Morgunblaðið - 30.04.1991, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991
Umræður um framtíðarvarnir Evrópu:
EB-ríkin vöruð við
að sniðganga Nato
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópubandalagsins (EB) ræddu meðal
annars framtíðarhlutverk bandalagsins í öryggi og vörnum Evrópu
á óformlegum fundi í Lúxemborg nú um helgina. Jacques Poos, ut-
anríkisráðherra Lúxemborgar, sem var í forsæti á fundinum gerði
ráðherrunum grein fyrir bréfi frá James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, þar sem hann varar EB-ríkin við því að sniðganga
Atlantshafsbandalagið (NATO) í umfjöllun þess um öryggi og varnir
Evrópu í framtíðinni.
I bréfi Bakers er vikið að hug-
myndum sem fram hafa komið í þá
veru að Vestur-Evrópusambandið
(VES), varnarbandalag níu EB-
ríkja, fái aukið vægi í vörnum Evr-
ópu. Segir í bréfínu að gefa verði
NATO-ríkjum utan Evrópubanda-
lagsins kost á að gerast aðilar að
Vestur-Evrópusambandinu verði því
ætlað lykilhlutverk í framtíðarvörn-
um Evrópu. Hér ræðir um þijú
NATO-ríki, Noreg, ísland og
Tyrkland.
í óformlegum tillögum Lúxem-
borgara er m.a. gert ráð fyrir að
Vestur-Evrópusambandið verði inn-
limað í Evrópubandalagið og á veg-
um þess verði starfræktur sérstakur
Evrópuher, sem beita megi jafnt
utan Evrópu jafnt sem í hugsanleg-
um átökum í Mið- og Austur-Evr-
ópu. Skiptar skoðanir eru um ágæti
hugmynda sem þessara innan Evr-
ópubandalagsins. Bretar, Hollend-
ingar og Portúgalir hafa á vettvangi
Evrópubandalagsins lagt ríka
áherslu á náið samráð við aðild-
arríki NATO um endurskoðun ör-
yggis- og vamarmála Evrópu og þá
sérstaklega gott samband við
bandarísk stjórnvöld um þau efni.
Önnur EB-ríki hafa fullt eins verið
tilbúin til að kyunna endanlega hug-
myndir bandalagsins innan NATO
þegar þær eru fullbúnar. Búist
er við því að boðað verði til leiðtoga-
fundar NATO í haust til að íjalla
um nýtt og breytt hlutverk banda-
lagsins innan nýrrar Evrópu. Jacqu-
es Delors, forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópubandalagsins, sagði
að loknum fundinum í Lúxemborg
að umræðan innan EB hefði farið
langt fram úr umræðunni innan
NATO um nýja skipan öryggis- og
vamarmála í Evrópu. Nauðsynlegt
væri að herða umræðuna innan
Atlantshafsbandalagsins til þess að
styggja ekki Bandaríkjamenn.
Reuter
Milljarða tjón ífárviðri
Fyrrum nágrannar í bænum Andover í Kansasríki
hughreysta hvor annann í rústum húsa sinna. Fjórt-
án manns biðu bana í bænum á sunnudag af völdum
hvirfilbyls og þriðjungur íbúðarhúsa eyðilagðist en
5.000 manns bjuggu þar. Alls biðu 23 bana af völd-
um óveðurs í ríkjunum Kansas og Óklahóma, en þar
og í fimm ríkjum til viðbótar sem veðrið fór yfir,
nam tjón af völdum þess jafnvirði milljarða ÍSK.
Bandamenn ætla að stækka
griðasvæði Kúrda í N-írak
Evrópubandalagið vill, að Sameinuðu þjóðirnar taki við gæslunni
HASKDLABIO
SJÁ BÍÓSÍÐU
Zakho, Mondorf, London. Reuter.
HERMENN bandamanna í Norð-
ur-írak hafa ákveðið að stækka
griðasvæðin, sem ætluð eru kúr-
dísku flóttafólki, og eru þegar
byrjaðar framkvæmdir við nýjar
búðir skammt frá borginni Zak-
ho. Nokkuð er þó um, að kúrdí-
skir skæruliðar hindri fólk í að
fara til þessara svæða og þá und-
ir því yfirskini, að því sé ekki
í yfirlýsingu, sem gefin var út
eftir fundinn, segja fulltrúar sjö-
ríkjanna, Bandaríkjanna, Kanada,
Bretlands, Þýskalands, Frakklands,
Ítalíu og Japans, að það sé sameig-
inleg stefna þeirra að lækka vexti
en ekki var sagt hvernig eða hven-
ær það ætti að gerast.
