Morgunblaðið - 14.04.1991, Page 19
tsgfe
spurningunni um afskipti hins opin-
bera. Það þarf sem sagt að finna
rök, — grundvallarrök, fyrir tilvist
Rásar 2.
Að hluta til hefur Rás 2 sinnt
íslenskri dægurmenningu meira en
aðrar stöðvar. Hún hefur lagt meiri
áherslu á íslenskar rætur þeirra
hugðarefna sem leita á almenning
dags daglega. Hún hefur sinnt pæl-
ingum unglinga og lagt meiri rækt
við íslenska dægurtóniist en aðrar
stöðvar. Hún hefur reynt að fjalla
um hvunndagslífið og síðast en ekki
síst hefur hún skerpt íslenska hugs-
un með meitluðum pistlum og hvöss-
um skoðanaskiptum. Með öðrum
orðum þá er Rás 2 öðrum þræði
íslensk dægurmenningarútvarps-
stöð.
Á tímum þjóðlegra ljósvakamiðla
er brýn nauðsyn á að sinna ís-
lenskri dægurmenningu, — hún
mótar mál og hugsun, einkum hinna
uppvaxandi kynslóða. Sjónarhóll
dægurmála þarf að vera íslenskur
eigi sýn okkar ekki að vera alþjóð-
leg flatneskja. Hið opinbera hefur
skyldur gagnvart íslenskri menn-
ingu. Sé skilningur á mikilvægi
dægurmenningar í fjölmiðlasamfé-
lagi nútímans fyrir hendi, liggur- í
augum uppi að opinberum aðilum
ber að styrkja og styðja við íslenska
dægurmenningu og fáar leiðir' eru
heppilegri til þess en einmitt að reka
útvarpsstöð. En Rás 2 er í dag einn-
ig hefðbundin tónlistarútvarpsstöð
en engin ástæða er til þess að opin-
berir aðilar komi nálægt slíku. Því
er einungis hægt að réttlæta opin-
ber afskipti af Ras 2 sé hún fyrst
og síðast íslensk dægurmenningar-
stöð.
Hafí sjálfstæðismenn í huga að
selja þá Rás 2 sem einungis sinnti
íslenskri dægurmenningu þá eru
þeir um leið að draga úr þeirri
ábyrgð sem hingað til hefur verið
talið sjálfsagt að hið opinbera beri
gagnvart íslenskri menningu. Sé
það raunin nú þegar henni er ógnað
alvarlegar en oftast áður, þá er bleik
brugðið.
Rítzau frétta-
stof an rek-
in með halla
Halli varð á rekstri dönsku
fréttastofunnar Ritzau í fyrra.
Eigið fé fyrirtækisins nemur
nú 186.000 dönskum krónum
og hefur minnkað úr 1,1 milljón
á einu ári. Staða fyrirtækisins
er þó betri en þessar tölur segja
til um, því að eignir þess eru
skráðar á 10 milljóna króna
lægri upphæð en verðmæti
þeirra er metið á samkvæmt
opinberu mati.
Sala á efni frá fréttastofunni til
blaða og útvarps jókst um sjö
af hundraði í fyrra í 66 milljónir
danskra króna. Starfsmenn frétta-
stofunnar eru 143 og meðalárslaun
hækkuðu um aðeins 5% í 283.000
danskar krónur. Aðeins ein deild
fréttastofunnar var rekin með
halla: sú sem sendir frá sér frétta-
ágnp úr dönskum blöðum á ensku.
Árið 1989 var Ritzau rekin með
100.000 króna hagnaði. Helstu
ástæðurnar fyrir því að fréttastof-
an var rekin með 884.000 króna
halla í árslok 1990 voru vaxtagjöld
og auknar afskriftir. Ástæðan fyr-
ir þeim er tölvuvæðing, sem er
metin á um 15 millljónir danskra
króna. Til þess að mæta hallanum
fær Ritzau 725.000 krónur úr sam-
eiginlegum sjóði danskra blaða.
Aðalritsjóri Ritzau er Per Winth-
er og stjórnarformaður er Hans
Dam, aðalritsjóri Berlingske Tid-
ende. Fyrirtækið er ekki skattskylt
og greiðir ekki arð. Þrátt fyrir
hallann ver^a 738.000 krónur
lagðar til hliðar, meðal annars til
þess að minnast 125 ára afmælis
fréttastofunnar og til þess að fylgj-
ast með væntanlegum kosningum
og næstu Ólympíuleikum.
MORGUNBLAÐIÐ
FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1991
Evrósport í hættu
Óvissa ríkir um framtíðar-
hlutverk Evrósports, sem marg-
ir þekkja vegna gervlhnatta-
sendinga Sky-sjónvarps fjöl-
miðlakóngsins Ruperts
Murdochs. Evrósport er sameig-
inlegt fyrirtæki Skys og nok-
kurra evrópskra ríkissjónvarps-
stöðva, þeirra á meðal BBC í
Bretlandi.
Nú er reynt að endurskipuleggja
fyrirtækið og laða að því nýja
hluthafa. Ástæðan er sú að stjórn-
arnefnd Evrópubandalagsins
komst að þeirri niðurstöðu í febrú-
ar að samkomulag um sameiginleg
fyrirtæki, sem tilvera Evrósports
grundvallast á, væri brot á Rómar-
sáttmálanum, það er stofnskrá
bandalagsins.
Evrósport leggur annan skilning
í úrskurðinn en Fi-ancis Baron
framkvæmdastjóri fyrirtækis
íþróttarása í gervihnattastöðvum
(The European Sports Network) í
Lundúnum, sem lagði málið fyrir
stjórn Evrópubandalagsins.
Baron heldur því fram að íþrótta-
rásin Sereensport, sem hann stjórn-
ar, eigi að geta. keppt við aðrar
rásir í Bretlandi á jafnréttisgrund-
velli. Hann hefur hótað að fara í
mál við nýtt fyrirtæki, sem kunni
að verða stofnað á grundvelli Evró-
sports og muni grundvallast sem
fyrrum á einkarétti frá Evrópusam-
bandi útvarps- og sjónvarpsstöðva
(EBU). „Úrskurðurinn eyðir öllum
vafa um þetta,“ sagði hann við
Financial Times.
Alan Hart, stjórnarformaður
Evrópsport, kveðst hins vegar mjög
bjartsýrin á framtíð fyrirtækisins
að sögn blaðsins.
Helsti styrkur Evrósports er sá
að að rásinni standa allir 17 aðilar
EBU og að hún hefur rétt til sjón-
varpssendinga frá íþróttaviðburð-
um, sem EBU semur um og Evró-
visjón dreifir.
Stjórnarnefnd EB kannar nú
kærur þess efnis að kaup EBU á
einkarétti til sjónvarpssendinga frá
Francis Baron: vill heiðarlega
samkeppni.
íþróttaviðburðum fyrir alla aðila
sambandsins séu einnig brot á sam-
keppnisreglum.
Þu ætlar þó
ekkiað
sitja heima!
Ef þú kemur í verslanir Eymundsson
bíður þín landsins mesta
úrval af ferðahandbókum og vegakortum.
Með hjálp Eymundsson geturðu
notið þess að ferðast um
allar heimsins jarðir.
Feroabokamarkaourinn er
í Eymundsson - Austurstræti
; V
I V
EYMUNDSSON
AUSTURSTRÆTIVIDHLEMMMJÓDDKRINGLUNNIEIÐISTORGI
91-18880 91-29311 91-76650 91-687858 91-611700
PÓSTHÓLF 850 • 121 REYKJAVÍK • SÍMAR 14255 OG 13522 • FAX 15078