Morgunblaðið - 30.04.1991, Side 32
l(íéí JÍ5Í'1A .06 ílUOAQULQlíM aKIAJSM'JOJÍOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGÚR 3Ö. ÁPRÍL 1991
Húsið er endurgert að utan, það er hluti af
samstæðu lítilla húsa og er einfalt og látlaust
og frágangur þess er góður, segir um hús Jó-
hanns Sigurðssonar við Lækjargötu 2, sem hér
Listamennirnir Guðmundur Ármann og Helgi
Vilberg hlutu viðurkenningu fyrir Listaskálann
efst í Grófargili. í umsögn segir, að um sé að
ræða gjörbreytingu á nýtingu húss, útliti þess,
yfirbragði og umhverfi.
Menningarmálanefnd:
Höepfnershús var og er enn eitt glæsilegasta
hús bæjarins og fengur að því að þannig sé stað-
ið að endurbótum á því að það sé áfram staðar-
prýði, segir um þetta hús i eigu Kaupfélags
Eyfirðinga.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þau Stefanía Ármannsdóttir og Baldur Sigurðs-
son hlutu viðurkenningu úr Húsfriðunarsjóði
fyrir hús sitt Aðalstræti 62, en um það segir í
umsögn að frágangi að utan sé að mestu lokið,
heildaryfirbragð sé fallegt, húsið lítið og lát-
laust og að það falli vei að umhverfi sínu og
imynd Innbæjarins og Fjörunnar.
Viðurkenning veitt fyrir
varðveizlu fjögurra húsa
JÓN Hlöðver Áskelsson hlaut starfslaun bæjarlistamanns Akur-
eyrarbæjar, en tilkynnt var um það á samkoinu sem Menningar-
málanefnd hélt á Hótel KEA á sumardaginn fyrsta. Einnig var
tilkynnt um viðurkenningar úr Húsfriðunarsjóði Akureyrar og
Menningarsjóði Akureyrar.
Þremur var veitt viðurkenning
úr Menningarsjóði, Áskeli Jóns-
syni, tónskáldi, Braga Siguijóns-
syni, skáldi og rithöfundi, og Jóni
Gíslasyni, trésmíðameistara og
eiganda Gamla Lundar við Eið-
svöll.
Úr Húsfriðunarsjóði hlutu við-
urkenningar þau Stefanía Ár-
mannsdóttir og Baldur Sigurðs-
son fyrir hús sitt við Aðalstræti
62, Jóhann Sigurðsson fyrir húsið
Lækjargötu 2, Guðmundur Ár-
mann Siguijónsson og Helgi Vil-
berg vegna Listaskálans í Kaup-
vangsstræti 14 og Kaupfélag
Eyfirðinga vegna hússins númer
20 við Hafnarstræti, Höepfner.
Gúmmívinnslan:
Góð afkoma á síðasta ári
Stefnt að aukinni endurvinnslu
GÚMMÍVINNSLAN hf. skilaði 6,5 milljóna króna hagnaði eftir skatta
á síðasta ári og velta fyrirtækisins var um 77 milljónir króna sem
er um 30% aukning frá árinu 1989. Hluthafar fengu greiddan 15%
arð. Þetta kom fram á aðalfundi
skömmu.
Ingi Björnsson formaður stjómar
Gúmmívinnslunnar sagði að rekst-
urinn hefði verið með svipuðu sniði
og árinu á undan, en stefnt er að
því að auka endurvinnslu innan fyr-
irtækisins. Ingi sagði að breytingar
á tolla- og innflutningslögum hefðu
sett nokkurt strik í þróunarvinnuna,
en sú vinna væri orðin löng, tíma-
frek og dýr. „En við teljum að við
séum komin með góða vöru og við-
brögð hafa verið góð,“ sagði Ingi.
