Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 37
37 MORGUNBLAÖIÐ' ÞRIÐJUDAGUR li. JÚNl 1991 Gefðu svo þú megir lifa eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur Móðir okkar jörðin þarf að gefa svo hún geti lifað. Maðurinn er hluti af náttúrunni. Um hann gilda sömu lögmál og um annað í náttúrunni, eða hvað? Ef náttúran gefur ekki af auðlegð sinni rotnar hún og deyr. Það sama hlýtur að gilda fyrir manninn sem ekki gefur af auðlegð sinni. Hér er ég ekki að tala um veraldlegan auð heldur andlegan. Þeir sem aldrei gefa af sjálfum sér hljóta að rotna. Það stendur í Biblíunni að erfitt sé fyrir ríkan mann að komast til himnaríkis. Hvers vegna skyldi það vera erfitt? Ég ímynda mér að það sé vegna þess að margir þeirra sem ríkir eru af veraldlegum auði hafi orðið ríkir vegna þess að þeir hafa stöðugt hrifsað til sín, stöðugt hlúð að sjálfum sér og þá oftast á kostn- að annarra. Sá sem er óseðjandi og hrifsar stöðugt, sá sem dekrar stöðugt við sjálfan sig og gefur aldrei neitt hlýtur að offyllast og rotna. Hann herpist saman svo bros hans nær ekki að komast út, svo aðrir geti ekki notið þess. Hann sýgur sig saman og lokar inni allt sem gæti glatt aðra og geymir það innra með sér handa sjálfum sér. Hann fyllist af sjálfum sér, brosum sínum og hlýlegum orðum og kæf- ir. Og brosin verða eins og blómin sem lokuð eru inni í myrkrinu, þau úldna og sýkjast af sjálfum sér. Sýktur maður lifir varla í himnaríki á jörð. Hann gerir sjálfan sig að helvíti og úldnar af sjálfum sér og sínu sjálfsdekri. í dag, á tímum heilsuræktar, stoðar það lítið að hoppa og skoppa í skærlitum joggingfötum, borða hollan mat, reykja hvorki né drekka áfengi, en vera svo fullur af eigin brosum að þau kæfi mann. Það er „Liggur það ekki ljóst fyrir að við verðum að gefa svo við megum lifa?“ til lítils að rækta vöðva utan um sál sem er full af úldnum brosum. Ef maðurinn vill lengja líf sitt ætti hann að byija á að gefa af sér svo hann megi lifa. Hann ætti að byrja strax að opna fyrir bros sitt og sín hlýlegu orð. Allir hafa hlotið bros í vöggugjöf og ætlunin hefur varla verið sú, að það yrði lokað inni svo það yrði eigandanum til ills. Lítum til móður okkar, jarðarinnar. Ef hún fær ekki að gefa af nægtum sínum rotnar hún og deyr. Liggur það ekki ljóst fyrir að við verðum að gefa svo við megum lifa? Höfundur er rithöfundur. Hrafnhiidur Valgarðsdóttir ~Vann verðlaun í alþjóðlegri gítarkeppni ÍSLENSKI gítarleikarinn Arnaldur Árnason vann 3. verðlaun í alþjóð- legri keppni í gítarleik, Concorso Internazionale di Chitarra, sem haldin var í 20. skipti í Róm dag- ana 22. til 24. maí. Arnaldur Árnason er fæddur í Reykjavík 1959. Hann tók lokapróf í gítarleik frá Royal Northern Col- lege of Music í Manchester 1982. Síðan var hann eitt ár við fram- haldsnám hjá José Tomác í Alicante á Spáni og hefur einnig sótt nám- skeið hjá Alino Díaz, Oscar Ghiglia, David Russell og Hopkinson Smith. Hann er nú kennari við Luthier tónlistarskólann í Barcelona. Arnaldur hefur haldið tónleika í Englandi, á Spáni og flestum Norð- urlandanna. Hann kom seinast fram í Reykjavík á áskriftartónleikum með Sinfoníuhljómsveitinni í apríl í fyrra. iÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í viðhald á bækistöð SVR á Kirkjusandi. Helstu verkþættir eru: 1. Steypuviðgerðir. 2. Háþrýstiþvottur. 3. Málun. 4. Málmklæðningar á lárétta fleti. