Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 3. OKTOBER 1991 35 Minning: Krisíján Guðmundsson framkvæmdastjóri Fæddur 6. september 1917 Dáinn 21. september 1991 Þegar Kristján Guðmundsson varð 70 ára skrifaði undirritaður i afmælisgrein um hann í Morgun- blaðið. Voru þar þakkir frá spilafé- lögum hans um árabil. Það var létt yfir Kristjáni við spilaborðið, hvort sem hann vann eða tapaði. Þegar hann varð sjötugur fagnaði hann afmælinu á heimili sínu með ijöl- skyldu sinni. En heilsu Kristjáns var þannig varið, að hann þurfti að vera undir eftirliti lækna. Síðustu þrjú árin dvaldi hann á deild 3LA Landspítaláns. Þaðan átti hann ekki heimkomu auðið. Kristján var Reykvíkingur. For- eldrar hans voru Guðmundur Hall- dórsson og Símoninna Guðleifsdótt- ir. Móðir hans lést af völdum spönsku veikinnar 1918. Þá ólst ( hann upp hjá stjúpu sinni Vigdísi Valgerði Jónsdóttur. Arið 27. maí 1939 kvæntist Krist- I ján Bergþóru Jóhannsdóttur. For- eldrar hennar voru þau kunnu hjón, Jóhann Ögmundur Öddsson og Sig- | ríður Halldórsdóttir. Voru þau vel þekkt fyrir bindindisstörf. Nafn Jó- hanns tengdist einkum bókabúð Æskunnar og barnablaðinu Æsk- unni, sem kom fyrst út 1897. Þetta blað er óþarft að kynna og er ekki aðeins vinsælt meðal íslendinga, en hefur vakið athygli margra útlend- inga fyrir fádæma gott útlit og inni- hald. Kristján veitti forstöðu um skeið skógerð hjá Lárusi G. Lúðvíkssyni. Síðar stofnaði Kristján skógerð ásamt bróður sínum Sigmari. Á mikilli iðnsýningu í Iðnskólanum á Skólavöruðustíg árið 1952 höfðu þeir bræður myndarlega sýningar- deild. En vegna harðrar samkeppni í erlendis frá urðu þeir að leggja nið- ur skógerðina. Jóhann Ögmundur Oddsson lét ( af störfum sem forstjóri bókabúðar Æskunnar árið 1961. Kristján tók þá síðar við rekstrinum, sem hann | hafði kynnt sér áður. Hann reyndist þegar þeim vanda vaxinn að taka við þessu þríþætta starfi, umsjón með bóka- og ritfangaverslun, af- greiðslu barnablaðsins Æskunnar og bókaútgáfu. Fyrir allmörgum árum fluttist bókabúðin úr Kirkjuhvoli og bóka- útgáfan úr Lækjargötu að Lauga- vegi 56. Kristján reyndi að halda í horfinu í sambandi við bókaútgáf- una. Merkisrit voru gefin út á veg- um Æskunnar. Má t.d. nefna rit- safn Sigurbjörns Sveinssonar og Ævintýri H.C. Andersen. Þá var og vel tekið erlendum ævintýrum, sem síðar voru oft endurútgefin. Kristján gaf út fyrstu bók hins vinsæla höf- undar unglinga, Eðvat'ðs Ingólfs- sonar, sem síðar varð ritstjóri Æsk- unnat' ásamt hinum kunna Karli Helgasyni. Ungur að árum varð Kristján liðs- maður Góðtemplarareglunnar. Svo undarlega vildi til, að árið sem Krist- ján fæddist var aðeins einn maður í fangelsi á laridinu. Þá var vínbann í gildi. Kristján og Bergþóra voru samhent í starfí. Stúka þeirra, Vík- ingur, var öflug um áraraðir og einnig starfaði barnastúkan Unnur á vegum Víkings í mörg ár. Kristján veitti þingstúku Reykja- víkur forstöðu um árabil. Hann var einn af brautryðjendum á Jaðri í Heiðmörk, þar sem Þingstúkan reisti veglegt hús. Síðar varð að láta það af hendi vegna vatnsbóls við nágrenni höfuðstaðarins. Kristj- án var formaður Jaðarstjórnar um tvo áratugi. Þá átti hann einnig sæti um sinn í framkvæmdanefnd Stórstúku íslands og í húsráði Templarahallarinnar við Eiríksgötu. Mikil mannaskipti urðu við fyrir- tæki Æskunnar um áramótin 1984. Þá tók Kristján tii starfa við bóka- safn IOGT. Svo viidi til, að safnið hafði verið geymt í kjallara