Morgunblaðið - 30.04.1991, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991
t
Systir mín,
SIGURBJÖRG JÓNASDÓTTIR,
andaðist í Héraðshælinu Blönduósi þann 26. apríl.
Fyrir hönd vandamanna.
Ásta Jónasdóttir.
t
Eiginmaður minn,
ÞÓRÓLFUR JÓN EGILSSON
rafvirkjameistari,
Hlíf II, ísafirði,
andaðist á heimili sinu 26. apríl.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Guðrún Gísladóttir.
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON
frá Teigi,
Grindavik,
andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði aðfaranótt 29. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda.
Börn og tengdabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LILJA GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Hrafnkelsstöðum,
lést í Sjúkrahúsi Akraness, aðfaranótt 29. apríl.
Sjöfn Halldórsdóttir,
Magnús Halldórsson, Svanhildur Guðbrandsdóttir,
María Ingólfsdóttir, Halldór Valdimarsson,
Guðbrandur Ó. Ingólfsson,
Kristfn Ingólfsdóttir, Hörður Ivarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Konan mín og móðir okkar,
MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR,
Reykjahlíð 12,
lést i Landakotsspítala sunnudaginn 28. apríl.
Guðjón Sigurðsson,
Auður Guðjónsdóttir,
Unnur Guðjónsdóttir,
Bergljót Guðjónsdóttir,
Bragi Guðjónsson
og aðrir aðstandendur.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ANTON INGIBERGSSON
járnsmiður,
Kleppsvegi 120,
Reykjavík,
lést föstudaginn 26. apríl í Landspítalanum.
Þórunn Þorvarðardóttir,
Unnar Jónsson, Auðbjörg Jónsdóttir,
Kristín Jónsd. Schmidhauser, Ulrich Schmidhauser,
Áslaug Jónsdóttir, Óskar Ingímarsson,
Ómar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi.
FRIÐRIK H. GUÐJÓNSSON
f.v. útgerðarmaður,
Isafirði,
lést í Landspitalanum 28. apríl.
Ástriður Guðmundsdóttir,
Bragi Friðriksson, Katrín Eyjólfsdóttir,
Kristín Ásta Friðriksdóttir, Hafsteinn Sigurðsson,
Gréta Friðriksdóttir, Sigmar Ólason,
Steinunn Friðriksdóttir, Jón Árnason,
Gunnur Friðriksdóttir,
Fjóla Friðriksdóttir, Haraldur Jóhannsson
og barnabörn.
Auður Hallgrims
dóttir - Minning
Fædd 5. nóvember 1926
Dáin 22. apríl 1991
Hún var fædd á Akureyri, dóttir
hjónanna Hallgríms Kristjánssonar,
málarameistara, og Þórunnar Lúð-
víksdóttur. Hallgrímur var úr
Svarfaðardal en Þórunn úr Þingeyj-
arsýslu, af Skútustaðaætt. Hall-
grímur varð tæplega 74 ára gam-
all en Þórunn lést aðeins 33 ára
gömul frá fjórum börnum, á aldrin-
um 2ja til 10 ára. Það gefur auga-
leið hversu erfiður móðurmissir er
svo ungum börnum, en þau ólust
upp í skjóli föður síns á Akureyri.
Börnin voru auk Auðar Kristján
lyfsali, Ásta og Þóra.
Það er einmitt frá Akureyri sem
mínar fyrstu minningar um Auði
eru. Ég man þær systur frá þessum
árum um 1950, Auði og Ástu. Þær
vöktu athygli, dökkar yfirlitum,
sundkonur góðar og samrýndar
mjög. Nokkuð löngu síðar urðu svo
kynni okkar og fjölskyldna okkar.
Árið 1950 gengu þau í hjónaband
Auður og Viktor Aðalsteinsson,
fyrrum flugstjóri, fæddur 5. apríl
1922. Þau bjuggu fyrstu árin á
Akureyri eða til 1954 er þau flutt-
ust til Reykjavíkur, síðan í Garðabæ
að Lindarflöt 36 frá 1964 til 1981,
er þau fluttust til Hafnarfjarðar og
áttu þar heimili síðan.
