Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991 23 ’Tviumfih VORLINAN NÝBÝLAVEGI 12, KÓPAVOGI. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI CAT 438 Sería II — Ný og betri traktorsgrafa Nú þegar CATERPILLAR hefur framleitt yfir 25.000 traktorsgröfur kynna þeir nýja og enn betri traktorsgröfu undir heitinu Sería n Reynslan af fyrri vélunum hefurveriö sérstaklega góö en lengi má gott bæta og Seríall uppfyllir enn frekar þær kröfur sem gerðar eru til allra CAT véla. Á þeim árum sem CAT traktorsgröfur hafa verið fáanlegar hafa þær sýnt og sannað að fáar vélar státa af meira rekstraröryggi. Eigum fyrirliggjandi vélor til afgreiðslu strax Helstu breytingar: 27% stærri eldsneytistankur, 106 I. Stærri rafgeymakassi, sem jafnframt er geymsluhólf fyrir verkfæri. Minni snúningsradíus, framhjól hafa25% meiri snúningsgetu. Auðveldari aðgangur að smurkoppum, allir slitfletir smurðir. Aukinn lokunarhraði á afturskóflu. Aukin hljóðeinangrun, hávaðamörk aðeins 83 dBA. Nákvæmari stjórnstangir. Aukið vélarafl. m HEKLA LAUGAVEGI 174 S(MI 695500 T veggj akóng’avandr æði eftir Þorgeir Þorgeirson Undanfarið hefur ríkt Sturlunga- öld í leiklistarmálununi. Þetta ví- greifa skeið hófst með embættis- töku nýs Þjóðleikhússtjóra, Stefáns Baldurssonar, síðan hefur mátt sjá ættarhöfðingja leikhúsvaldsins skaka bitur söx og breið spjót að féndum sínum og ættmenna sinna á síðum dagblaðanna. Og ljósvak- amiðlar hafa verið með reglulegar fréttir af leikhúsmálum. En álengdar situr Þalía og græt- ur. Andspænis þessu skríður maður inní þögn sína og undrun og gefst þá næði til að spyrja svo sem eins og: hvernig stendur á þessum ósköpum? Allir helstu forráðamenn á leiídistarsviðinu saka hver annan um hin verstu afglöp. Þjóðleikhús- stjóri I kveðst halda að Andskotinn sé hlaupinn í Þjóðleikhúsráð og lætur á sér skilja að sá Andskoti sé enginn annaren Þjóðleikhússtjóri II, en Þjóðleikhússtjóri II segir ilt eitt af reynslu sinni og samskiftum við Þjóðleikhússtjóra I. Þjóðleikhús- ráð slettir úr öllum sínum klaufum. Flestar mundu ásakanir þessa heið- ursfólks varða embættismissi ef mark væri á þeim tekið. En það er ekkert mark á þeim tekið — sem betur fer. Enginn vill efast um það að þetta séu allt saman bresta- lausar sómamanneskjur sem láta svona. En hvað er þá brostið? Kanski stjórnkerfið. Sjálft stjórn- arfar Þjóðleikhússins er brostið. Hvaðan skyldi hún annars vera komin þessi þingbundna konung- stjórn sem íslensk atvinnuleikhús sýnast telja sér skylt að vinna und- ir? Væntanlega úr Konunglegu leik- húsi, kanski • dönsku. Því um það bil sem danir voru að skapa sér þjóðarleikhús var þingbundin kon- ungstjórn einmitt sú nýstárlegasta fijáislTyggja sem hugsanlegt var að framkvæma. Þegar stjórnarfar Þjóðleikhússins íslenska var ákveðið hafa menn vafalaust sótt til Kaupin- hafnar þá hugmynd að setja must- eri Þalíu undir þingbundna konung- stjórn og andmælendur þess munu hafa verið fáir, ef nokkrir. Þetta sama þingbundna einveldi er líka haft á Ríkisútvarpinu. Raddir hafa að vísu heyrst um að það sé ekki við hæfi að pólitískir fulltrúar sitji Þjóðleikhúsráð og Útvarpsráð. En einvaldsformið sjálft hefur, mér vit- anlega, aldrei verið gagnrýnt. Enda var Leikfélag Reykjavíkur sett und- ir samskonar einvaldstjórn bundna af kjörnum fulltrúum leiklistarijöl- skyldanna undireins og það varð atvinnuleikhús. Síðan fylgdi Leikfé- lag Akureyrar á eftir, þannig að Þorgeir Þorgeirson nú höfum við fern þingbundin ein- veldi hér á sviði lista og mennta. Allt þykir þetta eins sjálfsagt og að drekka vatn í gegnum nefið. Einvaldar og ijölskylduráðgjafar þeirra eiga áð móta stefnuna, finnst mönnum, og velja viðfangsefnin. Listamenn að hlýða ef þeir eru kallaðir að sinna ráðandi stefnu. Hvað er til ráða? Mér virðist nokkuð einsýnt að Sturlungaöld hin nýja í leikhúsinu sé til marks um brest í einvaldskerf- inu — það hafa verið sett lög þar sem tveim einvöldum er gert að stjórna samtímis um hálfsárs skeið eða svo. Uppum þessa glufu gægist þá strax inntakið, þ.e.a.s. átök og Höfundur er rithöfundur. veldi leikhúsættanna. Því ættar- veldið lifir ekki bara að tjaldabaki viðskifta og stjórnmála nútímans, heldur einnig á sviði lista. Bresti áferðarfallegt yfirborðið vellur Sturlungaöldin fram. í laugardagsblaði Morgunblaðs- ins má sjá liðsafnað til hins nýja Örlygstaðabardaga leikhússins á vorum dögum. I sama blaði gengur þríkrýndur listeinvaldur, Sveinn Einarsson fyrrum leikhússtjóri LR, fyrrum Þjóðleikhússtjóri og núver- andi dagskrárstjóri RÚV, framfyrir skjöldu og sussar á liðið. Hann vili lappa upp á einvaldskerfið gamla og setja nákvæmari reglur um sam- skifti listeinvalda á því skeiði sem þeir eiga báðir að ráða húsum, tví- kóngatímabilinu. Tillaga hans dugar vonandi til bótar á einvaldskerfið. Þá linnir væntanlega Sturlungaöld leikhús- mála þangað til næsti brestur kem- ur í þingbundna konungstjórn Þjóð- leikhúss eða annars atvinnuleik- húss. Og Þalía mundi láta huggast á meðan. En til eru þeir sem hafa efasemd- ir um þvílíkar úrbætur á einvalds- kerfinu. Og til eru nokkuð vel grun- daðar tillögur um annað stjórnarfar handa Þjóðleikhúsi með dreifðara og mildara valdi sem vel gæti orðið tilað búa nýjum straumum listarinn- ar betri aðstöðu en nú fæst. Það gæti orðið tímabært að hreyfa þeim tillögum í annari grein bráðlega. Hver veit?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.