Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 4
I MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991 Opinber heimsókn forseta íslands til írlands: Ast á bókum og kímnigáfa - sagði Mary Robinson Irlandsforseti að sameinaði þjóðirnar tvær Dyflinni. Frá Páli Þórhallssyni blaðamanni Morgunblaðsins. VIGDÍS Finnbogadóttir forseti íslands kom í gær í sína fyrstu opin- beru heimsókn til írlands. Hér dvelur hún í þrjá daga í boði Mary Robinson sem kjörin var forseti írlands fyrir tæpu ári. Mary Robinson og eiginmaður hennar, Nikolas Robinson, ásamt Gerald Collins utanríkisráðherra, tóku á móti Vigdísi á Dyflinnarflug- velli á hádegi í gær. Þar var heiðurs- vörður hermanna kannaður, hleypt var af 21 fallbyssuskoti _og þjóð- söngvar landanna leiknir. í för með forseta íslands er Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og eiginkona hans, Bryndís Schram. Frá flugveilinum var ekið að embættisbústað forseta írlands. Skipst var ágjöfum og færði Vigdís írlandsforseta Hattasölu, málverk eftir Karólínu Halldórsdóttur. Frú Robinson færði Vigdísi bronsstyttu af löxum að stökkva í ánni Moy eftir Colin Brennan. Sagðist Robin- son hafa alist upp á bökkum fljóts- ins og séð laxana stökkva þar og því hefði hún valið þessa gjöf. Að loknum hádegisverði gróðursetti Vigdís birkihríslu í garði embættis- bústaðarins. Þar hafa mörg fyrir- menni plantað tijám frá heimalandi sínum, eins og t.d. Viktoría Eng- landsdrottning. Síðdegis lagði for- seti íslands blómsveig að leiði her- manna í minningargarðinum í mið- borg Dyflinnar og fylgdu henni vamarmálaráðherra írlands og for- seti írska herráðsins. Að því búnu skoðaði hún menjar frá víkingatím- um á þjóðminjasafni írlands sem grafnar hafa verið upp á bökkum Liffey-fljóts en Dyflinni varð til sem kaupstaður víkinga. Frá safninu var gengið um miðborgina og setti það skemmtilegan svip á heimsóknina að vegfarandi færði forseta íslands blóm að gjöf. Fyrsta degi hinnar opinberu heimsóknar lauk með kvöldverði í Dyflinnarkastala í boði írsku for- setahjónanna. Við það tækifæri sagði Mary Robinson að það væri henni, fyrstu konunni í forsetaemb- ætti á Irlandi, sérstakt ánægjuefni að bjóða velkomna fyrstu konuna sem varð forseti lands síns í kjölfar lýðræðislegra kosninga. Frú Robin- son sagði að íslenskar fornsögur væru vel þekktar á írlandi, nefndi hún einnig að einn af sonum ís- lands væri Leifur Eiríksson sem fann Vínland fimm öldum á undan Kólumbusi „en ef til vill ekki á undan heilögum Brendan okkar“. Forsetinn vísaði til sagna um að papar, írskir munkar, hefðu komið til íslands á undan norrænum mönnum. Eftir að hafa kynnst for- seta íslands og landi hennar þar með sæi hún ástæðu tii að harma sviplegt brotthvarf þeirra. Frú Robinson sagði að nú á dög- um sameinaði ást á bókmenntum, kímnigáfa og iifandi andi þjóðirnar tvær, eyjaskeggjana í Norður-Atl- antshafí. I DAGkl. 12.00 / / Heímild: Veöurstola íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.151 gær) VEÐUR I/EÐURHORFUR í DAG, 3. OKTÓBER YFIRLIT: Um 500 km suðsuðvestur af Vestmannaeyjum er 865 mb. vaxandi lægð, sem hreyfist norðaustur og fer hún með suðaust- urströndinni í nótt og í fyrramálið. SPÁ Norð-austan 7-10 vindstig og skýjað um allt land. Slydda eða rigning norðanlands, sums staðar skúrir syðra. Hiti 0-8 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG:Hvöss norðanátt og kalt. Él norðanlands, en að mestu þurrt syðra. HORFUR Á LAUGARDAG:Hæg vestlæg átt og léttskýjað um aust- anvert landið. Þykknar upp með vaxandi suðaustan átt og fer að rigna vestanlands. Hlýnandi veður. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. 1 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður »/--Sf TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / # Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 7 léttskýjað Reykjavik 4 skýjað Bergen 9 skúr Helsinki 12 skýjað Kaupmannahöfn 12 skúr Narssarssuaq 0 skýjað Nuuk +2 léttskýjað Osló 13 léttskýjað Stokkhólmur 10 skúr Þórshöfn 9 skýjað Algarve 25 heiðskírt Amsterdam 15 hálfskýjað Barcelona 22 léttskýjað Berlín 12 skur Chicago 17 skýjað Feneyjar 22 þokumóða Frankfurt 13 rigning Glasgow 12 rlgnlng Hamborg 13 skúr London 16 léttskýjað LosAngeles 19 heiðsklrt Lúxemborg 13 skýjað Madríd 20 léttskýjað Malaga vantar Mallorca 25 skýjað Montreal 12 skúr NewYork 19 alskýjsð Orlando 23 alskýjað París 15 hélfskýjað Madeira 24 skýjað Róm 24 skýjað Vín 15 alskýjað Washington 18 þokumóða Winnlpeg 5 skýjað Morgunblaðið/Þorkell Nemendur á flugliðabraut FS afhenda Olafi Arnarsyni, aðstoðar- manni menntamálaráðherra, áskorun um að kennsla hefjist sem fyrst. Flughðabraut Fj ölbrautarskólans