Morgunblaðið - 06.11.1990, Page 25
MÓRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
25
Félagsfundur í Dagsbrún:
Samþykkir að hætta
öllum viðskiptum
við Islandsbanka
ALMENNUR félagsfundur í Dagsbrún samþykkti einróma á sunnu-
dag að hætta ölium viðskiptum við Islandsbanka falli bankinn ekki
frá vaxtahækkuninni um seinustu mánaðamót. Fundurinn var hald-
inn í Iðnó, að viðstöddum um hundrað félagsmönnum, og skoraði
Dagsbrún á önnur verkalýðsfélög að fylgja fordæmi sínu; draga
allt sitt fé út úr bankanum og selja hlutabréf sín í honum.
Samþykkt var á fundinum að málsins. Var hún samþykkt ein-
taka allar innstæður Dagbrúnar út róma. Þá kom fram tillaga frá Þóri
úr íslandsbanka og lýsti formaður- K. Jónassyni um að fundurinn skori
inn, Guðmundur J. Guðmundsson, á önnur verkalýðsfélög í landinu
yfir að hann myndi taka allt fé fé- að gera slíkt hið sama. Var hún
lagsins, á annað hundrað milljónir einnig samþykkt einróma.
króna, út úr bankanum kl. 10 í dag.
Morgunblaðið/K.G.A.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, hvatti félagsmenn til að mæta vaxtahækkuninni
af fullri hörku.
Ennfremur var stjórn Dagsbrún-
ar falið að undirbúa tillögu til aðal-
fundar að selja hlut félagsins í
bankanum.
Þungt hljóð var í Dagsbrúnar-
mönnum á fundinum. Guðmundur
riijaði upp að félagið hefði ákveðið
í febrúar að koma upp eigið verðlag-
seftirliti. Einn stjórnarmanna, Leif-
ur Guðjónsson, hefði sinnt því. Leif-
ur sagði að þrátt fyrir mikið og
virkt eftirlit hefðu þeir ætíð rekist
á vegg þegar átti að snerta við
vöxtunum.
„Við höfum hamrað á því að
vextir yrðu að lækka. Við höfum
sagt að nú gilti það eitt að standa
á verðlaginu," sagði Guðmundur.
„Við höfum skorað á bankana og
ráðuneyti að vextir yrðu lækkaðir.
Þeir eru svo ótrúlega sterkur verð-
bólguvaldur. Þessi vaxtabreyting
hjá íslandsbanka nú, úr 12,75% í
14,75%, er 16% hækkun. Varlega
áætlað er gróði íslandsbanka 500
milljónir kr. á árinu, sé miðað við
áætlaðan gróða bankakerfisins í
heild,“ sagði hann.
Fyrir fundinum lá tillaga frá
stjórn Dagsbrúnar um að félags-
fundurinn lýsti yfir undrun sinni
og hneykslan á vaxtahækkuninni,
og feli stjórn félagsins að hætta
öllum viðskiptum félagsins við ban-
kann. Jafnframt að undirbúin verði
sala á hlutabréfum félagsins í bank-
anum til að leggja áherslu á alvöru
Félag vélaverk-
fræðinema:
Fyrirlestrar
um iðnað
í VETUR mun Félag véla-
verkfræðinema gangast fyr-
ir röð fyrirlestra um iðnað
á íslandi. Fengnir verða sér-
fræðingar í nokkrum lykil-
greinum íslensks iðnaðar til
að fjalla um tækniþróun og
framfarir innan þeirra,
framtíðar- og atvinnuhorfur
sem og æskileg tengsl nem-
enda og kennara verkfræði-
deildarinnar við greinarnar.
Fyrsti fundurinn verður
haldinn miðvikudaginn 7. nóv-
ember kl. 17.15 í Tæknigarði.
Gestir fundarins verða Jón
Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, og Davíð
Scheving Thorsteinsson, iðn-
rekandi. Þeir munu tala um
stöðu íslensks iðnaðar og
framtíðarhorfur hans og sitja
fyrir svörum að erindunum
loknum.
Fyrirlestrarnir eru öllum
opnir og vill Félag vélaverk-
fræðinema hvetja alla áhuga-
menn um íslenskan iðnað til
að mæta.
(Fréttatilkynning frá Félagi véla-
vcrkfræðinema.)
Kryddkofinn er sérverslun með austurlenskar kryddsósur og það sem þarf til vandaðrar
matargerðar á austurlenska vísu.
Eggjanúðlur..................... 48,-
(Egg noodles)
Sterkt sinnep................. 455,-
(Hot Mustard)
Kryddlögur.................... 185,-
(Char Siu Sauce)
Sesamolía...................... 250,-
(Sesame oil)
Sterk karrýsósa.................140,-
(Hot Curry Sauce)
Kjúklingakryddsosa............. 230,-
(Chicken Marinade)
Fiskisósa......................... 190,-
(Thai Fish Sauce)
Japönsk grillsósa................. 119,-
(Teri Yaiki Sauce)
Sæt chilisósa..................... 125,-
SSweet Chili Sauce)
lambus vorrúllur................. 190,-
(3 stk. í pakka)
(Lamba-, nauta-,
rækju- og Sjanghæ vorrúllur)
Hrísgrjón 50 kg................. 4.900,-
Madras karrý.................... 140,-
(Madras Curry)
Hrísgrjóna vínedik.............. 250,-
(Rice vinegar)
Súrsætsósa.................... 75,-
ÍSweet and Sour Sauce)
Istrusósa....................... 136,-
(Oyster Flavored Sauce)
Kínversk baunasósa.............. 140,-
(Hoisin Sauce)
NÝ UPPSKRIFT MÁNAÐARLEGA
Hér birtist fyrsta mánaðaruppskriftin.
Héðan í frá munum við svo birta eina slíka
mánaðarlega sem tillöguuppskrift fyrir þær
kryddtegundir og sósur sem við höfum á
boðstólum.
0PNUNARTÍMI:
Verslunin er opin frá kl. 13:00 til 18:00
alla virka daga.
SVÍNAHAKK í SVARTBAUNASÓSU (Fyrir 4)
Efni:
1/2 dós niðursoðnar strengjabaunir
1/2 dós baunahlaup (Tofu)
1/2 dós niðursoðnir sveppir eða 250 gr.
ferskir sveppir
1 - 2 hvítlauksgeirar
800 gr. svínahakk
Kryddsósa:
4 msk. svartbaunasósa
4 tsk. sykur
2 bollar vatn
pressaður hvítlaukur ■
Matreiðsla:
1. Hellið soðinu af strengjabaununum,
þurrkið og skerið síðan í litla bita. Skerið
einnig baunahlaupið (Tofu) og sveppina í
litla teninga.
2. Hitið 2 msk af olíu á Wokpönnu eða
venjulegri djúpri steikingarpönnu. Hellið
kryddsósunni saman við og hitið vel.
Bætið svínahakkinu á pönnuna og brúnið í
sósunni. Blandið síðan baununum,
hlaupiriu og sveppunum út í og hrærið
varlega. Sjóðið í ca. 8 mínútur. Berið
fram heitt með laussoðnum hrísgrjónum.
Sérversiun með austurlenskar kryddvörur Laugavegi 10b Sími: 624325
EB. NÝR DAGUR.