Morgunblaðið - 05.07.1991, Side 40

Morgunblaðið - 05.07.1991, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 m ? 1991 Jim Unqer/Distributed by Universal Press Syndicale "Taxi!" Ast er ... ■ að ráða í hugsanir hans. TM Reg. U.S. Pat Otf.—all nghts reserved ® 1991 Los AngelesTimesSyndicate Með morgunkaffinu Ef þú hefur tíma, aðstoðar þú hann við að dúka fyrir 12. Þetta er óþarfi. Hún er Iæst... HOGNI HREKKVISI Þjónustuíbúðir aldraðra * M :$% I ii B ÍMHg ■' r 1 tt W IíISB' I t 5 ■t iaafi 1816 5 'X S® S „Fokdýrar stein- og glerhallir í Reykjavík eru seldar öldruðum undir nafninu verndaðar þjón- ustuíbúðir“ skrifar E.R. fyrir skömmu í Velvakanda og telur þjónustuna ekki standa undir nafni. Til dæmis um það er tekið fram að matur sé ekki framreiddur í matsal nema 5 daga vikunnar. Þá telur E.R. að mjög skorti á vernd í þessum íbúðum þegar eng- inn sé til þess að svara bjöllur- hringingu ef lasburða fólk þarf á aðstoð að halda. Stjórnir húsfélaga í þjónustu- íbúðum aldraðra taka ákvarðanir um það, að höfðu samráði við íbú- ana, hvernig þjónustu skuli háttað á hveijum stað. Hún getur verið mikil eða lítil, allt eftir því hve miklu íbúar hússins vilja kosta til hennar. Bjöllukerfi er hægt að tengja við húsvarðaríbúð, með vakt allan sólarhringinn ef íbúar hússins vilja greiða fyrir þann aukakostnað sem því fylgir. Þjónustu- og félag- smiðstöðvar sem eru st.arfræktar af Reykjavíkurborg fyrir 67 ára og eldri í hinum ýmsu hverfum borgarinnar, eru ekki opnar um helgar vegna þess að þá hefur starfsfólkið frí. Matarbakka er hægt að fá senda heim um helgar sem aðra daga, ef einhver er til þess að taka við þeim, t.d. húsvörð- ur, og er það skipulagsatriði sem stjórn viðkomandi húsfélags á að sjá um. Þjónustuíbúðir aldraðra sem ganga kaupum og sölum á frjálsum markaði, verða á þessu ári um 550 talsins í Reykjavík. Þær hafa flest- ar verið byggðar á síðastliðnum 8-10 árum. Mörg félög hafa staðið að byggingu þessara íbúða, en stærstu byggingaraðilarnir eru Samtök aldraðra og Félag eldri borgara. Verð á þessum íbúðum eins og öllum öðrum, fer eftir því hvað mikið er í þær borið og hve sameign er mikil. Innbyggðar bílg- eymslur undir sambýlishúsunum hækka verðið. Á næstu árum er áætlað að byggja 150-200 íbúðir á vegum ýmissa félaga, til viðbótar þeim sem fyrir eru. Þá hefur Reykjavíkurborg látið byggja um 300 leiguíbúðir fyrir aldraða og 24 söluíbúðir. Sú þróun sem hefur orðið með byggingum þjónustuíbúða aldraðra ásamt tilkomu félags- og þjónustu- miðstöðva hefur gerbreytt lífsstíl eldra fólks. Það skapar því öryggi að búa í sambýli við aðra á líkum aldri, þar sem húsvarsla er góð og engar áhyggjur þarf að hafa af garðinum. Það tekur þátt í fjöl- breyttri starfsemi; tómstunda- vinnu, listsköpun, leikfimi og fræðslu. Fólk fær ýmiss konar þjónustu; böðun, hárgreiðslu og snyrtingu á vægu verði og fer á milli félagsmiðstöðvanna, dansar, spilar og stofnar til nýrra kynna. Borgaryfirvöld hafa sýnt lofsverð- an skilning í sambandi við þróun þessara mála. Því er ekki hægt að neita að íbúar þjónustuíbúða sem eru stað- settar í sama húsi ög félags- og þjónustumiðstöðvar borgarinnar, hafa vegna nálægðar þeirra betri aðstöðu en hinir sem búa lengra frá þeim. Starfsemi þjónustumið- stöðvanna er fyrst og fremst ætluð fyrir aldraða í viðkomandi hverfi, en er einnig heimil 67 ára og eldri sem búa í öðrum hverfum. Þeir sem festa kaup á þjónustuíbúðum aldr- aðra verða að gera sér það ljóst að hið opinbera kerfi getur ekki veitt þeim aðra eða meiri þjónustu en þá sem öðrum stendur til boða. Hafi einhveijir söluaðilar ginnt aldrað fólk til þess að festa kaup á þjónustuíbúðum með loforðum um þjónustu sem ekki er fyrir hendi þegar í íbúðina er komið, eins og E.R. gaf í skyn í skrifum sínum, á viðkomandi að sjálfsögðu að bera fram kvörtun við þann sem seldi honum íbúðina. Sérhæfðar íbúðir fyrir eldra fólk sem allar hafa gengið undir