á Suðumesjum: Bjartsýni á að kennsla hefjist á næstu dögum NEMENDUR á flugliðabraut við Fjölbrautarskólann á Suðurnesjum aflientu Olafi Arnarsyni aðstoðarmanni menntamálaráðherra bréf í gær þar sem þeir mótmæla harðlega Iokun flugliðabrautar skólans. Olafur gaf nemendunum það loforð að þeir þyrftu ekki að bíða til áramóta eftir að hefja nám á flugliðabraut. Hann sagði að mál nemend- anna yrði leyst næstu daga. í bréfí nemendanna segir: „Við höfum flestir, ef ekki allir, gert ýms- ar ráðstafanir vegna hins væntan- lega náms, t.d. tekið húsnæði á leigu, sagt upp störfum sem við eigum ekki afturgegnt í, gert Qárhagsráð- stafanir og tekið á okkur skuldbind- ingar. Við teljum það óvetjandi vinnubrögð að ioka þessari braut fyrirvaralaust án þess að nokkuð hafi verið gefgið í skyn áður að á slíku mætti vera von. Ef svo heföi verið gert hefðu a.m.k. sumir okkar innritað sig í Háskóla íslands eða aðra skóla sem nú er of seint að gera. Það er því krafa okkar að þetta mál verði leyst nú þegar svo að eðli- leg kennsla megi hefjast." Steinþór Páll Ólafsson, úr Borg- arnesi, er einn þeirra er gengu á fund aðstoðarmanns menntamála- ráðherra. „Eg hef leigt herbergi hér í bænum frá því ágúst til áramóta og greitt um 100 þúsund kr. í leigu. Ég hef gert fjárhagslegar ráðstafan- ir til að fjármagna þetta nám í vet- ur. Við erum tíu nemendur utan af j landi sem erum í svipaðri stöðu og sumir jafnvel enn verr staddir en ég. Þetta setur allt úr skorðum, ég var hættur í vinnu og það eru ekki nærri allir sem geta snúið aftur til sinnar fyrri vinnu. Við áttum alls ekki von á þessu. Skólinn átti upphaflega að hefjast 16. september en vegna breytinga átti að flytja kennsluna í einn flugskóla og vegna þess var skólasetningu frestað um hálfan mánuð. Svo fengum við bara skeyti um hádegi á mánudag að náminu yrði frestað um ótiltekinn tíma,“ sagði Steinþór. Nefnd skipuð fulltrúum mennta- málaráðuneytis, samgönguráðuneyt- is, Flugmálastjórnar og fleiri aðila, j sem er ætlað að finna lausn á þessu máli og leggja fram tillögur um framtíðarskipan atvinnuflugnáms, | fjallaði um málið á fundi í gærdag. Þórhallur Jósefsson, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, kvaðst bjart- i sýnn á að lausn fyndist á málinu og kennsla gæti hafíst í næstu viku. Bretar taka Halcion - svefnlyf úr umferð: Beðið með ákvörðun hér uns líður á vikuna London. Reuter. BRESKA heilbrigðisráðuneytið lét í gær taka Halcion-svefnlyf og svokölluð Triazolam-lyf úr umferð en ráðuneytið segir ávinning af neyslu þess mun minni en hættuna á alvarlegum aukaverkunum. Lyfið er hér á markaði og í framhaldi af ákvörðun breta var Lyfjanefnd ríkisins falið að meta það hvort taka bæri það úr notkun hér. í frétt frá ráðuneytinu segir að lyfíð innihaldi virkt efni sem ber nafnið Triazolam en neysla lyfja af því tagi fylgdu miklu hærri tíðni sálrænna aukaverkana, einkum minnisleysi og þunglyndi. Halcion-svefnlyfíð er á lyfjaskrá í rúmlega 90 löndum en það er fram- leitt af bandaríska fyrirtækinu Upjohn. Forstjóri þess vísaði því á bug í gær að neysla lyfsins gæti haft í för með sér alvarlegar geð- rænar truflanir. Engar vísindalegar eða læknisfræðilegar niðurstöður lægju fyrir hendi er styddu þá full- yrðingu breskra heilbrigðisyfírvalda eða réttlættu að apótekum væri gert skylt að taka það úr umferð. Ólafur Ólafsson landlæknir skýrði Morgunblaðinu frá því í gær, að Halcion-svefnlyfið væri hér á mark- aði en þó einungis veikustu tegund- ir þess. í framhaldi af ákvörðun Breta hefði landlæknisembættið tekið málið upp við heilbrigðisráðu- neytið í Reykjavík. Ákveðið hefði verið'áð vísá máíinu tillyfjanefndar ríkisins og á grundvelli niðurstöðu hennar yrði ákveðið síðar í vikunni hvort lyfíð verði tekið úr umferð hér á landi. ’ Ólafur sagði að breska landlækn- isembættið hefði ráðlagt notendum Halcion-lyfsins að hætta neyslu þess ekki skyndilega því það gæti haft í för með sér aukaverkanir svo sem kvíða og svefnleysi. Handtekinn í Hollandi með l,5kgaf hassi Fíkniefnalögregla í Amsterd- am handtók um helgina 35 ára gamlan Islending á Schiphol- flugvelli með 1,5 kg af hassi inn- an klæða. Maðurinn var á leið til íslands með fikniefnin. Að sögn Björn Halldórssonar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar var maðurinn að stíga um borð í Flug- leiðavél þegar hann var handtekinn. Hann var yfirheyrður af hollensku lögreglunni og kom hingað til lands á þriðjudag. Hann var yfirheyrður við komuna hingað og átti Bjöm von á að óskað yrði eftir frekari gögnum að utan um mál mannsins. Hann hefur ekki áður komið við sögu fíkniefnamála hér á lándi. .t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.