Morgunblaðið - 11.06.1991, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991
t
FINNBOGI Þ. ÞORBERGSSON
frá Efri-Miðvík,
Hátúni 10,
lést í Landspítalanum þann 9. júní.
Fyrir hond vandamanna,
Minning:
Drengur Guðjóns-
son, Fremstuhúsum
Oddný Finnbogadóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓNAS SIGURÐSSON
' bifvélavirki,
Soldotna, Alaska,
lést 6. júlí 1991.
Dídí Sigurðsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín', móðir okkar og tengdamóðir,
SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sólheimum 32,
lést á heimili sínu laugardaginn 8. júní.
Hermann Helgason,
börn og tengdabörn.
t
Sambýlismaður minn,
BJARNI HALLDÓRSSON
bóndi frá Neðri Tungu,
Hlíðarvegi 16,
ísafirði,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn 9. júní.
Símonía Ásgeirsdóttir.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Gerðum í Garði,
lést að kvöldi 7. júní.
Guðmundur Ingimundarson, Rósa Einarsdóttir,
Einar Þór Guðmundsson,
Ingimundur Kristinn Guðmundsson,
Kristín Guðmundsdóttir.
t Ástkær eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON,
Rituhólum 11, : - J§r
Reykjavík,
lést í Landakotsspitala aðfaranótt
9. júní.
Sigrún Jóhannsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MAGNHILDUR BENDER,
Bólstaðarhlíð 46,
lést á heimili sínu 8. júní sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júnf
kl. 15.00.
Gunnar Bender,
Ingvar Júlíus Bender, Guðríður Anna Jóhannsdóttir,
Þetra og Anton Bender.
Fæddur 23. september 1923
Dáinn 19. nóvember 1990
Drengur Guðjónsson, Fremstu-
húsum, Mýrahreppi, lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði að
kvöldi 19. nóvember 1990. Hann
fæddist í Fremstuhúsum 23. sept-
ember 1923 og var því 67 ára er
hann lést langt um aldur fram.
Foreldrar Drengs voru hjónin Guð-
jón Davíðsson frá Álfadal, Davíðs-
sonar frá Tungu í Valþjófsdal og
Borgný Hermannsdóttir. Borgný
var fædd í Fremstuhúsum en Her-
mann faðir hennar var fæddur í
Alviðru. Hermann bjó i Fremstu-
húsum 1880 til 1908 en þá hófu
þar búskap Guðmundur Hermanns-
son og Vilborg Davíðsdóttir systir
Guðjóns. Ekki varð þeim langra
samvista auðið því Vilborg lést í
blóma lífsins 1913. Torfi Her-
mannsson tók þá við búsumsýslu
1914 og hafði hana með höndum
til 1917 að Guðjón og Borgný heija
búskap í Fremstuhúsum. Þau búa
þar til 1952 en þá tekur Drengur
þar við búsforráðum.
Drengur var í móðurætt afkom-
andi Hákonar Bárðarsonar á Arnar-
nesi eins og fjölmargir Mýrhrepp-
ingar og Önfirðingar. Drengur var
5. ættliður frá Hákoni, Áslaug Jens-
dóttir húsfreyja á Núpi er 6. ættlið-
ur, Bergur Torfason sparisjóðsstjóri
frá Felli og Jóna Kristjánsdóttir
húsfreyja í Alviðru sömuleiðis 6.
ættliður. Sigurður Guðmundsson ,
frá Hjarðardal 5. ættliður, sömu-
leiðis Ingimar Jóhannesson frá
Meira-Garði, Marvin Guðmundsson
frá Hrygg, Guðmundur Þorvalds-
son, ísafirði, og Guðmundur Gísla-
son Hagalín rithöfundur.
Margir Önfirðingar eru afkom-
endur Hákonar Bárðarsonar. Má
þar nefna Guðmund Inga Kristjáns-
son skáld og Gils Guðmundsson rit-
höfund. Þannig var Drengur grein
á gildum stofni vestfirskra ætta.
Þann 2. október 1963 gekk
Drengur að eiga eftirlifandi konu
sína Maríu Vagnsdóttur frá Pat-
reksfirði. Hefur það vafalaust verið
hans stærsta gæfuspor í lífinu.
María er fædd 23. september 1940
á Patreksfirði og eru foreldrar
hennar yagn Jóhannesson og Guð-
björg Össurardóttir. María og
Drengur voru ákaflega samhent
hjón, gestrisin og góð heim að
t Bróðir okkar,
PÉTUR SIGURÐSSON
frá Görðum,
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, 10. þ.m. Systkinin.