Þau Auður og Viktor áttu ein-
stöku barnaláni að fagna. Elst er
Helen f. 24. mars 1951, gift Ian
Stuart, stjórnmálafræðingi. Þau eru
búsett í London og eiga einn son,
Thomas Alexander. Helen er fjár-
málastjóri hjá ráðgjafarfyrirtæki í
London. Næstur er Hallgrímur
fæddur 13. ágúst 1953, flugmaður
hjá Flugleiðum hf., kvæntur Ragn-
heiði Rögnvaldsdóttur, hjúkrunar-
fræðingi. Þau eru búsett í Bessa-
staðahreppi. Börn þeirra eru Krist-
ján Hjöi’var, Hrannar Þór og Auð-
ur. Yngstur er Viktor fæddur 20.
júlí 1962, flugmaður hjá Flugtaki
hf. Sambýliskona hans er Asrún
Vilbergsdóttir og eiga þau soninn
Viktor Ara.
Ég kynntist Viktori fyrst
skömmu eftir að ég fluttist til Akur-
eyrar árið 1948. Hann var þá bif-
reiðastjóri á BSA, en flugmaður og
flugstjóri hjá Flugfélagi Islands hf.
og síðar Flugleiðum hf. var hann
frá 1950 til 1985.
Feður okkar Viktors, þeir Einar
Kristjánsson, þá í Sana á Akureyri,
og Áðalsteinn Magnússon, lengi
starfsmaður ÁTVR á Akureyri,
voru góðir kunningjar. Þessi kunn-
ingsskapur þeirra yfirfærðist á okk-
ur syni þeirra og varð að náinni
vináttu sem haldist hefur æ síðan.
Mikill samgangur varð milli
heimila okkar eftir að Auður og
Viktor fluttust á Flatirnar í
Garðabæ, þá Garðahreppi, árið
1964. Þá fyrst kynntumst við Auði
og elskulegum börnum þeirra.
Ég minnist ótaimargra samveru-
stunda á heimili þerra á Lindarflöt-
inni. Þar var oft gestkvæmt og þar
ríkti glaðværð og gáski. Söngur var
í hávegum hafður og enda að von-
um. Auður hafði einkar fagra og
tæra söngrödd. Hún var líka mjög
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÚN GISSURARDÓTTIR,
Álfaskeiði 40,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 28. apríl.
Kristján Steingrímsson,
Steingrímur Kristjánsson,
Margrét Ág. Kristjánsdóttir, Júlíus Hinriksson,
Gissur V. Kristjánsson, Dóra L. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÍÐUR STEFANÍA SIGURÐARDÓTTIR
fyrrv. stöðvarstjóri
Póst og síma Grundarfirði,
Dalbraut 20, Reykjavík,
andaðist í Landspítalanum föstudaginn 26. apríl sl.
Jarðsett verður frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 4. maí.
Sigurður Hallgrímsson, Erla Eiriksdóttir,
Selma Hallgrimsdóttir Ruga, Erastus Ruga,
Sveinn Hallgrímsson, Gerður K. Guðnadóttir,
Ingibjörg Hallgrímsdóttir, Kristinn Ólafsson,
Halldóra Hallgrímsdóttir Laszlo, Peter Laszlo,
Guðni E. Hallgrímsson, Bryndís Theodórsdóttir,
Hallgrímur Hallgrímsson, Guðríður J. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju í
dag, þriðjudaginn 30. april kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarfélög.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS H. JÓNSSON
frá Bolungavik,
Hrafnistu,
áður Þykkvabæ 13,
Reykjavik,
Hulda Magnúsdóttir,
Jón Friðgeir Magnússon,
Elías Magnusson,
Kristbjörg Magnúsdóttir,
Laufey Magnúsdóttir,
Jónina Magnúsdóttir,
Símon Magnússon,
Hafdís Magnúsdóttir,
Sævar Magnússon,
Sigurgeir Finnbogason,
Elísabet Lárusdóttir,
Rannveig Káradóttir,
Sigurjón Magnússon,
Kristján Óskarsson,
John Ostergaar,
Ingibjörg Gísladóttir,
Erlingur Guðjónsson,
Anna Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
TWiiffiiií ni'iin 11 i iwi w ■ m———híii wwhiim ww h—mi i Tinrn'ii nMiinipmimif nti
lagviss og lék vel á píanó. Og hús-
bóndinn, Viktor, hafði og hefur enn
einhveija ljúfustu tenórrödd sem
heyrist. Dúettar þeirra hjóna voru
frábærir. Og svo sungum við öll
saman heilu kvöldin, húsráðendur
og gestir. Það voru oft meiriháttar
hljómleikar. Við stofnuðum kvart-
ett, Viktor og Árni Jónsson, söngv-
ari, Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri, og undirritaður, og
kölluðum „Stjórakvartettinn", því í
honum voru flugstjóri, verslunar-
stjóri, ráðuneytisstjóri og sveitar-
stjóri. Oft tókum við lagið á Lindar-
flötinni við undirleik Auðar. Þetta
voru ógleymanlegar stundir.
