Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991 43 NORDIA 91 _________Frímerki______________ Jón Aðalsteinn Jónsson í síðasta frímerkjaþætti var stuttlega minnzt á samnorrænu frí- merkjasýninguna NORDIU 91, sem hér verður haldin í lok þessa mánað- ar. Líklegt má telja, að lesendur þessara þátta hafi áhuga á að hafa einhverjar spurnir af því, sem fram á að fara á sýningunni. Sýningin hefst fimmtudaginn 27. júní. Fyrsti dagurinn nefnist Dagur póstsins. Næsti dagur, föstudagur- inn, kallast Dagur unglinganna, enda verður þá ýmislegt gert til að minna á þátt þeirra í NORDIU 91, en hann er einmitt ekki svo lítill. Þar sýna tveir íslenzkir unglingar, sem hafa öðlazt rétt til þátttöku á samnorrænum sýningum. Laugar- dagurinn, 29. júní, nefnist Dagur Ijölskyldunnar, en þá verður ýmis- legt gert til þess að örva foreldra til að koma á sýninguna með börn sín, svo að þau geti kynnt sér þessa hollu og vinsælu tómstundaiðju. Síðasti dagur sýningarinnar verður svo Dagur íslandssafnara, enda verða mörg óvenjufalleg íslenzk frí- merkjasöfn á sýningunni, bæði í samkeppnis- og kynningardeild. Svo sem venja er á stærri sýning- um, verður sérstimpill notaður á pósthúsi NORDIU 91 fyrir hvern dag og hann hafður táknrænn í samræmi við heiti dagsins. Rétt er að vekja athygli á svo- nefndri Sögudeild, sem komið verð- ur á fót af félögum, einkum þó unglingum, úr Félagi frímerkja- safnara og Klúbbi Skandinavíu- safnara. Þar verður m. a. heildar- safn íslenzkra frímerkja frá upp- hafi eða árinu 1873 og til sýningar- dags. Þar verða einnig sýndar þær stimplagerðir, sem notaðar hafa verið til ógildingar frímerkja frá upphafi, og margs konar sérstimpl- ar. Verður þetta sýnt á stökum merkjum, en einnig reynt að sýna ýmsa stimpla á heilum bréfum og öðrum póstsendingum eða á snyfs- um. A ég von á, að mörgum muni þykja fróðlegt að geta aftur virt hér fyrir sér mörg þeirra frímerkja, sem voru algeng á bréfum í ung- dæmi þeirra. Þá verður á NORDIU 91 kynnt, hvernig frímerkjaútgáfa fer fram. I því skyni verða nokkrum útgáfum gerð skil með því að sýna skissur og teikningar listamanna og eins litar- og prentpróf. Þröstur Magn- ússon, sem er kunnur fyrir margar fallegar útgáfur fyrir fslenzku póst- stjórnina á síðustu árum, svo sem fugla- og blómafrímerki, mun verða einn dag á sýningunni til að kynna og útskýra teikningar sínar. Er einkar fróðlegt fyrir safnara og ekkert síður fyrir almenning að kynnast því, hversu mikið starf liggur að baki hverri frímerkjaút- gáfu, allt frá fyrstu skissum og þar til frímerkið kemur fullprentað í hendur notenda. Opinber boðsdeild verður á NORDIU 91. Póststjórnir Norður- landa verða þar með sýningarefni. Auk þess er þess vænzt, að sameig- Tónlistarnemendum fjölgar á Húsavík Húsavík. TÓNLISTARSKÓLI Húsavíkur lauk starfsemi sinni á þessu vori með þrennum tónleikum, þar sem fram komu bæði eldri og yngri nemendur skólans og sýndu getu sína. Léttsveit og kór fullorðinna starf- Morgunblaðið/Silli Aðalgeir Þorgrímsson, 10 ára, þeytir lúður sinn. aði mikið á síðasta starfsári og hélt tónleika í Reykjavík og fór einnig til Englands, undir stjórn Keith R. Miles. Flestir nemendur leggja stund á blásturhljóðfæri og píanóleik. Umfang og starfsemi skólans hefur verið vaxandi á undanförnum árum og aðsókn aukist. Nemendur 1987 voru 165 en á síðasta starfs- ári 214. Hefur þessi þróun orðið til þes að mikil þörf er orðin á því að skólinn fái aukið húsrými. En nú er verið að vinna að viðbyggingu við Barnaskólahúsið og að þeirri viðbyggingu lokinni, er gert ráð fyrir að Tónlistarskólinn fái aukið húsrými. - Fréttaritari. MAZDA þjónustan er hjá okkur! FÓLKSBÍLALAND H.F. Fosshálsi 1, (Bílaborgarhúsinu) Sími 67 39 90 inlegt kynningarefni verði í þessari deild frá öllum innlendum söfnum. Einkum eru það gömul bréf frá Þjóðskjalasafni og Landsbókasafni, sem hafa verið að koma í leitirnar á síðustu tveimur áratugum. Sumt af þessu efni hefur áður verið á sýningum, en ýmislegt verður á NORDIU 91, sem hefur ekki áður komið fyrir almenningssjónir. Sölubásar verða að sjálfsögðu á sýningunni, enda heyra alls konar viðskipti með frímerki og frímerkja- efni orðið til flestra frímerkjasýn- inga. Sjö póststjórnir hafa sölubása til að kynna og selja frímerki sín. Þá munu jafnmargir kaupmenn, innlendir og erlendir, verða með sölubása. Einnig verða innlend safnarafélög með bása, svo sem Félag frímerkjasafnara, Klúbbur Skandinavíusafnara og Myntsafn- arafélagið. I öllum þessum sölubás- um verður boðið upp á fjölbreytilegt efni. Auk alls þessa má, ef ég þekki rétt til, búast við líflegum skiptum milli safnara á sjálfri sýningunni. Til þess að auðvelda þau skipti hef- ur sýningarnefnd ákveðið að bjóða upp á ókeypis borð einn dag, þar sem safnarar geta losað sig við margs konar umframefni úr söfnum sínum, bæði frímerki, mynt, póst- kort o.m.fl. Vafalaust vilja tnargir notfæra sér þessa sérstöku þjón- ustu. í næsta þætti verður greint frá nokkrum áhugaverðum söfnum, sem vérða á NORDIU 91, einkum íslenzkum. Að auki verður sagt nokkuð frá frímerkjauppboði, sem haldið verður í tengslum við sýning- una. :niuni/ili VORLINAN KAUPF. BORGFIRINGA BORGARNESI 20% afsláttur af öllum sumarleikföngum. Mikiö úrval af tómstundavörum, viölegubúnaöi, módelum og öllum tegundum leikfanga. Berið saman verö. TOmSTUnDfíHUSID HF Laugavegi 164, sími 21901
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.