Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 24

Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991 Lega Islands getur auð- veldað alþjóðleg samskipti - segir John Naisbitt höfundur Megatrends og Megatrends 2000 JOHN Naisbitt höfundur bókanna Megatrends og Megatrends 2000, telur að í framtíðinni gæti lega íslands í miðju Atlantshafi milli Evrópu og Bandaríkjanna skapað landinu möguleika á verulegum áhrifum sem miðstöð vöruflutninga, fólksflutninga og sem miðstöð fyrir alþjóða ráðstefnur og vísindastofnanir. Hér væri tilvalið að koma upp umskipunarhöfn auk þess sem þegar er beint flug hingað til lands úr báðum heimsálfum og stutt yfir Norðurpólinn til Japan. Hann sagði enn fremur að íslendingar ættu á hættu að ímynd al- mennings um allan heim um hreina náttúru landsins og forystu í náttúruvernd yrði fyrir áfalli ef hvalveiðar yrðu teknar upp á ný, jafnvel í litlu mæli. Spurningin væri hvort slíkar veiðar borguðu sig. Þetta kom fram í fyrirspurnum um virtist sem landið ætti í tilvistar- fréttamanna, að loknum fyrirlestri, sem John Naisbitt hélt á vegum Stjórnunarfélagsins, íslensk/amer- íska verslunarráðsins og IBM á ís- landi, í Borgarleikhúsinu í gær. í upphafi máls síns sagði John, að sem fyrr reyndu menn að spá fyrir um framtíðina og nú til ársins 2000. Áður fyrr litu menn til fortíð- ar og drógu sinn lærdóm en nú á tímum tækni, vísinda og mikils hraða, er reynt að spá fyrir um hvað í~ vændum er, að hveiju ætti að stefna og hann spurði hvort ís- land hefði sett sér markmið að vinna að fram til ársins 2000. Hon- kreppu án ákveðinnar stefnu. Sama mætti segja um margar aðrar þjóð- ir en ljóst er að heimsviðskipti og tengsl milli þjóða ættu eftir að auk- ast enn frekar fram að aldamótum. Hann vék síðan að þeim sex meginstraumum, sem hann telur að hafa muni áhrif'á heimsmynd framtíðarinnar. Nefndi hann fyrst listir og menningarmál en fram til ársins 1990 áttu íþróttir miklum vinsældum að fagna, sem afþreying í frítímum en nú er svo komið að í Bandaríkjunum einum eyddi al- menningur helmingi meira fé og tíma í listviðburði en til íþrótta. Menn fyndu hjá sér hvöt til að end- urskoða tilgang lífsins í gegn um listir. Máli sínu til stuðnings benti hann á að á síðustu tíu árum hefðu Japanir opnað meira en 200 ný list- asöfn, Þjóðvetjar 330 söfn og sama þróun ætti sér stað í Bandaríkjun- um. Hvers konar list er að taka við af íþróttum sem aðal tómstunda- gaman almennings. Allt ætti þetta sínar eðlilegu skýringar. Á upp- gangstímum iðnvæðingar voru hvers konar íþróttir helsta skemmt- un verkamannanna. Með breyttum tímum og sífellt meiri þátttöku kvenna í atvinnulífinu þá breyttist viðhofið til íþrótta, þær höfða ekki eins mikið til kvenna og til karla. Stærri fyrirtæki styðja listir í ríkari mæli með ijárframlögum og í fram- tíðinni ættu enn fleiri fyrirtæki eft- ir að leggja sitt af mörkum. Hann sagði að í dag værum við vitni að afneitun almennings á vel- ferðarþjóðfélginu á kostnað frjáls markaðar. Þessi þróun muni halda áfram á næstu árum. Hvarvetna Morgunblaðið/Binni John Naisbitt í Borgarleikhúsinu í gær. sé stefnt að einkavæðingu á sem flestum sviðum og ýmsar greinar atvinnulífsins teknar til endurskoð- unar. í meira en eitthundrað lönd- um víða um heim sé verið að einka- væða þjónustufyrirtæki, sem hafa verið ríkisrekin, meira að segja í Sovétríkjunum._ Þessi umræða sé einnig hafin á íslandi. í Bandaríkj- unum séu þjóðvegir fjármagnaðir af einkaaðilum og verið sé að einka- væða skólakerfið og koma upp sam- keppni milli skóla um nemendur. Sem dæmi um áhuga almennings á einkavæðingu fyrirtækja nefndi hann, að fleiri Bretar ættu hluta- bréf í fyrirtækjum en væru á skrá í verkalýðsfélögum. Þá sagði Naisbitt að á