Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 13

Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 13
MOjRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991, 13 ins Karls Kraus í Vínarborg. Þetta var í apríl 1924. Veza hjálpaði hon- um að losna undan ofurvaldi af- brýðisamrar og afar stjórnsamrar móður. Þau Canetti og Veza gengu í hjónaband 1934. Hún var átta árum eldri en hann og af sama uppruna, sefardískur gyðingur, þ.e.a.s. bæði afkomendur þeirra gyðinga sem voru flæmdir frá Spáni 1492. Veza sem hét fullu nafni Venetia Taubner-Calderon lést 1963. Veza var bókmenntalega sinnuð. Hún skrifaði ung greinar, frásagnir og smásögur í Arbeiter-Zeitung í Vín. í byijun fjórða áratugar birt- ust eftir hana í blaðinu brot úr skáldsögu, en valdataka Hitlers kom í veg fyrir að skáldsagan birt- ist í heild sinni. Það var fyrst í fyrra sem skáldsagan sá dagsins ljós: Die gelbe Strasse (Carl Hanser Verlag). Skáldsögunni hefur verið ákaft fagnað í þýskumælandi löndum. Hún gerist í Vín á árunum fyrir stríð, nánar tiltekið í verkamanna- hverfinu Leopoldstadt. Sagan er raunsæisleg, dregur upp myndir úr daglegu lífi fólks, alþýðustéttar og borgara, á köflum með beiskum húmor. Sérkennilegir menn eru meðal viðfangsefna hennar, meðal þeirra hinn dæmigerði Vínarbúi Herr Vlk sem er nákvæmnin sjálf uppmáiuð, lifir eftir ströngum regl- um vanans og sér líf sitt hrynja í rúst þegar blaðasalanum seinkar um fjórar mínútur og hefur þar að auki selt öðrum blað Herra Vlk. Veza Canetti bjó vissulega í skugga -eiginmanns síns, að minnsta kosti hvað ritstörfin og frægðina varðaði. Þó er engin ástæða til að ætla að hann hafi sett saman eftirfarandi spakmæli með hana í huga: „Hún giftist honum til þess að hann væri alltaf hjá henni. Hann kvæntist henni til þess hún væri honum gleymd.“ Listahátíð í Hafnarfirði _________Tónlist____________ Jón Asgeirsson Dagana 1. til 13. júní er haldin listahátíð í Hafnarfirði og sl. sunnudag voru Mozart-tónleikar, þar sem flutt voru- eingöngu kirkjuverk eftir meistarann. Flytj- endur voru kór Hafnarijarðar- kirkju, kammersveit og einsöngv- ararnir Sigríður Gröndal, Guðný Árnadóttir, Þorgeir J. Andrésson og Ragnar Davíðsson. Stjómandi var Helgi Bragason orgelleikari. Flest kirkjuverk meistarans eru samin þá Mozart var í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg, sem skipaði þjóni sínum fyrir verkum og tók ekkert tillit til óska hans. Colleredo, en svo hét þessi hroka- fulli biskup, var skyldur keisaran- um og því samkvæmt kenning- unni, mun hrokafyllri en keisarinn sjálfur. í þessari vist leið Mozart illa og varð það að nokkru til þess að hann náði sér sjaldan á strik og ekki bætti úr skák, að Colleredo var sífellt að gefa ýms- ar fáránlegar fyrirskipanir um gerð þjónustuverkanna. Ýmsir sagnfræðingar hafa gælt við þá hugmynd, hvað slíkur snillingur sem Mozart var, hefði samið und- ir stjórn víðsýnni og listelskari yfirmanns. Þrátt fyrir að þjón- ustuverk þau sem Mozart samdi fyrir erkibiskupinn, njóti ekki vin- sælda, eru þau oft og tíðum mjög vel gerð og einstaka þættir snilld- arlegir, eins og t.d. Laudate Dom- inum úr kvöldsöngvunum K. 339. Tónleikarnir hófust á Exultate, jubilate K. 165, sem Mozart samdi í Mílanó fyrir söngvara að nafni Rauzzini, en hann söng í óperunni Lucio silla sem uppfærð var í dés- ember 1772 og er Mozart þá að- eins 16 ára. Þessa glæsilegu mót- ettu söng Sigríður Gröndal af miklu öryggi og sérstaklega All- elúja-kaflann fræga. Kor Hafnarfjarðarkirkju söng næst Ave verum corpus, sem er í raun síðasta fullgerða kirkjuverkið eftir Mozart og Laudate Domin- um, sem fyrr er getið. Kórinn er mannaður reynslulitlu söngfólki, sem varð því greinilegra er á leið tónleikana og söngfólkið þreyttist og átti bágar með að styðja við tóninn. Þá var stjórn Helga Braga- sonar orgelleikara lin og lítið gert af hans hálfu til að móta tónhend- ingar, hvorki músíklega eða sön- grænt og þaðan af síður að stilla saman í styrk hljómsveitina, sem á köflum var allt of sterk, sérstak- lega á móti raddlitlum kórnum í „forte" köflunum. í verkunum Alma Dei creatoris K. 227 og lokaverki tónleikanna, Messu í c-dúr K. 317, sungu ein- söngvaramir Sigríður Gröndal, Guðný Árnadóttir, Þorgeir J. Andrésson og Ragnar Davíðsson. Söngur þeirra var framfærður af öryggi en eini eiginlegi einsöngs- þátturinn var upphafíð á Agnus Dei, sem Sigríður Gröndal söng Sigríður Gröndal Þorgeir J. Andrésson mjög vel. Einsöngsþættirnir eru flestir ritaðir fyrir samsöng ein- söngvara og því að gerð eins og kórtónlist. Upphafið á Agnus Dei er að tónskipan eins og fræg aría, Dove sono, úr Brúðkaupinu (K. Ragnar Davíðsson Guðný Árnadóttir 492), er Mozart samdi miklu seinna en messuna. Mozart var oft furðu minnugur á ýmsar tónt- iltektir, sem á tímabilum ganga eins og rauður þráður í gegnum tónverk hans. Sjáðu Evrópu í sumar með S AS! Velkomin til spennandi borgá í Mið-Evrópu. Besti ferðamátinn er þægilegt dagflug að hætti SAS. Með SAS kemstu samdægurs* að heiman og heim, í gegnum Kaupmannahöfn, til allra ofangreindra staða. 50% barnaafsiáttur. Brottfarardagar: Mánudagar, miðvikudagar og laugardagar. Komudagar: Sunnudags-, þriðjudags- og föstudagskvöld. Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða ferða- skrifstofuna þína. m/s/n SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Laugavegl 3 Sími 62 22 11 Ekki er flogið tll Hannover og Genf á laugardógum. -k

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.