nafn- inu þjónustuíbúðir aldraðra, þar sem eignaraðild og búseta er miðuð við 60 ára og eldri, voru upphaf- lega ætlaðar til þess að auðvelda fólki að minnka við sig húsnæði sem ekki var þörf fyrir eftir að börnin voru farin að heiman. Þetta þótti hin mesta ljarstæða í fyrstu en eftirspurn eftir þessari tegund íbúða hefur verið meiri en nokkurn óraði fyrir. Hentugar íbúðir, heim- ilishjálp og heimahjúkrun auðveld- ar öldruðu fólki að halda heimili lengur, en kemur ekki í veg fyrir að það þurfi að fara á umönnun- ar- og hjúkrunarheimili þegar um erfiða öldrunarsjúkdóma er að ræða. Gyða Jóhannsdóttir Fölsuð mynd af stríði Ég vil koma á framfæri þökkum til Hannesar Sigurðssonar fyrir grein hans í Morgunblaðinu sunnu- daginn 30. júní sem nefndist „Sig- urhátíð sæl og blíð“ og fjallaði um ameríska hermenn, þrammandi um götur New York í sigurvímu. Mér finnst rétt að minnast þess fólks sem var skilið eftir í sárum og dauða. Ættu menn að minnast þess að upplýsingar og myndir af stríðinu sem komu frá Bandaríkjamönnum á CNN voru falsaðar, klipptar og skeyttar saman til þess eins að sýna þá mynd af árás Bandaríkjamanna sem Bandaríkjamenn vildu sjá. Bjarni Hrafnsson ■ " 'viiL 1 1— M___2£. Víkverji skrifar Víkveiji hefur af og til gert út- sýnishúsið Perluna að umtals- efni enda hefur mannvirkið vakið athygli hans og aðdáun. Þá telur Víkveiji sig eiga dijúgan þátt í því að þetta fagra nafn var valið á húsið. Um helgina rann upp sú stóra stund að Víkveiji stigi inn fyrir hússiris dyr í fyrsta sinn og hrifn- ingin yarð mikil. Mannvirkið er stórglæsilegt að innan og ber hönn- uðum og iðnaðarmönnum fagurt vitni. Matstaðurinn á efstu hæð reyndist vera 1. fiokks, þjónusta og matur framúrskarandi og sér- staka ánægju vakti hve vel hafði tekizt til með val á húsgögnum og borðbúnaði. íslendingar eiga eftir að sýna útlendum gestum sínum Perluna stoltir. ágúst þegar ferðalög ei-u í hámarki. Víkveiji skrapp fyrir skömmu til Akureyrar. Það er mikill munur að aka þessa leið nú en fyrir nokkrum árum. Aðeins eru örfáir kaflar án bundins slitlags en að öðru leyti er vegurinn sléttur og beinn. Við slík- ar aðstæður hættir ökumönnum til að stíga of fast á benzíngjöfina. Það leynast nefnilega hættur á bundnu slitlagi, s.s. holur og lausa- möl. Sérstaklega fannst Víkveija vegurinn yfir Holtavörðuheiði slæmur og spurning hvort Vega- gerðin þurfi ekki að senda stóran sóp upp á heiðina. Víkveiji vill hvetja alla ökumenn til sérátakrar aðgæzlu á næstu vik- sérstaklega ungt fólk, eru gerðir gjaldþrota vegna smáupphæða. Þess eru dæmi að fólk hafi verið gert gjaldþrota og lýstar kröfur í búið verið samtals innan við eitt hundrað þúsund krónur. Gjaldþrot- um fylgja margvísleg óþægindi fyr- ir einstaklinginn og því með ólíkind- um ef fólk reynir ekki að bjarga málunum þegar um svona lágar upphæðir er að ræða. xxx Ö3KíiiKail£i*S»8iWJl!S«»8B»íí«a*íi*U«M*aUítói&i; Hin hörmulegu umferðarslys að undanförnu hafa beint sjón- um manna að þeirri staðreynd að ■flest slysin verða jafnan í júlí og i.t vá i'ítA-'X -í & Liii&íit Já 'JLÍ.&&■A.t. ■íA.a.íL Víkveiji er áskrifandi að Lög- birtingablaðinu og getur því fylgzt með hinum gríðarlega fjölda gjaldþrota sem dunið hafa yfir und- anfarin misseri. Gjaldþrotin eru stór hjá mörgum einstaklingum en það er-einnig athyglisvert- að -sumir; ittuu:mui.uumuii uii itt Bjarni Felixson er uppáhalds ljósvakamaður Víkveija. Þeg- ar hann var sjónvarpsfréttamaður RUV var enginn duglegri en Bjarni að afla nýrra fréttamynda eða tryggja beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum. Einhverra hluta vegna þótti ráða- mönnum RUV ástæða til að flytja Bjarna á útvarpið. Og ekki var að sökum að spyija. Bjarni hefur rifið upp íþróttafréttir útvarpsins og mætir nú í eigin persónu kvölds og morgna með nýjustu fréttirnar. ■ Áfram Bjarni Fel! lllilftlllllttittlllfltl!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.