Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 10
103 C morgunblaðið MANiMLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991 SIÐT^ÆÐ\/Hvemiggetum vib svipt hulunni af innsta ebli gjafarinnart Hinn mildi leyndardómur MEGINHLUTVERK siðfræðinnar er að kanna hið góða og upp- götva siðalögmál sem ákvarða hamingju og heill einstaklinga og þjóða. Mikilvægt siðalögmál býr í leyndardómi gjafarinnar: Hvað er gjöf? Gjöf er það eina sem við getum gefið. Gjöf er ekki hlutur í pakka. Gjöf er hugarfarið sem iiggur að baki hennar og hugurinn sem þiggur hana. Gjöf er ekki gjöf nema það sé einhver gefandi o g þiggjandi. Gjöf byggist á skorti. Þiggjand- inn þarfnast gjaf- arinnar, hann þarfnast hennar líkamlega og andlega eða bæði. Og gjöf er eitt- hvað sem látið er í té endurgjalds- laust. En hvað er hægt að gefa? Allt sem við eig- um, en því má skipta í þijá meginflokka: 1) Gjafir sem lúta frumþörfum og öryggi. Til að mynda matur, drykkur, húsaskjól, föt, lyf, hjúkrun og ýmislegt annað sem nauðsynlegt er til að viðhalda lífinu, eins og btjóstamjólk. Ein söguhetjan í bókinni „Þrúgur reiðinnar", eftir John Steinbeck, sem átti ekkert nema mjólkina í btjóstum sínum, gaf hungruðum fátæklingi að drekka. 2) Ástar- og vina- gjafir. Gjöf umhyggju, réttlætis, tilflnninga og félagsskapar. Ást _er æðsta gjöf lífsins. Ást sem er þegin er fullkom- in sæla, en ást sem enginn þiggur er óbærileg þjáning. 3. Gjafir virðingar- og viður- kenningar á persónu einstaklinga. Til að mynda viðmót, bros, kurt- eisi, tillitssemi og þolinmæði. Gjaf- ir sem hvetja fólk til að vera það sjálft og sem sanna að virðing sé borin fyrir því. Virðingargjafir eru stundum ómeðvitaðar á milli ein- staklinga, og_ stundum opinberar frá forseta íslands (fálkaorðan, riddarakrossinn). Gjafir spanna óendanlegan skala og þessir þrír flokkar eru aðeins veik tilraun til að lýsa hinum ólíku gjöfum. En hvernig sem gjöfín er þá eru allar gjafír góðar í eðli sínu. Allar gjafír stuðla nefnilega að vernd og velferð. Ef einhver ætlar sér að gefa gjöf og vonar um leið að hún komi þiggjandanum illa, er ekki um gjöf að ræða. Hugtak gjaf- arinnar hefur þá verið misnotað. Fullyrðingin „allar gjafír eru góðar“, er sönn. Rök tungumálsins sanna þessa setningu þegar ævi- saga orðanna gjöf, gáfa og góðsemi (guð) er athuguð. Það kemur í ljós að orðin eru af sama meiði og ná- skyld fyrir vikið. Orðið gáfa (hæfíleiki sem við hljótum í vöggugjöf) er skylt orðinu gjöf. Og orðin gjöf, gæfa og góð- semi tengjast öll orðinu „gjæft“, á einn eða annan máta. Þegar tungu- málið er rannsakað þá sviptum við oft huiunni af innsta eðli hlutanna, og leynardómur gjafarinnar birtist í eftirfarandi kenningu: Gjöf er gefin af góðsemi og hefur gæfu að geyma. Þannig hljómar kenning tungu- málsins, og ef við leitum að gildri speki henni til sönnunar, fínnst hún í áhrifamestu bók sögunnar: Biblí- unni. Orðskviðirnir varðveita þessa speki: „Sumir miðla öðrum mildi- lega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari. Velgjörðarsöm sál mettast ríkuiega, og sá sem gefur öðrum að drekka mun sjálfur drykk hljóta." Að gefa er ekki það sama og að