Gúmmívinnslan framleiðir m.a.
gúmmíhellur. Þar er um endur-
vinnslu að ræða, en hellurnar eru
unnar úr gömlum hjólbörðum. Þá
framleiðir fyrirtækið einnig vörur
félagsins sem haldinn var fyrir
fyrir sjávarútveg úr endurunnu
gúmmíi, en Ingi sagði sölu á slíkum
vörum vera nokkuð sveiflukennda.
Góða afkomu síðasta árs sagði
Ingi að þakka mætti mun lægri fjár-
magnskostnaði en var á árinu 1989
og minni verðbólgu. Hagnaður á
síðasta ári, 6,5 milljónir króna, er
um 8% af veltu fyrirtækisins, en
veltan jókst um 30% á milli áranna
1989-90 og var um 77 milljónir
króna. Greiddur var 15% arður til
hluthafa fyrirtækisins, en stærstu
hluthafarnir eru Þórarinn Kristjáns-
son framkvæmdastjóri, Möl og
Sandur hf., Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar og Dreki hf.
Hörður Jörundsson
sýnir í Gamla Lundi
HÖRÐUR Jörundsson opnaði á
laugardag sýningu á verkum sín-
um í Gamla Lundi við Eiðsvöll á
Akureyri. Sýningin stendur fram
til sunnudagsins 4. maí næstkom-
andi og er opin frá kl. 18-22 virka
daga og um helgar frá kl. 14-22.
Á sýningunni eru 19 olíumálverk,
en fram til þessa hefur Hörður ein-
göngu málað vatnslitamyndir. „Ég
er í olíumálverkunum núna í bili,
ég þurfti að breyta aðeins til, sjálfs
mín vegna og annarra," sagði Hörð-
ur.
Efniviður málverkanna er að
mestu sóttur í landslag og eru fimm
verkanna frá Noregi, en þar dvaldi
Hörður um skeið í upphafi árs.
Gerði hann skissur ytra og fullklár-
aði málverkin hér heima.
Þetta er sjötta einkasýning Harð-
ar, en hann hefur einnig tekið þátt
í ijöMa samsýninga.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hörður Jörundsson opnaði sýn-
ingu á verkum sýnuin í Gamla
Lundi á laugardag.
W terkur og
Ll hagkvæmur
auglýsingamióill!
■ VORTÓNLEIKAR forskóla-
deildar Tónlistarskólans á Akur-
eyri verða í Akureyrarkirkju á
morgun, 1. maí, kl. 14. Um 60
börn á aldrinum 5-8 ára flytja fjöl-
breytta efnisskrá og eru allir vel-
komnir. Kennsla hefur farið fram
í Tónlistarskólanum og í Glerár-
skóla, en kennarar deildarinnar eru
Lilja Hallgrímsdóttir og Jón
Rafnsson.
Dagvistardeild Akureyrarhæjar
auglýsir eftir leikskólastjórum, fóstrum, þroskaþjólfum eða
öðru uppeldismenntuðu fólki, sem tilbúið er til að flytja út
ó landsbyggðina og reyna eitthvað nýtt.
Á Akureyri bjóðum við upp á fjölbreytt uppeldisstarf,
regluleg námskeið, öflugt félagslíf og síðast en ekki
síst góða veðrið og skíðafærið.
Fyrir utan leikskólastjóra og deildarfóstrur vantar okkur
2 stuðningsaðila, þroskaþjálfa eða fóstrur í 100% störf
fyrir 2 fötluð börn. Boðið er upp á stuðningsnámskeið
og handleiðslu.
Aðstoðum vlð útvegun húsnæðis.
Upplýsingar um störfin eru veittar á dagvistardeild í
síma 96-24600, alla virka daga frá 10-12 og hjá starfs-
mannastjóra í síma 96-21000.
Umsóknarfestur er til 15. maí og umsóknum skal
skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum til starfs-
mannastjóra Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akur-
eyri.
