Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 56
SYKURLAUSff^ NÝTTÁ ÍSLANDI MATVÆU ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Stefnuyfirlýsing undirrituð í Viðeyjarstofu í dag: Ríkissljóm Sjálfstæðisflökks og Alþýðuflokks tekur við Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson undirrita stefnu- yfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar í Viðeyjarstofu í dag. Þórir Stephensen, staðarhaldari, hefur undirbúið undirritunina og haft til borð, sem var í eigu Skúla landfógeta Magnússonar og sófa úr búi Magnúsar Stephensen, konferensráðs. A bak við Þóri á myndinni sést „hinn upphaflegi ríkissjóður", eins og hann orðaði það, því í þessari járnslegnu kistu varðveitti Skúlijarðabókasjóð konungs. NÝ ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, undir forsæti Davíðs Oddssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, tekur væntan- lega við völdum á ríkisráðsfundi klukkan 14 í dag. Síðasti ríkis- ráðsfundur ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar er boðaður klukkan 11. Gert er ráð fyrir að þeir Davíð og Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins undirriti stefnuyfirlýs- ingu nýrrar ríkisstjórnar í Viðeyjarstofu fyrir ríkisráðsfundinn. Morgunblaðið/KGA Greiðslumat vegna húsbréfalána: Matið kostar frá 1.350 krónum upp í 3.600 kr. Afgreiðslutími frá einum degi upp í 10 daga Flokksráð Sjálfstæðisflokksins samþykkti einróma í gærkvöldi að -'-ganga til stjómarsamstarfsins á grundvelli fyrirliggjandi stefnu- yfirlýsingar og skiptingu ráðu- neyta. Þingflokkur Sjálfstæðis- flokks velur ráðherra flokksins á fundi í dag. Flokksstjóm Alþýðu- flokksins var enn á fundi þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt, en fyrir þeim fundi Iá að taka af- Dráttarvél- "arslys í Sléttuhlíð ÞAÐ SLYS varð við smábátahöfn á Lónkotsmöl í Sléttuhlíð í Hofs- hreppi sl. laugardag að bóndinn i Glæsibæ, Jón Asgrímsson, varð undir dráttarvél. Hann nyaðmar- grindarbrotnaði auk þess að hljóta önnur meiðsl. Jón var að sækja dráttarvélina að umræddri höfn og varð slysið með þeim hætti að er hann ætlaði að keyra vélina burt kúplaði hún ekki saman. Hann fór því út úr jBf/élinni og var að athuga kúplings- tengi undir henni en þá fór vélin skyndilega af stað með þeim afleið- ingum að annað afturhjól hennar fór yfir Jón. Hélt vélin síðan áfram í höfnina og braut þar niður eina flotbryggju og fór síðan á kaf í sjó. Jón var fluttur með sjúkrabíl á Sauðárkrók og þaðan með sjúkra- flugvél til Akureyrar. Við rannsókn kom í ljós að hann var mjaðmar- grindarbrotinn báðum megin og einnig voru fjögur rif brotin. Einar stöðu til stjórnarsamstarfs, stefnu- yfirlýsingar, skiptingu ráðuneyta og ráðhemaefna. Formenn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks náðu endanlegu samkomulagi um stefnuyfirlýs- ingu og skiptingu ráðherraemb- ætta í gærdag. Samkvæmt því fær Sjálfstæðisflokkurinn forsætis- ráðuneyti og hagstofu, íjármála- ráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti, samgöngu- ráðuneyti dóms- og kirkjumála- ráðuneyti og menntamálaráðu- neyti. Auk þess verður forseti Al- þingis og formaður utanríkismála- nefndar úr Sjálfstæðisflokki. Ekki lá fyrir í gærkvöldi hveijir myndu skipa þessi embætti, utan forsæt- isráðherraembættið. í hlut Alþýðuflokks koma ut- anríkisráðuneyti, félagsmálaráðu- neyti, iðnaðar- og viðskiptaráðu- neyti, heilbrígðis- og trygginga- ráðuneyti og umhverfisráðuneyti. Að auki fær flokkurinn for- mennsku í fjárveitinganefnd. A flokksstjórnarfundinum í gærkvöldi lagði Jón Baldvin Hannibalsson það til að hann yrði utanríkisráðherra, Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra, Eiður Guðnason um- hverfisráðherra og Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra. Davíð Oddsson fékk umboð til stjómarmyndunar síðdegis síðast- liðinn föstudag og sagðist hann þá ætla sér fjóra daga til að reyna að mynda stjórn með