. t
Maðurinn minn,
HJÖRTUR ÞORSTEINSSON
Eyri í Kjós,
lést á heimili sínu sunnudaginn 9. þ.m.
Kristín Jónsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
INGIGERÐUR EGGERTSDÓTTIR,
Egilsgötu 16,
Reykjavík,
lést 8. júní.
Einar Guðjónsson,
Guðborg Einarsdóttir, Þuríður Einarsdóttir,
Sigurberg Einarsson.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERLA UNNUR ÓLAFSDÓTTIR
frá Strönd í Vestmannaeyjum,
Álftamýri 20, Reykjavík,
lést í Vífilsstaðaspítala að morgni 9. júní.
Sigurður Elli Guðnason, Guðmunda Kristinsdóttir,
Arndis Guðnadóttir, Sigurður G. Sigurðsson,
Ólafur Guðnason, Guðmunda Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabarn og aðrir vandamenn.
t
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Kársnesbraut 76,
Kópavogi,
andaðist í Borgarspítalanum sunnudaginn 9. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sverrir Garðarsson,
Pétur Garðarsson,
Þorgerður Árnadóttir,
Einfríður Árnadóttir.
t
Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
JÓN GUÐBJÖRNSSON,
Hátúni 6,
lést í Borgarspítalanum 7. júní.
Erling Smári Jónsson, Sólveig Úlfarsdóttir,
Hafþór Úlfar Erlingsson,
Lilja V. Guðbjörnsdóttir,
Hreggviður Guðbjörnsson,
Hermann Guðbjörnsson,
Óskar R. Guðbjörnsson.
sækja. Þeim varð þriggja mann-
vænlegra barna auðið, en þau eru:
Hermann, fæddur 25. apríl 1964,
Björn, fæddur 14. maí 1965, og
Guðbjörg, fædd 23. ágúst 1969.
Eftir almennt barnaskólanám
stundaði Drengur nám í Núpsskóla
1941-1943. Hann vann svo við bú
foreldra sinna öðrum þræði þar tii
hann tók alfarið við búsforráðum í
Fremstuhúsum upp úr 1950.
Drengur var kjörinn í hrepps-
nefnd Mýrahrepps 1956 og hann
var oddviti hreppsnefndar 1974 til
1990. Hann var lengi í stjórn Spari-
sjóðs Mýrhreppinga, m.a. formaður
í nokkur ár. Þá var hann í vara-
stjóm Kaupfélags Dýrfirðinga og
sat oft fundi þar. Hann sat fjölda
funda sem fulltrúi Mýrhreppinga,
s.s. Orkubúsfundi, Fjórðungsfundi
og þing Sambands íslenskra sveit-
arfélaga o.fl.
Drengur naut hvarvetna trausts
og virðingar þeirra er kynntust
honum. Hann var ákaflega traustur
maður og vandvirkur í öllum sínum
störfum. Hann var sérstakt snyrti-
menni í sínum búskap og hafði sér-
lega góðan arð af sínu búi miðað
við bústærð. Öll sín félagsmálastörf
rækti hann af nákvæmni og dugn-
aði. Má í því sambandi nefna oddvit-
astarfið sem _ hann rækti af sér-
stakri prýði. I bókhaldinu stóð allt
eins og stafur á bók alla tíð og
hann sá um að fjárreiður hreppsins
væru jafnan í góðu lagi og í sam-
ræmi við fjárhagsáætlanir. Þegar
hann skilaði af sér oddvitastarfinu
var fjárhagsstaða hreppsins ágæt.
Drengur var oft fundarritari á þeim
Ijölmörgu fundum sem hann sat.
Það starf rækti hann með ágætum
eins og öll önnur störf og var laginn
að greina kjarnann frá hisminu í
ræðum manna. Ekki spillti það að
hann hafði glæsilega rithönd.
Drengur sá um skólaakstur í fjölda
ára, enda með meiraprófsréttindi.
Þá kenndi hann undir bifreiða-
stjórapróf í nokkur ár.
Drengur mun vera fyrstur til að
bera þetta nafn. Olli þessi nafngift
talsverðri undrun og umræðu á sín-
um tíma. En nafnið vandist vel og
Drengur bar nafn með rentu. Hann
vár alla tíð drengur góður. Fráfall
Drengs er mikið áfall fyrir sveit
hans og Vestfirði alla, því vandfyllt
er í skarð siíks manns. En þó er
missirinn mestur og sárastur fyrir
eiginkonu, börn og aðra nána ætt-
ingja. Vil ég fyrir hönd heimilis-
fólksins á Mýrum senda þeim öllum
irfnilegar samúðarkveðjur.
Valdimar Gíslason
BL0M
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.