Morgunblaðið - 04.11.1990, Page 22
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
;// •/;.;////;■-/■;: /z;:;-:///
AUGL YSINGAR
Samvinnuferöir - Landsýn
Reykjavík: Austurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferöir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu viö Hagatorg, s. 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588, telex 2195.
Markaðsmál
Samvinnuferðir-Landsýn hf. óska eftir starfs-
manni til að sjá um markaðsmál ferðaskrif-
stofunnar. Starfið felst einkum í eftirfarandi:
a) Markaðs- og kynningarmál þ.m.t. umsjón
með ferðabæklingum skrifstofunnar.
b) Auglýsingamál.
Innanlandsferðir
Innanlandsdeild Samvinnuferða-Landsýnar
hf. óskar eftir starfsmanni. Starfið felst eink-
um í eftirfarandi.
a) Skipuleggja ferðalög um ísland.
b) Taka á móti erlendum ferðamönnum.
c) Vinna að landkynningu.
Góð tungumálakunnátta nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist ferðaskrifstof-
unni í Austurstræti 12, merktar starfsum-
sókn/markaðsmál eða starfsumsókn/innan-
landsdeild fyrir mánudaginn 12. nóvember nk.
radiomidun
Framkvæmdastjóri
Radíómiðun hf. óskar að ráða framkvæmda-
stjóra.
Fyrirtækið er rótgróið en sérhæfing þess er
sala og þjónusta á siglinga- og fiskileitartækj-
um með fjarskipti sem sérgrein.
Góðar vörur, duglegt og áhugasamt starfs-
fólk ásamt fjárhagslegu sjálfstæði gefur
væntanlegum framkvæmdastjóra gott svig-
rúm til að vinna að nýjum og mjög áhugaverð-
um verkefnum.
Leitað er að aðila sem sýnt hefur árangur í
rekstri fyrirtækis.
Viðkomandi þyrfti að uppfylla sem flest af
eftirfarandi skilyrðum:
- Hafa víðskiptafræðimenntun.
- Búa yfir þekkingu á tölvum.
- Vera ósérhlífinn og metnaðargjarn.
- Gæddur skipulags- og stjórnunarhæfileikum.
- Snyrtilegur, hafa góða og vandaða fram-
komu.
- Hafa mikla þjónustulund.
- Tala og rita ensku.
Væntanlegir umsækjendur eru vinsamlegast
beðnir um að leggja umsóknir inn til undirrit-
aðs fyrir 9. nóvember.
EndurskoÓunar-
mióstöóin hf.
N.Manscher
Sölufólk óskast
Vegna stóraukinna umsvifa vantar
okkur sölufólk til starfa.
Starfið felst í því að heimsækja fyrirtæki og
stofnanir með ýmsar rekstrarvörur, svo sem
hreinsiefni, pappír, vélar og tæki til hrein-
gerninga o.fl. Um er að ræða mjög sam-
keppnisfærar vörur með mikla möguleika.
Umsækjandi verður að hafa eigin bíl til um-
ráða. Aðeins samviskusamt, heiðarlegt og
duglegt fólk á aldrinum 24-40 ára kemur til
greina.
Vinsamlegast sendið eiginhandarumsóknir,
með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, til okkar fyrir 10. nóvember nk.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Fullum trúnaði heitið og öllum umsóknum
svarað.
Nýbýlavegi 18, pósthólf 136,
202 Kópavogi.
BORGARSPÍTALINN
Hjúkrunar- og endur-
hæfingardeild E-63
v/Barónsstíg
Staða aðstoðardeildarstjóra er laus til um-
sóknar. Um er að ræða dagvinnu og unnið
þriðju hverja helgi. Starfshlutfall samkomulag.
Einnig óskast sjúkraliðar og starfsfólk til
aðstoðar við umönnun til starfa. Starfshlut-
fall og vinnutími samkomulag.
Nánari upplýsingar veitir Ólöf Björg Einars-
dóttir, deildarstjóri, í síma 696763 og Anna
Birna Jensdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í síma 696358.
