Morgunblaðið - 05.07.1991, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991
Framkvæmdasjóður íslands
FENGU
SKÝRSLU UM HVERT
STEFNUI
í FISKELUINU
EN HÉLUU
ÁFRAM AÐLÁNA
Hver verður forsætisráðherra,
forseti, borgarstjóri og hvar verður
Jón Óttar Ragnarsson þá?
ísland árið 2011
600 milljóna króna gjaldþrot
Steintaks
EKKIKRÚNA í
ÞROTABUINU, EIGANDI
EIGNALAUS OG BYRI
EINBYLISHUSIÁ NAFNI
KONUNNAR
íbúar í Hnífsdal-
KREFJAST OPINBERRAR
RANNSÓKNAR Á
SORPEYÐINGARSTÖO
Viðurnefni og
uppnefni
þekktra sem
óþekktra
íslendinga
PRESSAN
Fullt blað af slúðri
HANDKNATTLEIKUR
Sigurður
tilTeka?
Forráðamenn spænska stórliðsins Teka frá Santander hafa áhuga á
bjóða Sigurði Sveinssyni samning fyrir næsta keppnistímabil. Þetta
kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í gær.
Liðið vantar örvhenta skyttu í stað Kristjáns Arasonar, sem fluttur er
til landsins á ný og þjálfar og ieikur með FH næsta vetur, og var haft
eftir framkvæmdastjóra Teka að fundað yrði um málið um helgina, Sigurð-
ur væri efstur á óskalistanum og honum yrði jafnvel boðinn samningur
strax eftir helgi.
Sigurður, sem lék með Atletico Madrid í spænsku 1. deildinni sl. keppn-
istímabil, er kominn til landsins eins og Kristján og Alfreð Gíslason, sem
þjálfar og leikur með KA næsta vetur. Sigurður hefur einmitt íhugað að
ganga til liðs við Akureyrarliðið en ekkert er enn ákveðið í þeim efnum.
TENNIS / WIMBLEDON
Þjóðveijar sterkir
að verða Steffi Graf, Þýska-
landi, og argentínska stúlkan
Gabriela Sabatini sem mætast í
úrslitum í einliðaleik kvenna á
Wimbledon á morgun. Graf sigr-
aði Mary Joe Fernandez, Banda-
ríkjunum, 6-2 6-4 og Sabatini
vann Jennifer Capriati, Banda-
ríkjunum, 6-4,6-4 í gær.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
Sabatini leikur til úrslita, en hún
komst í undanúrslit í fimmta
skipti. Það tók hana eina klukku-
stund og 34 mín. að sigra í gær
— 14 mín. meira en það tók Graf
að vinna Fernandez.
í karlaflokki var leikið í átta
manna úrslitum í gær. Þjóðveij-
arnir tveir komust áfram; Boris
Becker sigraði Frakkann Guy
Forget 6-7 (5-7), 7-6 (7-3), 6-2,
7-6 (9-7), og Michael Stich vann
Bandaríkjarríánninn Jim Courier
6-3, 7-6 (7-2), 6-2. Meistarinn frá
því í fyrra, Stefan Edberg frá
Svíþjóð, sem enn hefur ekki tapað
setti á grasvelli á árinu, vann
Frakkann Thierry Champion 6-3,
6-2, 7-5.
í undanúrslitunum í dag mæt-
ast annars vegar Edberg og Stich
og hins vegar David Wheaton,
Bandaríkjunum, sem vann landa
sinn Andre Agassi í gær, 6-2,
0-6, 3-6, 7-6 (7-3), 6-2 og Becker.
Sigurður Sveinsson í landsliðsbúningi. Ekki er Ijóst búningi hvaða félags-
liðs hann klæðist næsta keppnistímabil.
KORFUBOLTI / EVROPUKEPPNIN
UMFN mætir
júgóslavnesku
meisturunum
ÍÞRÓmR
Guðlaugur Gíslason
■ SIGURÐUR Jónsson hefur æft
undanfarnar vikur með Skaga-
mönnum, en hann segist þó ekki
vera búinn að ná sér af meiðslunum
og bjóst ekki við að verða með gegn
Tyrkjum 17. þessa mánaðar. Sig-
urður var. með knattspyrnuskóla á
Neskaupstað í eina viku og hefur
staðið í marki á æfingum hjá IA
að undanförnu.
■ NEWSWEEK fjallar um Artic
open golfmótið sem fram fór á
Akureyri í lok júní á heilli síðu í
júlíheftinu. Greinarhöfundur segir
mótið sérstakt um margt en hann
er greinilega ekki hrifinn af íslensk-
um vegum sem hann segir ekki
nálgast það sem menn eigi venju-
lega við með orðinu vegur. Sama
er að segja um golfvöllinn á Akur-
eyri, hann eigi ekki mikið sameigin-
legt með því sem kallist golfvöllur!
