Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991 Orðstír og- fjölmæli Fáein orð í tilefni af ummælum Olafs Ragnars Grímson- ar fjármálaráðherra og viðbrögðum læknafélaganna eftir Þorgeir Þorgeirson Fult málfrelsi Málfrelsi er talið með grundvall- arréttindum einstaklingsins í heil,- brigðu lýðræðissamfélagi. Því mætti líkja við andardrátt þjóðfélagsins því sannleikurinn er vissulega súrefnið í blóði þess. Heftu málfrelsi má því vel líkja við lungnakrabba. Enda hætt við meinvörpum um allan þjóð- félagskroppinn frá þvílíkri sýkingu. Og enginn hluti þjóðlífsins undanskil- inn þeim háska. En þetta samhengi verður ekki ljóst nema að því sé hugað. Skoðum fyrst heilbrigt ástand. Málfrelsi er skilgreint svo: það er rétturinn tilað segja sannleikann af góðum hvötum og í réttmætum tilgangi. Víðasthvar í vestanverðri Evrópu er þetta góða prinsíp í heiðri haft og þar á ekki að vera hægt að dæma neinn fyrir að segja sannleik- ann í réttmætum tilgangi. Þar er fyrgreint málfrelsi haft bæði í stjórnarskrá og í lögum. Og súrefni sannleikans fær óhindrað að flæða um æðar þjóðfé- lagsins. Heft málfrelsi Málfrelsisákvæði er hérlendis að finna í 72. grein stjórnarskrárinnar og sumstaðar í lögum. Einnig má þó, illu heilli, finna hið gagnstæða, þ.e.a.s. heftingu málfrelsis, í íslensk- um lögum. Og þá á ég við heftingu, ekki takmörkun. Enda takmörkun ærin í sjálfri skilgreiningu hugtaks: ins sem feitletruð er hér að ofan. í 108. grein almennra hegningarlaga stendur tilaðmynda þetta: „Hver sem hefur í frammi skammaryrði, aðrar móðganir í orðum eða athöfnum eða ærumeiðandi aðdróttanir við opin- beran starfsmann . .. skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum. Aðdróttun, þótt sönnuð sé, varðar sektum, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt.“ (Leturbr. höf.) Gleggsta dæmið um spillingar- áhrif þessa ákvæðis laganna er vita- skuld það að dómarar, sem eru sjálf- ir opinberir starfsmenn, hafa undan- tekningarlítið túlkað lagaákvæðið í 108. greininni sem æðra boð en gagnstætt ákvæði stjórnarskrárinn- ar um sama efni. Þannig birtist meinvarpið í dóms- kerfinu. Undanfarin ár hefi ég verið að benda áhrifamönnum hérlendis á þetta misræmi: hin forneskjulega vemd 108. greinar hegningarlag- anna á opinberum starfsmönnum stangast á við sjálfa grundvallarskil- greiningu hugtaksins málfrelsi, (hvorutveggja feitletrað hér að ofan), og þarf ekki æðri gráður í rökfræði tilað sjá það. Á meðan 108. grein almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er óbreytt í gildi virðist tómt mál að tala um tjáningar- eða ritfrelsi á ís- landi. Þetta er að vísu bara grundvall- aratriði. Sagt er að spilt stjórnarfar megi þekkja á því að valdsmenn eru treg- ir tilað ræða grundvallaratriði, enda hefur ráðafólk hér orðið þögult eins- og kalkaðar grafir þegar til þess er leitað um slík mál. Engu líkara en því finnist grund- vallaráhrifin bara einkamál þeirra „Niðurstaða væntan- legra málferla verður því áfall fyrir báða að- ila, sem hvorugur má þó við öllu meiru. En hvernig má þá vekja trúnaðartraustið til lífs- ins aftur?