Öldrunardeild B-5
Hjúkrunarfræðingur óskast nú þegar á
næturvaktir. Vinnutími frá kl. 23.00 til 08.30.
Starfshlutfall.samkomulag.
Deildarritari óskast til starfa sem fyrst.
Upplýsingar veitir Auður Harðardóttir, deild-
arstjóri í síma 696559 og Anna Birna Jens-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696358.
Ræsting - býtibúr
Starfsmann vantar við ræstingu (með gólf-
þvottavél) í eldhús Borgarspítalans. Vinnu-
tími frá kl. 17.00-21.00 alla virka daga.
Einnig vantar starfsfólk á sjúkradeildir við
ræstingar og í býtibúr. Vaktavinna. Vinnutími
frá kl. 8.00-16.00 og/eða kl. 11.00-19.00.
Upplýsingar hjá ræstingastjóra alla virka
daga frá kl. 9.00-12.00 (ekki í síma).
Fararstjórn
Ferðamiðstöðin Veröld vill ráða fararstjóra
til starfa erlendis 1991.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í
mannlegum samskiptum, geti komið vel fyrir
sig orði, búi yfir nokkurri tungumálakunnáttu
og hafi búið erlendis.
Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir um-
sækjendur, nú í vetur.
Umsókn, með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist til Veraldar fyrir 10. nóv-
ember nk. á eyðublöðum, sem fást á skrif-
stofu okkar í Austurstræti 17 og hjá umboðs-
mönnum um allt land.
•ine ii n s inm
WORLD TRAVEL Lld.
Austurstræti 17 -101 Reykjavik - lceland
Telephone: 1-6^2200 • Telefax: 1-28185 • Telex: 2154
BORGARSPÍTALINN
Yfirlæknir
Staða yfirlæknis slysa- og bæklunarlækn-
ingadeildar Borgarspítalans er laus til um-
sóknar. Staðan veitist frá 1. janúar 1991 eða
eftir samkomulagi.
Um er að ræða aðalslysamóttöku landsins.
Komur sjúklinga á deildina eru tæplega 70
þús. á ári, þar af 42 þús. nýkomur. Deildin
hefur 32 sjúkrarúm til ráðstöfunar auk 6 rúma
gæsludeildar. Yfirlæknir er í forstöðu deildar-
innar og ber ábyrgð á rekstri hennar gagn-
vart stjórn spítalans. Hann skipuleggur notk-
un sjúkrarúma deildarinnar, afnot hennar af
skurðstofum og er í forsvari fyrir deildina út
á við. Umsækjendur skulu hafa sérfræðivið-
urkenningu í bæklunarskurðlækningum.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu
í stjórnun og séu viðbúnir að takast á við
krefjandi starf.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og starfsferil sem og vísinda- og
ritstörf, skulu sendar stjórn sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar, Borgarspítalanum, fyrir
3. desember 1990.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir fram-
kvæmdastjóri spítalans.
Sérfræðingar
Fjórar hlutastöður (75%) við slysa- og bækl-
unarlækningadeild Borgarspítalans eru
lausar til umsóknar. Stöðurnar veitast frá
1. janúar 1991 eða eftir samkomulagi. Um-
sækjendur skulu hafa sérfræðiviðurkenningu
í bæklunarskurðlækningum og/eða hafa
víðtæka þekkingu í neyðarlækningum. Nauð-
synlegt er að umsækjendur hafi góða starfs-
reynslu í móttöku slasaðra og vera tilbúnir
til að starfa við slysamóttöku í aðalstarfi.
Kennsluskylda fylgir stöðunum.
Umsóknir, er tilgreini menntun og starfsferil
ásamt vísinda- og ritstörfum, skulu sendar
stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar,
Borgarspítalanum, fyrir 3. desember 1990.
Nánari upplýsingar um stöðurnar veitirfram-
kvæmdastjóri spítalans.