Morgunblaðið - 11.06.1991, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991
Alifuglabúið Fjöregg gjaldþrota:
LEITAÐ verður allra leiða til að leigja eða selja rekstur Alifuglabús-
ins Fjöeggs á Svalbarðsströnd, en búið var úrskurðað gjaldþrota fyrir
helgi. Fjöregg var eitt af stærstu kjúklingabúum landsins og það stærsta
á Norðurlandi, með um það bil 15 þúsund varphænur og 25 til 30
þúsund kjúklinga í uppeldi. Búið hefur verið rekið í um þrjátiu ár.
Eftir gjaldþrot Kaupfélags Þingeyinga á Svalbarðsströnd var Fjöregg
stærsti atvinnurekandi i hreppnum.
Arnar Sigfússon, sem skipaður landi og með þeim stærstu á landinu
öllu. Starfsmenn hafa að undanfömu
verið 14 talsins.
„Þessi rekstur er þess eðlis að
ekki er hægt að stöðva hann, við
munum reyna að halda honum gang-
andi og leitum mögulegra leiða tii
að leiga hann eða selja,“ sagði Arn-
ar, en í bústofni eru um 15 þúsund
varphænur og tæplega 30 þúsund
kjúklingar í uppeldi. Arnar sagði að
veruleg verðmæti lægju í bústofni,
en þau byggðust á því að unnt yrði
að halda rekstrinum gangandi
áfram. Hann sagði að byijað væri á
óformlegan hátt að tryggja áfram-
haldandi rekstur, en það myndi
væntanlega skýrast fljótlega.
Stærstu kröfuhafar í búið eru
Kaupfélag Eyfirðinga, Stofnlána-
deild landbúnaðarins, Búnaðarbanki
og íslandsbanki.
hefur verið bústjóri, sagði að eigandi
búsins, Jónas Halldórsson hefði ósk-
að eftir að bú hans yrði tekið til
gjaldþrotaskipta á fimmtudag, en
bjóða átti upp jörðina með fasteign-
um síðasta föstudag.
Um síðustu áramót voru skuldir
búsins 244 milljónir króna og eignir
voru metnar á 163 milljónir króna.
Alifuglabúið Fjöregg var stærsti
framleiðandi á þessu sviði á Norður-
Háskólinn:
Ráðstefna
nin framtíðar-
sýn í hjúkrun-
Vel heppnaður íþróttadagur
Fjölmenni tók þátt í íþrótta- og útivistardegi sem
haldinn var á Akureyri á laugardag. Myndin er tek-
in við upphaf heilsuhlaups Krabbameinsfélagsins,
en um 350 manns tóku þátt í því. Þá var margt á
boðstólum, fjöldi barna nýtti sér boð hestamannafé-
lagsins Léttis um dálítinn reiðtúr á svæðinu við
Hamraborgir og á eftir var grilluð pylsa vel þegin.
Sýning á húsdýrum var einnig í gangi og vakti
óskipta athygli. í göngugötu sýndu_ fimleikastúlkur
listir sínar og júdókappar einnig. Á öllum íþrótta-
svæðum bæjarins var starfsemi sem þar fer fram
kynnt og enginn þurfti að greiða aðgangseyri í sund-
laugar.
armenntun Reglugerð um greiðslu almannatrygginga á lyfjakostnaði:
Reynt að leigja eða
selja rekstur búsins
Lyfjakostnaður skorinn niður
um 360-400 milljónir árlega
FYRSTU hjúkrunarfræðinem-
arnir verða útskrifaðir frá Há-
skólanum á Akureyri næstkom-
andi laugardag, 15. júní og í til-
efni af því verður haldin ráð-
stefna á vegum heilbrigðisdeild-
ar Háskólans á Akureyri á
fimmtudag og föstudag, 13. og
14. júní.
Ráðstefnan verður haldin í stofu
16 í húsakynnum háskólans við
Þórunnarstræti og stendur frá kl.
10 til 16 á fimmtudag og 9 til 16
á föstudag. Skráning fer fram á
skrifstofu skólans fram til 13. júní.
