Morgunblaðið - 11.06.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.06.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991 19 hægt að treysta þeim. Með því að fylgja eftir birtingum rannsóknan- iðurstaðna í erlendum vísindatíma- ritum myndu erlendir fagmenn vera með gæðaeftirlit á íslenskum rann- sóknum jafnvel okkur áð kostnaðar- lausu. Með þessu móti væri hægt að veita íslenskum vísindamönnum faglegt aðhald og auka gæði vís- indarannsókna hér á landi, nokkuð sem hefur verið ábótavant. Margir benda á að mikill kostnaður og tími fari í að skrifa slíkar vísindagrein- ar. Vísindagreinar eru hornsteinn allrar vísindastarfsemi og því eðli- legt, að mikill tími fari í slík skrif. Benda má á að betra er að gera aðeins minna af rannsóknum og vanda betur til þess sem gert er þannig að hægt sé að treysta rann- sóknarniðurstöðum. Mjög lítið af þeim fiskeldisrann- sóknum sem gerðar hafa verið hér á landi hafa verið birtar í erlendum vísindatímaritum. Verður þetta sér- staklega að teljast mikið áhyggju- efni fyrir Haskóla íslands þar sem fagleg og vísindaleg vinnubrögð eru eitt af aðalsmerkjum háskóla og hæfni starfsmanna er að mjög stór- um hluta metin eftir því hvernig viðkomandi vísindamanni tekst til við birtingar í vísindatímaritum. Lokaorð Höfundur hefur verið kennari við fiskeldisbraut Holaskóla undanfarin ár og eitt af hlutverkum hans hefur verið að kynna niðurstöður fiskeld- isrannsókna fyrir nemendum skól- ans. Slíkt hefur verið erfitt þar sem mjög treglega hefur gengið að fá upplýsingar um fiskeldisrannsóknir sem hafa verið stundaðar hér á landi síðustu árin. Eins og sagt hefur verið hér á undan hefði þáttur rannsókna átt að ’vera einn af hornsteinum fyrir uppbyggingu fískeldis. Aftur á móti má ekki gleyma því að við uppbyggingu fiskeldis var lang- mestum fijárveitibgum varið í ótímabærar fjárfestingar og horft fram hjá rannsóknum. Það er því ekki nema að litlu leyti hægt að kenna vísindamönnum um hve lítill þáttur rannsókna hefur verið í upp- byggingu fiskeldis hér á landi og hvernig fór fyrir laxeldinu. Fiskeldisrannsóknir hafa í allt of litlum mæli verið til að styrkja og auka framþróun fiskeldis hér á landi. Rannsóknir hefðu skipað veg- legri sess ef ríkið hefði veitt meira fjármagni til fiskeldis og þeir sjóð- ir/stofnanir sem sáu um að útdeila því hefðu séð um að ávaxta það betur. Full ástæða er til að taka upp faglegri vinnubrögð hjá Rann- sóknaráði ríkisins og öðrum sjóðum ríkisins sem veita styrki til fiskeldis. Það kann að virðast erfítt að stunda fiskeldisrannsóknir hér á landi, ef miðað er við það sem sagt er hér fyrir ofan. En hafa skal í huga að þrátt fyrir allt eigum við marga góða vísindamenn. Nu á seinni árum hafa bæst við margir ungir vísindamenn sem hafa oft og tíðum sýnt mjög fagleg vinnubrögð. Árangur af starfi þeirra hefur verið meiri en margra þeirra er stunduðu rannsóknir á uppgangstímum fisk- eldis hér á landi. Efniviðurinn er því fyrir hendi. Velja þarf rétta menn og veita þeim síðan eðlilegt aðhald og fjármagn til að fram- kvæma rannsóknir í þágu fískeldis. Höfundur er sj&varútvegsfræðingur og kennari við Hólaskóla. Ólafsvík: Fimmtán ár liðin frá stofn- un útibús Landsbankans Ólafsvík. HINN 30. apríl sl. var haldið upp á það að þá voru 15 ár liðin frá stofnun útibús Landsbanka Is- lands í Ólafsvík. Af því tilefni kom Landsbanka- kórinn í heimsókn og söng fyrir viðskiptavini bankans. Einnig hélt kórinn stutta en ánægjulega tón- leika fyrir starfsfólk Hraðfrystihúss Ólafsvíkur í kaffístofu fyrirtækis- ins. Þá var viðskiptavinum bankans boðið upp á kaffi að gömlum sið. Útibússtjóri Landsbankans í Ól- afsvík er Hjörvar Ó. Jensson. - Helgi. Hádegisverður á Hótel Holti Á Hótel Holti verður í sumar tilboð í hádeginu. sem samanstenduraf forrétti, aðalrétti ogeftirrétti. sem hver ogeinn veluraf seðli dagsins. Uval skemmtilegra fiskrétta. HOLTSVA GNINN Úr Holtsvagninum bjóðum við grísahrygg með puru ásamt forrétti og eftirrétti Verð kr. 995,- Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum. Bergstaðastræti 37, Sími 91-25700 CHATEAUX. iMÍ Nii Æ tfc' • oag T * ii i ■ - ii wm iiiíri 'uiíáÉSS : 1 m. ■ 111 í ;jt /Mu1 ' ,>* »t * V | 1 > >,'* V'. . r,i » pí ' ■• amf'wr ' • í 'ð | ' ' 'V Á. IjJPP . " • Æ&a IV í Im § ' wÆ BFJI’ h.. (wc* ■ Full búA af nýjum fötum fná EXIT. Hettupeysun, hvít gallaföt, blá gallaföt, nauð gallaföt ÞIO eiglð von á óvæntum glaOnlngi á EXIT-dögum í Knökkum Kninglunni. KRAKKAR Kringlan 8-12, sími 681718

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.