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag- inn 25. júní 1991 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RFYkjAVIKURBORGAFC Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 TIL SÖLU Til sölu Af sérstökum ástæðum er til sölu ný Case 580K 4x4 Turþo traktorsgrafa á aðeins kr. 3.220 þús. + vsk. Flytjum inn nýjar og notaðar vinnuvélar og varahluti í vinnuvélar. Markaðsþjónustan, sími 26984, fax 26904. NAUÐUNGARUPPBOÐ Nauðungaruppboð Vestur-Skaftafellssýsla Eftirtöld fasteign verður boðin upp og seld á nauðungaruppboði, sem haldið verður í skrifstofu embættisins á Ránarbraut 1, Vík í Mýrdal, fimmtudaginn 13. júní kl. 14.00: Ytri-Sólheimum III, Mýrdalshreppi, þingl. eigandi Tómas (sleifssón. Uppboðsbeiðendur eru Byggingasjóður ríkisins, Einar Baldvin Axels- son, lögfr., Ásgeir Magnússon hdl., Bjarni Stefánsson hdl., Sigriður Thorlacius hdl., Tryggingastofnun ríkisins og Búnaðarbanki islands. Önnur og siðari sala. Sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu, Vik í Mýrdal, 7. júni, 1991. TILKYNNINGAR Frá Bæjarsjóði Selfoss Hér með er skorað á fasteignaeigendur á Selfossi að greiða nú þegar ógreidd fast- eignagjöld ársins 1991 innan 30 daga frá birtingu auglýsingar þessarar. Að þeim tíma liðnum verður þeðið um nauð- ungaruppboð á þeim fasteignum, sem fast- eignagjöld hafa ekki verið greidd af, sbr. 1. gr. laga nr. 49 frá 1951 um sölu lögveða án undangengis lögtaks. Innheimta Bæjarsjóðs Selfoss. Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur Borgartúni 3 — 105 Reykjavík - Sími 26102 - Myndsendir 623219 Aðalskipulag Reykjavíkur 1990-2110 Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur 1990- 2110, greinargerð og landnotkunarkort aug- lýsist hér með samkvæmt 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964. Tillagan ásamt þemakortum og öðrum upp- dáttum og skýringarmyndum sem tengjast aðalskipulaginu er almenningi til sýnis frá og með 13. júní til 31. júlí 1991 hjá Borgar- skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 4. hæð, frá kl. 8.30-16.15 nema þriðjudaga, þá er sýningin opin til kl. 18.00. Starísfólk Borgar- skipulags svarar fyrirspumum. Athugasemdum eða ábendingum skal skila skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en kl. 16.00, 8. ágúst. 1991. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskil- ins frests, teljast samþykkir tillögunni. Fimmtudaginn 20. júní kl. 17.00 verður kynn- ingaríundur þar sem starísmenn Borgar- skipulags og borgarverkfræðings kynna helstu þætti skipulagstillögunnar. I; FÉLAGSLÍF FERÐAFELAG ISLANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Þriðjudagur 4. júní kl. 20: Kvöldsigling að Lundey - Lundabyggðskoðuð Brottför frá Sundahöfn (Viðeyj- arbryggju). Siglt aö Lundey, lundabyggö með þúsundum lunda og gengiö um Viðey. Ein- stök ferö. Hafið sjónauka með- ferðis. Verð 700 kr., frítt fyrir börn 15 ára og yngri með for- eldrum sínum. Miðvikud. 5. júní kl. 20: Heiðmörk - skógræktarferð Önnur af þremur árlegum skóg- ræktarferðum i Heiömörk. Takið þátt i grisjun og umhirðu hins fallega skógarreitar Ferðafé- lagsins. Umsjónarmaður er Sveinn Ólafsson. Ekkert þátt- tökugjald. Allir velkomnir, félag- ar sem aðrir. Brottför frá Umerðarmiðstöðinni, austan- megin. Feröafélag íslands. VEGURINN Kristið samféiag Túngötu 12, Keflavík Samkomur með breska prédik- aranum Alec W. Depledge verða: Þriðjudag 11. júni kl. 20.30. Miðvikudag 12. júní kl. 20.30. Fimmtudag 13. júní kl. 20.30 H ÚTIVIST 3RÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVMI14606 Núpstaðarskógur: Náttúruvin í hlíðum Eystrafjalls sunnan Skeiðarárjökuls. Undir Fálkatindi er mjög gott tjaldstæði og þar hefur Útivist komið upp ágætri hreinlætisaðstöðu. Gönguferðir að Tvílitahyl, upp á Bunka og á Súlutinda, en þaðan er frábært útsýni yfir Skeiðarárjökul og til Öræfajökuls. Fararstjóri: Sigurð- ur Einarsson. Básar: Fjögurra daga ferð á þennan friðsæla og fagra stað á mjög hagstæðu verði. Göngu- ferðir um Goðaland og Þórsmörk við allra hæfi. Kvöldvaka við varðeld. Fararstjóri: Egill Péturs- son. Sjáumstl Útivist. Heigin 14.