missa að gefa er að öðlast eitt- hvað sem við áttum ekki áður. Og það sem við eignumst í stað gjafar felur gæfu í sér. í Markúsarguðspjalli er peninga- söfnun nefnd. Auðmenn gefa mik- ið, en fátæk ekkja gefur lítið, að- eins tvo smápeninga. Þrátt fyrir það gaf Jesús henni alla dýrðina þegar hann sagði: „Sannlega segi ég yður, þessi fátæka ekkja gaf meir en allir hinir er lögðu í fjár- hirsluna. Allir gáfu þeir af alls- nægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.“ Fátt er mikilvægara en gjöfín og er sá maður snauður sem ekki gefur. Ef við spytjum „hvetjir eru snaauðir?" þá fínnum við fljótlega svarið „annars vegar þeir sem eiga, en gefa ekki og hins vegar þeir sem öllu hafa glatað". Og þegar við spyijum „hveijir eru auðugir?" kemur svarið í ljós, „annars vegar þeir sem eiga og ósparlega veita, og hins vegar þeir sem fátt eitt eiga, en gefa þrátt fyrir það“ (jafn- vel aleiguna). „Gjafír bera ríkulega ávexti fyrir þá sem gefa,“ sagði Páll postuli, „sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólunct eða nauðung, því guð elskar glaðan gjafara". Gjöfin er góðvild og gæfa. Hún er varanleg og í henni býr hið mikla lögmál mannlífsins: „Þú skalt elska náungann eins og sjálfan þig,“ eða með öðrum orðum, „allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ Hvað getum við gefíð? Hvaða brunn eigum við sem við getum leyft öðrum að bergja á? Eigum við mat, klæði, menntun, frið, gott fordæmi, hjálp eða tungumál til að vernda? Gjöf er nefnilega fjársjóður sem hvorki mölur né ryð eyða og þjófar bijótast ekki inn og stela. Það besta sem við getum gert er að gefa. Ekkert er betra en gjöf. Speki: Því meira sem við gefum, því gæfuríkari verðum við. eftir Gunnar Hersvein Gjaflr geta verið ósýnilegar, óáþreifanlegar og ómælanlegar öllum vísindum. — (Eftir baðið, Mary Cassatt.) TÆKNlÆr ofurleibni tilgagnsf Orku- geymirinn gæti litið svona út einfaldaður. Um ofiirleiðni AÐEINS fyrir örfáum árum var haldið að ofurleiðni myndi valda veru- legri tæknibyltingu meðal vor. Þetta kom til af því að efni fundust með ofurleiðni við æ hærra hitastig, svo að haldið var að við sætum uppi með ofurleiðara við stofuhita. Nú hefur orðið stöðnun á þeirri þróun, og enn þarf að kæla hvaða efni sem er duglega til að það verði ofurleiðandi. Samt sem áður hefur ofurleiðnin unnið sér sess, aðeins á miklu hljóðlátari máta en fjölmiðlafárið í kringum hana vildi vera láta. Lítum á nokkra tæknilega nýtingarmöguleika. Ofurleiðni hafa verið gerð svo margvísleg skil, að óþarfi er að gera fyrir henni ýtarlega grein. Vitaskuld er um að ræða það fyrir- brigði að leiðarar flytji rafstraum án viðnáms eða orku- taps. Þetta hefur verið þekkt frá ár- inu 1911, en aðeins orðið sú þróun síð- an, að fleiri efni hafa sýnt eiginleik- ann og við „hærri“ hita. Enn vantar þó á að við losnum við kælingu, jafnvel þótt við legðum vír eftir köldustu snæbreiðum jarðarinn- ar, á Suðurskautslandinu að vetri. Ofurleiðnibyltingin var þannig eins og fleiri byltingar aðallega í fjöl- miðlum. Samt sem áður má segja að ofurleiðnin hafí unnið á, og notk- un hennar hafí farið vaxandi, á sinn hljóðláta hátt. Hún er notuð