Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991
Bayem Munchen að verða
stórveldi í evrópskri skák
__________Skák______________
Margeir Pétursson
ÞAÐ hefur áreiðanlega farið
framhjá fáum að þýzka félagið
Bayern Munchen er eitt öflug-
asta knattspyrnufélag Þýzka-
lands og Evrópu. En forráða-
menn þess láta það ekki nægja,
skákdeild félagsins hefur hin
síðari ár stöðugt vaxið fiskur
um hrygg og er nú að verða
eitt öflugasta félag á megin-
landinu, a.m.k. utan Sovétríkj-
anna. Bayern Munchen hefur
nú tvö ár í röð unnið þýzku
Bundesliguna, sem er virtasta
og öflugasta deiidakeppni í
heimi. Svo mikil áherzla er lögð
á hana í Þýzkalandi að erlendir
stórmeistarar eru keyptir dýr-
um dómum til að styrkja liðin
og þátttaka í henni er mikilvæg
tekjutrygging fyrir fremstu
skákmenn Þjóðverja.
Uppgangur skákdeildarinnar er
fyrst og fremst einum manni að
þakka, dr. Heinrich Jellisen, lista-
prófessor, sem einnig situr í
bankaráði eins stærsta banka
Þýzkalands. Auk þess að bera hag
liðs síns mjög fyrir brjósti hefur
hann skipulagt alþjóðleg stórmót
í Munchen á hvetju ári um langt
skeið. Nýlega lauk þar stórmóti
með óvæntum sigri bandaríska
stórmeistarans Christiansen, sem
var það sterkasta á þýzkri grund
á þessari öid. Jellisen er sannur
skákunnandi sem lætur fáa við-
burði fram hjá sér fara, þrátt fyr-
ir mörg verkefni á öðrum sviðum.
Og Bæjarar láta sér nú ekki
sigur á heimaslóðum nægja. Nú
er markið sett á Evrópukeppni
félaga og frá því að Taflfélag
Reykjavíkur sló þá út í síðustu
keppni hér í Reykjavík sumarið
1989, hefur lið þeirra verið styrkt
til muna. Fremsti skákmaður
Þjóðveija, Robert Hubner, var
keyptur til liðsins og eftir sigur
Jóhanns Hjartarsonar á sterku
móti í Munchen árið 1988, fékk
Jellisen hug á að fá hann í lið
sitt. Ekki minnkaði sá áhugi við
það að Jóhann leiddi lið TR sem
sló Þjóðveijana út úr síðustu Evr-
ópukeppni. Eins og skákunnend-
um er vafalaust í fersku minni
var það annað þýzkt félag, Soling-
en, sem hafði þá Hubner í sínum
röðum, sem sló TR út á jöfnu í
undanúrslitum og deildi síðan
Evrópumeistaratitlinum með
sovézku liði.
Flutningurinn hefur haft góð
áhrif á Hubner, sem er með við-
kvæmari skákmönnum. Eftir að
Jellisen tók hann upp á sína arma
í Munchen hefur hann náð sér vel
á strik, stóð sig t.d. frábærlega
vel á rnillisvæðamótinu í Manila
og á Ólympíumótinu í Novi Sad.
Úrslit í Bundesligunni í vetur
urðu þessi: 1. Bayern Munchen
28 stig, 2. Köln/Porz 27 stig, 3.
SG Solingen 25 stig, 4. Munchen
36 20 stig 5. SF Dortmund 20
stig, 6. Hamburger SK 19 stig,
7. FTG Frankfurt 18 stig o.s.frv.
Árangur einstakra liðsmanna
Bæjaranna varð þessi: Hubner 8V2
v. af 13, Ribli 10 v. af 13, Jóhann
Hjartarson 6 v. af 9, Kindermann
9 v. af 14, Bischoff 10 v. af 13,
Hertneck 10 v. af 15, Bönsch 7‘/2
v. af 11, Hickl 8V2 v. af 12, Sc-
hlosser 4 'h af 8 og Stangl 7 'h v.
af 10. Svo sem sézt af þessari
upptalingu geta Bæjararnir stillt
upp sjö stórmeisturum í einu. í
næstu Bundesligukeppni sem
hefst í haust verður sú breyting
helst að þýzki stórmeistarinn
Hickl fer úr liðinu, en hinn frægi
sovézki stórmeistari Artur Ju-
supov kemur inn sem þriðji út-
lendingurinn. Aðeins má þó nota
tvo slíka í sömu keppni, svo það
er nokkur spurning hversu mikið
liðið styrkist við breytinguna.
Um þessar mundir er verið að
tefla fyrstu umferð Evrópukeppni
félaga. Taflfélag Reykjavíkur er
ósigrað í þeirri keppni, hefur tvi-
svar tekið þátt en féll í bæði skipt-
in út á jöfnu. TR verður þó. ekki
með að þessu sinni.
Bayern Munchen átti mjög erf-
iða andstæðinga í fyrstu umferð,
ungverska liðið Hungaroil-Honv-
ed á heimavelli þess í Búdapest.
Jóhann Hjartarson átti ekki
minnstan þátt í sigri síns félags.
I fyrri umferðinni náði hann að
leggja eistneska stórmeistarann
Lembit Oll að velli, en sá hefur
einmitt verið á mikilli uppleið ný-
lega, sigraði l^dæmis á tveimur
mótum í Ástralíu í vor. Hertneek
sigraði einnig alþjóðameistarann
Csaba Horvath glæsilega svo úr-
slitin fyrri daginn urðu 4-2, þar
sem hinum skákunum ijórum lauk
með jafntefli. Seinni daginn lauk
síðan öllum sex með jafntefli, en
þá missti Jóhann af vinningsleið
gegn Oll. Kindermann var sá
Bæjaranna sem átti mest undir
högg að sækja, báða daganna
virtist alþjóðameistarinn Joszef
Horvath nálægt því að knésetja
hann, en með dæmigerðir þýzkri
seiglu hélt Kindermann jöfnu í
báðum skákunum.