Alþýðu- flokki. Sjá fréttir, viðtöl og stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar á miðopnu. ÞÓKNUN sem bankar, sparisjóð- ir og verðbréfafyrirtæki taka fyrir að annast mat á greiðslu- getu vegna húsbréfalána er mis- munandi. íslandsbanki tekur 1.350 krónur fyrir þjónustuna, Landsbanki íslands 1.650 krón- ur, Búnaðarbankinn, sparisjóðir og Kaupþing 3.600 krónur. Stofnanirnar áskilja sér allt að tíu daga frest til að vinna greiðslumatið eftir að öll gögn hafa borist, en þar sem Morgun- blaðið leitaði upplýsinga í gær töldu talsmenn að það ætti ekki að taka meira en einn til tvo daga við núverandi aðstæður. Að sögn Erlendar Davíðssonar hjá húsbréfaþjónustu Landsbank- ans ætti að vera hægt að afgreiða greiðslumatið daginn eftir að öll gögn hafa borist. Sama sögðu tals- menn Búnaðarbanka og íslands- banka. Komi eitthvað upp á, til dæmis ef gögn vantar, er hringt í viðkomandi umsækjanda og hann látinn vita. Gögn þau sem skila þarf eru stað- fest afrit af skattaskýrslu, launa- seðlar síðustu þriggja mánaða, nýj- ustu greiðsluseðlar lána, veðbókar- vottorð og brunabótamatsvottorð ef umsækjandi á íbúð fyrir sem selja á til að fjármagna ný íbúða- kaup. Ef nota á sparifé eða hiutafé sem ekki kemur fram á skatta- skýrslu þarf að skila staðfestingu um það, sé það varðveitt í annarri stofnun en greiðslumatið fer fram í. Úlfar Indriðason hjá Búnaðar- banka segir að með þjónustugjald- inu, sem er 3.600 krónur í Búnaðar- bankanum og sparisjóðunum, sé ætlunin að þessi þjónusta standi undir sér sjálf. Hann segir að hér sé um sérfræðiþjónustu að ræða og fylgi henni all nokkur kostnaður. Til dæmis þurfi að taka á milli 40 og 50 ljósrit vegna hverrar umsókn- ar, sem skýri hluta kostnaðarins. Hann segir jafnframt að bank- ‘arnir verði að geyma öll gögn greiðslumatsins í 24 mánuði og það nýmæli var tekið upp þegar banka- stofnanir tóku við greiðslumatinu af Húsnæðisstofnun ríkisins að greiðslumatið gildir í 12 mánuði í stað fjögurra mánaða áður. Bank- arnir tóku við þessari starfsemi í gær, mánudag. Blikastaðir: Gengið að kauptilboði EIGENDUR Blikastaða í Mos- fellssveit hafa samþykkt, að ganga að 244,9 milljóna króna tilboði Reykjavíkurborgar í landið. Davíð Oddsson borgarstjóri, undirritaði samkomulagið fyrir hönd borgarinnar í gær, með fyrir- vara um samþykki borgarráðs. í samningnum er fyrirvari um að Mosfellsbær falli frá forkaupsrétti að jörðinni og samkomulag takist milli sveitarfélaganna um breytta lögsögu. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur fjórar vikur til að ákveða hvort forkaupsréttur verður nýttur. W- V estmannaeyj ar: Maður fórst í eldsvoða V estmannaeyj um. 36 ARA skipveiji & Berg VE 44 fórst er eldur kom upp í skipinu þar sem það lá í Vestmannaeyjahöfn á sunnudagsmorgun. Slökkvilið Vestmannaeyja var ræst út kl. 7.46 á sunnudag. Reyk lagði þá frá Berg þar sem hann lá við bryggju framan við Skipalyftuna. Talsverður eldur og reykur var í brú og vistarverum skipsins og gekk slökkviliðsmönnum erfiðlega að komast að eldinum í fyrstu. Þeir hófu slökkvistarf í gegnum kýraugu á síðum skipsins en reykkafari fór niður í skipið. Slökkvi- starfi var lokið um kl. 10. Vitað var að skipveiji hafði farið um borð í skipið fyrr um nóttina og fundu reykkafarar manninn í klefa sínum og var hann látinn. Miklar skemmdir urðu á vistarverum og í brú skips- ins. Talið er að allar innréttingar séu ónýtar auk þess sem öll siglinga og fiskileitartæki í brú eru talin ónýt. Ekki liggur fyrir hversu hátt tjónið er metið en talið er að það skipti tugum milljóna. Rannsókn á eldsupptökum stendur enn yfir en talið er að kviknað hafi í út frá vatnshitakönnu í eldhúsi. Morgunblaðið/Sigfurgeir Frá slökkvistarfi á sunnudag. Maðurinn sem lést hét Bjarni Víglundsson, til heimil- is að Foldahrauni 40 í Vestmannaeyjum. Hann lætur eftir sig eiginkonu, tvo syni og fósturdóttur. Grímur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.