Yfirskrift ráðstefnunnar er fram-
tíðarsýn í hjúkrunarmenntun og þar
munu þrír erlendir fyrirlesarar
flytja erindi og einn íslenskur,
Helga Jónsdóttir, lektor.
SIGHVATUR Björgvinsson heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra hefur undirritað nýja regl-
ugerð um greiðslu almanna-
trygginga á lyfjakostnaði, en
áætlað er að miðað við óbreytt
neyslumynstur lyfja geti sparn-
aður í kjölfar þeirra breytinga
sem gerðar eru orðið á bilinu
360-400 milljónir árlega. Breyt-
ingarnar fela m.a. í sér, að hætt
verður að greiða svonefnd lausa-
sölulyf, fastagjald verður hækk-
að um 13% til almennra notenda,
greiðslufyrirkomulagi nokkurra
lyfjaflokka verður breytt, þannig
að almannatryggingar taka ekki
lengur þátt í kostnaði vegna
nokkurra tegunda lyfja sem áður
voru greiddar og einnig verður
hætt að greiða sýklalyf. Heil-
brigðisráðherra kynnti nýju
reglugerðina á blaðamannafundi
á Akureyri í gær.
I framhaldi af samþykkt ríkis-
stjórnarinnar frá 11. maí sl. um
þessi mál fól ráðherra starfshópi
að vinna tillögur um framkvæmd
hennar, en markmiðið var að leita
einfaldra leiða til breytinga á reglu-
gerð almannatrygginga um lyfja-
kostnað. Breytingarnar áttu að vera
þess eðlis að þeim fylgdi aukin
kostnaðarvitund lækna og almenn-
ings um lyfjaverð og þar með einn-
ig breytingar á neyslumynstri al-
mennings á lyfjum. Til að ná því
markmiði var talið vænlegast að
tengja greiðslu sjúklings hlutfalls-
lega við verð lyfsins í stað þess að
greiða fast gjald, eins og nú er, en
það er ekki unnt að gera án breyt-
inga á lögum.
Helstu nýmæli í reglugerðinni
eru m.a. að breytingar eru gerðar
á flokkun lyfja, sem sjúkratrygg-
ingar greiða að fullu, að hluta eða
alls ekki. Lausasölulyf verða ekki
greidd af sjúkratryggingum, en
Tryggingastofnun ríkisins greiðir
um 80-100 milljónir árlega fyrir
þessi lyf. Fastagjald sjúklings verð-
ur hækkað um 13% úr 750 krónum
í 850 krónur hvað allan almenning
varðar, en hvað elli- og örorkulíf-
eyrisþega varðar hækkar gjaldið
úr 230 krónum í 250. Fastagjald
fyrir svokölluð „bestukaupalyf“
lækkar hins vegar um 9%, en miðað
við óbreytt neyslumynstur lyfja er
geil ráð fyrir að þessi breyting
geti leitt til um 30 milljóna króna
lækkunar á útgjöldum Trygginga-
stofnunar vegna almennra notenda
og um 4 milljónir vegna elli- og
örorkulífeyrisþega.
Greiðslufyrirkomulag nokkurra
lyijaflokka breytist í kjölfar reglu-
gerðarinnar, þannig að almanna-
tryggingar taka ekki lengur þátt í
kostnaði fyrir lyf sem í þeim eru.
Þar má nefna svefnlyf, róandi lyf,
nef-, háls- og hósta- og kveflyf,
hægðalyf og sýklalyf. Fram kom á
fundinum að sum þessara lyfja eru
talin ofnotuð og/eða að læknisfræð-
ileg rök skorti fyrir því að Trygg-
ingastofnun taki þátt í kostnaði við
kaup á þeim. Þar vega sýklalyf
þyngst hvað kostnað varðar, en þau
eru notuð í helmingi meira mæli
hér á landi en annars staðar' á
Norðurlöndum. Verð þessara lyfja
„Atvinnulífið hefur verið dauft
allt frá því kaupfélagið hætti hér
starfsemi, Fjöregg hefur verið
stærsti atvinnurekandinn í hreppn-
um, en þar hefur ekki eingöngu
unnið fólk héðan úr þéttbýlinu,
heldur m.a. frá Akureyri og úr
Eyjafjarðarsveit, sagði Jónas Reyn-
ir.