“ sem lent hafa í því að missa þau. Manni líður einsog klámhundi í kirkju hvenær sem maður ber slík erindi upp. Enda hver réttleysingi bara með eitt atkvæði en opinberir starfsmenn hafa 30 þúsund atkvæði og því ekki til þess ætlast að „lýðræðislega sinn- aður“ stjórnmálamaður haggi mikið miðað við sérréttindum als þess hóps. Þannig birtist meinvarpið á Ál- þingi. Yfirvofandi sakamál Læknar þykjast nú hafa ærna ástæðu að hóta fjármálaráðherra málsókn. Og trúlega standa þeir við þá hótun. Þeir eru opinberir starfs- menn og njóta því vemdar 108. greinar almennra hegningarlaga. Hvort sem litið verður á ummæli Ólafs sem embættisverk, og hann þá dreginn fyrir Landsdóm, eða þau verða skilgreind sem persónuleg ummæli hans, og hann þá dreginn fyrir Sakadóm, hlýtur hann fyr eða síðar að mæta 108. greininni. Og þar lýkur málfrelsi hans, trúið mér. Gild- ir þá einu hvernig hann réttlætir þann sannleik sem hann • vafalaust telur sig hafa sagt af góðum hvötum. Þessi orð voru sögð um opinbera starfsmenn og það er glæpur, hvað- Þorgeir Þorgeirsson sem Biblían og Stjórnarskráin segja. Og hvaða skjöl sem Ólafur fær Landsdómi eða Sakadómi til sönnun- ar á máli sínu. Hér er bannað að segja nokkuð ótilhlýðilegt, satt eða logið, um þessi rúmlega 12% þjóðarinnar sem opin- berir starfsmenn eru. Andspænis þeim sérréttindum mun Ólafur Ragnar einnig standa sem réttlaus sakamaður. Gagnvart lagaákvæði sem bannar fijálsa tján- ingu verða öll neikvæð ummæli ómerk og mælandinn er fyrirfram sekur. Það er þó ekki það versta heldur hitt: að almenningur, sem mest á undir málinu, hann lætur sér fátt um finnast merkingu eða ómerk- ingu þvílíkra dóma, veit það innra með sér að þetta lagaákvæði er haft til verndar spillingu. Kæra læknanna er bara dánarvottorð trúnaðar- traustsins. Þannig birtist meinvarp 108. greinarinnar í almenningsálitinu. Niðurstaða væntanlegra málferla verður því áfall fyrir báða aðila, sem hvorugur má þó við öllu meiru. En hvernig má þá vekja trúnaðartraust- ið til lífsins aftur? Kraftaverkið gæti að vísu verið fólgið í því að afnema 108. greinina 19 eða gjörbreyta henni áðuren mála- frelin hefjast. Með bráðabirgðalögum, ef ekki vill betur til. Þannig mætti lögleiða glasnost hérlendis með einu pennastriki. Þjóð- inni, læknum og ráðherra í hag. Eða skyldi málfrelsið kannski vera sá lúxus að það rúmist ekki innan Þjóðarsáttarinnar bráðnauðsynlegu? Höfundur er rithöfundur ■ HIÐ ÁRLEGA síðdegiskaffi- boð Félags Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík fyrir eldra fólk og gesti þeirra verður haldið í Félagsheimili Áskirkju sunnudaginn 5. maí nk. kl. 15.00, að aflokinni guðsþjónustu í kirkj- unni. Prestur sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Auk þess sem að framan greinir verður sýnd kvikmynd af kaffiboðum félagsins árin 1986 og 1987 og útdráttur úr myndaflokki sem nefnist: Ekið og gengið um Snæfellsnes 1987. Myndirnar tók Heiðar S. Valdi- marsson. Þá mun Snæfellinga- kórinn syngja nokkur lög. Aðal- fundur félagsins hefst síðan kl. 17.30. Þar verður rætt um hvort félagið eigi að selja húseign sína i Dugguvogi 15, annaðhvort að hluta til eða alla. Þá hefur verið ákveðið að efna til þriggja vikna sólarlandaferðar næsta haust. Farið verður til Portúgals. Hefst ferðin 12. september nk. Nokkrum sætum í þessa ferð er enn óráð- stafað. Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! ÞEIR SIGRIIÐU Í PUMA Tid kwityj'd A ÁGÚST ÁRMANN hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.