Fyrir hálfum mánuði birtist hér
vinningsskák Jóhanns Hjartar-
sonar gegn Ljubojevic á stórmót-
inu í Amsterdam, en í henni fór
Jóhann í smiðju til Viktors Korts-
jnojs og tefldi sjálfur eins og gamli
maðurinn gerði í einvíginu gegn
honum í Saint John í Kanada forð-
um. Gegn Oll hafði Jóhann sama
háttinn á, hann beitti sömu byijun
og Karpov notaði gegn honum í
einvíginu í Seattle:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Lembit Oll
Enski leikurinn
1. c4 - e5 2. Rc3 - Rf6 3. g3
— d5 4. cxd5 — Rxd5 5. Bg2 —
Rb6 6. Rf3 - Rc6 7. 0-0 - Be7
8. a3 - 0-0 9. b4 - Be6 10. d3
- f6 11. Hbl - Dd7
Þessu lék Jóhann sjálfur gegn
Karpov og þótti mörgum leikurinn
ónákvæmur. Síðan hefur 11. —
Rd4 notið meiri hylli, en þannig
tefldi Sovétmaðurinn Bareev t.d.
gegn Jóhanni sjálfum í síðustu
umferð Ólympíumótsins og hafði
sigur. Það segir sig sjálft að Oll
hlýtur að hafa eitthvað sérstakt
í huga.
12. Re4 - Rd5 13. Bb2
Jóhann breytir hér sjálfur út
af skákinni við Karpov, þar sem
heimsmeistarinn fyrrverandi lék
13. Dc2 - b6?! 14. Bb2 - Hac8
15. Hbcl! og stóð betur. E.t.v.
hefur Oll ætlað að fara út í flækj-
urnar sem upp koma eftir 13. —
a5!? 14. b5 - Rd4.
13. - Had8 14. Dc2 - Bh3 15.
Rc5 — Bxc5 16. Dxc5 — Bxg2
17. Kxg2 - Kh8 18. h3 - De8?
Svartur leggur með þessu út í
mjög vafasamar flækjur og fórnar
Sá fjölhæfi dr. Heinrich Jellisen
hefur á fáum árum gert skák-
deild Bayern Munchen að stór-
veldi í þýzkri og evrópskri
skák.
peði, en nauðsynlegt var 18. —
a6, þótt hvítur standi ívið betur
vegna pressu sinnar eftir c lín-
unni.
19. b5 — Rce7 20. Dxa7 — Dxb5
21. Bal
Eftir 21. Bxe5 — De8 22. Bal
— Rc8 fær svartur peðið á e2 og
mótspil.
21. - Dd7 22. Dxb7 - Rg6 23.
e3 - Ha8 24. Hb3 - h5 25. Db5
— Dd6 26. d4 - Hfb8?!
Þar sem peðsfórn svarts hefur
misheppnast bregður hann á það
örþrifaráð að gefa tvo hróka fyrir
drottningu til að skapa ójafnvægi
í stöðunni. Skárri kostur var 26.
— e4 27. Rd2 — f5, sem hvítur
svarar líklega bezt með 28. h4.
Jóhann vinnur nú einkar snyrti-
lega úr liðsyfirburðum sínum, og
gefur svarti engin færi á nokkru
mótspili. Skiptamunsfórnir hans í
34. og 49. leik eru báðar mjög
Jóhann Hjártarson vann mikil-
vægan sigur fyrir félag sitt í
fyrstu umferð Evrópukeppn-
innar.
smekklegar og tafllokin með ridd-
ara, biskup og fjögur peð gegn
drottningu eru bráðfyndin,
27. Dxb8 - Hxb8 28. Hxb8+ -
Kh7 29. dxe5 — Dxa3 30. exf6
- gxf6 31. Hdl - Da2 32. Hb2
- Dc4 33. Hbd2 - c6 34. Hxd5!
- cxd5 35. Bxf6 - De4 36. Hal
- Rf8 37. Ha7+ - Kg6 38. He7
- Re6 39. Be5 - Rc5 40. Bd6
- Re6 41. Be5 - Rc5 42. Hg7+
- Kh6 43. g4 - h4?! 44. He7 -
Kg6 45. Hg7+ - Kh6 46. He7
- Kg6 47. Bf6 - Re6 48. Bg5
- d4
49. Hxe6+! — Dxe6 50. exd4 —
De4 51. Bxh4 - Kg7 52. Bg3 -
Kf6 53. Be5+ - Ke6 54. Kg3 -
Dd3 55. Bf4 - Kd5 56. Be3 -
Ddl 57. Kf4 - Dbl 58. h4 -
Db8+ 59. Re5 - Df8+ 60. Kg3
- Ke4 61. h5 - Da8 62. h6 -
Dal 63. Kh2 og svartur gafst
upp.
Vinningstölur laugardaginn
8. júní 1991
32)rt?r
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 1.178.949
O 4af5l$flp 2 204.978
3. 4af5 80 8.839
4. 3af5 2.988 552
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.124.350 kr.
Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út j
á Lottó sölustöðum.
Triiimpli
VORLINAN
Kaupfélag
Þingeyinga
HUSAVIK
Stúdenta tilboð!
6 myndir og tvœr
stœkkanir 20 x25 cm á
aðeins kr. 6.000,00
3 ÓDÝRASTIR
Ljósmyndastofan Mynd
sími 5 42 07
Barna og fjölskyldumyndir
sími 1 26 44
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 4 3020
Gildir til 22. júní