Hann sagði að nú væri unnið að
því að koma á fót einhvers konar
smáiðnaði eða einhveiju ámóta til
að nýta hús kaupfélagsins sem
standa auð á Svalbarðseyri. Þegar
hefur verið stofnað dreifingarfyrir-
tæki, Kartöflusala Svalbarðseyrar,
sem annast þvott, sölu og dreifingu
er að jafnaði ekki hátt, þannig að
um verulega kostnaðarbyrði ein-
staklinga verður ekki að ræða. Tal-
ið er að unnt verði að spara um
230 milljónir króna í kjölfar þess
að hætt verður að greiða fyrir sýkl-
alyf, en sparnaður vegna flokkatil-
færslna er á bilinu 20-40 milljónir
króna.
Heilbrigðisráðuneytið mun í sam-
vinnu við landlæknisembættið fylgj-
ast náið með afleiðingum reglu-
gerðarinnar, meta árangur og end-
urskoða hana í ljósi reynslunnar
eigi síðar en í lok þessa árs. Þá
verður innan ráðuneytisins áfram
unnið að tillögum um lækkun lyfja-
kostnaðar, sem m.a. tekur til skipu-
lagsbrejtinga á dreifingu lyíja.
kartaflna.
Nokkrar byggingarframkvæmdir
standa yfir á vegum hreppsins, en
verið er að byggja við skólann
og einnig er verið að byggja fé-
lagslegar íbúðir, bæði raðhús og
síðar hefjast framkvæmdir við
parhús. Verktaki er Þorgils Jó-
hannesson og hefur hann nokk-
urn mannskap í vinnu og taldi
sveitarstjóri að hann væri stærsti
atvinnurekandinn í hreppnum,
að sveitarfélaginu frátöldu.
Jónas Reynir sagði að fólk
sækti í auknum mæli eftir hús-
næði á Svalbarðseyri og við því
væri verið að bregðast.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jakob Tryggvason hlaut viðurkenningu úr Tónmenntasjóði
kirkjunnar fyrir störf að þágu kirkjutóiilistar, liann er hér fyr-
ir miðri mynd ásamt Soffíu dóttur sinni og Jóni Óskari sem sæti
á í stjórn sjóðsins.
Jakob Tryggvason
organleikari heiðraður
STJÓRN Tónmenntasjóðs
kirkjunnar hefur veitt Jakóbi
Tryggvasyni organleikara við-
urkenningu, 150 þúsund krón-
ur, fyrir störf hans í þágu
kirkjutónlistar.
Jakob var um fjölda ára organ-
leikari við Akureyrarkirkju og
stóð að flutningi ýmissa kirkju-
legra kórverka af vandfýsi og
dugnaði, án þess að spyrja um
veraldlega umbun, segir í til-
kynningu.
Tónmenntasjóður kirkjunnar
var stofnaður árið 1974 til efling-
ar kirkjulegri tónlist og ljóðagerð
og til að veita viðurkenningu fyr-
ir störf á þeim vettvangi.
í stjórn Tónmenntasjóðs eru
Haukur Guðlaugsson, söngmála-
stjóri, formaður, Jón Nordal,
gjaldkeri, og Jón Óskar, ritari.
Svalbarðsstrandarhreppur:
Smáiðnaður á fót til
að nýta húsnæði KÞ
JÓNAS Reynir Helgason sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi seg-
ir að atvinnulíf í þéttbýlinu við Svalbarðseyri hafi verið dauft allt
frá því Kaupfélag Þingeyinga, KÞ, hafi hætt þar starfsemi. Flestir
íbúar þar sæki vinnu til Akureyrar og því missi íbúarnir ekki at-
vinnu sína í kjölfar gjaldþrots Alifuglabúsins Fjöreggs. Þó nokkrar
byggingarframkvæmdir eru í hreppnum og unnið er að því að koma
húsnæði KÞ í notkun með einhvers konar starfsemi.