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis:
Hjólbarðar í umferð sem ekki
staiidast gæða- og öryggiskröfur
NEYTENDAFÉLAGI Akureyrar og nágrennis hefur borist aðvörun
um að í bænum séu í umferð hjólbarðar sem ekki standast gildandi
gæða- og öryggiskröfur og því sé óheimilt að setja þá undir fólksbíla.
Á hjólbarðaverkstæðum könnuðust menn við að þessi dekk væru til
og einum hafði verið boðin þau til kaups. Þetta kom upp í kjölfar
verðkönnunar félagsins á sumarhjólbörðum sem gerð var í síðustu
viku, en meginniðurstaða könnunarinnar var sú að mikil samkeppni
sé ríkjandi á milli verkstæða.
Vilhjálmur Ingi Árnason formað-
ur Neytendafélags Akureyrar og
nágrennis sagði að fram hefði kom-
ið við gerð könnunarinnar að til
sölu væru hjólbarðar sem ekki
standist gildandi gæða- og örygg-
iskröfur. Dæmi væru þess að verk-
stæðum hefðu verið boðin þau til
kaups, jafnvel heilir gámar, en verð
þeirra er um helmingi lægra en
þeirra hjólbarða sem hafa löglega
gæðastimpla.
Þorsteinn Friðriksson stöðvar-
stjóri Bifreiðaskoðunar íslands á
Akureyri sagði að í fyrrasumar
hefðu nýjar reglur tekið gildi og
þeir hjólbarðar sem standast þær
kröfur sem gerðar eru séu merktir
„DOT“, „ECE“ eða „JIS“ eftir því
hvort um bandaríska, evrópska eða
japanska hjólbarða er að ræða.
Umræddar reglur tóku gildi 1. júlí
í fyrra og er mönnum heimilt að
slíta út þeim dekkjum sem þeir hafa
átt áður en reglurnar tóku gildi.
Þorsteinn kvaðst ekki hafa orðið
þess var að menn kæmu með bifreið-
ar til skoðunar á ólöglegum dekkj-
um.
Sveinn Bjarman verkstjóri hjá
Höldi hf. sagðist hafa heyrt um
þessi ólöglegu dekk í umferð og séð
þau einnig. Þessir hjólbarðar væru
til í nokkrum mæli í Bretlandi og
væri lítill vandi að útvega þau kysu
menn það. Verðið væri um helmingi
lægra en á þeim hjólbörðum sem
uppfylla gæða- og öryggiskröfurnar
sem gerðar eru og margir því gin-
keyptir fyrir þeim. „Við hefðum
getað fengið svona dekk, en það er
ekkert vit í því að vera með þau í
sölu, þau eru ekki lögieg og menn
fá þau bara í hausinn aftur,“ sagði
Sveinn.
Þórarinn Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar
sagðist hafa heyrt af þessum dekkj-
um, en honum hefði ekki verið boð-
in þau til kaups. Hjá Hjólbarðaþjón-
ustunni á Hvannavöllum höfðu
menn ekki heyrt af þessum ólöglegu
hjólbörðum í umferð.
Hvað niðurstöður könnunarinnar
varðar kom í ljós að verð er svipað
á öllum stöðunum, en Vilhjálmur
Ingi sagði að samkeppnin væri mik-
il, verðið væri komið eins langt nið-
ur og unnt væri. „Samkeppnin birt-
ist einkum í því núna, að menn kepp-
ast við að bjóða sem besta aðstöðu
á meðan menn bíða,“ sagði hann.
Frá því síðasta verðkönnun var gerð
hefði eitt verkstæði á Dalvík hætt
starfsemi, en Vilhjálmur Ingi sagði
að þar hefði samkeppnin síðasta
haust verið hvað hörðust. Könnunin
náði til sjö verkstæða, fimm á Akur-
eyri og tveggja á Dalvík, en forráða-
maður Dekkjahallarinnar vildi ekki
leyfa verðkönnun í fyrirtæki sínu.