I Bandaríkjunum er samdráttur
óhætt. Evrópubandalagið hefur
samþykkt, að lögreglulið Samein-
uðu þjóðanna taki við gæslu á
flóttamannasvæðunum en vill, að
flugherir vestrænna ríkja haldi
áfram yfirráðum í lofti. Saddam
Hussein íraksforseti hélt upp á
54 ára afmæli sitt á sunnudag og
var þá sæmdur fjölda heiðurs-
merkja fyrir „fórnfúst starf í
í efnahagslífinu og stjórnvöld telja,
að eina leiðin til að auka hagvöxt
þar og í heiminum almennt sé að
lækka vexti. Fulltrúar hinna ríkj-
anna sex voru ekki jafn vissir í sinni
sök og Þjóðveijap sögðu, að til að
halda aftur af verðbólgunni yrðu
vextir að vera háir enn um sinn.
Kváðust Þjóðverjar og Japanir einn-
þágu lands og þjóðar“.
Bandarískir og hollenskir her-
menn tóku í gær til við að reisa
nýjar flóttamannabúðir fyrir 10.000
manns skammt frá borginni Zakho
og hefur verið ákveðið að stækka
griðasvæðin, sem Kúrdum er ætluð.
Hefur hermönnum Saddams verið
vísað burt úr borginni og eru þeir
flestir farnir þaðan. Talsmenn Sam-
ig ekkert hafa á móti ódýru lánsfé
en það yrði best tryggt með lítilli
verðbólgu.
Þjóðveijar minna á, að 1978 hafi
þeir látið undan Bandaríkjamönn-
um og gripið til ýmissa aðgerða til
að auka hagvöxt en með þeim af-
leiðingum, að verðbólga jókst til
muna um allan heim. Theo Waigel,
fjármálaráðherra Þýskalands,
bendir líka á, að þýska stjórnin
hafi létt þrýstingnum af vöxtunum
með því að hækka skatta og eigi
ekki við neinn fjárlagahalla að
stríða. Það sé því ekki við Þjóðveija
að sakast.
einuðu þjóðanna sögðu í gær, að
um 20.000 kúrdískir flóttamenn
kæmu nú daglega til griðasvæðanna
í Norður-írak en nokkuð er um, að
kúrdískir skæruliðar meini þeim för.
Bera þeir því við, að öryggi fólksins
hafi ekki verið tryggt en stundum
virðist tilgangurinn vera sá einn að
ræna fólkið eða kúga af því fé.
Utanríkisráðherrar EB sam-
þykktu á fundi í bænum Mondorf í
Luxemborg um helgina, að rétt
væri að lögreglulið frá SÞ tæki við
gæslu á flóttamannasvæðunum í
Norður-írak. Það voru Bretar, sem
lögðu þetta til, en þeir sögðu jafn-
framt, að flugherir vestrænna ríkja
yrðu að vera viðbúnir að skakka
leikinn ef hermenn íraksstjómar
gæfu tilefni til.
Breska blaðið Observer sagði á
sunnudag, að Saddam Hussein væri
að endurbyggja herinn með kín-
verskum og norður-kóreskum vopn-
um, sem flutt væru til íraks á laun.
Þessu neitaði íraksstjórn í gær og
sagði, að viðskiptabannið væri svo
strangt, að ekki væri einu sinni
unnt að flytja matvæli til landsins.
Saddam Hussein fagnaði 54 ára
afmæli sínu á sunnudag og var þá
mikið um dýrðir í Bagdad. Sýndi
íraska sjónvarpið frá tveggja stunda
móttöku einhvers staðar í borginni
þar sem Saddam var að kyssa lítil
börn og jafnframt var hann sæmdur
æðsta heiðursmerki ríkisins fyrir
„allar þær fórnir, sem hann hefur
fært í þágu lands og lýðs“.
Fundur iðnríkjanna í Washington:
Þjóðverjar snerust gegn
tiliögnm um vaxtalækkun
Washington. Reuter.
FUNDI sjö-ríkja-hópsins, sjö helstu iðnríkja heims, lauk í Washing-
ton í fyrradag, og þykja niðurstöður hans nokkur ósigur fyrir Banda-
ríkjastjórn. Lagði hún áherslu á, að vextir yrðu lækkaðir strax til
að örva með því hagvöxt en á það var ekki fallist. Bandarískir
embættismenn segjast þó enn vissir um, að vaxtalækkun sé skammt
undan.
Með aðeins hálfu
koffeinmagni
Ósvikið kaffibragð