þá upp úr veikindum og hélt áfram sínum daglegu störfum. Tveimur vikum síðar sló honum niður og var hann þá sendur í rann- sókn á Landspítann. „Mér var ekki sagt hversu alvarleg veikindi mín voru fyrr en tveimur dögum áður en ég var sendur utan í þessa að- gerð. Ég var þá búinn að vera svo veikur að ég gerði mér ekki fylli- lega grein fyrir því hversu alvarlegt þetta væri. Það hvarflaði samt aldr- ei að mér að ég væri að deyja, ég hugsaði fyrst og fremst um að kom- ast út af spítalanum og lifa lífinu," sagði Helgi. Magnús Karl Pétursson, hjarta- læknir Helga, hafði þegar samband við prófessor Yacoub og það var ákveðið að Helgi skyldi gangast undir hjartaigræðslu. Hann lá illa haldinn á Landspítalanum hátt í viku, þar af meðvitundarlaus fyrsta sólarhringinn, og fékk hann tvisvar sinnum blóðtappa meðan á dvöl hans þar stóð. Var því ekki talið óhætt fyrst um sinn að flytja hann til London þar sem tvísýnt var um að hann lifði ferðina af. Það var þó dagamunur á honum og þegar heilsa hans leyfði var hann fluttur með flugi til London. Helgi þurfti að bíða eftir rétta líffærinu í þijár vikur og kvaðst hann aðeins muna eftir tveimur fyrstu dögunum af dvöl sinni í Brompton-sjúkrahúsinu. „Ég var meðvitundarlaus að mestu í þrjár vikur, man í mesta lagi hluta úr nokkrum dögum. í fyrstu dofn- uðu fæturnir og horuðust upp. Loks urðu þeir kaldir. Ég man að mér var alltaf funheitt á höfðinu og hafði ég klút með ís í til að kæla ennið. Þá dældi hjartað blóðinu aðeins til höfuðsins og handanna, bara þangað sem styst leið var. Það náði ekki að dæla lengra. Síðustu fjóra daga fyrir aðgerðina var ég án meðvitundar, opnaði ekki augun. Undir það síðasta var hjartað alveg hætt að slá og ég var tengdur við hjartavél. Læknar sögðu að ég ætti að geta lifað svona í einn sólarhring en ég var tengdur við vélina í tvo og hálfan sólarhring. Þá fannst rétta hjartað," sagði Helgi. Helgi var þungt haldinn að aflok- inni aðgerðinni og var hann tengdur öndunarvél í fimm vikur. Hann var máttfarinn, hafði grennst mikið og lungun höfðu lagst saman þegar hann var meðvitundarlaus. „Ég fékk innilokunarkennd um leið og sett var slanga í handiegginn og leið frekar illa. En það stóðu þrett- án eða fjórtán slöngur út úr líkama mínum þegar mest var, en þá var ég án meðvitundar. Síðan vandist það að vera tengdur við slík tæki,“ sagði Helgi. Fjórum dögum eftir aðgerðina vaknaði Helgi smástund, opnaði augun, en sofnaði strax aftur og svaf þá í einn sólarhring áður en hann opnaði augun á ný. Þá fóru sjúkraþjálfarar að hreyfa útlimi Helga til að örva blóðstreymið. Helgi kva.ðst ekki vita hver hjartagjafinn hefði verið. Móðir Helga, Sigurbjörg Karlsdóttir, og móðursystir hans, voru hjá Helga á sjúkrahúsinu alveg frá fyrstu stund. Morguninn eftir aðgerðina kom prófessor Yacoub á íþróttaföt- um og var að fara út að hlaupa. Hann hitti þar móður Helga og sagði henni að drengurinn hefði fengið gott hjarta og allt hefði gengið eins og í sögu. Aðgerðin hefði ekki tekið nema fjóra tíma. „Við vildum ekki vita neitt um hjartagjafanna. Það er áreiðanlega jafn mikill harmleikur á bak við þá sögu og mína,“ sagði Helgi. Helgi segist vera stálsleginn nú, einu ári eftir aðgerðina, og kveðst geta gert allt sem gat gert áður en hann veiktist. Læknar ráðleggja honum þó að forðast að ofreyna sig og hann fer reglulega í skoðun á Landspítalann og auk þess á hálfs árs fresti í rannsókn á Brompton- sjúkrahúsinu í London. Helgi vinnur nú á bensínstöð Esso í Grindavík en hann ætlar að halda áfram námi næsta vetur og Ijúka þá 9. bekk grunnskóla. Hann er hefur nýlega tekið bílpróf og ekur oft fjórhjóli mm MADH Ásdís Stefánsdóttir bíður þess að grætt verði í hana annað hjarta og lungu. Helgi Harðarson lifir nú aftur eðlilegu lífi eftir að grætt var í liann hjarta á Brompton-sjúkrahúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.