Morgunblaðið - 30.04.1991, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991
Gengið á Hengil.
1. maí-ganga á Hengil
eftir Sigurð
Kristinsson
Séð frá veginum á Mosfellsheiði,
Þingvöllum, þjóðgarðinum og frá
Grafningsafrétti virðast fjöll til suð-
lægra átta vera rislág í samanburði
við Hengil. Ná þó nokkur þeirra
500 m og vel það en hann er 300
m hærri. Skipta má Hengli í þijá
hluta: Húsmúla, Vestur-Hengil og
Há-Hengil. Tvö síðari nöfnin tíðk-
ast ekki í daglegu tali. Lýsing hefst
vestan frá. Húsmúli er vestastur
og á kortum minnir hann á skel á
hvolfi. Hæstur er hann upp við
klettinn Sleggju, rúmlega 400 m.
Alls staðar er auðvelt að ganga á
Húsmúla en taka mun nærri 3 tíma
að ganga hring utan um hann.
Vestur-Hengill hefst á klettmúl-
anum Sleggju, hækkar heldur til
norðausturs milli Engidals og
Innstadals og nær 600 m hæð.
Mikil hamraflug eru að norðvestan-
verðu upp af Engidal og má vera
að hann dragi nafn af þeim. Hall-
andi hlíðar snúa að Innstadal en
frá honum er mjög auðvelt að
ganga upp til að njóta útsýnis til
norðvesturs af Vestur-Hengli.
Vestan við Há-Hengil er grunnt
skarð, því slakki gengur þar upp
frá Innstadal en gljúfur á móti frá
innstu drögum Engidals. Á einum
stað í skarðinu er volgur blettur í
móbergsklöpp. Há-Hengill er aust-
an skarðsins. Hann er miklu um-
fangsmeiri en Vestur-Hengill, 200
m hærri og snýr frá norðri til suð-
urs, má teljast til stapafjalla og er
grágrýtisþekja á kolli. Að sunnan-
verðu er hann lægstur um 600 m
en smáhækkar til norðurs. Hæsta
bungan er 805 m skammt sunnan
við Skeggja, sem gnæfir á norður-
brún eins og voldug nautskrúna
gegn kuldaáttinni. Mesta breidd
Há-Hengils frá austri til vesturs er
nærri 2 km en mesta lengd frá
norðri til suðurs um 4 km. Klettar
eru þarna víða í brúnum. Æskilegt
) Á slódum
Ferðafélags
íslands
væri að telja upp örnefni á svæðum
kringum Hengil en hér er ekki pláss
til að telja upp allan þann aragrúa.
En í björtu veðri er mikil útsýn af
Há-Hengli.
í suðvestri sjást Bláfjöll, Vífils-
fell og Langahlíð. Keilir sést ystur
og hálsarnir milli hans og Kleifar-
vatns. í vestri sést þéttbýlið við
Faxaflóa, Esja og íjöll tengd henni
í norðvestri, Botnssúlur og Ok í
norðri en Skjaldbreið og Þórisjökull
litlu austar, Laugardalsfjöll í norð-
austri en Hlöðufell og Langjökull
að baki þeirra. Svo eru Bláfell og
Kerlingarfjöll aðeins austar. í austri
eru Hekla og Vatnafjöll en Tind-
fjöll, Mýrdalsjökull og Eyjafjalla-
jökull sunnar. Vestmannaeyjar
móka á hafinu í suðaustri en opið
haf fyrir öllu suðrinu.
Ótrúlegur fjöldi örnefna er innan
þessa hrings og er hér tveimur
spuringum beint til lesandans. Hvar
eru Búrfellin sex sem sjást af
Hengli? Hversu margar og hvar eru
eldborgirnar, sem af honum sjást?
Mikill jarðhiti er við Hengil og
má segja að hann sitji á suðupotti.
Mest er háhitasvæðið við Nesjavelli
en fjöldi hvera er þaðan á línu til
Hveragerðis. Hvæsandi gufuhver
er í Hveragiii syðst í fjallinu,
skammt frá er lítill en snotur skáli
og baðstaður í gilinu. Volgrur eru
víða en þó hvergi norðvestan við
fjallið. Hverir hafa oft breyst í jarð-
skjálftum.
Góð leið er að fara eftir Lamba-
hrygg í Sleggubeinsdölum í
Sleggjubeinsskarð, þaðan upp á
Vestur-Hengil og eftir honum aust-
ur á Há-Hengil. Önnur leið er að
fara Veg milli hrauns og hlíða inn
í Innstadal, sveigja inn í Innstadal
og fara upp brekkuna vestan við
Hveragil. Þaðan af brún er æðispöl-
ur norður á Skeggja og hækkun á
miðju ijallinu.