Templ- arahallarinnar við Eiríksgötu, en var vegna þrengsla flutt upp á 3. hæð. Það var alls ekki auðvelt verk að koma safninu fyrir á nýja staðnum. Þann vanda leysti þó Kristján með prýði. Safnið geymir að sjálfsögðu mörg handrit, prentaðar bækur um bindindismál, innlendar og erlendar, ennfremur allflestar útgáfubækur Æskunnar og gömul og ný bind- indisblöð. Kristján og Bergþóra áttu barna- láni að fagna og börn þeirra eru: Jóhann, aðalgjaldkeri hjá Olís, kvæntur Agneth, menntaskólakenn- ara, þau eiga tvær dætur, Lindu og Helgu; Nína Valgerður, gift Garðari Gislasyni, tannlækni, og eiga þau eina dóttur, Bergþóru Kristinu; Sig- urður Halldór, verslunarmaður; Guðmundur Kristján, stárfsmaður hjá Olís; Kjartan Oddur, banka- . starfsmaður, kvæntur Júlíönu Harð- ardóttur, sjúkraliða. Barnabörnin eru fjögur að tölu. Við spilafélagarnir vottum Berg- þóru og aðstendunum einlæga sam- úð. Ólafur F. Hjartar „Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bakvið dimma dauðans nótt“. Þessar hendingar sálmaskáldsins komu fyrst fram í huga minn, þegar mér barst sú fregn, að Kristján Guð- I I I BB frá Múlalundi... . þær duga sem besta bók. Múlalundur SÍMI: 62 84 50 HRAÐLESTRARNÁMSKIIÐ •k Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina? * Vilt þú verða mikið betri námsmaöur og auðvelda þér nám- ið með auknum lestrarhraða og bættri námstækni? * Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum? •k Vilt þú hafa betri tíma til að sinna áhugamálunum? Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax. Næsta námskeið hefst laiigardaginn 5. október. Skráning í síma 641091. Ath.: Óbreytt verð frá síðasta vetri. VR og mörg önnur félög styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum. HRAÐLESTRARSKOLINN rtl 10 ÁRA s H ú fást vagnar með nýrri vindu par sern moppan er undin með éinu handtaki án þess að taka purfi hana af skaftinu. Moppan fer alveg inn í horn og auðveldlega undir húsgögn. Einnig erhún tilvalin í veggjahreingerningar. Þetta þýðir auðveldari og betri þrif. hágkmmrá! IBESTAI Nýbýlavegi 18 Sími 641988 ' KENWOOD RAFMAGNSPANNAN HENTAR VEL í MARGSKONAR MATARGERÐ KAUPTU KENWOOD Á Kfí. 9.474 Cetetherm ...koma í veg fyrir tæringu á ofnakerfum,frostskemmd á snjóbræóslukerfum og tryggja gott neysluvatn. Hjá okkur færdu vióurkennt efni til pípulagna. ■ 101 ISIEIFUR JONSSON -með Þér i veitun vatns- ■ •IISITI 4 llHI é■•3 4• ingu Templarahallarinnar í Reykja- vík, þá kom hann þar mjög við sögu og lengi var hann formaður húsráðs á þeim bæ. Árið 1961 hóf Kristján starf hjá tengdaföður sínum Jóhanni Ögmundi Oddssyni, við bókaverslun Æskunn- ar. En Jóhann hafði, svo sem kunn- ugt er, starfað á vegum reglunnar við bókautgáfu og bókaverslun um áratugi. í fyrstu sinnti Kristján aðal- lega verelunarstörfum, en eftir lát tengdaföður síns árið 1964 tók hann alfarið við fyrirtækjúnum og gerðist framkvæmdastjóri þeirra, því starfí gegndi hann af umhyggju og fórn- fýsi, alúð og festu, allt til ársins 1984. Þá var nokkur vanheilsa tekin að gera vart yið sig hjá honum. Ekki var þó störfum hans fyrir regl- una enn að fullu lokið. Hann gerðist umsjónarmaður bókasafns templara og vann því mikið og gott starf af sinni eðlislægu alúð og snyrti- mennsku til ársins 1987, er hann stóð á sjötugu. Kristján var mikill hamingjumaður í einkalífí sínu. Hann var, svo sem fyrr segir, tengdasonur Jóhanns Ögmundar Oddssonar, hins þjóð- kunna og mikilhæfa mannvinar. Kona hans