Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991 17 Þegar „fáknum“ var hleypt út fyrir borgarhliðið eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur Eftir að hafa verið samtíða Dav- íð Oddssyni á vettvangi borgarmála er óneitanlega athyglisvert að fylgj- ast með framgöngu hans í embætti forsætisráðherra. Tekst „fáknum" - svo vitnað sér til orða Indriða G. Þorsteinssonar fyrir nokkrum árum - að feta öll þau einstigi sem á vegi hans verða, rata um hinar dreifðu byggðir landsins og komast þangað sem hann ætlar sér án þess að spæna upp allan svörð? Eða tap- ar hann áttum þegar hann kemur út fyrir verndað umhverfi borgar- stjórnar Reykjavíkur? Mega menn skjóta út í loftið? Meðan Davíð Oddsson réð Reykjavíkurborg bentu andstæð- ingar hans margsinnis á veilurnar í stjórnarháttum hans og ýmislegt sem betur mætti fara í fjármála- stjórn borgarinnar. Eitt af því sem þeir og fleiri hafa hamrað á allt frá haustinu 1987 er sú fásinna að byggja ráðhús í Tjörninni og alla tíð hefur verið bent á að kostnað- aráætlanir vegna byggingarinnar væru með öllu óraunhæfar. Þær væru með öðrum orðum „skot út í loftið" eins og Davíð Oddsson viður- kennir sjálfur. Um þetta er í sjálfu sér ekki ágreiningur heldur um hitt, hvort stjórnvöld geti leyft sér að leggja út í milljarða fjárfestinu á grund- velli áætlana sem eru „skot út í loftið". Davíð Oddsson telur svo vera og segir að kostnaðurinn við ráðhúsið hafi ekki ráðið úrslitum þegar merihluti borgarstjórnar samþykkti að ráðast í bygginguna. Svona geta menn sagt sem byggja fyrir eigið fé en ekki ef þeir sækja það í vasa skattgreiðenda. Almenn- ingur á kröfu á því að fá sem rétt- astar og bestar upplýsingar um öll mál og má þá einu gilda hvort þau standa hjarta ráðamanna nær eða fjær. Núverandi forsætisráðherra og fyrrverand. borgarstjóri er, ásamt samflokksmönnum sínum í borgar- stjórn Reykjavíkur, ábyrgur fyrir tveimur framkvæmdum upp á sam- tals 5 milljarða króna sem báðar fóru 100% fram úr áætlun. Ástæðan er sú sama í báðum tilvikum; það var hafíst handa án þess að fyrir lægju endanlegar teikningar, hvað þá vandaðar fjárhags- og fram- kvæmdaáætlanir. Eða eins og fram- kvæmdastjóri Verktakasambands Islands sagði í DV í síðustu viku: „ ... forsendur voru mjög á reiki þegar lagt var af stað“. Menn að skapi borgarstjóra voru valdir í byggingamefndir þessara húsa og til að fullnægja metnaði sínum og hans var ekkert til sparað og oftar en ekki farið yfir lækinn til að sækja vatn. í ofanálag hafa iðnaðarmenn svo verið látnir leggja nótt við dag til samræmis við þann grátbroslega og barnalega leik fyrr- verandi borgarstjóra að taka mann- virkin í notkun á tilteknum tíma á tilteknum degi. Má í því sambandi minna á að nákvæmlega sami hátt- ur var hafður á við endurbætur Viðeyjarstofu og þar var sama sjálf- taka í borgarsjóði viðhöfð. Kvartað undan slj órnarandstöðu Fjölmiðlar hafa fjallað talsvert um Perluna og ráðhúsið á undan- förnum dögum og vikum. í kvöld- fréttum Ríkisútvarpsins á föstudag- inn var rætt við Davíð Oddsson um kostnað við ráðhúsið og brást hann ókvæða við. Taldi hann gagnrýni á framkvæmdina runna undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna sem væru að reyna að koma á sig höggi. Auðvitað eiga pólitískir andstæð- ingar Davíðs Oddssonar sinn þátt í því að vekja upp umræðu um þessi mál enda ber þeim skylda til þess. Það er í verkahring stjórnarand- stöðu, í borgarstjórn sem á þingi, að fylgjast með meðferð opinbers íjár og veita stjórnvöldum aðhald. Það stoðar lítt að væla þó hún ræki þetta hlutverk sitt. En ástæðan fyrir því að kostnað- ur við ráðhúsbygginguna kemst nú í hámæli er ekki sú að andstæðing- ar Davíðs Oddssonar hafi skyndi- lega komið fram með nýjar upplýs- ingar. Andstæðingar ráðhússins hafa æ ofan í æ bent á að kostnað- urinn við það væri kominn langt fram úr öllum- áætlunum - ekki síst þeirri sem fyrst var gerð og fylgdi tillögu Davíðs Oddssonar um að byggt yrði „ráðhús fyrir Reykja- víkurborg skv. teikningu þeirri, sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Um þetta er í sjálfu sér ekki ágreiningur held- ur um hitt, hvort sljórn- völd geti leyft sér að leggja út í milljarða fjárfestinu á grundvelli áætlana sem eru skot út í loftið.