Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991 Alþýðusamband Norðurlands; Deildarskipt yrði ASÍ skilvirkara og ódýrara Fámenn stéttarfélög hugi að sameiningu ÞING Alþýðusambands Norður- lands, sem haldið var á Illugastöð- uin nýlega leggur til að tekin verði upp umræða innan verkalýðs- hreyfingarinnar um hvort leggja beri niður öll landssambönd innan Alþýðusambans Islands. í stað landssambanda verði ASI deildar- skipt eftir starfsgreinum og starf- semi þess aukin. Slíkt kerfi yrði Biskupinn vísiterar Ólafsfiörð Ólafsfirði. BISKUPSIIJÓNIN, frú Ebba Sig- urðardóttir og herra Ólafur Skúl- ason, heimsóttu söfnuðinn í Ólafs- firði sl. sunnudag á vísitasíuferð biskups um Norðurland. Með í förinni var séra Birgir Snæbjörns- son prófastur. Fjölmenni tók á móti biskupshjónum og prófasti, en Ólafsfirðingar fagna um þessar mundir 75 ára vígsluafinæli Ólafs- fjarðarkirkju. I heimsókn sinni skoðaði biskup kirkjur og kirkjugarða í firðinum, kirkjumuni og aðrar eignir kirkjunn- ar og átti fund með sóknarnefnd og sóknarpresti, séra Svavari A. Jóns- syni. Hann predikaði við messu í Ólafsfjarðarkirkju og sat að messu lokinni kaffisamsæti með hundruð- um Ólafsfirðinga í tilefni heimsókn- arinnar og 75 ára afmælis kirkjunn- ar. Jón Þorsteinsson óperusöngvari söng einsöng með kirkjukór Ólafs- fjarðarkirkju, bæði við messuna og í samsætinu að messu lokinni. Söfnuðurinn í Ólafsfirði stendur í stórræðum um þessar mundir. í til- efni af kirkjuafmælinu kom út hljóm- plata þar sem Ólafsfirðingurinn Jón Þorsteinsson óperusöngvari syngur '16 sálmalög við undirleik Harðar Askelssonar. Er mikill fengur að þessari hljómplötu, enda flutningur ákaflega vandaður og frágangur all- ur hinn besti. Ráðgert er að fram- hald verði á þessari útgáfu. Þá hefur söfnuðurinn hafist handa við undirbúning nýrrar kirkjubygg- ingar. Fanney Hauksdóttir arkitekt hefur verið fenginn til að hanna nýja kirkju og sýndi hún tillögur að nýrri kirkju og líkan. Ólafsfjarðarkirkja þótti stórhýsi fyrir 75 árum, enda rúmaði hún stóran hluta bæjai'búa þegar hún var byggð. Nú er kirkjan löngu oröin of lítil og sprengir utan af sér flestar stærri athafnir. Þörfin fyrir nýja kirkju er því orðin mikil. SB bæði skilvirkara og ódýrara í rekstri, en núverandi kerfi og gera hreyfingunni betur kleift að takast á við skyldur sínar. Sani- þykkt var á þinginu á Illugastöð- um að draga verulega úr skrif- stofuhaldi á vegum AN. í ályktun frá þinginu segir, að núverandi skipulag ASÍ sé óhag- kvæmt og þrátt fyrir áratuga um- ræður um skipulagsbreytingar hafi lítið þokast í rétta átt. Skipting starfsgreina milli einstakra stéttarfé- laga sem og milli landssambanda sé óljós og núverandi skipulag taki ekki nægilega vel á þeim vanda. Þá telur þingið ekki rétt að skatt- heimta til heildarsamtaka verði aukin frá því sem nú er, en þess í stað verði lögð áhersla á að nýta þá fjár- muni sem til samtakanna renna serh best. Einnig leggur þingið áherslu á að stéttarfélög á hinum einstöku svæð- um á Norðurlandi hefji þegar undir- búning að samstarfi um þjónustu og hugsanlegri sameiningu í stærri heildir, þar sem félög eru of fámenn til að halda uppi eðlilegri starfsemi. Forsvarsmenn fámennari stéttarfé- laga