var Bergþóra Jóhanns- dóttir, góð kona og glæsileg. Hún lifir mann sinn. Þau gengu í hjónaband 27. maí árið 1939, settust að í Reykjavík og hafa átt þar heima alla sína samleið- artíð, síðast að Neshaga 13. Þau eignuðust 5 börn, 3 eru barnabörnin orðin og 5 barnabarnabörn. Öll eru þau á lífi, mannvænlegur hópur, sem veitti hamingusömum foreldrum ómælda hamingju og gleði. Síðustu 4 árin sem Kristján lifði var hann mikill sjúklingur. Lengst af þess tíma var hann á sjúkrahúsi. Ástvinir hans lögðu sig fram við að veita honum þann stuðning og þa' umhyggju sem í mannlegu valdi stóð. Þar var eiginkonan, heilladísin góða í lífi hans, fremst í flokki. Hún sat við sjúkrabeðinn traust og kærleiks- rík, hvenær sem þess var kostur, allt þar til yfír lauk. Persónulega og í nafni Stórstúku íslands þakka ég Kristjáni, sem var einn af heiðursfélögum okkar, fyrir skelegga baráttu í þágu bindindis- hugsjónarinnar, drengskap og trú- mennsku í hvetju handtaki, hverri liugsun, sem reglunni var heiguð. Ástvinum öllum sendi ég hlýjar og einlægar samúðarkveðjur og bið þeim blessunar Guðs á komandi tíð. Kristjáni, okkar kæra bróður, sam- fagna ég í þeirri trú að nú sé „sólin björt upp runnin á bakvið dimma dauðans nótt“. Og fram til endur- funda vil ég horfa, þegar það verður að veruleika, sem skáldið og bindind- ismaðurinn forðum sá, er hann sagði: „Þar stýrir sá fundi er stóð oss við hlið í slarfinu, ríkari og máttugri en við“. Björn Jónsson stórtemplar mundsson, fyrrverandi framkvæmd- astjóri Bókabúðar og Bókaútgáfu Æskunnar, væri látinn. Ég vissi, að hinsta stríð hans var bæði hart og strangt, baráttan lamandi þung og löng. En með æðruleysi og hugarró horfði hann fram til þess er verða vildi. Hann átti þá björtu vissu í barmi geymda, að á bakvið dauðans niðdimmu nótt ljómaði alheiður ei- lífðardagur. Kristján Gumundsson var Reyk- víkingur að ætt og uppruna, fæddur 6. september árið 1917. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Hall- dórsson og Simonína Guðleifsdóttir. Var hann yngstur af fjórum börnum þeirra hjóna. Ekki fékk hann lengi að njóta móður sinnar. Hún andaðist úr spönsku veikinni árið 1918 og sama daginn dó bróðir Kristjáns, sem þá var fjögurra ára. Sjálfur varð Kristján þá svo mikið veikur, að um tíma var honum vart hugað líf. Nokkru síðar kvæntist Kristján öðru sinni. Síðari kona hans var Vig- dís Valgerður Jónsdóttir, hin ágæt- asta kona. Gekk hún Kristjáni í móðurstað og reyndist honum ekki síður en sínum eigin börnum. En hálfsystkini Kristjáns urðu þrjú tals- ins. I dag er ein alsystir og tvö hálf- systkini á lífí. Kristján var vel gefínn og vel gerð- ur til líkama og sálar. Hann stund- aði nám í Verslunarskóla Islands og lauk þaðan verslunarprófi. Að því loknu fór hann að vinna fyrir sér. Hann stofnaði fyrirtækið Skógerð K.G. Guðmundssonar og rak það ásamt bróður sínum um margra ára skeið. Snemma gerðist Kristján virkur í starfi Góðtemplarareglunnar. Þegar reglan hóf sitt mikla uppbyggingar- starf á Jaðri árið 1938 var hann þar í hópi brautryðjenda. Og formaður Jaðarsstjómar var hann um langt skeið. Þegar hafist var handa við bygg- HJETTID AÐ BOGRA VID ÞRIFIN! JA NU SKIL EG ERT ÞÚ AO FARA í FEROALAC EOA í TUNCUMÁLANÁM ? Ú ú (SLENSKA. DANSKA. ENSKA. FRANSKA. ÞÝSKA. SPÆNSKA ALLT i SÖMU TÖLVUNNI. YFIR 3000 ORÐ OG ORÐA- SAMBÖND Á HVERJU HINNA SEX TUNGUMÁLA SEM TÖLVAN BÝR YFIR FÆST UM LAND ALLT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.