-17. júní Öræfajökull: Gengin verður Sandfellsleið, sem er ein greið- færasta leiðin á jökulinn og er enginn annar útbúnaður nauð- synlegur en góðir og vatnsheldir gönguskór og hlý föt. Gangan á jökulinn gekur 12 til 14 tima. Fararstjóri: Reynir Sigurðsson. Skaftafell-Öræfasveit: Hér er fjölbreytni mikil í náttúrufari, fagr- ir fjallstindar, tignarlegir jöklar og gróðursæld. Nú er komin göngu- brú yfir Morsá sem auðveldar gönguferðir í Bæjarstaðaskóg, í Kjós og að Skeiðarárútfalli. Farar- . stjóri: Kristinn Kristjánsson. FERÐAFELAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Fyrirtaks ferðahelgi 14.-17. júní Margir misstu af hvítasunnu- helginni þ.á m. frábærum gönguferðum á Öræfajökul og Snæfellsjökul, svo ekki sé nú talað um ágæta Þórsmerkur- ferð, en nú er hægt að bæta um betur og vera með í einhverjum eftirfarandi ferða: 1. Látrabjarg, fuglaskoðunar- ferð. Flug til og frá Patreksfirði. Gist í farfuglaheimilinu Breiðuvik. 2. Öræfajökull - Skaftafell. Tjöld. Gengin Virkisjökulsleiðin, skemmtilegasta útsýnisleiðin á jökulinn. 3. Skaftafell - Ingólfshöfði - Kjós. Tjöld. Gönguferðir í þjóð- garðinum m.a. yfir nýju Morsár- brúna í hinn litríka dal Kjó’s. Ekið i Ingólfshöfða (fuglaskoðun) og víðar um Öræfasveit. 4. Hrútfjallstindar - Skaftafell. Tjöld. Spennandi Öræfajökuls- ganga fyrir þá sem vilja prófa eitthvað annað en Hvannadals- hnjúk. 5. Þórsmerkurferðir verða bæði með heimkomu sunnudag og mánudag. Heimsækið Þórs- mörkina með Ferðafélaginu að minnsta kosti einu sinni í sum- ar. í sumarfríið með Ferða- félaginu 1. 21/6-23/6 júní: Mið- nætursólarferð í Grímsey og Hrisey. Flug til Akureyrar og áfram í Grímsey. Miðnætursólardvöl í eyjunni en haldið á laugardags- kvöldið með ferjunni til Hríseyjar og dvalið þar fram til síðdegis á sunnudaginn. Svefnpokapláss. Takmarkarð pláss. 2. 29/6-3/7 Strandir-ísa- fjarðardjúp. Fjölbreytt ferð, bæði ekið og gengið. Ingólfsfjörður, Trékyll- isvík, Djúpavík, Kúvik, Kald- baksvík og fleiri staðir á Strönd- um skoðaðir. Síðan haldið í isa- fjarðardjúp, Kaldalón, fugla- paradísina Æðey og Reykjanes. Svefnpokapláss. Fararstjóri: Ólafur Sigurgeirsson. 3. 29/6-3/7 Reykjafjörður - Drangajökull. Dvöl í Reykjafirði á Hornströnd- um og dagsganga yfir Dranga- jökul. Takmarkað pláss. 4. Hornstrandaferðir. Það er mikill áhugi á Horn- strandaferðunum og er greini- legt að kynning á nýrri ferðatil- högun m.a. með gistingu í hús- um laðar marga að. Húspláss er að verða upppantaö í sumum feröanna, en hægt er að hafa með tjöld. Kynnið ykkur eftirfar- andi ferðir: 3.-12. júlí (10 dagarj: Hornvík - Hlöðuvik. Hús og tjöld. 3.-9. júlí (7 dagar): Horn- strandagangan 1991. Skemmti- leg bakpokaferð frá Aðalvík um Jökulfirði í Hornvík. 10.-19. júlí (10 dagar): Hlöðuvík, Hornvik, hús og tjöld. 10.-16. júli (7 dagar): Hlööuvík. Tjöld. 18.-23. júli (6 dagar): Aðalvik. Tjöld. Dagsetningar miðast við brott- för úr Reykjavík og daginn eftir frá isafirði með nýja Fagranes- inu. Undirbúningsfundir verða haldnir með þátttakendum. Gönguleiðin vinsæia: Laug- ar - Þórsmörk. Brottför aila miðvikudaga og föstudagskvöld frá 5. júlí til 28. ágúst. 5 og 6 daga ferðir. Marg- ar ferðanna eru að verða upp- pantaðar. Frönsku Alparnir - Mt. Blanc í Frakklandi. Ferðina verður að staðfesta í síðasta lagi miðvikudaginn 12. júní. Sumarleyfi í Þórsmörk. Það er hvergi betra að dvelja í sumarleyfinu en í Skagfjörðs- skála, Langadal. Fyrsta miðviku- dagsferðin ca 16. júni. Bæði dagsferð og til sumardvalar. Nánari upplýsingar á skrifstofu Öldugötu 3, símar: 19533 og 11798. Fax: 11765. Ferðafélag Islands. Ferðir fyrir þig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.