Leið er að ganga á Hengil austan
frá. Er þá farið upp með Ölfus-
vatnsá og Þverá en síðan haldið á
brattann norðan Kýrgils og alla
leið upp með því. Um 300 m hækk-
un er upp með gilinu og er þar
erfiðasti hluti leiðar.
Ur Innstadal má víða fara upp á
Vestur-Hengil til að fá góða útsýn.
Ökuleiðir hafa færst nær Hengli
með nýjum vegi vegna Nesjavalia-
virkjunar. Því má finna margar
nýjar gönguleiðir um norðurhluta
Hengilsvæðisins. í gönguferðum
þar sést margt af því, sem ferða-
menn dást að og undrast í íslenskri
náttúru og gerir landið eftirsóknar-
vert í augum reyndra ferðamanna:
Andstæður gróðurs og nakinna
tinda, ólgandi hverir í vetrarríki,
sumarslóðir og skíðagönguleiðir til
lengri eða styttri ferða eftir atvik-
um.
Fram á næsta árþúsund mun
Hengilssvæðið búa yfir töfrum
ósnortinnar og ómengaðrar náttúru
sem kallar til gönguferða og úti-
veru.
Ferðafélagið efnir árlega til
göngu á Hengil 1. maí. Brottför
er frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin, kl. 10.30.
VERUM
varkAr
Óvirkur dempari getur
aukið stöðvunarvega-
lengd um 2,6 m.
VELDU ^MONROEW
Orgeltónleikar
__________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Marteinn Hunger Friðriksson
dómorganisti hélt tónleika á nýja
orgelið í Bústaðakirkju sl. sunnu-
dag. Á efnisskránni voru verk eftir
Buxtehude, Reger, Brahms, J.S.
Bach, Jón Nordal og Jón Þórarins-
son.
Saga orgeltónmenntar í Þýska-
landi er merkileg, bæði er varðar
smíði hljóðfæra og gerð orgeltón-
listar. Tónleikarnir hófust á prelúd-
íu og fúgu í D-dúr eftir Buxtehude,
sem mun hafa lagt J.S. Bach dijúgt
til, bæð[ er varðar orgelleik og tón-
smíði. Ymis sérkenni, eins og að
slíta sundur fúguna með eins konar
fantasíum og koma síðan með ný
fúgustef, ýtfærð í stuttum fúgum,
telja fræðimenn að rekja megi tií
tilbrigða verka eftir Frescobaldi og
Froberger. Ekki er mikið um að
J.S. Bach hafi farið að dæmi Buxte-
hude og slitið fúgur sínar í sundur
með því að skjóta inn fantasíum.
Síðasta verkið á tónleikunum,
Prelúdía og fúga í e-moll (BWV
548) eftir J.S. Bach, var samt slíkr-
ar gerðar og mun vera eina verk
hans, sem kalla mætti að væri með
„da capo“-fúgu en skilin á milli
prelúdíu og fúgu voru annars ávallt
mjög skýr hjá J.S. Bach.
Marteinn lék bæði verkin mjög
vel en sérstaklega þó verk Bachs,
sem er mikið glæsiverk. Annað
verkið á tónleikunum var Inngang-
ur og passacaglia eftir Reger, ris-
mikið verk, sem Marteinn lék vel.
Svona til að kanna raddskipan nýja
orgelsins flutti Marteinn stutt en
fallegt orgelforspil eftir Brahms.
Islensku verkin voru þijú og elst
þeirra var Prelúdía, sálmur og fúga
um gamalt stef, eftir Jón Þórarins-
son, sem Marteinn flutti mjög yfir-
vegað og með skýrri raddskipan.
Toccata eftir Jón Nordal, samin
1985 í minningu Páls ísólfssonar,
var og mjög vei flutt og naut sín vel
í fallega hljómandi röddum orgels-
ins. Nýjasta verkið og frumflutt á
Marteinn Hunger Friðriksson
tónleikunum, var kóralforspil eftir
Jón Þórarinsson, yfir íslenska
sálmalagið Jesús mín morgun-
stjarna. Þetta sérkennilega sálma-
lag er til í mjög fallegri kórradd-
setningu eftir Jón og hér leggur
hann til með laginu sérlega fínlega
ofinn tónvefnað en gætir þess þó
að tónhendingar sálmalagsins nái
að skila bæn sinni tii áheyrenda.
Þetta fínlega verk, sem ekki er fjarri
að ætla að íslenskir orgelleikarar
eigi eftir að leika við ýmis tæki-
færi, var mjög fallega útfært af
Marteini Hunger Friðrikssyni.
VINKLAR Á TRÉ
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640