Ég minnist líka ferðalaganna
mörgu með þeim hjónum, veiðiferð-
anna í Sandá í Þistilfirði, allt frá
árinu 1969, tjaldferða í Þjórsárdal,
Landmannalaugar og víðar, göngu-
ferða, skíða- og skautaferða á árum
áður. Og þá var líka sungið.
Eitt sinn fórum við í langferð
saman. Fyrst til Kaupmannahafnar,
svo til Rómar, til Napólí, Pompei
og Capri og Sorrento, þar sem við
dvöldumst í 10 daga. Og loks til
London og heim. Viðburðarík og
skemmtileg ferð sem við munum
vel þótt 23 ár séu liðin. Við leigðum
okkur hestvagn og kúsk eina kvöld-
stund í Róm, skoðuðum borgina í
30 stiga hita og sungum svo vegfar-
endur sperrtu eyrun. Þetta voru
dýrðardagar sem við þökkum nú á
skilnaðarstund.
Þegar ég nú rifja upp kynni okk-
ar hjóna við Auði og Viktor er þar
allt bjart yfir. En lífið er ekki allt
dans á rósum svo sem ætla mætti
af því sem ég hef hér rakið. Þannig
hefur Auður eflaust átt sínar erfiðu
stundir og þau hjón bæði. Eitt er
víst, að síðustu árin urðu þeim erfið.
í bytjun júlí árið 1984 gekkst
Viktor undir skurðaðgerð. Auður
heimsótti hann á spítalann ásamt
Helen, dóttur þeirra. Á leið heim
fékk hún væga heilablæðingu sem
olii nokkurri lömun. Tveimur árum
síðar fékk hún annað áfall og til
muna alvarlegra. Hún gat þó dvalið
heima við góða umönnun Viktors,
en þar kom að hún varð að fá þá
aðstöðu, sem aðeins fæst á stofnun-
um sem til þess eru byggðar. Allra
seinustu árin dvaldist hún á Hrafn-
istu í Hafnarfirði og sætti sig sæmi-
lega við hlutskipti sitt. Um helgar
og á hátíðum var hún þó heima í
Háahvammi 5 hjá Viktori, sem lagði
sig fram um að gera henni lífið létt-
ara.
Nú er lífi hennar lokið. Þar skipt-
ust á skin og skúrir, en mestan
hluta ævinnar lifði hún hamingju-
sömu lífi. Hún átti góðan maka og
gjörvileg börn. Það syngur enginn
vondur maður, segir máltækið. Það
sannaðist á Auði og Viktori. En
síðustu árin mátti Auður þola mót-
læti erfiðra veikinda. Þau veikindi
snertu Viktor mjög, þótt hann léti
ekki á því bera. Ándlát hennar langt
um aldur fram við hið þriðja áfallið
hefur leyst hana undan vanlíðan
þungbærra veikinda. Megi það vera
huggun Viktori, börnum, barna-
börnum og öðrum eftirlifandi ætt-
ingjum og vinum.
Við hjónin þökkum samfylgdina
og allar ánægjustundirnar og biðj-
um Viktori og fjölskyldunni allri
Guðs biessunar.
Ólafur G. Einarsson