eru hvattir til að hefja viðræður um þessi mál við önnur stéttarfélög í næsta nágrenni. A þinginu var samþykkt að draga verulega úr skrifstofuhaldi Alþýðu- sambands Norðurlands, en samband- ið verður áfram sameiningartákn og sameiginlegur vettvangur norð- lenskra launþega. Morgunblaðið/Rúnar Þór Ibúar og starfsfólk í stofunni í Bakkhlíð. Frá vinstri: Sigrún Geirsdóttir starfsmaður, Axel Kristj- ánsson, Jónína Jónsdóttir, Anna Þorsteinsdóttir, Ólafur Kristjánsson, Sigríður B. Sigurðardóttir og Helga Frimannsdóttir forstöðukona. Sambýli fyrir aldraða við Bakkahlíð: Rífumst bara fyrir kosningar - Segir Jónína Jónsdóttir REKSTUR sambýlis fyrir aldraða við Bakkahlíð 39 gengur vel, en starfsemin hófst í húsinu um síðustu áramót. Um er að ræða nýtt form í þjónustu við aldraða á Akureyri. Íbúar í sambýlinu eru átta og taka þeii' allir þátt í daglegum störfum á heimilinu. Til að mynda tóku íbúarnir slátur nýlega og voru allir með í sláturgerðinni. Ein kvennanna sér um að strauja allan þvott og bræður sem þar dvelja fara ætíð í verslun, en Helga Frímannsdóttir forstöðu- kona sambýlisins segir að reynt sé að finna verkefni við hæfi fyr- ir alla. „Það er alltaf eitthvað um að vera hjá okkur, við förum í ýmsar ferðir, förum í heimsóknir á Dval- arheimilin Hlíð og Skjaldai-vík og svo hefur verið mjög gestkvæmt hjá okkur líka,“ segir Helga. „Það er mjög gott að vera hérna og ágætt samkomulag um alla hluti. Við rífumst aidrei - ja, nema kanilski örlítið rétt fyrir kosningar, því það eru ekki allir sammáia um hvaða flokk best sé að kjósa,“ sagði Jónína Jónsdótt- ir, einn íbúanna í sambýlinu. Fjórir starfsmenn vinna í sam- býlinu og eru þeir við störf frá kl. 8 á morgnana til 20 á kvöidin, en engin næturvakt er í húsinu. íbúarnir eru allir tengdir við stjórnstöð Securitas ef eitthvað kemur upp á þann tíma sem ekki er vakt í húsinu. Aflaheimildir minnka um tæplega 700 tonn á Grenivík: Fólk skelfingu lostið yfir þessu og möguleikarnir í stöðunni fáir - segir Þorsteinn Pétursson framkvæmdasljóri Kaldbaks hf. „NÆSTU mánuðir eða næsta ár mun skilja á milli feigs og ófeigs í þessari atvinnugrein. Það spilar allt saman í þessu, minni kvóti, ininni tekjur, lækkandi afurðaverð og hækkandi fjármagnskostnaður," sagði Þorsteinn Pétursson framkvæmdastjóri Kaldbaks hf. á Grenivík. Afla- heimildir á staðnum minnka um 6-700 tonn á næsta kvótaári og seg- ir Þorsteinn útlitið afar dökkt framundan, ekki bara á Grenivík held- ur í öllum litlum sjávarplássum um land allt. Rekstur fyrirtækisins sé í járnum, þrátt fyrir að mikil endurskipulagiiing og hagræðing hafi verið gerð hjá félaginu vegna óhagstæðra ytri skilyrða. Á yfirstandandi kvótaári hafa skip og bátar á Grenivík veiðiheim- ildir upp á um 2.200 tonn. Þorsteinn segir það ekki duga til að halda vinnslunni í frystihúsinu gangandi allt árið, en í ár er reiknað með að um 3.000 tonn af hráefni verði unn- in í frystihúsinu. Það magn þurfi tii að halda uppi fullri atvinnu á staðnum allt árið sem og til að rekst- Háskólinn á Akureyri: Fyrirlestur um nýjar hug- myndir í heilbrigðisþj ónustu NÝJAR hugmyndir í heilbrigðisþjónustunni og framkvæmd þeirra verða til umræðu í Háskólanum á Akureyri á morgun, föstudag, en