næstu árum munum við upplifa alheims- menningu, með samræmdum lífs- venjum og menningaiviðhorfum. Afleiðing bættra samgangna milli landa og heimsálfa verður sam- ræmdur matarsmekkur og tíska. Stóru fyrirtækin selja vörur á sama markaðsverði um allan heim. Mat- ur, tískufatnaður og jafnvel bílar verða seldir á sama verði. Menning og sérkenni hverra þjóðar er við- kvæmari þáttur og spurningin er hvernig smáþjóðum tekst að halda sínum menningararfi. Borgir munu ekki halda áfram að stækka í framtíðinni. Fyrirtækin verða sett upp í dreifðum byggðum landsins og rekin um tölvur, síma og með hraðpósti. Stærð þeirra og mikilvægi fer ekki eftir starfsmann- afjölda. Um 60% útflutningsverð- mætum Bandaríkjanna koma frá fyrirtækjum sem hafa innan við 20 manns í þjónustu sinni. Að lokum benti hann á að frí- verslun milli landa um einn heims- markað gengi hægt en hann sæi fyrir sér verslun án allra hafta milli allra þjóða heims innan örfárra ára. En hins vegar ættu menn eftir að skilgreina betur hvað felst í hugtak- inu heimsmarkaður. Nú er tímabil sameiningarafla í heiminum og árin fram að aldarmótum fela í sér heill- andi fyrirheit um framtíðina. Aldrei hafa menn lifað ánægjulegri tíma. Auðkýfingurinn og listsafnarinn Torsten Lilja: Kaupsýslumenn og listamenn eiga margt sameiginlegt SÝNING á verkum bandaríska listamannsins Christo var opnuð á Kjarvalsstöðum á laugardag. Verkin á sýningunni eru í eigu Svíans Torsten Lilja og fjölskyldu hans. Eiga þau stærsta safn verka Christos í heimi og er um fimmtungur Christo-safns þeirra hér til sýnis. Kom Torsten Lilja til Islands til að vera viðstaddur opnun sýningarinnar. Torsten Lilja, sem er 72 ára gamall fæddist í Svíþjóð. Lilja-fjöl- skyldan, sem er mjög auðug, hafði lengi verið virk á sviði bankavið- skipta, verslunar og iðnaðar^g fór Torsten Lilja í tækni- og viðskipta- nám í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Að loknu námi starfaði hann í fimm ár hjá bandaríska efnafyrirtækinu Dow. Lilja hélt aftur til Svíþjóðar árið 1952. Hann stofnsetti sitt eig- ið fyrirtæki í efnaiðnaðinum og varð mjög vel ágengt. Skömmu síðar erfði hann hlut í banka fjöl- skyldunnar og í kjölfar þess keypti hann út aðra hluthafa bankans. „í gegnum störf mín hafði ég tækifæri til þess að ferðast mjög víða um heiminn,“ segir Torsten Lilja. „Ég hef ávallt haft mikinn áhuga á listum sérstaklega tónlist og myndlist. Meðan á ferðum mín- um stóð notaði ég tækifærið til að bæta við þekkingu mína á listum. Af og til keypti ég svo málverk eða grafíkmyndir en ekki mjög mark- visst. Það var ekki fyrr en um miðjan sjöunda áratuginn að við fórum að safna sænskum súrreal- istum. Það voru aðallega fimm list- amenn úr svokölluðum Halmstad- hópi sem við einbeittum okkur að en list þeirra var nokkuð umdeild á sínum tíma. Við eignuðumst gott safn verka þeirra frá bytjun fjórða áratugarins til byijun áttunda ára- tugarins sem síðan hefur verið sýnt á ýmsum söfnum.“ Lilja segir að eiginkona hans sé einnig mjög áhugasöm um listir og hönnun af öllu tagi og hafi hún tekið virkan þátt í söfnuninni með honum. Síðar hafi sonur þeirra, Bob, einnig gert slíkt hið sama. Næsti hópur listamanna sem þau tóku til við að safna voru sænskir listamenn sem mörkuðu sér sér- stöðu með mjög sterkri litanotkun. Þarna er um að ræða menn á borð við Carl Kylberg, Isak Grúnewald og Ragnar Sandberg en þeir eru ekki mjög þekktir utan Svíþjóðar. Torsten segir að þau hafi safnað verkum þeirra fram undir miðjan sjöunda áratuginn. Einnig hafi þau keypt verk eftir franska listmálara s.s. Matisse og einnig verk eftir Picasso o.fl. Það hafi hins vegar ekki verið í miklum mæli. „Það var svo upp úr miðjum átt- unda áratugnum, 1976-1977, að ég kynntist Christo. Ég heillaðist mjög af honum sem persónu. Hann er mjög óvenjuleg blanda af lista- manni og framkvæmdamanni og höfðaði hann því til mín jafnt sem listaunnanda og kaupsýslumanns. Við kynntumst mjög vel og ijórum árum síðar byijaði ég að sjá um ijármögnun verka hans. Upp úr þessu hófum við að safna verkum Christos mjög markvisst allt frá upphafi ferils hans. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að við eigum nú stærsta safn verka hans í heimi en um fimrntungur þess er nú sýndur hér á íslandi." Samhliða söfnun fjölskyldunnar á Christo segir Torsten að áhugi þeirra hafi vaknað á popp-iist, þeirri tegundar listar þar sem hversdagslegir hlutir eru notaðir til að endurspegla þjóðfélagið. Fengu þau m.a. mjög mikinn áhuga á verkum listamanna á borð við Warhol og Liechtenstein. „Það má segja að það sé tenging milli súr- realismans, popp-listarinnar og Christo. Hugsunin sem liggur að baki er nokkum veginn sú sama. Síðar urðu verk popp-listamann- anna svo dýr að við einbeittum okkur að grafíkmyndum eftir þá. Þær eru hins vegar einnig orðnar fokdýrar núna.“ Popp-listaverk í eigu Lilja eru nú sýnd á sýningu á Metropolitan Museum of Modern Art í New York. Lilja segist vera mjög stoltur þar sem þetta sé í fyrsta sinn í mörg ár sem safnið sýni verk úr einkasafni undir nafni þess. „Við kaupum aldrei list út í loft- ið heldur einungis eftir að hafa fylgst mjög náið með listamannin- um. Áður en við kaupum verk eft- ir listamann eyðum við með honum mörgum kvöldstundum og mörgum drykkjum. Við reynum að kynnast persónunni á bak við verkin. Þetta er skýringin á því að við eigum ekki verk eftir mjög marga lista- menn. En þeim sem við söfnum söfnum við mjög ítarlega. Flest verk sem við kaupum eru keypt í samráði við listamanninn. Þeir vita að við erum ekki að kaupa verkin til að selja þau heldur teljum það vera skyldu okkar að sýna þau.“ En hvernig stendur á því að virt- ur maður úr viðskiptalífinu fór allt í einu að helga sig söfnun á um- deildri list? Lilja segir að það sé ákveðinn sálfræði á bak við það. Menning og viðskipti eigi mjög margt sameiginlegt. Listamenn, hvort sem um sé að ræða hljóm- sveitarstjórnanda, skáld eða tísku- hönnuð séu allir skapandi þó á mismunandi sviðum sé. „Samneyti við listamenn hefur örvað mig svo mjög í því að reka mín fyrirtæki að ég sækist eftir því að ræða við skapandi fólk, það geta verið arki- tektar, málarar eða tískuhönnuðir, um hvemig það fái öiwun og hvatn- ingu í starfi sínu. Ég fæ þannig miklar örvun sjálfur sem ég fæ ekki frá kollegum mínum úr við- skiptalífinu." Segist hann dreyma um að halda málþing síðar á ævinni þar sem viðskiptamenn og lista- menn geti komið saman og kynnst viðhorfum hvors annars. Þessir hópar hafi mikið að gefa hvor öðr- um. Lilja segir víxlverkun (inter- change) mismunandi hópa vera framtíðina. . „Tökum kaupsýslu- menn sem dæmi. Þeir fara út í heim og halda ráðstefnu en ræða um nákvæmlega sömu hiutina og þeir hefðu gert heima hjá sér. Þeir skipta bara um herbergi. Þeir bjóða aldrei einhveijum gjörólíkum, t.d. sálfræðingi eða málara, til að koma og ræða um hvernig hann myndi nálgast viðkomandi vandamál. En víxlverkun er í sókn. Ég veit ekki hvort það mun taka fimm ár eða fimmtán en þetta er framtíðin." Hann segir það vera sína skoðun að þessi víxlverkun eigi líka að eiga sér stað innan fyrirtækja. Stórfyr- irtæki séu með margar stjórnir og oftast eina sem sér um stefnumót- un fyrirtækisins. Þar ætti að hans mati einnig að sitja einhver úr Morgunblaðið/Þorkell Torsten Lilja. menningarheiminum. Slíkt gæti orðið mjög gefandi fyrir stefnumótunina. „Það er að mínu mati margt líkt með því að vera mjög góður mál- ari og æðsti stjórnandi stórfyrir- tækis. Báðir verða þessir