á til- raunastofum eðlisfræðinga, sem rannsaka hegðun efnis við aðstæður sem eru algengar úti í himingeimnum en eru sérstakar hér á jörðu. Þannig hefur ofurleiðnin verið hjálpartæki við að rannsaka grunneindir efnisins. En ofurleiðni er ekki er aðeins raf- straumur án orkutaps, heldur getur ofurleiðari flutt margfalt meiri raf- straum en venjulegur leiðari. Til að búa til segulsvið er notaður raf- straumur. Segulsvið er til dæmis nauðsynlegt í rafölum. Kostur ofur- leiðninnar er sá að vegna þess að þræðirnir bera mikinn straum, getur rafall með ofurleiðandi þráðum verið miklu minni en venjulegur rafall. í hveiju tilfelli þarf að meta hvort ávinningurinn við smæð rafalsins er meiri en það sem kostar að kæla útbúnaðinn og halda honum við lág- an hita. Einkum er talið að þannig rafalar verði í stórum orkuverum, sem þyrftu að öðrum kosti rafala af þess konar þyngd og stærð að erfítt yrði að koma þeim fyrir. Einnig yrðu rafalar í skipum þannig gerðir þegar stundir líða. Geymsla orku í öllum iðnríkjum heims er það vandamál, að orkunotkunin er mis- stór á hinum ýmsu tímum sólar- hrings. Orkuverin, hverrar gerðar sem þau eru, standa tilbúin jafnt á nóttu sem degi, og þurfa að stand- ast mesta álagið að deginum til. Á nóttunni mala þau áfram á hálfu afli eða minna. Orkuver eru dýr, en yrðu ódýrari ef hægt væri að full- nýta þau allan sólarhringinn. Til að svo sé, þarf að geyma orku sem safn- ast saman að nóttu til hámarksálags dagsins. Hér þarf stóra orkugeyma, og enginn vel heppilegur hefur fund- ist, sem skilar orkunni að fullu aft- ur. Reynt hefur verið að dæla vatni upp á hæðir um nætur. Rafhlöður eru allar alltof litlar til að rúma hina miklu orku sem hér um ræðir. Einna helst er litið til ofurleiðninnar hvað þetta snertir. Aðferðin Segulsvið inniheldur orku. Hún stendur í öðru veldi við stærð sviðs- ins, svo að tíföldun segulsviðs gefur hundraðföldun orkunnar. Með ofur- leiðandi spólum má búa til segulsvið sem er allt að hundraðþúsundfalt sterkara en jarðsegulsviðið. Spólum- ar og þarmeð rýmið með segulsviðinu hefðu lögun bílslöngu, af því að með þeirri lögun er sviðið algerlega lokað inni. í hveijum rúmmetra með þann- ig sviði má geyma orkuna eitt hundr- að milljónir júla, sem er ekki fjarri því sem Búrfellsvirkjun framleiðir á einni sekúndu. Sé spólan höfð stór (ekkert tæknilegt er gegn því að hún rúmi hundruð eða þúsundir m* 1 2 3) þá fæst þarna orkugeymir sem nemur t.d. stundarfjórðungs meðalorkuþörf stórborgar. Það fer langt með að jafna sólarhrings sveiflur orkuþarf- arinnar. Sveiflujöfnun felst í að hefla ofan af toppum og fylla með þeim í lægðir. Heildarflutningur er ekki nema ofurlítill hluti af heildarorku- þörf. Og það skiptir verulegu máli, að þessi orkugeymsla er nærri ger- samlega án taps. Orkugeymirinn skilar öllu sem hefur verið fyllt á hann. eftir Egil Egilsson Upplýsingar í síma 690300 (alla 7 daga vikunnar) á söluskrifsttifum okkar, hjá umboðsmönnum um land allt og ferðaskrifstofum. 4Stgr. á manninn m.v. 4 í bíl í c-ílokki (2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára). E3®

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.