■ FJÖLMENNASTA innanfé-
lagsmót sérri haldið hefur verið frá
upphafi hjá Golfklúbbi Vest-
mannaeyja var haldið fyrir nokkru,
svokallað Jónsmessumót. Keppend-
ur voru 64. Elsti keppandi mótsins
var Guðlaugur Gislason, fyrrver-
andi alþingismaður, nær 83 ára, en
hann var einn af stofnendum
klúbbsins árið 1938, og hefur spilað
golf á hverju áru síðan.
NJARÐVÍKINGAR mæta júgósl-
venska félaginu Cibona í Evr-
ópukeppni meistaraliða í körfu-
knattleik í haust og KR-ingar
mæta austurrísku bikarmeist-
urunum STI íkeppni bikarhafa.
Islandsmeistarar Njarðvíkur sitja
hjá í fyrstu umferð mæta Ci-
bona, sem er frá Zagreb, í annarri
umferð. Fyrri leikurinn verður hér
á landi 3. október og sá síðari í
Júgóslavíu 10. október. Þetta verð-
ur í annað sinn sem lið Cibona kem-
ur til landsins — það lék við Val i
Evrópukeppninni 1980.
Júgóslavar eru sem kunnugt er
bæði Evrópu- og heimsmeistarar,
Ikvöld er fyrsti leikur íslenska
kvennalandsliðsins í fótbolta
gegn þýska meistaraliðinu Hessis-
cher FV, sem er úrvalslið Hessen
héraðs og nýkiýndir Þýskalands-
meistarar. Alls verða leikirnir þrír,
en í kvöld leika liðin á Selfossi kl.
20.00. Þetta verður fyrsti leikur
íslensks A-landsliðs í kvennaknatt-
spyrnu frá því 1987.
Þjálfarar íslenska liðsins eru
þannig að ljóst er að lið Cibona er
gríðarlega sterkt. Eflaust eitt sterk-
asta félagsliðs Evrópu. Júgóslav-
neska félagið Jugoplastika varð
meistari í heimalandi sínu í vor, en
fer í Evrópukeppnina þar sem liðið
varð einnig Evrópumeistari. Cibona
varð í öðru sæti í deildinni.
KR leikur gegn STI, sem er frá
Vínarborg, hér á landi 10. septemb-
er og síðan ytra 17. september.
Leikirnir eru í fyrstu umferð, og
sigurvegarinn úr rimmunni mætir
bikarmeisturunum frá ísrael, Hapo-
el Galil Elion í 2. umferð. Hapoel
er eitt sterkasta liðið í ísrael. Það
kom hingað til lands og lék við
landslið Islands í janúar 1989.
Steinn Helgason og Sigurður Hann-
esson. Þeir völdu 26 stúlkur fyrir
leikina, en eftirtaldir leikmenn eru
í hópnum fyrir leikinn í kvöld:
Markmenn:
Sigfríður Sophusdóttir, ÍA, Sigríður
Pálsdóttir, KA
Aðrir leikmenn:
Bryndís Valsdóttir, Val, Ragnheið-
ur Víkingsdóttir, Val, Guðrún Sæ-
mundsdóttir, Val, Hera Ármanns-
GOLF
Systkini
íefstu
sætum
Meistaramót golfklúbbanna
víðs vegar lum land
standa nú yfir. Annar keppnis-
dagur var í gær, en keppni lýk-
ur á morgun, laugardag.
Svo skemmtilega vill til að
systkini eru í efsta sæti í meist-
araflokki karla og kvenna hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur. Sigur-
jón Amarson, sem lék á 70
höggum í gær, hefur forystu i
karlaflokki með 144 högg og
Herborg systir hans hefur leikið
best af kvenfólkinu — hefur
notað 159 högg fyrstu tvo dag-
ana. Ragnhildur Sigurðardóttir
er önnur með 161 högg.
Þess má geta að faðir Sigur-
jóns og Herborg, Arnar Guð-
mundsson, er í tíunda sæti í 1.
flokki.
Ragnar Ólafsson er annar í
meistaraflokki með 151 högg.
dóttir, Val, Arney Magnúsdóttir,
Val, Helena Ólafsdóttir, KR, Guð-
rún Jóna Kristjánsdóttir, KR,
Kristrún Heimisdóttir, KR, Sigrún
Óttarsdóttir, UBK, Ásta B. Gunn-
laugsdóttir, UBK, Karítas Jónsdótt-
ir, Þrótti Nes., Amdís Ólafsdóttir,
KA, íris Steinsdóttir, ÍA, Auður
Skúladóttir, Stjörnunni.
Aðgangur á leikina er ókeypis.
KNATTSPYRNA / KVENNALANDSLIÐ
Leikið við Þjódverja í kvöld