aðilar að vinna út frá innsæi og fyrri reynslu og vera nógu sveigjanlegir til að geta mætt breyttum aðstæðum." Lilja segir ijölskylduna hafa selt öll sín fyrirtæki árið 1979 ekki síst • til þess að geta helgað sig listum í ríkara mæli. Hann komi því sjálf- ur ekki nálægt neinum rekstri leng- ur að heitið geti. Bob Lilja, sonur hans er hins vegar starfandi sem bankamaður í London þar sem hann starfar hjá CSFB-bankanum sem er útibú frá Credit Suisse. Þar er hann yfirmaður norrænu samr- una- og yfirtökudeiidarinnar. „Mik- ið af auðæfum úölskyldunnar er bundið í listaverkum svo hann hef- ur mjög góða ástæðu til að sýna list áhuga. En starf hans í bankan- um, samruni og yflrtökur fyrir- tækja, felst líka í því að finna þarf nýja sértæka lausn við hveiju vand- amáii. Það er aldrei hægt að nota sömu lausnina aftur. Ég held að hann hafi haft mjög mikið gagn af því að ferðast með okkur um alian heim og hitta listamenn og hönnuði. Það hefur hjálpað honum við að skapa lausnir í sinni vinnu.“ Snúum okkur að Christo aftur. Þú sagðist heillast af persónu hans? „Egheillast af persónu hans se m framkvæmdamanns. Hann þróar hugmynd, hvort sem er að pakka inn brú á borð við Pont-Neuf í París eða setja upp regnhlífarnar í Japan og Kaiiforníu. En hann sér líka til þess að hugmyndin er fram- kvæmd og íjármagnar hana. Hann semur líka sjálfur um að semja um öll leyfi sem þarf til að fá að gera þessi hluti. Þegar verkinu er lokið gengur hann frá öllum hnútum og leggur niður fyrirtækið. Þetta hef- ur hann gert um fimmtán sinnum á síðustu tuttugu árum. Ég held að enginn annar sé til sem hefur stofnað fimmtán fyrirtæki rekið þau farsæilega og lagt þau niður að lokum án þess að til gjaldþrota- skipta þyrfti að koma. Hann er jafnt mjög hæfileikaríkur listamað- ur sem og mjög hæfur kaupsýslu- maður. Það er einstæð blanda og það heillar mig mjög. Þessu til við- bótar er maðurinn mjög heillandi sjálfur." Lilja segir að hver sá sem geti fengið jafn klikkaða hugmynd að reisa 1300 risastórar regnhlífar á jafn ólíkum stöðum og japönskum afdal, þar sem þarf að fá skriflegt leyfi 400 bænda til að fá að nota landið og kalifomískri eyðimörk, þar sem allt aðrar reglur gilda og framkvæma hana sé mjög einstak- ur persónuleiki. „Það má líka sjá í myndinni sem gerð var um Pont- Neuf-verkefnið hvaða fólk það er sem kemur til að ræða við hann í stúdíóinu hans í New York. Það eru menn á borð við Jacques Chirac og Willy Brandt sem sitja þar í mjög óþægilegum sófa til að hlýða á hann ræða um verkefni sín.“ En hvað er það við þessar „klikk- uðu“ hugmyndir sem höfðartil Lilja sjálfs? „Það er staðreyndin að þetta sé hægt. Stundum get ég ekki séð hinna listrænu fegurð þessara hluta en ég get samt notið þess afreks sem felst í að geta fram- kvæmt þá. Maður verður líka að hafa í huga að Christo hefur verið boðið af japönskum og bandarísk- um stórfyrirtækjum að þau myndu íjármagna allt verkið án þess að spyija um kostnað ef þau mættu nota nafn hans í auglýsingaskyni. Hann hefur hins vegar alltaf neitað slíku. Viðhorf hans er að ef nafn hans yrði notað í auglýsingaskyni myndi auglýsingagildi hans minnka þegar hann þyrfti á því að halda. Nú er hann einstakur, hann fjár- magnar allt sjálfur og fóik heldur að hann sé ruglaður og hann fær þá auglýsingu sem þarf. Ef hann fengi einhvern til að fjármagna verk hans yrði hann notaður í bandarísku eða japönsku sjónvarpi og þar með væri ævintýrið búið. Nafn Christo er eitt allra þekktasta listamannanafn sem til er. Ég segi ekki að hann sé besti listamaður í heimi en nafn hans er líklega það allra þekktasta. Og það án að hafa greitt fyrir neinar auglýsingar eða greinar. Þetta er einsdæmi."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.