framsögu um efnið flytur dr. Dyanne D. Affonso, prófessor við Kaliforníuháskóla. . Það er heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri sem stendur að fyrir- lestrinum um þetta efni, sem mikið hefur verið til umræðu hér á landi að undanförnu. Dr. Dyanne D. Aff- onso, prófessor við Kaliforníuhá- skóla í San Fransisco, flytur fram- sögu, en hún fékk á síðasta ári um 180 milljóna króna styrk til rann- sókna á þessu efni. Að lokinni framsöguræðu verða umræður með þátttöku fulltrúa úr heil- brigðisstétt og frá stjórnmála- flokkunum. Allir sem áhuga hafa á nýjum hugmyndum í heilbrigðisþjón- ustu eru hvattir til að mæta, en fyrirlesturinn verður fluttur í stofu 24 á annarri hæð í aðal- byggingu Háskólans á Akureyri. Hann hefst kl. 16 og verður kaffi- sala á vegum stúdenta á staðnum. Dr. Dyanne D. Affonso urinn standi undir sér. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs hefur verið unnið jafn mikið magn í frystihúsinu og á öllu síðasta ári. Veltan á þessum tíma er tvöfalt meiri en hún var á liðnu ári. Þó sýnir sex mánaða uppgjör örlítið tap á rekstrinum. „Menn eru skelfingu lostnir yfír þessu ástandi, svona er þetta alls staðar og möguleikarnir í stöðunni fáir. Það er hægt að auka aflaheim- ildir, auka hlutafé, selja eignir eða selja fyrir hærra verð á mörkuðun- um, en þetta eru hiutir sem ekki er svo auðvelt að leysa,“ segir Þor- steinn. Mikil endurskipulagning hefur verið gerð hjá Kaldbaki hf. og skilað hagræðingu í rekstri, 55% veltu- aukningu á milli áranna 1989 og 1990, stjórnunarkostnaður hefur iækkað umtalsvert og skilaði fyrir- tækið 33 milljóna króna hagnaði fyrir árið 1990. „Menn hafa lagt sig alla fram uin að ná árangri, en nú setja ytri skilyrði allt úr skorðum. Markmiðið er að að halda uppi at- vinnu, en það er ljóst að ekki þýðir að reka fyrirtæki með bullandi tapi. Þá er eins gott að loka strax. Eg Iield að fólk í litlum sjávarútvegs- bæjum út um allt land sjái fram á afar dökka framtíð. Það hefur um alilangan tíma ver- ið unnið að mikilli hagræðingu í rekstri í þessari atvinnugrein, m.a. til að tryggja atvinnu á stöðunum og minnka skuldir fyrirtækjanna, en það hefur verið svínað á þessari atvinnugrein í fleiri áratugi og er ekki nema von að svona sé komið. Við höfum átt fullt í fangi með að útvega þessari þjóð eyðslufé og við stöndum ekki undir því lengur," segir Þorsteinn. -----*-+-*---- Utvegsmanna- félag Norðurlands: Aðalfundur haldinn í dag Aðalfundur Útvcgsmannafélags Norðurlands verður haldinn á Hótel KEA í dag, fimmtudaginn 3. október og hefst hann kl. 13.00. Gestir fundarins verða þeir Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Kristján Ragnarsson formaður Landsambands íslenskra útvegs- manna. Sverrir Leósson formaður Útvegs- mannafélags Norðurlands sagði að á fundinum yrði m.a. rætt um aflasam- drátt og tekjuskerðingu sem í kjölfar hans leiddi. Þá myndu menn eflaust ræða um Hafrannsóknarstofnun og tillögur fiskifræðinga, sem og hvað væri að gerast í vistkerfinu. Einnig myndu útvegsmenn ræða fijálst fis- kverð og hvað það þýddi að verð á olíu yrði gefið fijálst og loks væri mikil fjölgun hvala mönnum mikið áhyggjuefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.