Morgunblaðið - 14.04.1991, Page 6
e o
MORGUNBLAÐIÐ' SUNNUD'AGUir 14/ APRÍL T99Í
Vorboðinn
ijuii:
SYNING UM HELGINA
$fciW3a
VrtdW®"1*
wnrttt'"90
Út aprilmánuD lá þelr
lortjaW i kaupauka,
sem staðfesta pöntun
á lellihjóDiýsl.
SjáOu glæsilEjjt
fEllihjólhýsl rísa á
innanviöEseh.
Esterel eru handunnin, frönsk fellihjólhýsi i úrvalsflokkl. Úr
hentugri kerru reisir þú notalegt hýsi á innan
við einni mínútu. Innan veggja er öllu
■ haganlega komið fyrir og vandað til allra
hluta. Gashitari, eldavél,
vaskur, ísskápur, geymir
fyrir 12 volt sem heldur
ísskápnum köldum við
akstur. Hægt er að
tengja vagninn við
220 volt. Hleðslutæki
fæst aukalega og er tengt bílnum.
Fortjald fæst aukalega. Vagnarnir eru
útfærðir fyrir íslenskar aðstæður; bætt vörn á
undirgrind, 13' dekk, þéttilistar sem útiloka vegarykið o.fl.
Komdu á sýninguna um helgina og
kynntu þér málið nánar.
Sýning á Esterel
lellihjólliýsuni um
helgina. OplO
laugardag kl. 10
til 18 og sunnudag
kl. 12 til 18.
,‘NrWc
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJARSLÓÐ 7 ■ SÍMI 91-621780
eftir Guðm. Halldórsson
HUNDRUÐ þúsunda kúrdískra flóttamanna hafa streymt í átt til landa-
mæra Tyrklands og írans til þess að flýja stjórn Saddams Husseins,
sem greip til grimmilegra aðgerða gegn Kúrdum til að bæla niður
uppreisn þeirra í kjölfar Persaflóastríðsins. Ástandið þykir jafnvel
Í erra en þegar Saddam gekk milli bols og höfuðs á Kúrdum eftir stríð
raka og Irana 1988.
Þ
kyrlum og stórskotavopnum
hefur verið beitt gegn vamar-
lausum flóttamönnum og
þúsundir hafa fallið eða særzt
að sögn uppreisnarmanna.
Hjálparstarfsmeiin óttast að flótta-
fólkið hrynji niður úr kulda og vos-
búð. Þúsund Kúrdar deyja á hveijum
klukkutíma í ijöllunum og öll þorp í
Norður-írak hafa verið sprengd í loft
upp að sögn læknis, sem hefur verið
á neyðarsvæðunum.
Bandaríkjastjóm hefur varað Ir-
aka við því að grípa til frekari að-
gerða á svæðum flóttamanna. Um-
ræður hafa farið fram um sérstakt
griðasvæði handa flóttafólkinu með-
KÆLI' OG FRYSTISKAPUR
ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ
39*520 stgr.
Samt. stærö: 275 1.
Frystihólf: 45 1. ❖ ❖ ❖ ❖
Hæö: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eöa hægri opnun.
FULLKOMIN VIDGERDA- OG
VARAHLU TAÞJÓNUS TA
Heimilis- og raftækjadeild.
HF
Laugavegi 170-174 Slmi 695500
fram landamærunum undir vernd
Sameinuðu þjóðanna. Áður en þær
umræður hófust hafði George Bush
forseti sent James Baker utanríkis-
ráðherra til Tyrklands til þess að
kanna ástandið og aðstoð við flótta-
mennina hefur verið aukin.
Gamall draumur
Sumir hafa talið að griðasvæði
handa flóttamönnunum geti orðið
upphaf þess að írak gliðni í sundur
og að gamall draumur Kúrda um
sjálfstjórn - eða sjálfstæði - geti
rætzt. Síðan sjálfstætt ríki araba var
stofnað í írak fyrir 70 árum hafa
Kúrdar staðið fyrir nær stöðugum
uppreisnum til þess að fá kröfu sinni
framgengt. Baráttan þótti vonlítil
þar til Irakar biðu algeran ósigur
fyrir Bandaríkjamönnum og banda-
mönnum þeirra í febrúar.
Eins og aðrir hópar í írak voru
Kúrdar hvattir til að gera uppreisn
gegn Saddam Hussein. Upplausnin
eftir stríðið virtist ákjósanlegasta
tækifæri þeirra í áratugi til þess að
ná takmarki sínu. íraski herinn var
lamaður og kúrdískir uppreisnar-
menn höfðu lagt innbyrðis ágreining
á hilluna. íranar voru jákvæðir og
Tyrkir ekki eins fjandsamlegir og
áður.
Kúrdar hófu sókn og áður en varði
tókst þeim að frelsa mestan hluta
heimkynna sinna - Kúrdistans - þar
á meðal olíubæinn Kirkuk. Um
200.000 liðsmenn vopnaðra varð-
sveita stjómarinnar og 100.000 lið-
hlaupar gengu í lið með uppreisnar-
mönnum og hafinn var undirbúning-
ur að myndun bráðabirgðastjórnar í
Kúrdahéruðunum.
Bandamenn forðuðust hins vegar
að láta kné fylgja kviði eftir stríðið
og sýna í verki að þeir styddu upp-
reisnarmenn. Bush forseti sagði að
umboði Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra hefði lokið þegar þeir
höfðu sigrað íraka og vildi ekki að
þeir drægjust inn í innanlandsátök í
Irak. Síðan hafa Kúrdar sakað
Bandaríkjamenn um að bregðast
þeim og vilja heldur hemaðareinræði
en lýðræði í Irak.
Þegar Saddam hafði að mestu
bælt niður uppreisn sjíta í Suður-írak
gat hann snúið sér að Kúrdum. ír-
aski herinn náði brátt yfirhöndinni
eins og jafnan áður þegar Kúrdar
hafa gert uppreisn. Kúrdar lögðu á