“ hlaut 1. verðlaun í samkeppni um bygginguna". Geislabaugur gufar upp á landsfundi Það eina sem er nýtt í þessu máli er að það er komin glufa í þann þagnar- og varnarmúr sem hefur umlukið Davið Oddsson. ■ KEPPNI í drengja og telpna- flokki (fædd 1976 og síðar) verður dagana 4.-6. október nk. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad- kerfi og er umhugsunartími 40 mín. á skák fyrir hvern keppanda. En næg þátttaka fæst verður sér- stakur telpnaflokkur, annars verð- ur hafður sami háttur og undanfar- in ár. Umferðir verða þannig; Föstudaginn 4. okt. kl. 19.00- Þessa glufu gerði hann sjálfur þeg- ar hann bauð sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Við það missti hann þann geislabaug sem hann hafði í augum margra flokksmanna en það er einmitt sagt að það sé einkenni á dýrlingum að enginn óvitlaus maður leggi í að gagnrýna þá. Á síðasta landsfundi Sjálfstæð- isflokksins var helgi Davíðs Odds- sonar upphafín og um leið gátu fréttamenn um frjálst höfuð strok- ið. Nú kemur gagnrýnin ekki aðeins frá pólitískum andstæðingum Dav- íðs Oddssonar heldur líka frá pólit- ískum samheijum og fjölmiðla- mönnum. Hann þarf með öðrum orðum að búa við sömu aðstæður og aðrir stjórnmálamenn og er eng- in vorkunn. Nú stendur spurningin um það hvort hann þarf að standa ábyrgur gerða sinna eins og annað fólk. Fyrst ég fór á annað borð að vitna til Tímaritstjórans í upphafi þessarar greinar, þá er rétt að halda þeim ummælum hans til haga að pólitískir andstæðingar Davíð Oddssonar mættu vara sig þegar „fáknum yrði hleypt út fyrir borgar- hliðin". Nú kann vel að vera að þetta verði að áhrínisorðum en kannski rætast þau ekki á þann veg sem spámaðurinn taldi líklegastan. Mér segit' svo hugur að bæði póli- tískir andstæðingar og samhetjar Davíðs Oddssonar megi vara sig ef hann ætlar að viðhafa sömu stjórn- arhætti og flottræfilshátt á ríkis- heimilinu og tíðuðust á borgarheim- ilinu meðan hann var þar í forsvari. Höfundur er þingmaður Kvennalistans íReykjavík og fyrrverandi borgarfulltrúi. 23.00 1., 2. og 3. umf., laugardag- inn 5. okt. kl. 13.00-18.00 4., 5. og 6. umf.. og sunnudaginn 6. okt. kl. 13.00-18.00 7., 8. og 9. umf. Teflt verður í Faxafeni 12 í Reykjavík. Þátttökugjald er kr. 800. Innritun fer fram á skákstað föstudaginn 4. okt. kl. 18.30- 18.55. Skákstjóri verður Ólafur H. Ólafsson. (Fréttatilkynning) ÖÐRUM TIL FYRIRMYNDARI DAF er nú meö vinsælustu flutningabílum hérlendis og meðal fyrirtækja, sem valið hafa hann eftir rækilegan samanburð við aðra bíla má nefna: Gosan, Kornax og Sölufélag garðyrkjumanna. DAF bílarnir eru sérlega vandaðir, burðarmiklir miðað við eigin þyngd og allur aðbúnaður ökumanns einstaklega góður. Við eigum DAF 400 sendibíla til afgreiðslu STRAX og útvegum aðrar gerðir með örskömmum fyrirvara. V.JE.S, Fosshálsi 1 S 67 47 67 GENERAL ELECTRIC S I L I K 0 N GE Silpruf silikon er einþótta sýrulaust þéttiefni til notkunar við byggingaframkvæmdir, glerjun og fleira. Þolir vel veðrun, útf jólubláa geisla og hitabreytingar Togþol +/- 50 % FÆST í FLESTUM BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM GE SILIKON, ÞÉTTING TIL FRAMBÚÐAR GE Silicones I V I' III—IMIlHi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.